Sögur og skrítlur - 15.11.1938, Page 3

Sögur og skrítlur - 15.11.1938, Page 3
Söjjur og skrhiuf í " b/ gætir komið meö viðarskíðin alveg til mín. Úr því ég hefi barist við að sjá fyrir þér í tölf ár, þá ættir þú að geta gengið þessi tvö þrjú sporin vegna hans föður þíns«. Herra Tollerup hefir nú hlaðið tvær þrjár álnir upp með vegnum. Hlaðinn er allur skakkur og grunsam- lega bambamikill. »Bara að hlaðinn velti nú ekki, góði Júlfus«, áræðir kona hans að segja. »Eg er ekki að heimta, að þú eigir að strita eins og ég«, segir herra Tollerup og lítur á hana ásökun- araugum. »Til þess hefir þú hvorki verksvit né krafta; en mér finnst nú samt, að þú ættir að minnsta kosti — barnanna vegna — að láta vera að koma meö svona vitlausar athugasemdir. Þú getur auövitað ekki gert að því, að þú fæddist f smágötu úti á Amakri og hefir ekki haft tækifæri til að litast neitt um í heiminum, en þú ættir þó að geta þagað, þegar um þau málefni er að ræða, sem þú hefir ekkert vit á. Og viðarhlaði á að vera bogadreginn aö framan, það hélt ég, að þú vissir«. »lá — en, bara að hann hafi ekki orðið of mikiö bogadreginn*, stundi frúin upp. Tollerup snyr sér snöggt að henni, en áður en hann hefir opnað munninn, heyrist heilmikill skruðningur, og viðarhlaðinn hrynur fram á gólf. Tollerup, sem hafði snúið baki við hlaöanum til þess að áminna konu sína, steypist áfram á steingólfið og lá nú flatur í miðri við

x

Sögur og skrítlur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sögur og skrítlur
https://timarit.is/publication/1668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.