Morgunblaðið - 04.02.2022, Page 17
MINNINGAR 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2022
✝
Guðrún fædd-
ist á Akureyri
20. júlí 1938. Hún
lést 20. janúar 2022
í faðmi fjölskyld-
unnar, eftir stutt
veikindi. Hún var
einkadóttir
hjónanna Ingileifar
Ágústu Jóhann-
esdóttur og Hjalta
Sigurðssonar hús-
gagnasmiðs. Hálf-
systkini Guðrúnar, börn Hjalta,
eru í aldursröð; Karl, Rósa,
Reynir, Anna og Hjalti, sem er
eftirlifandi.
Guðrún ólst upp í miðbænum,
í Hafnarstræti 85. Hún gekk í
Barnaskóla Akureyrar og síðan
í Gagnfræðaskólann. Eftir
gagnfræðapróf gekk hún í Hús-
eiga þau þrjú börn; Friðrik, Al-
dísi Völu og Ásdísi Ósk. 3) Inga
Margrét, f. 1964, gift Þórhalli
Jónssyni og eiga þau einnig þrjú
börn; Axel Darra, Andra Má og
Rebekku Rut.
Guðrún og Friðrik eiga átta
barnabörn og fjögur barna-
barnabörn, þar af tvö fædd nú í
janúar.
Árið 1965 stofnuðu þau hjón-
in Pedromyndir, fyrsta fram-
köllunarfyrirtæki landsbyggð-
arinnar. Þar stóðu þau vaktina
hlið við hlið alla tíð eða í alls 36
ár. Eftir að þau stigu til hliðar
frá rekstrinum eyddu þau næstu
átján vetrum í veðurblíðunni á
Spáni en voru alkomin aftur til
Íslands frá árinu 2019.
Útför Guðrúnar fer fram í
Akureyrarkirkju í dag, 4. febr-
úar 2022, klukkan 10.
Athöfninni verður streymt á
facebooksíðunni Jarðarfarir í
Akureyrarkirkju; beinar út-
sendingar.
Hlekkur á streymi:
https://www.mbl.is/andlat
mæðraskólann á
Ísafirði.
Eftir skólagöngu
var Guðrún ráðin
til vinnu við bók-
band í Prentsmiðju
Odds Björnssonar
(POB), þar sem hún
kynntist verðandi
lífsförunaut sínum,
Friðriki Vestmann,
en hann var þar
lærlingur í prent-
iðn. Þau trúlofuðu sig 17. júní
1958 og gengu í hjónaband 28.
mars 1959.
Börn Guðrúnar og Friðriks
eru: 1) Rúnar, f. 1959, giftur
Hönnu Karlsdóttur og eiga þau
þrjú börn; Katrínu, Evu Guð-
rúnu og Rúnar. 2) Ragnhildur, f.
1961, gift Gísla Kristinssyni og
Það er svo sárt að kveðja þig
elsku amma Dúna; söknuðurinn
er svo mikill og skarðið er svo
stórt. En minningarnar eru mér
dýrmætar perlur …
Hvernig þú hafðir gælunöfn
fyrir alla og viðurnefni yfir allt.
Hvernig þú snaraðir upp ný-
yrðum og varst svo endemis
hnyttin og skjót í tilsvörum.
Ég leit alltaf upp til þín. Þú
varst svo dugleg og drífandi,
kvartaðir aldrei. Þú varst alltaf
svo fín og flott, vel til höfð og elsk-
aðir að punta þig.
Við unnum saman á hverjum
degi hátt í 10 ár. Það að vinna með
ykkur afa var mér mjög dýrmæt
reynsla sem undirbjó mig fyrir líf-
ið.
Þú kenndir mér að fara með
peninga, að pakka inn í gjafapapp-
ír, að strauja skyrtur og að baka
bestu súkkulaðibita sem til eru.
