Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 04.02.2022, Síða 15

Morgunblaðið - 04.02.2022, Síða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2022 Flugtak Gæsir taka á loft vængjum þöndum frá Korpúlfsstaðavelli. Kylfingar keppast jafnan við að ná „fugli“ í golfinu, einu höggi undir pari, en í þessum kulda er ekki öfundsvert að vera fugl. Unnur Karen Fyrir rúmum tveimur árum und- irrituðu sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins og ríkið svokallaðan sáttmála um sam- göngur á höfuðborg- arsvæðinu. Sáttmál- inn inniheldur fögur fyrirheit um „um- fangsmestu sam- gönguframkvæmdir sögunnar til að flýta úrbótum á höfuðborgarsvæðinu“. Í samgönguáttmálanum skuld- binda aðilar samkomulagsins sig til að flýta tilteknum fram- kvæmdum í Reykjavík. Þar eru fyrst nefndar markvissar aðgerðir til að nýta nýjar tæknilausnir og bæta umferðarljósakerfi á höfuð- borgarsvæðinu í takt við markmið samkomulagsins. Í tilkynningu um sáttmálann á heimasíðu innvið- aráðuneytisins segir að „þegar í stað“ verði ráðist í að innleiða stafræna umferðarstýringu á höf- uðborgarsvæðinu. Þetta kemur sömuleiðis fram í útgefnu kynn- ingarefni um samgöngusáttmál- ann. Gatnamót við Bústaðaveg eru sömuleiðis á lista yfir flýtifram- kvæmdir og samkvæmt fram- kvæmdaáætlun átti þeim að ljúka á árinu 2021. Þá má einnig nefna lagningu Arnarnesvegar og gatna- móta við Breiðholtsbraut en sam- kvæmt framkvæmdaáætlun átti þeim framkvæmdum að ljúka á árinu 2021. Þetta eru gatnamót sem voru sömuleiðis í forgangi í umferðaröryggisáætlun Reykjavík- ur enda slysatíðni þar mjög há. Samkvæmt samgöngusáttmálanum er uppbygging Keldnalands mik- ilvæg til að vinna enn frekar að samnings- markmiðum og er hún því á lista yfir flýtiframkvæmdir. Markmið sáttmál- ans er að auka ör- yggi, bæta sam- göngur, minnka tafir og draga úr mengun og er samkomulagið fjármagnað að stærstum hluta með framlagi ríkisins. Það er því gríð- arlega mikilvægt að ríkið hafi virkt og öflugt eftirlit með því að staðið sé við ákvæði sáttmálans, m.a. um þær framkvæmdir sem eru í forgangi samkvæmt efni hans. Sem þingmaður Reykvíkinga hef ég því lagt fram fyrirspurn á Alþingi til innviðaráðherra um stöðu tiltekinna framkvæmda í Reykjavík. Það kemur ekki síst til af því að okkur sem hér búum dylst ekki að framkvæmdirnar eru ýmist ekki hafnar eða komnar mjög skammt á veg þrátt fyrir að þeim hafi átt að vera lokið á síð- asta ári. Eftir Diljá Mist Einarsdóttur » Það er því gríð- arlega mikilvægt að ríkið hafi virkt og öflugt eftirlit með því að staðið sé við ákvæði sáttmálans. Diljá Mist Einarsdóttir Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. dilja.mist.einarsdottir@althingi.is Hver er staða samgöngusátt- málans í Reykjavík? Alvarleg staða íbúða- markaðarins hefur mik- ið verið til umræðu und- anfarið og ekki að ástæðulausu. Staðan á þeim markaði hefur haft mikil áhrif á verð- bólgu og vexti og þar með verða áhrifin mikil á alla landsmenn. Sam- tök iðnaðarins hafa í langan tíma varað við því að þetta gæti orðið raunin. Nú þegar veruleikinn blasir við er mik- ilvægt að umræðan byggist á stað- reyndum. Hér eru sex staðreyndir um íbúðamarkaðinn: Íbúðum í byggingu fækkar mikið Íbúðum í byggingu hefur fækkað mikið síðustu ár. Þeim hefur fækkað samfellt frá mars 2019 samkvæmt nýjustu talningu Samtaka iðnaðarins á íbúðum í byggingu. Í september síð- astliðnum voru 3.387 íbúðir í bygg- ingu samkvæmt talningunni. Ekki hafa færri íbúðir verið í byggingu