Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Morgunblaðið - 04.02.2022, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 04.02.2022, Blaðsíða 19
Á sínum tíma var oft um það rætt í hópi íslenskra meinafræð- inga hvort ekki væri athugandi að stofna til sjálfstæðs reksturs í meinafræði hér á landi, svipað og tíðkaðist meðal annarra sér- greina læknisfræðinnar. Það varð þó ekki að veruleika fyrr en Gunnlaugur Geirsson tók af skar- ið og varð aðalhvatamaður að stofnun Vefjarannsóknastofunn- ar, sem sett var á stofn 1991, og var fyrstu árin í Glæsibæ. Það voru þrír meinafræðingar, þeirra á meðal sá sem þessa grein skrif- ar, og einn lífeindafræðingur auk Gunnlaugs sem stóðu að stofnun stofunnar, en tilgangur hennar var að greina vefjasýni sem tekin voru á læknastofum í Reykjavík. Stofan var ekki stór í byrjun en starfsemin hefur stöðugt orðið umfangsmeiri og er nú svo komið að á stofunni starfar fjöldi meina- fræðinga og lífeindafræðinga í rúmgóðu húsnæði og sýnafjöldi aukist ár frá ári. Við stofnun stof- unnar lögðu allir sitt af mörkum, innrétta þurfti húsnæði, kaupa tæki og semja við Trygginga- stofnun og kom þá berlega í ljós að Gunnlaugur var maður fram- kvæmda, en hann hafði áður reynslu af sjálfstæðum rekstri í frumumeinafræði. Þetta var skemmtilegur tími og ég sé enn Gunnlaug fyrir mér þar sem hann var mættur með sín smíðatól er við vorum að innrétta fyrsta hús- næðið. Óhætt er að segja að stofnun stofunnar hafi orðið lyfti- stöng fyrir meinafræðina á Ís- landi og aukið á fjölbreytileika hennar, en eins og fyrr segir má líta á Gunnlaug sem „guðföður“ hennar. Auk starfa við Vefjarann- sóknastofuna sinnti Gunnlaugur öðrum ábyrgðarmiklum störfum um ævina, var m.a. prófessor í réttarlæknisfræði við læknadeild Háskólans og meinafræðideild Landspítala um árabil. Það var alltaf gagnlegt sem og ánægju- legt að eiga samtal við Gunnlaug um hin ýmsu mál, hann var marg- fróður og víðlesinn, var það sem kalla mætti hugsandi maður, og brautryðjandi á ýmsum sviðum meinafræðinnar. Við samstarfsfólk Gunnlaugs á Vefjarannsóknastofunni minn- umst hans með virðingu og þakk- læti og sendum Malín sem og allri fjölskyldunni innilegar samúðar- kveðjur. F.h. Vefjarannsóknastofunn- ar, Bjarni A. Agnarsson. MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2022 Mozart og Beethoven. Ófáar stundir áttum við saman fyrir framan sjónvarpið að horfa á bíó- myndir. Hasarmyndir voru í uppáhaldi og helst þurfti að vera sem mest af sprengingum. Sjúk- dómurinn setti smá svip á áhorfið þegar þú dottaðir í miðri mynd en þá var nóg að pikka í þig og rétta þér poppskálina. Ein minning að lokum er þegar við fórum á rúntinn. Við tókum þá allnokkra í seinni tíð og þá aðal- lega til að sjá hvað bíllinn, sem við vorum á hverju sinni, væri kraft- mikill. Ein ferð situr ofarlega í mínu minni en þá var konan mín með í för. Rúnturinn var tekinn upp á Nafir á Króknum og botn- uðum við lagið Life in Technicol- our með Coldplay. Á þessum tíma var Coldplay uppáhaldshljóm- sveitin mín en það sem ég vissi ekki þá var að þetta tiltekna lag væri orðið eitt af þínum uppá- halds. Mér þykir ótrúlega vænt um að hafa átt þetta með þér, þú hefur haft svo mikil áhrif á mig í mínu lífi og það hlýjar um hjarta- rætur að sjá dæmi um að því hafi einnig verið öfugt farið. Takk fyrir allar stundirnar sem við áttum saman. Takk fyrir að miðla þinni þekkingu til mín sem ég mun nýta á lífsleiðinni. Ég mun hugsa til þín og geyma allar þessar stundir í hjarta mér. Eitt að lokum: Sögu vil ég segja stutta, nú er sagan öll bomm bomm! Góður! Albert Sölvi Óskarsson. ✝ Steingrímur Sigurður Jóns- son var fæddur á fæðingarheimilinu við Eiríksgötu í Reykjavík 19. febr- úar 1970. Steini lést á líknardeild LSH 12. janúar 2022 eft- ir snarpa en erfiða baráttu. Heima í fjöl- skylduhúsinu við Nesveg á Seltjarnarnesi biðu pabbi hans, tveir ungir bræður, föðurforeldrar og tvær föð- ursystur. Foreldrarnir voru og eru Jón Hilmar Stefánsson og Elísabet Bjarnadóttir, bræð- urnir Bjarni Hilmar og Stefán Hrafn, afinn Stefán M.