Ég reyndi að skreppa á hverju
ári til Spánar til ykkar afa og á ég
dásamlegar minningar þaðan, við
vorum dugleg að þvælast um og
leita að ævintýrum saman.
Við vorum svo miklir vinir, jafn-
ingjar. Það var aldrei leiðinlegt í
kringum þig. Við höfðum alveg
sama húmorinn og gátum alltaf
hækkað í sömu Queen-lögunum.
Þið afi sýnduð mér og manninum
mínum svo mikla ást og hlýju þeg-
ar hann kom inn í fjölskylduna að
hann kallar ykkur líka ömmu og
afa.
Þegar við vorum hvort í sínu
landinu þá skrifuðumst við á. Rit-
höndin þín var svo falleg, alltaf
pottþétt, en svo tók tölvupóstur-
inn við. Það var svo gaman að fá
bréf frá þér með sögum um dag-
inn og veginn, eins og afi segir allt-
af „á Spáni er brjálað að gera, að
gera ekki neitt“.
Ég fann hvað þú varst stolt af
mér og þið afi hvöttuð mig svo
áfram þegar ég fór í nám erlendis.
Mér leiddist sko ekki að heyra
sögurnar af ykkur afa þegar þið
voruð ungt par í Danmörku og þið
skilduð svo vel þessa útþrá sem ég
hafði.
Ég er svo heppin að hafa haft
þig í mínu lífi svona lengi og hvað
við vorum nánar. Elsku amma
takk fyrir allt, ég ber nafnið þitt
með stolti.
Eva Guðrún Vestmann.
Guðrún
Hjaltadóttir
✝
Skúli Jónasson
fæddist á Þur-
íðarstöðum í Fljóts-
dal 21. júní 1936.
Hann lést á sjúkra-
húsinu í Neskaup-
stað 21. janúar
2022.
Foreldrar hans
voru Soffía Ágústs-
dóttir frá Lang-
húsum í Fljótsdal
og Jónas Þor-
steinsson frá Bessastöðum í
sömu sveit. Skúli var sjöundi í
tólf systkina hópi. Þau eru í ald-
ursröð: Ágústa Vilhelmína, f. 9.
apríl 1927, d. 31. jan. 1999,
María, f. 18. apríl 1929, d. 30.
nóv. 2019, Þórhildur Kristbjörg,
f. 18. sept. 1930, Þorsteinn, f. 11.
apríl 1932, d. 18. okt. 2009,
Hjalti, f. 12. des. 1933, d. 18. okt.
börn Hjörtur, Guðbjörg og Skúli.
4) Pálína Fanney, sambýlismaður
Hörður Gunnarsson, áður gift
Einari Georg Einarssyni, börn
Bergþóra og Ásgeir Trausti. 5)
Brynjar, kvæntur Sigríði Bjarna-
dóttur, börn Freyr, Fjölnir, Krist-
ín og Kolbrá. Afkomendur Skúla
og Jónínu ásamt tengdabörnum
og stjúpbörnum eru í dag 63.
Skúli ólst upp á Þuríðarstöðum
í Fljótsdal. Hann naut stuttrar
skólagöngu og byrjaði snemma í
vinnumennsku hér og þar. Skúli
og Jónína stofnuðu nýbýlið Lyng-
hól út úr jörðinni Geirólfsstöðum
í Skriðdal og byggðu hana upp
frá grunni. Þar stunduðu þau bú-
skap frá 1958 til 1997, en fluttu
þá í Egilsstaði. Þar starfaði Skúli
hjá Trésmiðju Fljótsdalshéraðs
og Malarvinnslunni.
Útför Skúla fer fram frá Egils-
staðakirkju í dag, 4. febrúar
2022, klukkan 14. Hann verður
jarðsettur í Egilsstaða-
kirkjugarði.
2011, Jón Þór, f. 5.
maí 1935, Bergljót,
f. 24. sept. 1937, d.
