Morgunblaðið - 08.02.2022, Page 4
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Rauð veðurviðvörun setti mark sitt á
gærdaginn og viðbragðsaðilar voru
hvarvetna tilbúnir að takast á við
hvellinn. Óveðrið kom eins og spáð
hafði verið og truflaði víða sam-
göngur og skólahald en olli blessun-
arlega hvergi manntjóni eða stór-
skaða svo vitað sé. Rafmagns-
truflanir urðu víða en yfirleitt gekk
vel að koma rafmagni aftur á. Veðrið
gekk fljótt yfir og lífið komst í eðli-
legra horf eftir því sem leið á daginn
og áður en næsta veðurgusa kom.
Ríkislögreglustjóri aflétti um há-
degi í gær hættustigi sem sett hafði
verið á um miðnættið. Óvissustigi
vegna snjóflóða var aflétt á Mið-
Norðurlandi en áfram er óvissustig á
norðanverðum Vestfjörðum.
Óvenjumikil veðurhæð
Veðurhæð varð víða óvenjumikil í í
gær. Þetta átti ekki hvað síst við á
suðvesturhorninu, að sögn Guðrúnar
Nínu Petersen, veðurfræðings hjá
Veðurstofu Íslands. Klukkan fimm í
gærmorgun var t.d. stormur, rok eða
ofsaveður á nær öllum stöðvum á
höfuðborgarsvæðinu.
„Ég fylgist með vindinum,“ sagði
Guðrún Nína. „Fyrir nokkrum árum
reiknaði ég út fyrir margar veður-
stöðvar hvað búast mátti við sterkum
vindi til dæmis á fimm ára eða tíu ára
fresti samkvæmt tölfræðinni.“ Hún
sagði að í fyrrinótt hefði mælst meiri
vindhraði á töluvert mörgum veður-
stöðvum á Suðvesturlandi en gera
má ráð fyrir að geti komið á hverjum
áratug, samkvæmt tölfræðinni.
„Þetta eru sjaldgæfir atburðir,“
sagði Guðrún Nína.
Veðurstöðin á Reykjanestá var
ekki ein þeirra stöðva sem voru með í
fyrrnefndum útreikningum. Þar
mældist í gær mestur vindhraði á
láglendi eða 39 m/s. Vindhraði merk-
ir meðalvindur í tíu mínútur. Vind-
hraði á Reykjanesbraut fór í 31,2 m/s
og mesta vindhviðan, það er vindur í
1-3 sekúndur, var 43 m/s. Samkvæmt
tölfræðinni má búast við slíkum at-
burði einu sinni á 9-10 ára fresti á
þeim stað.
Verður í minnum haft
Miklar vindhviður mældust á
þekktum hviðustöðum. Á Þyrli í
Hvalfirði mældist 58,8 m/s hviða,
undir Hafnarfjalli, 59,4 m/s og 65,1
m/s hviða við Tíðaskarð í Hvalfirði.
Veðrið gekk austur yfir landið. Á
Vatnsskarði eystra mældist 49,7 m/s
vindhraði og 60,7 m/s vindhviða kl.
10.40. Eftir það fór veðrið að ganga
niður. Guðrún Nína telur að óveðrið í
gær verði í minnum haft á meðal
veðurfræðinga.
Mikil læti voru í óveðurshvellinum
- Óvenjumikil veðurhæð mældist víða í gær, ekki síst á suðvesturhorninu - Veðrið kom á heppilegum
tíma á höfuðborgarsvæðinu - Fremur óvenjulegt að sjá jafn eldrautt vegakort og gilti í gærmorgun
Truflanir í
raforkukerfinu
Óveður gekk yfir landið 7. febrúar
03:03 Rafmagnslaust í Hafnarfirði
og hluta Garðabæjar í 16 mín. eftir að
spennustöðin í Hamranesi slær út.
Einnig í hluta Reykjavíkur í um 2mín.
06:15 Aftur rafmagns-
laust á Vesturlandi og
Snæfellsnesi, nú í 9 mín.
07:39 Rafmagnslaust er
á Höfn í Hornarfirði og
nærsveitum í 9 mín.
07:58 Aftur rafmagnslaust
á Höfn í Hornarfirði og
nærsveitum.
