Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 04.02.2022, Síða 8

Morgunblaðið - 04.02.2022, Síða 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2022 Jón Magnússon fyrrverandi al- þingismaður segir: „Í frétt RÚV í kvöld sagði, að Akureyri vildi fá fleiri flóttamenn til sín og um leið endurskoðun og hækkun á greiðslum ríkisins til bæjarins fyrir við- vikið. Ekki kom fram hvaða samþykkt eða ályktun bæjarins var verið að vísa til. - - - Talskona Akureyrarbæjar í frétt- inni sagði að skv. rannsóknum erlendis færðu flóttamenn meira í þjóðarbúið en sem svaraði kostn- aðinum við þá. - - - Sé svo, þá þarf Akureyrarbær engan stuðning skattgreiðenda vegna móttöku flóttafólks, því það er þá fjárfesting til framtíðar. - - - Talskonan gerði enga grein fyrir hvaða kannana hún er að vísa til og þessi fullyrðing rímar illa við þær himinháu fjárhæðir, sem ná- grannalönd okkar þurfa árlega að leggja til þessara mála og raunar við líka. - - - Douglas Murray rekur þessi at- riði í bók sinni „Dauði Evr- ópu“. Þar blasir heldur betur við önnur mynd. - - - Af hverju er ekki gerð töluleg út- tekt á þessum atriðum hér, svo að talað verði út frá staðreyndum? - - - Hræddur er ég um, að þá komi upp önnur hlið á peningnum en talskonan heldur fram.“ - - - Það má vitna í „rannsóknir erlend- is“ sem eru fleiri en krækiber í víð- feðmum berjalöndum, en það bætir engu við málið. Jón Magnússon „Rannsóknir erlendis“ STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Íbúar í sveitarfélaginu Árborg hafa verið hvattir til þess að huga að sín- um enda hitaveitunnar og fara spar- lega með vatn. Auk þess hefur sund- lauginni á Stokkseyri verið lokað og verður hún lokuð fram yfir helgi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Selfossveitum en hlutverk þeirra er að tryggja afhendingaröryggi á heitu vatni í Árborg. Sigurður Þór Haraldsson veitu- stjóri segir þó að ekki sé um eigin- legan vatnsskort að ræða heldur séu þetta fyrirbyggjandi aðgerðir vegna yfirvofandi kuldatíðar. „Þetta eru vægustu aðgerðirnar í viðbragðsáætluninni að biðla til íbúa að hafa þetta í huga og við finnum strax töluverðan mun.“ Ef á þyrfti að halda mætti síðan loka sundlauginni á Selfossi til að tryggja íbúum heitt vatn. Ástæðan fyrir lokun sundlaugar- innar á Stokkseyri er sú að flutn- ingsgeta lagnar sem liggur niður á Eyrarbakka og Stokkseyri er stund- um komin að þolmörkum. „Í gegnum þessa kuldatíð ákváðum við að loka sundlauginni til þess að minnka álag- ið á kerfið í heild sinni. En þetta stendur til bóta strax næsta sumar, við erum að fara að byggja nýja dælustöð fyrir ströndina og endur- nýja lögnina í áföngum.“ Hvött til að spara vatn vegna kulda - Fyrsta skrefið í viðbragðsáætlun Selfossveitna hefur verið virkjað Morgunblaðið/Sigurður Bogi Vatnsfrek Enn er hægt að skella sér í heitan pott í Selfosslaug. Kirkjugarðasamband Íslands leggst alfarið gegn því að varðveisla og dreifing á ösku látinna einstaklinga verði gefin frjáls og að felldar verði niður núgildandi takmarkanir og skilyrði um varðveislu og dreifingu slíkrar ösku. Þetta kemur fram í um- sögn sambandsins við frumvarp Bryndísar Haraldsdóttur og fjög- urra annarra þingmanna sem leggja til að dreifing jarðneskra leifa verði gefin frjáls. Öskudreifing 0,37% af heild Fram kemur í umsögninni að á 17 ára tímabili frá því að dreifing ösku látinna á sjó eða í óbyggðum var heimiluð árið 2002 hafi borist sam- tals 133 skráningar um öskudreif- ingu á gardur.is, vefsíðu Kirkju- garðasambandsins, og það jafngildi 7,4 beiðnum á ári að jafnaði. „Á þessu tímabili létust 35.956 hér á landi og er öskudreifing aðeins 0,37% af heild. Frá síðustu aldamótum hefur hlutfall bálfara á Íslandi aukist mik- ið og voru þær um 43,7% allra útfara árið 2019 á sama tíma og hefð- bundnum greftrunum fækkaði,“ seg- ir í umsögninni. Bendir sambandið einnig á að ekki verði annað séð af þeim breytingum sem lagðar eru til í frumvarpinu en að hægt verði að geyma eða dreifa ösku látinna hvar sem er. Þannig geti askan t.d. hafnað á arinhillu eða í geymslu aðstandenda um ókomna tíð. Leitaði sambandið til systurstofn- ana á Norðurlöndum og kom í ljós að í Danmörku má einungis dreifa ösku yfir opið haf. Í Svíþjóð má dreifa ösku yfir óbyggðir, haf, stór vötn og stærri vatnsföll. Í Noregi má dreifa ösku yfir óbyggðir, haf og firði og í Finnlandi má dreifa ösku í skógum, yfir haf, vötn og á eigin landareign. Endurnýjun bálstofu brýn en gæti kostað rúmlega milljarð Í umsögninni til Alþingis bendir Kirkjugarðasambandið einnig á að önnur brýn mál bíði úrlausnar. Að- eins ein bálstofa sé nú í landinu í Fossvogskirkju og er búnaður henn- ar sagður vera gamall og þarfnast endurnýjunar, sem kalli á mikla fjár- festingu. Varlega sé áætlað að kostnaður við slíka fjárfestingu geti numið rúmlega milljarði króna. omfr@mbl.is 133 skráðar dreifing- ar á ösku á 17 árum - Kirkjugarðasambandið andvígt því að dreifing á ösku látinna verði gefin frjáls

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.