12. apríl 1999, Bene-
dikt, f. 7. ágúst 1939,
d. 14. apríl 2021, Ás-
geir, f. 29. ágúst
1941, Unnur Guð-
ríður, f. 24. mars
1943, og Soffía, f. 21.
júní 1944.
Skúli var kvæntur
Jónínu Salnýju Guð-
mundsdóttur, f. 18. maí 1937, frá
Geirólfsstöðum í Skriðdal. Börn
þeirra eru: 1) Guðmundur Jónas,
kvæntur Helgu Fanneyju Sveins-
dóttur, börn Jónína Salný, Finnur
Örn og Pálína Fanney. 2) Einþór,
kvæntur Ólínu Sófusdóttur, börn
Ingvar Stefán, Ágúst Fannar og
Dagbjört Diljá. 3) Vilhjálmur,
kvæntur Arndísi Hjartardóttur,
Elsku afi okkar er fallinn frá
eftir stutt veikindi og legu á
sjúkrahúsinu í Neskaupstað. Afi
var einstaklega yfirvegaður mað-
ur og vildi láta hafa sem minnst
fyrir sér og alls ekki trufla fólk í
sínu. Hann var þó afar hjálpsam-
ur og vildi reyna að hjálpa öllum
ef á þurfti á að halda. Ég fékk
þann heiður að vera með annan
fótinn inni á heimili þeirra afa og
ömmu eftir að þau fluttu á Egils-
staði. Það var afar dýrmætur tími
sem mótaði mig sem einstakling.
Flesta daga alla mína grunnskóla-
göngu kom ég hjólandi til ömmu
og afa eftir skóla og átti góða sam-
verustund með þeim. Eftir að þau
fluttu í Miðvang var ég einnig tíð-
ur gestur á heimili þeirra. Mér
leið einstaklega vel hjá þeim og
gátum við afi og amma spjallað
mikið saman um hið dagalega líf.
Ég minnist sértaklega góðu
stundanna þegar við amma sátum
saman í stofunni og prjónuðum og
afi sat í sínum húsbóndastól og
spjallaði við okkur um daginn og
veginn. Við tókum stundum í spil
öll saman á kvöldin fyrir hátta-
tíma. Afi hafði alltaf gaman af að
fylgjast með öllu sem maður var
gera. Á barnaskólagöngu minni
var ég mikið í hestamennsku. Afi
hafði gaman af að heyra sögur úr
hesthúsahverfinu og kom ein-
stöku sinnum með mér til að hirða
hestana. Hann treysti sér lítið að
koma með á hestbak í seinni tíð.
Við afi höfðum sameiginlegt
áhugamál og var það lífið í sveit-
inni. Við gátum rætt mikið um alls
konar málefni tengt sveitinni. Ég
fór stundum í bíltúr með þeim
bæði upp í Fljótsdal á hans æsku-
slóðir og í Skriðdalinn þar sem
þau voru bændur stærstan hluta
ævi sinnar. Þessir bíltúrar voru í
sérstöku uppáhaldi hjá mér.
Einnig voru þau með hjólhýsi
staðsett í landi Höfða á Völlum
sem þau eyddu miklum tíma í. Ég
fékk sjálf að vera mikið hjá þeim
þar og voru það afar góðar stund-
ir. Afi hafði gaman að berjatínslu
og fórum við oft saman og tíndum
mikið af berjum. Seinna meir þeg-
ar ég gerðist bóndi á Urriðaá í
Miðfirði, fann ég hversu stoltur
hann og þau bæði voru af þessari
ákvörðun minni. Amma og afi
reyndu alltaf að koma til okkar í
heimsókn a.m.k. einu sinni á ári
meðan þau höfðu heilsu til. Þess á
milli fékk ég símtöl frá ömmu með
afa í bakgrunninum, þar sem
hann bað hana að spyrja ýmissa
frétta úr sveitinni. Afi var ekki
mikið fyrir að tala í síma sjálfur,
en vildi gjarnan fylgjast vel með
öllu. Ég er mjög þakklát fyrir að
börnin fengu að kynnast afa, þótt
við hefðum viljað vera nær þeim.