Þ. Jóns- son, amman Gyða Stefanía Grímsdóttir og föðursysturnar Stefanía (Dista) og Erla. Móð- urforeldrarnir í Reykjavík voru Bjarni Vilhjálmsson og Kristín Eiríksdóttir og móðursystkinin Kristín, Eiríkur og Vilhjálmur. Steini var eftirlæti þeirra allra. Steini var einhleypur og barnlaus. Auk foreldra sinna og bræðra lætur hann eftir sig bræðrabörnin Elísabetu Mar- gréti, Birgittu Gyðu, Halldóru Sumarið 1995 ákváðu þau Steini og fyrrverandi sambýlis- kona hans að undirbúa frekara nám í Danmörku. Steini starfaði í verksmiðju Danfoss í Nord- borg á eyjunni Als úti fyrir strönd Jótlands um tíma og hóf svo nám við DTU, Danmarks Tekniske University, í Lyngby og lauk þaðan meistaraprófi sumarið 1999. Hann hafði komið heim á sumrin og starfað hjá ýmsum raforkufyrirtækjum. Eftir námið hóf hann störf hjá RARIK í Reykjavík og síðustu sjö árin á Akureyri. Stærsta og eflaust erfiðasta verk hans var þegar óveðrið mikla gekk yfir Norðurland í desember 2019, staurar brotnuðu og margar sveitir og bæir urðu rafmagns- laus í skemmri og lengri tíma. Steini var á skrifstofu sinni dög- um saman og hélt utan um að- gerðastjórnun og starfsmenn sína. Steini komst í hnattferð um og eftir fimmtugsafmælið sitt. Löndin sem hann hafði heimsótt voru þá orðin yfir eitt hundrað. Síðastliðið vor greindist Steini með illvígan sjúkdóm. Hann vissi í hvað stefndi en var ekki tilbúinn að láta undan. Hann fór í harðar lyfja- meðferðir en samt vann hann fram á síðasta dag. Síðasta ferðin er hafin. Útför Steingríms fer fram frá Seltjarnarneskirkju í dag, 4. febrúar 2022, klukkan 13. Veru, Írisi og og Vilhjálm Hrafn. Steini ólst upp við Nesveginn fyrstu níu árin og síðan við Sefgarða, innfæddur og upp- alinn Seltirningur. Hann gekk í Mýr- arhúsa- og Valhúsa- skóla og tómstund- unum varði hann með vinum sínum Jökli og síðar Ellerti. Hann átti margar góðar stundir á Bóka- safni Seltjarnarness og drakk þar í sig fróðleik. Þeir Ellert inn- rituðust í Verzlunarskóla Ís- lands og luku þaðan stúdents- prófi vorið 1990. Þá þegar hafði fræinu fyrir ferðaþrá verið sáð. Fyrstu ferðirnar um Evrópu fór hann með foreldrum sínum og bræðrum 5, 6, 7 og 10 ára gam- all. Á verslunarskólaárum sínum átti hann kost á að sækja nám- skeið við University of Delaware og dvelja hjá fjölskyldu á vest- urströnd Bandaríkjanna. Skóla- ferðalagið eftir Verzló var til Jamaíku. Steini hóf nám í raf- magnsverkfræði við HÍ. Ferðalag með samnemendum þar var til Japans. Með örfáum orðum langar mig að minnast Steingríms Jónsson- ar, vinar míns og frænda. Við Steini vorum systrabörn og skildu okkur aðeins 13 mánuðir að. Allt frá því að ég man fyrst eftir mér lék ég mér við frændur mína þá Steina, Stefán og Bjarna. Stund- um leið langur tími án þess að við hittumst þar sem mín fjölskylda bjó úti á landi, en það var alltaf jafn gaman. Seinna þegar við Steini vorum bæði komin í Háskóla Íslands hittumst við á ný og endurnýjuð- um kynnin. Svo skemmtilega vildi til að við fluttum samtímis til Kaupmannahafnar og bjuggum á sömu stúdentagörðunum. Steini tók mig inn á sitt heimili á meðan ég beið eftir íbúð okkar hjóna og bar mig á höndum sér. Í fram- haldinu vorum við í miklum sam- skiptum og skutumst oft á milli íbúða í smá kaffisopa og spjall. Það var alltaf hægt að treysta á að Steini ætti kaffi og hefði tíma fyr- ir frænku sína, bara ef ég lofaði að horfa fram hjá óreiðunni. Seinna fluttum við hjónin til Norður-Jótlands, en við fylgd- umst grannt hvort með öðru. Svo kom loksins að því að við fluttum aftur heim til Íslands og þá var Steini búinn að koma sér fyrir í fínu íbúðinni sinni á Lokastígn- um. Þar var gott að koma í heima- gert chili eða lasagna, sem Steini var þekktur fyrir. Ekki minnkaði gestrisnin þeg- ar Steini var fluttur til Akureyrar því fljótlega kom hann sér upp gestaherbergi og væri hann ekki sjálfur á staðnum þá bauð hann bara alla íbúðina. Við hjónin dvöldum hjá Steina í 5 daga sum- arið 2019 á meðan yngsta barnið var á fótboltamóti. Alltaf voru dyrnar opnar og við máttum valsa út og inn eins og okkur lysti. Í lok dvalarinnar spurði hann hvort við vildum ekki bara taka lykil til að hafa þegar við kæmum næst. En nú verður ekkert næst því Steini okkar er horfinn fyrir aldur fram. Þegar hann greindist með krabbamein í fyrravor og ég hringdi í hann sagðist hann ekki hafa viljað trufla mig og eyði- leggja páskana fyrir mér og ætl- aði því að hinkra með að færa mér þessi válegu tíðindi. Þannig var Steini: alltaf vakinn og sofinn yfir hag annarra. Hann var alltaf boð- inn og búinn að hjálpa öðrum, en bað aldrei um neitt sjálfur. Steini var vinur vina sinna. Hann valdi vini sína vel, en við sem vorum svo heppin að geta kallað okkur vini hans máttum hrósa happi því traustari vin er erfitt að finna. Steini nýtti tímann vel á sinni alltof stuttu ævi til að ferðast og það gerði hann með stæl. Hann ferðaðist um allan heim, ýmist einn á ferð eða með ferðafélaga/ ferðafélögum. Það var einstak- lega gaman að fylgjast með ferða- undirbúningi, sjá myndir og frá- sagnir meðan á ferðunum stóð og fá svo ferðasöguna í lokin. Hann náði að heimsækja allar heimsálf- ur, flestar oft og fara til vel yfir 100 landa. Ég er þakklát fyrir allar þær stundir sem við áttum saman, spjallið, kaffisopana og hláturinn. Minningarnar um einlæga vin- áttu, einstaka gestrisni, hjálpsemi og hlýju munu ylja okkur um ókomna tíð. Móðursystur minni Elísabetu, Jóni, Stefáni og Bjarna færi ég mínar innilegustu samúðarkveðj- ur. Minning Steina mun lifa. Valgerður Halldórsdóttir. Það er með miklum söknuði að við kveðjum Steingrím Sigurð í dag. Steini var fimm ára þegar ég flutti til Danmerkur, en margar heimsóknir fjölskyldu minnar til heimalandsins og ferðir hans út í heim gerði að við hittumst oft. Ferðalöngunina hafði hann ekki langt að sækja, Nonni bróðir og Elísabet voru dugleg að fara með synina þrjá í ferðir til Evrópu, oft með viðkomu í Kaupmannahöfn. Síðar var þörfin hjá Steina að fara á enn meira framandi slóðir og mörg eru þau lönd sem hann hefur heimsótt. Lönd sem margir hafa ekki farið til, svo sem Íran Norður-Kórea, Suðurskautið, já víðsvegar um heiminn lágu ferðir hans. Steini var við nám við DTU Danmarks Tekniske Universitet í þrjú ár og þekkti því vel til lands- ins. Hann kom oft við í Kaup- mannahöfn á ferðum sínum, ann- að hvort vinnunnar vegna, eða í leit að ævintýrum til framandi landa. Þá hringdi hann í okkur ef stoppið var stutt eða hann heim- sótti okkur hingað til Hróars- keldu ef tími gafst til. Alltaf með bros á vör og glettni í fallegu brúnu augunum. Alltaf jákvæður og með góða kímnigáfu. Skemmtilegar heimsóknir sem við minnumst með gleði. Ógleym- anleg eru póstkortin sem að hann sendi víðsvegar frá. Steini notaði ekki mörg orð sem kveðjur en nægilega mörg til að við vissum að nú væri hann á spennandi stað. T.d. á korti frá Mónakó stóð að- eins WROOOOOM, sagði allt um áhuga hans á Formúla 1-kapp- akstrinum. Já, Steina verður sárt saknað. Við sendum foreldrum hans, Jóni og Elísabetu og bræðrum hans Bjarna Hilmari og Stefáni Hrafni, okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Stefanía (Dista), Steen, Stefán Kristian og Anders Jón. Það var skemmtileg áskorun að vera yfirmaður Steina. Hann var í stöðu deildarstjóra Net- reksturs á Norðurlandi þegar ég hóf störf hjá RARIK árið 2017. Við könnuðumst hvort við annað úr bransanum og verksvið okkar höfðu eitthvað skarast svo það var auðvelt að ná góðum tengslum í þessum nýju hlutverkum sem við vorum komin í. Fyrstu dagarnir fóru í að lenda grundvallarmálum eins og hvort ég ætti að ávarpa hann sem Steingrím eða Steina, hvort rétt væri að nota upphróp- unarmerki í ávarpi í tölvupósti og að ræða norskar málfræðivillur sem höfðu slæðst inn í íslenskuna hjá mér og ég var orðin staurblind á. Svo fóru faglegu verkefnin að taka yfir. Hann var með sterkar skoðanir, tók upp mál sem hann taldi að mættu betur fara, tók um- ræðuna og stakk upp á lausnum. Hann vildi alltaf gera betur og færa vinnuferla og aðferðir til enn betra horfs. Svoleiðis var hann frá því á fyrsta vinnudegi mínum fram á hans síðasta rétt fyrir jólin síðustu. Ég er með alls konar minnislista með atriðum sem Steini tók upp og ég næ vonandi með hjálp góðs fólks að klára. Andi Steina mun því svífa áfram yfir vötnunum hjá RARIK. Steini var vinnusamur og sinnti verkefn- um sínum af samviskusemi. Hann var oft með marga bolta á lofti í einu og stressstigið ansi hátt hjá honum. Á tímabili var hann með úr sem mældi púlsinn og þegar fór að pípa í úrinu þá var stutt í brosið hjá okkur og við sáum að það var tímabært að róa niður. Ætli vinnuálagið hafi ekki toppað sig hjá honum í miklu óveðri sem gekk yfir landið í desember 2019 og olli miklum og erfiðum rekstr- artruflunum í raforkukerfinu í marga daga. Álagið var mikið og Steini og hans góða samstarfsfólk kláruðu þetta mál og sáu til þess að viðskiptavinir RARIK fóru inn í jólin með jólaljósin á. Steini gaf allt sitt í þetta verkefni og þau sem fylgdu í kjölfarið, því við tók eitt stærsta framkvæmdaár hjá RARIK í lagningu jarðstrengja frá upphafi, ekki síst á Norður- landi og því mikið sem bættist of- an á dagleg verkefni. Þetta tók á bæði andlega og líkamlega og í byrjun árs 2021 flutti Steini sig yfir í starf þar sem hans áhugi á faginu fékk að blómstra í rekstri og viðhaldi aðveitustöðva. Heils- an var ekki nógu góð og í lok maí á síðasta ári sagði Steini okkur að hann hefði greinst með krabba- mein í brisi. Hann tók þessu af mikilli yfirvegun og mín upplifun var að hann vildi eins og hægt var halda áfram að lifa lífinu eins og ekkert hefði í skorist. Vinnan var góð til að dreifa huganum og hann sinnti sínum verkefnum á sama tíma og hann kom málum sem hann hafði sinnt í öruggan farveg hjá öðrum. Síðasti fundurinn okk- ar var 20. desember og þó að Steini væri greinilega slappur þá var hugurinn nógu skýr til að bæta nokkrum atriðum við minn- islistann minn. Að hafa svona áhugasaman og fróðan samstarfs- mann voru forréttindi og ég er þakklát fyrir að hafa kynnst Steina og að hafa fengið að njóta starfskrafta hans. Ég votta fjöl- skyldu Steina og vinum hans mína dýpstu samúð. Helga Jóhannsdóttir. Með sorg í hjarta kveðjum við í dag góðan vin og samstarfsmann, Steingrím Jónsson rafmagns- verkfræðing, sem látinn er langt fyrir aldur fram. Steingrímur, eða Steini eins og hann var alltaf kall- aður, byrjaði fyrst að vinna hjá RARIK í sumarvinnu á rafeinda- deild sumarið 1995 og aftur sumr- in 1997 og á tæknideild 1998. Hann var verktaki hjá RARIK í eitt ár að námi loknu, en frá árinu 