09:04 Vél 6 í Hellisheiðar-
virkjun sló út þegar tíðnin
fór í 49,5 Hz.
10:10 Spennir 1 í Vest-
mannaeyjum slær út.
04:04 Kísilver Elkem
á Grundartanga raf-
magnslaust í 27 mín.
04:58 Rafmagnslaust
á Snæfellsnesi og
Borgarfirði í 26 mín.
05:54 Varaaflsvélar í
Bolungarvík ræstar
Færð á
vegum
kl. 08.00
Kort: Vegagerðin
Heimild:
Landsnet
Ófært
Allur
akstur
bannaður
Vindhraði,
m/s
Kort:
Guðrún
Nína
Petersen
Mesti vindhraði frá 00.10 til kl. 09.02
„Þetta var mikill hvellur og kom á
mjög heppilegum tíma sólarhrings-
ins á Suðvesturlandi. Fáir voru á
ferli og flestir í fastasvefni. Við get-
um verið þakklát fyrir það. Svo dró
mjög snögglega úr veðurofsanum
þar rétt fyrir fótaferðartíma. Veðrið
hefði haft mun meiri áhrif í mesta
þéttbýlinu hefði það komið að degi
til,“ sagði Guðrún Nína. Hún sagði að
hitastigið hefði líka haft áhrif á að
minna snjóaði en ef lofthiti hefði ver-
ið lægri. „Rauð viðvörun er ekki gef-
in út að ástæðulausu og hefur áhrif í
þá átt að draga úr tjóni. Það munar
miklu ef fólk býr sig undir óveður,
ekki síst þegar það er í hámarki um
miðja nótt að ekki séu lausamunir að
fjúka fyrir utan. Ég er mjög sátt við
þessa veðurspá og viðbrögðin við
henni,“ sagði Guðrún Nína.
Truflun á skólastarfi
Óveðrið setti stórt strik í skólahald
í gær. Tilkynnt var í fyrradag að
reglulegt skóla- og frístundastarf á
höfuðborgarsvæðinu félli niður
vegna veðurspárinnar. Öllu skóla-
haldi var aflýst í leik- og grunnskól-
um Akureyrarbæjar og víðar. Skóla-
hald féll niður að hluta á Austurlandi.
Eftir að veðrinu slotaði á höfuð-
borgarsvæðinu voru leikskólar og
frístundastarf grunnskólanema opn-
uð klukkan 13.00. Slökkvilið höfuð-
borgarsvæðisins tilkynnti að opnun-
in ætti við þá leikskóla þar sem ekki
var áður búið að auglýsa skipulags-
daga. Minnt var á að gul veðurvið-
vörun gildir fram á daginn í dag,
þriðjudag, og því mikilvægt að for-
eldrar og forráðamenn fylgist vel
með veðri áður en lagt er af stað í
skólann í dag.
Mikil röskun á samgöngum
„Ég man alveg eftir svona kortum
þar sem allt var lokað. Það er þó
frekar óvenjulegt. Það er algengara
að norðurhluti landsins sé lokaður en
Suðurlandið sleppi eða öfugt,“ sagði
Kristinn Jónsson, deildarstjóri um-
ferðarþjónustu Vegagerðarinnar.
Vegakerfið á korti Vegagerðarinnar
var að mestu rauðlitað í gærmorgun,
sem merkti að vegir væru ófærir, eða
allur akstur bannaður.
Kristinn sagði að veðrið hefði
gengið hratt yfir. Hellisheiði var þó
ekki opnuð í gær en opið var um
Þrengsli. Djúpvegur var líka lokað-
ur, ekki síst vegna Súðavíkurhlíðar
og snjóflóðahættu þar. Dynjandis-
heiði var ekki heldur opnuð í gær.
Reyna átti að opna aðra þjóðvegi í
gær. Víða var hálka og sums staðar
þæfingur.
Snjóflóð féll á Grenivíkurveg og
lokaði honum.
Morgunakstur féll niður
Strætisvagnar hófu akstur á höf-
uðborgarsvæðinu um klukkan tíu í
gærmorgun. Öllum morgunferðum
hafði verið aflýst í fyrradag vegna
slæmrar veðurspár. Þegar akstur
hófst höfðu um 25 snjómoksturstæki
hreinsað strætisvagnaleiðir og
margar aðrar götur á höfuðborgar-
svæðinu.