Hvíldu í friði elsku afi og takk fyr-
ir allt.
Dagbjört Diljá Einþórsdóttir.
Skúli Jónasson
✝
Lilja Hulda Auð-
unsdóttir var
fædd í Neskaupstað,
nánar tiltekið á
Framnesi, 27. maí
1944. Hún lést á
Fjórðungssjúkrahús-
inu í Neskaupstað
15. janúar 2022.
Foreldrar hennar
voru Pálína Ásgeirs-
dóttir, f. 17. júlí
1914, d. 4. maí 1998
og Auðunn Jóhannes Þórð-
bet Sigríður, f. 6. júní 1959.
Lilja Hulda giftist hinn 11.
október 1962 Kristni Sigurðs-
syni, f. 25. des. 1935, d. 25. des.
2000. Þau bjuggu alla tíð í Nes-
kaupstað. Börn þeirra eru: 1)
Auður Helga, f. 8. mars 1963. 2)
Kristín, f. 12. júlí 1964, synir
hennar eru Egill og Kristinn.
Faðir þeirra er Karl Egilsson.
3) Sigurjón, f. 27. mars 1970, er
kvæntur Svanlaugu Aðalsteins-
dóttur, f. 29. júní 1972, þau eiga
dæturnar Katrínu Lilju, Evu
Björgu og Bryndísi. Katrín Lilja
og sambýlismaður hennar
Sindri Alfreðsson eiga soninn
Victor Högna. 4) Rán, f. 26.
apríl 1976, er gift Fannari Bald-
urssyni, f. 25. sept. 1974, börnin
þeirra eru Eir, Snær og Ísey.
Árið 1986 hóf Lilja Hulda
störf hjá Matís í Neskaupstað
og starfaði þar til ársins 2014
eða þegar hún náði sjötugs-
aldri, en einnig hafði hún
starfað m.a hjá Síldarvinnsl-
unni um árabil. Hún var virk í
Alþýðubandalaginu um tíma,
var í stjórn íþróttafélagsins
Þróttar og í varastjórn sókn-
arnefndar Norðfjarðarkirkju
frá 2009 og í aðalstjórn á sein-
asta tímabili.
Lilja Hulda verður jarð-
sungin frá Norðfjarðarkirkju í
dag, 4. febrúar, klukkan 13.
Útförinni verður streymt á:
https://www.facebook.com/
nordfjardarkirkja
Hlekkur á streymi:
https://www.mbl.is/andlat
arson, f. 26. sept.
1909, d. 25. júní
1965.
Lilja Hulda
var næstelst af
fjórum systk-
inum: Konráð
Sverrir, f. 11.
júlí 1941, d. 21.
júlí 2001, Dreng-
ur, f. 5. okt.
1942, d. 2. maí
1943, Sæmundur
Jóhann, f. 30. apríl 1946, Elísa-
Í dag kveðjum við elsku
Huldu í síðasta sinn. Við höfum
verið eins og systur og bestu
vinkonur frá barnæsku. Eftir
að ég flutti að austan héldum
við sambandi gegnum síma og
börnin mín lærðu fljótlega að ef
ég var lengi í símanum var ég
að tala við Huldu frænku. Við
reyndum líka að heimsækja
hvor aðra og hittast þegar færi
gafst og þá urðu alltaf fagn-
aðarfundir. Alltaf tóku hún og
Kiddi vel á móti okkur Einari
þegar við komum austur. Hulda
gladdi mig oft með símtölum,
gjöfum og gleðistundum og
hennar er sárt saknað.
