Morgunblaðið - 04.02.2022, Side 1
Morgunblaðið/Eggert
Þingvallavatn Leitin hafði í gærkvöldi verið afmörkuð við syðsta hluta Þingvallavatns, Lyngdalsheiði og svæðið vestur af Úlfljótsvatni. Fjórir voru um borð í vélinni, að meðtöldum flugmanni.
Skúli Halldórsson
Ari Páll Karlsson
Umfangsmesta leit síðari ára hófst í
gær eftir að ljóst varð að lítillar flug-
vélar var saknað.
Fjórir voru um borð, flugmaður
vélarinnar auk þriggja farþega, sem
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins eru erlendir ferðamenn sem
komu hingað til lands á laugardag í
vinnuferð.
Síðast sást til vélarinnar vestur af
Úlfljótsvatni klukkan 11.45 fyrir há-
degi í gær.
Þegar Morgunblaðið fór í prentun
í gærkvöldi hafði leitarsvæðið verið
afmarkað við syðsta hluta Þingvalla-
vatns, Lyngdalsheiði og svæðið vest-
ur af Úlfljótsvatni.
„Þar er mestur þunginn miðað við
þær upplýsingar sem við höfum,“
sagði Ásgeir Erlendsson, upplýs-
ingafulltrúi Landhelgisgæslunnar.
Nota átti þyrlu Gæslunnar við leitina
til miðnættis, vegna hvíldarákvæða.
Í framhaldinu myndi ein þyrla ásamt
áhöfn vera til taks, ef þörf þætti á.
Mikill kraftur settur í leitina
Allar björgunarsveitir landsins
hafa verið kallaðar út og um sjö
hundruð manns voru við leit þegar
mest lét í gærkvöldi. „Þetta er með
fjölmennari leitum hin síðari ár, ef lit-
ið er til þess fjölda björgunarsveit-
arfólks sem tekur þátt í leitinni og
þeirra sem að henni koma. Þannig að
það er mikill kraftur settur í leitina.“
Halda átti leitinni áfram af fullum
þunga inn í nóttina, að því er Davíð
Bjarnason, upplýsingafulltrúi Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar, tjáði
Morgunblaðinu. „Það er von á versn-
andi veðri á næsta sólarhringnum og
við erum náttúrlega í kappi við tím-
ann,“ sagði Davíð á ellefta tímanum í
gærkvöldi. „Menn eru algjörlega
með augað á verkefninu og vilja bara
halda áfram af fullum þunga.“
Vélin er fjögurra sæta og af gerð-
inni Cessna C172. Hefur flugmaður-
inn nýtt hana til útsýnisflugs með
ferðamenn, eins og raunin var í gær.
Var í flugplani hennar gert ráð fyrir
tveggja tíma flugi.
Umfangsmesta leit síðari ára
- Fjögurra manna saknað eftir að
flugvél týndist um hádegi í gær
Um borð í vélinni er
íslenskur flugmaður og
þrír erlendir ferðamenn
Flugplan vélarinn-
ar gerði ráð fyrir
tveggja tíma flugi
Leit að lítilliflugvél sunnan við Þingvallavatn
Vélin lagði af stað
frá Reykjavíkurflug-
velli kl. 10.30 í gær Kl. 11.45 sást til
vélarinnar vestur
af Úlfljótsvatni
Vélin er
Fjögurra sæta
og af gerðinni
Cessna C172
Lo
ft
m
yn
d
ir
eh
f.
Björgunarsveitarbíll Um sjö hundruð manns tóku þátt í leitinni í gær.
- Versnandi veður á svæðinu og
leitarfólk í kapphlaupi við tímann
- Allar björgunarsveitir landsins
boðaðar út í allsherjarútkalli
F Ö S T U D A G U R 4. F E B R Ú A R 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 29. tölublað . 110. árgangur .
KRISTRÚN VERÐ-
UR FÁNABERI
Í PEKING
HORTENSÍUR
OG FLEIRA
SEM YLJAR
ÞARF AÐ
LÆRA AÐ
VERA LÖT
DÆTUR FRIÐRIKS 28 MARGRÉT HÆTTIR 4FIMM KEPPA Á ÓL 27