2000 var hann í föstu starfi hjá RARIK og gegndi ýmsum verk- efnum hjá fyrirtækinu allt til dauðadags. Fyrstu sjö árin var hann verkfræðingur á tæknisviði og síðar veitusviði, en 2007 tók hann við starfi verkefnisstjóra liðaverndar og sá þá m.a. um út- reikninga, uppsetningar og próf- un liðabúnaðar og tengingar við fjargæslukerfi RARIK. Jafn- framt kom hann að hönnun og teiknivinnu vegna nýrra aðveitu- stöðva, bilanagreiningum o.fl. Árið 2014 ákvað hann að breyta til og var ráðinn í starf deildarstjóra rekstrarsviðs á Norðurlandi með aðsetur á Akur- eyri. Auk þess að stýra deildinni bar hann ábyrgð á rekstri dreifi- kerfis RARIK á Norðurlandi, var fulltrúi ábyrgðarmanns, yf- irmaður svæðisvaktar, stýrði áætlanagerð og sá um samskipti við viðskiptavini, verktaka og opinbera aðila. Hann kom því að fjölmörgum verkefnum hjá fyrir- tækinu, bæði í sérhæfðum tæknimálum, áætlanagerð og uppbyggingu, en einnig í rekstri, erfiðum bilunum og viðbrögðum við tjónum á dreifikerfinu. Síð- asta stóra verkefnið á því sviði var í desember 2019 þegar veru- legt tjón varð á dreifikerfinu á Norðurlandi. Steini var mikill fé- lagsmálamaður, hafði áður en hann kom til RARIK m.a. verið í stjórn SÍNE, sambands ís- lenskra námsmanna erlendis. Hjá RARIK var hann virkur í starfi meðal starfsmanna, var m.a. formaður starfsmanna- félagsins í Reykjavík 2001-2003 og síðar sameiginlegs félags allra rekstrarsvæða 2007-2009. Einn- ig formaður starfsmannaráðs RARIK um tíma, sat í samninga- nefnd stéttarfélags verkfræð- inga og var fulltrúi verkfræðinga í samninganefnd háskólamanna við RARIK. Þá sat hann í stjórn RVFÍ og var m.a. formaður 2004-2005. Steini var mjög áhugasamur tæknimaður og gat sökkt sér djúpt í tæknilegar pælingar og gat þá gleymt bæði stund og stað. Fyrir honum var vinnutími teygjanlegt hugtak og upphaf hans og endir ekki alltaf fastmót- að. Áhuginn á verkefnunum var í fyrirrúmi. Stuttu áður en Steini greindist með illvígan sjúkdóm ákvað hann að skipta um starfsvett- vang hjá RARIK og hætta sem deildarstjóri með mannaforráð. Hann vildi komast nær tækninni og kerfisútreikningum og tók að sér að sinna sérhæfðum verkefn- um sem tengjast búnaði aðveitu- stöðva sem var hans áhugasvið. Sjúkdómurinn tók hins vegar fljótt völdin og ekkert fékkst við ráðið. Á ótrúlega stuttum tíma var hann borinn ofurliði. Nú þegar við kveðjum Steina félaga okkar og vin hinstu kveðju vil ég fyrir hönd fyrirtækisins þakka honum fyrir áralangt og óeigingjarnt starf fyrir RARIK og góða vináttu. Minningin um góðan dreng mun lifa lengi. Fjöl- skyldu hans allri sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Steingríms Jónssonar. Tryggvi Þór Haraldsson. Steingrímur Jónsson Ástkær faðir, tengdafaðir, afi og langafi, STEINÞÓR INGVARSSON, lést á Droplaugarstöðum þriðjudaginn 25. janúar. Sendum okkar bestu þakkir til starfsfólks Droplaugarstaða fyrir frábæra umönnun síðastliðin ár. Útförin fer fram frá Langholtskirkju föstudaginn 11. febrúar klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á Alzheimersamtökin, kt. 580690-2389, banki 0515-26-24303. Allir hjartanlega velkomnir. Sigurður I. Steinþórsson Gunnar Steinþórsson Ágústa Valdimarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ARI ARTHURSSON tæknifræðingur, lést á Landspítalanum að morgni föstudagsins 28. janúar. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 7. febrúar klukkan 11. Vegna aðstæðna í samfélaginu verða aðeins nánasta fjölskylda og vinir viðstödd. Guðrún Birna Guðmundsdóttir Vigdís Klara Aradóttir Guido Bäumer Halldóra Æsa Aradóttir Geir Thorsteinsson og barnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.