Ég sendi Elsu og Jóa, Krist-
ínu, Auði Helgu, Sigurjóni og
Rán og fjölskyldum þeirra
mínar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Elsku Hulda, ég er þakklát
fyrir samverustundirnar okkar
fyrir austan í sumar. Ég er líka
þakklát fyrir að við náðum að
kveðjast í síma fáeinum dögum
áður en þú fórst. Takk fyrir allt
og guð geymi þig.
Þín
Auður Sigurrós.
Lilja Hulda
Auðunsdóttir
Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
STEFANÍA ÞORVALDSDÓTTIR,
Eskivöllum 1, Hafnarfirði,
lést á líknardeild Landspítalans
fimmtudaginn 20. janúar.
Útför fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 7. febrúar
klukkan 13. Athöfninni verður einnig streymt
https://www.youtube.com/watch?v=ZM-gyFAPRHg
Hlekk á streymi má nálgast á mbl.is/andlat.
Kristján Ágúst Baldursson
Þorvaldur Jónsson
Jórunn Fregn Víglundsdóttir Árni Ingi Steinsson
Hilda Bára Víglundsdóttir Sigurður G. Gunnarsson
Baldur Kristjánsson Brynja Þórsdóttir
Finnur Kristjánsson Anna Kara Eiríksdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur bóðir okkar, mágur og frændi,
STEFÁN ÁGÚSTSSON,
verkamaður frá Flatey á Breiðafirði,
til heimilis að Skólastíg 14a,
Stykkishólmi,
lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á
Akranesi mánudaginn 31. janúar.
Útförin fer fram frá Stykkishólmskirkju þriðjudaginn 8. febrúar
og hefst klukkan 14.
Ekki er gert ráð fyrir fjöldatakmörkunum í kirkjunni. Útförinni
verður einnig streymt á youtube/stykkishólmskirkja. Þeim sem
vilja minnast Stefáns er bent á Dvalarheimili aldraða í
Stykkishólmi. Hlekk á streymi má nálgast á mbl.is/andlát.
Dagbjört Höskuldsdóttir
Pétur H. Ágústsson Svanborg Siggeirsdóttir
Snorri Örn Ágústsson Guðrún H. Steingrímsdóttir
Valdimar B. Ágústsson
Guðlaug Jónína Ágústsdóttir Guðmundur K. Björnsson
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur eiginmaður og fósturfaðir,
INGÓLFUR TRYGGVASON
framkvæmdastjóri,
Holtagerði 33,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
miðvikudaginn 2. febrúar.
Útför verður auglýst síðar.
Ágústa Waage
Arnbjörg Kristín Magnúsdóttir
Elsku maðurinn minn, faðir, stjúpfaðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUNNLAUGUR B. GEIRSSON,
læknir og prófessor,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í
Reykjavík í dag, föstudaginn 4. febrúar,
klukkan 13.
Minningarorðin, texti og hljóðupptaka, verða birt á vefsíðunni:
ornbardur.com.
Malín Örlygsdóttir
Geir Gunnlaugsson Linda Stafbom
Björn Gunnlaugsson Bríet Birgisdóttir
Magnús Gunnlaugsson Íris Másdóttir
Aðalsteinn Gunnlaugsson Vilborg Kristjánsdóttir
Örlygur J. Smári Guðrún V. Þórisdóttir
Bergþór J. Smári
Unnur J. Smári Friðrik Magnus
barnabörn og barnabarnabörn
Elsku faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi
og sambýlismaður,
VILHELM BERNHÖFT ADOLFSSON,
Dalsási 12b, Hafnarfirði,
lést á heimili sínu mánudaginn 24. janúar.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna.
Sigrún Vilhelmsdóttir Vignir Þorláksson
Grímur Thorkelín Vilhelms. Anita Vilhelmsson
Gottskálk Vilhelmsson Ásta Valsdóttir
Nína B. Bernhöft Salvarard. Reynir Sigurbjörn Hreinsson
Adolf Gunnar Vilhelmsson María Kristborg Magnúsdóttir
Hildur Björk Sigurgeirsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn