Sögur og skrítlur - 15.11.1938, Blaðsíða 12

Sögur og skrítlur - 15.11.1938, Blaðsíða 12
76 Sögur og skrítlur hún gleymdi þessu aldrei síðan. Það er sumt, sem konur geta hvorki gleymt né fyrirgefið. En er dóttir hennar, sem fæddist í þennan heim fyrir 15 árum, vildi allt í einu vera 17 ára, þá tók móðirin að ruglast í reikningnum, og nú ásetti hún sér að eldast i hvelli. Á fáeinum vikum varð hún 33, 34, 36 og 38 áta, svo náði hún aftur mér, sem var á 40. ári, og hlióp svo 5 ár fram úr mér á skömmum tíma. >Já, maður fer að verða gamall*, sagði hún. »Já, en það getur engin séð á yður«. »Æ, jú, svona, er það nú. því miður«. Og nú hríðvesnaði það. Daginn eftir hafði hún elzt um 2 ár. Ekki leið á löngu, áður en dóttir hennar fór að yngj- ast aftur. Og þannig leið tíminn. í dag er ég 80 ára. Ég tek »Morgunblaðið« og les: »100 ára er í dag heiðurskonan frú Nelly fædd Gwin, og heldur enn öllum líkams- og sálar kröftum sínum óskertum. Fjöldi vina og ættingja — — — Systir mín var stórhreykin af þessu. Blaðið flutti mynd hennar og ævisögu. Hún hafði sjálf sagt frá öllu, þvf hún mundi glöggt jafnvel smáviðburði frá árinu 1848. En hún gleymdi samt því, að hún fæddist ekki fyrr en 1858, en það verður maður að fyrirgefa 100 ára konu. »Já og jæja«, sagði hún og klappaði yngstu dóttur

x

Sögur og skrítlur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sögur og skrítlur
https://timarit.is/publication/1668

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.