á höfuðborgarsvæðinu á fimmta ár eða síðan í mars 2017. Íbúðum á fyrstu byggingarstigum, þ.e. fram að fok- heldu, tók að fækka samkvæmt taln- inguSI á árinu 2018 og voru þær sögu- lega fáar á árinu 2020. VöruðuSI við því að þessi þróun myndi leiða til skorts á íbúðum síðar sem nú er raun- in. Allar hillur nánast tómar Í fyrstu vikunni í janúar voru 487 íbúðir til sölu á höfuðborgarsvæðinu en bæði fjöldi einbýla og íbúða í fjöl- býli er í sögulegu lágmarki sam- kvæmt upplýsingum frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS). Fyrir tæpum tveimur árum var fjöldinn um 2.200. Ekki hafa færri íbúðir verið í sölu frá því að mælingar hófust. Enn meiri samdráttur hefur verið í minni íbúðum en ríflega helmingur af íbúð- um í sölu er með fjögur herbergi eða fleiri. Árlega þarf allt að 4.000 nýjar íbúðir Íbúðauppbygging snýst um fólk og þarfir þess. Að mati HMS þarf að byggja 3.500 íbúðir á ári næstu árin til að mæta væntri fólksfjölgun. Byggist matið á fólksfjöldaspá Hagstofunnar. Hafa þarf í huga að fólksfjölgun hefur verið umfram spá Hagstofunnar und- anfarin ár. Ef sú þróun heldur áfram er ljóst að þörfin fyrir nýjar íbúðir verður enn meiri. Að óbreyttu er þörf- in mun meiri en framboð á næstunni. Skortur á lóðum og skipulagi Skortur á réttu lóðaframboði og skipulagi fyrir fleiri íbúðir hefur átt stóran þátt í þeim vanda sem skapast hefur á íbúðamarkaði. Strax í byrjun árs 2019 bentu Samtök iðnaðarins á að alvarleg staða væri í uppsiglingu á íbúðamarkaði og sú staðreynd raun- gerðist þegar samtökin birtu talningu sína í mars 2019. Þó að staða sveitar- félaga til að brjóta nýtt land sé misgóð er ljóst að slíkt land er til. Því er mik- ilvægt að ávallt sé fyrir hendi fjöl- breyttara lóðaframboð en hefur verið undanfarin ár svo að hægt verði að koma með skilvirkari hætti í veg fyrir alvarlegt ástand á íbúðamarkaði þeg- ar slíkt blasir við. Hagkvæmar íbúðir ekki byggðar á þéttingarreitum Rík áhersla hefur verið lögð á upp- byggingu hagkvæms íbúðarhúsnæðis en rétt lóðaframboð kemur í veg fyrir að hægt sé að mæta þeirri þörf. Þetta sýna m.a. niðurstöður könnunar með- al félagsmanna SI undir lok árs 2020 þar sem um 80% svarenda eru sam- mála því að skortur á lóðaframboði komi í veg fyrir hagkvæma íbúðaupp- byggingu. Þá svara tæp 80% því að hagkvæmt húsnæði verði ekki byggt á þéttingarreitum. Breytinga er þörf í umhverfi skipulagsmála Skipulagsferli íbúðauppbyggingar er allt of þungt í vöfum hér á landi. Of mörg mál fara of hægt í gegnum ferl- ið, skortur er á skýrum tímafrestum og hvenær von er á niðurstöðum. Taf- ir og hindranir í ferlinu auka kostnað við byggingu íbúða svo um munar og aðkallandi þörf er á innleiðingu frek- ari rafrænna ferla. Þetta kemur allt skýrt fram í samkeppnismati OECD á íslenskri ferðaþjónustu og bygging- ariðnaði frá lokum árs 2020 þar sem fram kemur að þörf er á heildarend- urskoðun á umhverfi skipulagsmála frá a til ö hvað varðar bæði ríki og sveitarfélög. Í endurskoðun á um- hverfi skipulagsmála liggja því mikil tækifæri til úrbóta fyrir íbúðamark- aðinn. Eftir Ingólf Bender og Jóhönnu Klöru Stefánsdóttur »Ekki hafa færri íbúðir verið í byggingu á höfuðborg- arsvæðinu á fimmta ár eða síðan í mars 2017. Ingólfur Bender Ingólfur er aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins og Jóhanna Klara er sviðsstjóri mannvirkjasviðs Samtaka iðnaðarins. Sex staðreyndir um íbúðamarkaðinn Jóhanna Klara Stefánsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.