Morgunblaðið - 04.02.2022, Blaðsíða 32
FULLKOMIN
ÞÆGINDI
FALLEG
HÖNNUN OG
ÞÆGINDI
PANDORA
HÆGINDASTÓLAR
HLEÐSLUSTÓLLMEÐ 3 MÓTORUM
STILLANLEG HJÓNARÚM
MEÐ BODYPRINT DÝNU
– EIN ALLRA BESTA HEILSUDÝNA Í HEIMI
ZERO
GRAVITY
Allt fyrir góðan svefn
og betri heilsu
Í dag er öld frá fæðingu
hins áhrifamikla mynd-
listar- og fræðimanns
Harðar Ágústssonar. Af
því tilefni verður opnuð
á Mokkakaffi í dag sýn-
ing á úrvali ljósmynda
sem Hörður tók á ár-
unum 1964-1965.
Myndirnar eru úr safni
mynda sem Hörður kallaði Smáheima og eru gerðar
eftir litskyggnum sem hann tók af náttúrulegum og
manngerðum fyrirbærum eins og frosnu vatni, sand-
fjöru eða veggjum. Þær vísa til einhvers konar abstrakt
forma, ýmist geómetrískra eða ljóðrænna. Hörður var í
framvarðarsveit íslenskrar myndlistar frá því að hann
kom heim úr námi í Frakklandi 1952. Hann vann auk
þess markvert starf á sviði hönnunar bóka, tímarita og
auglýsinga. Hann var skólastjóri MHÍ um tíma og var
líka mikilvirkur fræðimaður á sviði íslenskrar húsa-
gerðarsögu.
Sýning á ljósmyndum Harðar
Ágústssonar á aldarafmælinu
FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 35. DAGUR ÁRSINS 2022
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 776 kr.
Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Grindavík, Valur og Stjarnan báru sigur úr býtum í
viðureignum sínum í úrvalsdeild karla í körfuknattleik,
Subway-deildinni, í gærkvöldi.
Grindvíkingar þurftu mest að hafa fyrir sigri sínum
gegn Tindastóli en Valur vann auðveldan sigur á nýlið-
um Vestra og Stjarnan átti ekki í nokkrum vandræðum
með botnlið Þórs frá Akureyri. »26
Snúið hjá Grindavík en
auðvelt fyrir Val og Stjörnuna
ÍÞRÓTTIR MENNING
FNV, vann sér þar með
rétt til að syngja í Söng-
keppni framhaldsskólanna og
sigraði í símakosningunni. Hún byrj-
aði að gefa út eigið efni vorið 2020 og
viðtökurnar hafa verið góðar. Lagið
„Piece of You“ kom út fyrri hluta árs
2021 og komst til dæmis í 4. sæti á
vinsældalista Rásar 2 og í 7. sæti á
topp 20 lagalista Bylgjunnar auk
þess sem það var á Bylgjulista nýlið-
ins árs. „Breathe“ komst inn á lista
100 vinsælustu laga Rásar 2. „Þetta
hefur gengið ótrúlega vel og ég er
rosalega þakklát fyrir viðtökurnar
sem lögin mín hafa fengið.“
Eftir að hafa greinst með veiruna
var Valdís í þrjár vikur í einangrun.
„Ég veiktist mikið á meðan ég var
með Covid og eftir að ég losnaði úr
einangruninni byrjuðu eftirköstin,
mæði, þróttleysi og verkir, sem hafa
hamlað mér mjög mikið í daglegu
lífi.“ Hún hafi verið óvinnufær frá því
hún greindist smituð. Í fyrrasumar
hafi staðið til að gefa út plötu en
áformin hafi runnið út í sandinn
vegna veikindanna.
Til þess að byggja upp styrk og þol
hefur Valdís verið í markvissri
sjúkra- og iðjuþjálfun, vatnsleikfimi
og öðru ámóta, á Reykjalundi undan-
farna fjóra mánuði. „Auk þess er
verið að rannsaka hvers vegna bat-
inn sé svona hægur og ég er ótrúlega
þakklát þessu frábæra fólki sem
vinnur þarna,“ segir hún.
„Ég hef lagt áherslu á að vinna í
sjálfri mér og aðalatriðið er að ná
fullri heilsu,“ heldur Valdís áfram og
bætir við að hún sé byrjuð að vinna í
nýju lagi en efni hennar er aðgengi-
legt á helstu streymisveitum (VAL-
DIS og @thisisvaldis). „Ég ætla ekki
að láta Covid stoppa mig og held
áfram að gefa út tónlist á árinu.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Skagfirska söngkonan Valdís Val-
björnsdóttir sendir frá sér nýtt lag í
dag til að lífga upp á tilveruna og
sýna og sanna að hún gefst ekki upp
þótt á móti blási. Hún greindist með
kórónuveiruna í byrjun maí í fyrra,
var mjög veik og hefur glímt við mik-
il eftirköst síðan, meðal annars verið
í endurhæfingu og rannsóknum á
Reykjalundi alla virka daga síðan 4.
október.
Nýja lagið, „Onto You“, samdi Val-
dís með söngkonunni Söru Péturs-
dóttur, eða Glowie, og Anton Ísak
Óskarsson útsetti lagið. Magnús Jó-
hann Ragnarsson leikur á píanó og
Reynir Snær Magnússon á gítar.
„Textinn fjallar um spennuna sem
fylgir því að byrja í nýju sambandi,“
segir Valdís.
Tónlist hefur fylgt Valdísi, sem er
22 ára, frá blautu barnsbeini og hún
hefur lagt mikið á sig til þess að ná
árangri. „Ég hef glímt við kvíða frá
unga aldri og tónlistin hefur hjálpað
mér mikið, ég hef alltaf haft áhuga á
tónlist og sungið frá
því ég man eftir
mér,“ segir hún.
Þegar hún var níu
ára byrjaði hún að
æfa söng og var í
kórnum Drauma-
röddum norðursins
undir stjórn Alex-
öndru Chernyshovu.
Hún var líka í einka-
tímum hjá henni til
2012 en síðan í söngnámi hjá Regínu
Ósk í Söngskóla Maríu Bjarkar 2012
til 2016.
Óku suður í söngtíma
„Mamma og pabbi keyrðu mig frá
Sauðárkróki í söngtíma í Reykjavík
aðra hverja viku. Þegar ég byrjaði í
framhaldsskólanum hóf ég söngnám
hjá Þórhildi Örvars og keyrði til
hennar á Akureyri vikulega. Eftir
framhaldsskóla fór ég í söngnám í
Complete Vocal Institute í Kaup-
mannahöfn og útskrifaðist þaðan
með diplómu í söng.“ Hún flutti svo
suður haustið 2020 og byrjaði að
kenna í Söngskóla Maríu Bjarkar.
Valdís hefur tekið þátt í ýmsum
tónlistarverkefnum. Árið 2018 sigr-
aði hún í Söngkeppni nemendafélags
Valdís gefst ekki upp
- Er óvinnufær vegna Covid og gefur út lag í endurhæfingunni
Söngkona Valdís Valbjörnsdóttir lætur veiruna ekki stöðva sig.