Miklar truflanir urðu á ferðum
Strætó á landsbyggðinni. Í tilkynn-
ingu í gærmorgun kom fram að leiðir
51 og 52 hefðu ekki hafið akstur
vegna þess að Hellisheiði var lokuð.
Leiðir 71, 72 og 73 áttu að hefja akst-
ur eftir hádegi.
Leið 57 ók á milli Reykjavíkur og
Borgarness en ekki var ekið á milli
Akureyrar og Borgarness í gær. Þá
voru leiðir 55, 87, 88 og 89 farnar að
aka á Suðurnesjum. Leið 78 milli
Akureyrar og Siglufjarðar ók ekki í
gær og ekki heldur leið 56 milli
Akureyrar og Egilsstaða.
Mörgum flugferðum var aflýst
Samkvæmt upplýsingum á heima-
síðu Keflavíkurflugvallar var 23
komum farþegaflugvéla til landsins
aflýst í gær og brottför 21 flugvélar.
Það voru flugvélar frá Icelandair,
Atlantic Airways, SAS, British Air-
ways, EasyJet, Transavia, Play, Vu-
eling ogWizz Air sem ekki komu eða
fóru samkvæmt áætlun. Þá var kom-
um og brottförum tveggja vöruflutn-
ingavéla DHL og Bluebird aflýst.
Einnig varð töluverð röskun á
innanlandsflugi og aflýsti t.d. Flug-
félagið Ernir flugi til Vestmannaeyja
og Hornafjarðar og Norlandair af-
lýsti flugi til Bíldudals.
Herjólfur siglir ekki
Allar ferðir Vestmannaeyjaferj-
unnar Herjólfs voru felldar niður í
gær og í dag vegna slæmrar veður-
spár. Spáð var yfir tíu metra öldu-
hæð á siglingaleiðinni og þótti líklegt
að vegir til og frá Þorlákshöfn gætu
lokast. Mögulega verður ekki heldur
siglt í fyrramálið en nánari upplýs-
ingar um það fást á Facebook-síðu
Herjólfs ohf. þegar nær dregur.
„Útidyrahurðin sprakk upp í
óveðrinu um klukkan sex um
morguninn. Vindurinn stóð beint
upp á hana,“ sagði Kristinn
Bjarnason, eigandi veitingahússins
North West í Víðigerði við hring-
veginn í Húnavatnssýslu, mitt á
milli Staðarskála og Blönduóss.
Hann sagði að til allrar hamingju
hefðu starfsmenn orðið varir við
óhappið líklega um hálftíma eftir
að útidyrahurðin sprakk upp.
„Þá var kominn skafl inn á stað-
inn. Reynt var að loka hurðinni en
hún hafði skaddast svo það tókst
ekki. Þá var hringt í 112 og Björg-
unarsveitin Húnar kom og negldi
hurðina aftur. Flott fólk héðan úr
sveitinni kom svo og hjálpaði okk-
ur að moka snjónum út. Við höfum
verið í allan dag að þurrka bleytu
og meta skemmdir,“ sagði Krist-
inn.
Opna átti veitingahúsið í gær
eftir vetrarlokun. Það fór eins og
það fór. Stefnt er að því að opna
aftur í dag. En olli óhappið miklu
tjóni?
„Það á eftir að koma í ljós,“
sagði Kristinn. „Við slökktum á öll-
um tækjum og höfum verið með
blásara í gangi í allan dag til að
þurrka upp bleytuna. Það er eftir
að sjá hvort tölvur, kælar og önnur
tæki fara aftur í gang. Húsgögnin
eru úr viði og leðri. Okkur sýnist
að einhverjir stólar geti hafa
skemmst en heilt yfir virðist þetta
hafa sloppið þokkalega. Það var
heppni hvað þetta uppgötvaðist
fljótt. Ef staðurinn hefði staðið
lengur opinn hefði hann fyllst af
snjó.“
Stutt er síðan veitingahúsið var
allt tekið í gegn og innréttingar og
húsbúnaður endurnýjaður.
Veitingahúsið fylltist af snjó
Ljósmynd/Agnes B. Bergþórsdóttir
North West Útihurðin fauk upp og mikill snjór barst inn á staðinn.
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 2022
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf