Sögur og skrítlur - 15.11.1938, Page 15

Sögur og skrítlur - 15.11.1938, Page 15
Sogur og skrítluf. 79 — Kanntu aö setja í gang mótorhjól? — Nei. — Þá ertu kannske svo vænn aö gá að hjólinu mínu, meðan ég er inni í búðinni, — En að hún skyldi geta gífst svona lúpulegum og mannfælnum náur.ga! — Hann var ekki svona, áður en hann giftist. — Hvernig stendur á því, að þú hefir allt af með þér tvær samanbundnar regnhlífar? — Jú, ég er svo gleyminn. Ef mér skyldi verða það á, að gleyma annari regnhlífiinni, þá hefi ég samt hina eftir. Litli bróðir kemur háorgandi inn til móður sinnar, rifinn og blóðugur í andliti, og klagar Pétur bróður sinn. Móðirin verður æst og segir ógnandi: Guö náði endann á þér, drengur minn, ef þú hefir gert þetta með ásetningi! Pétur verður dauðhræddur og er í standandi vand- ræðum. Loksins stynur hann upp: — Nei, ég gerði það ekki með ásetningi, mamma mín, — ég gerði það með nöglunum! Prestur nokkur auglysti eftlr ungum manni til jtmis- legra heimilisstarfa. Morguninn eftir kom ungur maður inn á skrifstofu hans, — Getið þér lagt í oíninn á morgnana og haft morg unverðinn tilbúinn kl. 7? spurði presturinn.

x

Sögur og skrítlur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sögur og skrítlur
https://timarit.is/publication/1668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.