Morgunblaðið - 04.02.2022, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2022
–– Meira fyrir lesendur
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 18. febrúar
Börn&
uppeldi
SÉRBLAÐ
AUGLÝSENDUR ATHUGIÐ!
30 ÁRA Melanie Ubaldo
fæddist á Filippseyjum 4.
febrúar 1992 og flutti hingað
árið 2005 með systkinum sín-
um. Hún fór í Menntaskólann
við Hamrahlíð og síðan og í
Fjölbraut í Breiðholti þar sem
hún gerði sér lítið fyrir og
dúxaði. Hún útskrifaðist með
BA-gráðu í myndlist frá
Listaháskóla Íslands árið
2016 og er núna að ljúka við
meistaragráðu í myndlist það-
an í vor. „Síðastliðin tvö ár
hefur verið mjög mikið að
gera hjá mér í sýningarhaldi.
Strax eftir útskriftina úr BA-
náminu var ég með fyrstu
sýninguna mína hjá Kling og
Bang og eftir það fór boltinn
að rúlla og ég hef tekið þátt í
mörgum samsýningum, bæði
heima og erlendis, og sýnt t.d.
bæði í Berlín og Argentínu.“
Melanie var valin vinalista-
maður Nýlistasafnsins fyrir árið 2022 og núna í nóvember sl. hlaut hún styrk
úr Styrktarsjóði Svavars Guðnasonar og Ástu Eiríksdóttur, sem er veittur
efnilegum ungum listamönnum. „Ég er mest að vinna með textaverk sem
birtast í alls konar myndum og oft í samansaumuðum risastórum málverkum
og það er til dæmis eitt stórt þannig verk eftir mig í Hafnarhúsinu núna á
samsýningu. Svo er ég líka að vinna með alls konar innsetningar með rými og
form og tengja það við texta. Ég er mjög pólitísk og hef mína sérstöku rödd í
listinni.“
Melanie segist stefna að því að gera ennþá stærri verk í framtíðinni og
stefnir hátt. Samhliða sinni eigin listsköpun er hún hluti af listahópnum
Lucky 3, en það er hópur íslenskra listamanna af filippseyskum uppruna.
„Okkur hefur verið vel tekið og að mínu mati erum við eitt af áhugaverðustu
teymunum í listahópi ungra listamanna hérlendis í dag.“
Melanie Ubaldo
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Láttu það eiga sig að gefa þeim ráð
varðandi fjármálin sem ekki vilja hlusta.
Gefðu þér tíma til þess að sinna vinunum.
20. apríl - 20. maí +
Naut Nú eru vitsmunalegir kraftar málið
og þú slærð í gegn hvar sem þú keppir á
því sviði. Vertu öðruvísi og spilaðu málin
eftir eyranu.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Oft rísa deilur vegna þess að ein-
staklingar skilja ekki gildismat annarra.
Einhver sem þér þykir innilega vænt um
þarf á þér að halda núna.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þú hefur lagt þig fram um að starf
þitt spilli í engu heildarárangrinum. Líttu í
kringum þig og sjáðu að margur er verr
staddur en þú.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú færð mikið út úr því að vera með
öðrum í dag. Sæktu styrk í það nú þegar
erfiðleikar steðja að. Öll él birtir upp um
síðir.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Notaðu daginn til þess að gera lang-
tímaáætlanir í fjármálum. Reyndu að ná
heildarsýn til þess að vega og meta að-
stæður.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Þér tekst einhvern veginn ekki að ná til
þeirra, sem þú vilt að kynnist málstað þín-
um. Hugur þinn er kvikur og þú getur ekki
búist við hinu ómögulega af öðrum.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þú getur komist að óvæntum
leyndarmálum í dag. Þú þarft að létta á
hjarta þínu og skalt gera það við einhvern
þér nákominn.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Fæst orð hafa minnsta ábyrgð
og þú mundir seint fyrirgefa sjálfum þér ef
þú yrðir til þess að ljóstra upp viðkvæmu
leyndarmáli.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Gættu þín á hleypidómum varð-
andi þá sem eru öðruvísi en þú. Ef þér
finnst brotið á þér áttu ekki að hika við að
láta til þín heyra.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þú stendur á tímamótum og
ættir ekki að líta um öxl. Forðastu rifrildi
við ástvini. Að gera sitt besta er allt sem
beðið er um.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Ráð frá einhverjum þér eldri og
reyndari munu reynast vel í dag. Nú er
áríðandi að þú farir þér hægt í fjármálum.
stjórn Nordic Chefs og hefur þjálfað
og dæmt í matreiðslukeppnum, bæði
hér heima og erlendis.
Fjölskyldan hefur verið með
ferðaþjónustuna Ögurferðir í sumar-
rekstri í Ögri frá árinu 2011 með kaj-
akferðir og kaffihús, en kajakróður
frá grunni í þessum eldhúsum og
gæðin mjög mikil.“
Þegar Hafliði kom heim frá Dan-
mörku fór hann að líta í kringum sig
að störfum með fjölskylduvænan
vinnutíma, enda með tvö lítil börn og
tvö eldri. Hann fór að vinna hjá
Garra, sem sölumaður matvæla fyrir
veitingageirann. „Þar er ég í rúm 10
ár. Í starfinu nýttist allur þessi bak-
grunnur, bæði tengslanetið úr veit-
ingageiranum og þekkingin á mat-
vælum. Maður var oft í hlutverki
ráðgjafa um notkun á vörum og jafn-
vel að búa til heilu matseðlana fyrir
fólk. Síðustu 4 árin var ég sölustjóri
hjá fyrirtækinu og kom einnig að
markaðsmálum.“ Árið 2016 hætti
hann hjá Garra og rak eitt sumar
veiðihúsin í Selá og Hofsá í Vopna-
firði, var síðan í nokkra mánuði hjá
Matfangi. Í byrjun árs 2017 hóf hann
störf hjá markaðsstofunni Icelandic
Lamb, fyrst sem verkefnastjóri. „Ég
stýrði m.a. átaki um að stofna til
samstarfs við veitingastaði og hótel
og að nota merkið Icelandic Lamb
sem upprunamerki á vörunni og
segja söguna af hráefninu. Hér er
verndað sauðfjárkyn, einangrað í
1100 ár og er alveg einstakt.“ Haust-
ið 2018 varð Hafliði framkvæmda-
stjóri fyrir þetta verkefni, en er í dag
líka verkefnastjóri á markaðssviði
Bændasamtakanna. „Við erum þátt-
takendur í þremur útflutnings-
verkefnum erlendis, í Danmörku,
Þýskalandi og Japan og síðan erum
við að markaðssetja til ferðamanna
og íslenskra neytenda. Lambakjöt er
vinsælasta íslenska hráefnið á borð-
um ferðamanna og t.d. borðuðu 70%
þeirra lamb í fyrra, næst koma
þorskur, lax og skyr með um 60%.
Hingað til hafa auglýsingar til ferða-
manna um íslenskar búvörur ein-
göngu verið um lamb og skyr, sem
skilar marktækum árangri.“
Hafliði hefur verið mjög virkur í
félagsstarfi matreiðslunnar á Íslandi
og hefur verið í Klúbbi matreiðslu-
meistara, sem rekur Kokkalandsliðið
og keppnina um kokk ársins. „Ég var
í stjórn í 7 ár, þar af forseti stjórnar í
5 ár og liðsstjóri Kokkalandsliðsins
og síðar viðskiptaframkvæmdastjóri
fyrir liðið.“ Hann sat einnig 5 ár í
H
afliði Halldórsson
fæddist 4. febrúar
1972 á Ísafirði og ólst
upp í Ögri í Ísafjarð-
ardjúpi. „Þar var
hefðbundinn búskapur, en Djúpið
þótti tiltölulega afskekkt á þessum
tíma vegna lélegra samgangna. Það
spyrja mig sumir hvort ég sé ekki
örugglega fæddur 1872, því maður
fór með bát í heimavistarskólann í
Reykjanesi, en á þessum tíma var
farið með Djúpbátnum sem fór frá
Ísafirði með fólk og varning um
Djúpið, því samgöngur á landi voru
svo bágbornar að ekki var á þær að
treysta. Í dag er hins vegar hægt að
keyra þetta á korteri.“
Hafliði ólst upp á stóru heimili.
„Við erum sex alsystkinin og svo eig-
um við einn eldri hálfbróður sam-
feðra. Auk þess var mikill gesta-
gangur og oftast krakkar hjá okkur í
sveit. Við tókum þátt í vinnunni við
búreksturinn frá unga aldri og það
var mikil heimavinnsla á matvælum
á heimilinu.“
Hafliði hefur alla tíð tengst mat í
sínum störfum, fyrir utan eitt ár
þegar hann fór til Svíþjóðar og vann
hjá Volvo-verksmiðjunum um tví-
tugt og lærði þar sænskuna sem
hann býr að enn. „Ég var að vinna í
fiski á unglingsárunum og fór svo á
sjó í nokkur ár. Áhuginn á mat-
reiðslu kviknaði heima í eldhúsinu
hjá mömmu. Hún var afar flink í eld-
húsinu með sína húsmæðraskóla-
menntun og sá um stórt heimili af
miklum myndarskap.“ Hafliði fór í
matreiðslunám og útskrifaðist sem
matreiðslumeistari frá Grillinu á
Hótel Sögu, vann þar í ár eftir út-
skriftina. Þá var hann kominn með
fjölskyldu og vann næstu árin á Café
Bleu og síðar Kaffi Óperu. „Svo fór
ég að starfa hjá finnska sendi-
herrabústaðnum og starfaði þar í
nokkur ár. Á sama tíma var ég að
taka verkefni fyrir önnur sendiráð í
Reykjavík, fyrir Þjóðverja, Dani,
Kanadamenn og Norðmenn.“ Síðan
var ferðinni heitið til Danmerkur í
eitt ár og þar vann Hafliði m.a. hjá
Cheval Blanc Service Restauranter
sem er háendamatstofuþjónusta í
Kaupmannahöfn. „Það er allt búið til
er mikið áhugamál Hafliða. „Síðan
hef ég gaman af allri veiði, stang-
veiði, skotveiði og allri útivist eins og
t.d. fjallgöngum. Fjölskyldan er svo
auðvitað aðalatriðið, en ég er svo lán-
samur að eiga mikið kvenveldi af-
komenda. Á fjögur börn og fimm
Hafliði Halldórsson, framkvæmdastjóri Icelandic Lamb– 50 ára
Matur er mannsins megin
Landsliðið Hluti kokkalandsliðsins 2018 með Elizu Reid. F.v.: Georg Hall-
dórsson, Snædís Jónsdóttir, Eliza Reid, Kara Guðmundsdóttir og Hafliði.
Fjölskyldan F.v. Guðrún
Helga, Hafliði, Halldór, Thelma
Rut, Heiða og Steinunn Tinna.
Til hamingju með daginn