Morgunblaðið - 08.02.2022, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 08.02.2022, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 2022 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Ég hef staðið vaktina hér í 28 ár, nánast upp á hvern einasta dag. Það er komin smá þreyta í karlinn,“ seg- ir Hreiðar Karlsson sem ásamt konu sinni, Elínu Gestsdóttur, hefur rekið Hundahótelið á Leirum á Kjalarnesi. Þau lokuðu hótelinu nú um mánaðamótin. Hreiðar segist hafa orðið var við að lokunin kemur sér illa fyrir marga. Hann hafi taugar til eig- endanna enda hafi þau verið að gæta þriðju kynslóðar hunda hjá sumum fjölskyldum. Hreiðar segist ekki ætla að leigja aðstöðuna enda yrði sami átroðn- ingur vegna þess og að hafa rekst- urinn sjálf með höndum. Annað hundahótel er í Reykjanesbæ og síðan hefur að hans sögn aukist mikið að fólk gæti hunda í heima- húsum. Athuga með sumarþjónustu Hann segir að gestir hafi komið á hundahótelið allt árið, ekki aðeins vegna sumarleyfa eigendanna, og þeir séu frá einum degi og upp í ein- hverja mánuði í einu. Ástæðurnar geti verið margvíslegar. „Ég sé hvað við getum gert. Við erum með opið fyrir óskilahunda fram í júní samkvæmt samningum við sveitarfélögin en annars er lok- að. Mér sýnist svo að við þurfum að hafa sumarþjónustu fyrir fleiri hundruð gesti,“ segir Hreiðar. „Ég vil fyrir hönd okkar hjónanna þakka ferfættum við- skiptavinum og eigendum þeirra all- ar ánægjustundirnar þessi ár og óska þeim alls hins besta,“ segir í kveðjupistli sem Hreiðar skrifaði inn á vef Hundahótelsins þegar hann lokaði. Hundahótel Starfsemin á Leirum hefur gert mörgum fjölskyldum kleift að hafa hund en komast samt í frí. Margir sakna nú hótelsins. Hefur staðið vakt- ina alla daga í 28 ár - Hundahótelinu á Leirum lokað Gestir Hótelstjórinn hefur verið að gæta þriðju kynslóðar hunda. Köngulær hafa verið ofarlega á blaði hjá Erling Ólafssyni skordýra- fræðingi síðustu mánuði. Frá því í september hefur hann fjallað um sjö slíkar á facebook-síðunni Heimur smádýranna og tvær þær nýjustu eru skápakönguló og veggja- könguló. Sú fyrrnefnda, og sú fyrsta þessarar tegundar sem Erling er kunnugt um hérlendis, fannst fyrir um mánuði á lager hjá vefverslun í Reykjavík. Veggjaköngulóin fannst hins vegar í gámi á Grundartanga í haust. Um veggjakönguló skrifar Erling: „Síðastliðið haust fannst furðukvik- indi mikið í gámi á Grundartanga. Um var að ræða afar óvænta suð- ræna tegund köngulóar sem lifir næst okkur í Miðjarðarhafslöndum þar sem hún finnst einkum í húsum og skemmum og dylst yfir daginn í glufum í veggjum. Hún er flatvaxin og þegar hún skríður fram situr hún hreyfingarlaus þétt við undirlagið með langa útstrekkta leggi sína eins og krans út frá bolnum. Veggjakönguló (Selenops radia- tus) er ekkert lamb að leika við. Hún er svo snör í snúningum að vart verður auga á fest. Er hún sögð eitt snarpasta dýr sem fyrirfinnst. Þeg- ar bráð nálgast, sama úr hvað átt, sprettur hún upp úr stellingu sinni snarsnýst í loftinu og bráðin á ekki séns!“ Erling rifjar upp að hann hafi fjallað um ekkjuköngulær, en þær eigi sér nauðalíka ættingja í ná- grannalöndum okkar. Gæti numið land „Ein þeirra köngulóa er tegund sem ég hef nefnt skápakönguló (Steatoda grossa) og finnst um heim allan, í Evrópu allt norður að okkar breiddargráðum. Er því lítt því til fyrirstöðu að hún nemi landið okkar í framtíðinni, en hún lifir fyrst og fremst innanhúss. Til þess þyrfti hún þó að slæðast hingað í ein- hverjum mæli,“ skrifar Erling og eins og áður sagði fannst sú fyrsta fyrir um mánuði. Skápakönguló (cupboard spider á ensku) lítur fljótt á litið út eins og ekkjurnar, svört og gljáandi með út- blásinn afturbol, fótaburður er einn- ig sá sami. Getur bitið ef fiktað er í henni, leggur þó frekar á flótta und- an áreiti og er alls ekki árásargjörn. Bitin eru merkjanleg, eituráhrifa gætir en líða fljótt hjá. Þau eru ann- ars hættulaus. aij@mbl.is „Ekkert lamb að leika við“ - Tvær nýjar köngulóartegundir í heimsókn hérlendis Ljósmynd/Erling Ólafsson Leiftursnögg „Snarpasta í snún- ingum kvikindi“ sem ég hef nokk- urn tímann komist í kynni við, skrif- ar Erling um veggjakönguló. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Hér er suðaustan vitlaust veður, 20-25 metrar,“ sagði Guðmundur Jónsson, skipstjóri á Vilhelm Þor- steinssyni EA, upp úr hádegi í gær. Þeir voru þá 72 mílur austur af Langanesi og fimm önnur íslensk skip, eitt grænlenskt og eitt fær- eyskt skip voru á svipuðum slóðum. Guðmundur sagði að þeir myndu halda sjó eitthvað fram eftir degi, en vonandi yrði komið vinnuveður undir kvöld með suðvestanáttinni. Vel færi um mannskapinn um borð í stóru og öflugu skipinu. Um 1.500 tonn voru komin í skip- ið í gærmorgun, en fyrir réttri viku setti Vilhelm heimsmet þegar 3.448 tonnum af loðnu var landað úr skip- inu í Fuglafirði í Færeyjum. Guð- mundur sagði að um helgina hefði aðeins dregið úr afla í trollið og loðnan væri nokkuð dreifð. Fljót- lega liði að því að menn tækju loðnunæturnar um borð og byrjuðu veiðar við Suðausturland. Vonandi myndi ótíðinni linna svo menn gætu sinnt nótaveiðum af krafti. Mæla á norðvestursvæðinu Ráðgert er að rannsóknaskipið Árni Friðriksson fari til leitar og mælinga á loðnu á morgun, mið- vikudag. Farið verður á svæði norðvestur af landinu, austur að Kolbeinseyjarhrygg. Á Vestfjarðamiðum torveldaði vont veður og hafís mælingar í leið- angri í síðasta mánuði. Slæmt veð- ur hefur verið á þessum slóðum síð- ustu daga, en vonir standa til að því sloti síðari hluta vikunnar. Þá er vel fylgst með því hvort hafísinn hopar. Samkvæmt upplýsingum frá Hafrannsóknastofnun er hrogna- þroski loðnunnar seinni en alla jafna og hrygningagöngur seinna á ferðinni en oft áður. Því gæti eitt- hvað hafa skilað sér undan hafísn- um í Grænlandssundi frá síðustu mælingu. Það magn sem mælt var í janúar skilar ráðgjöf upp á um 800 þúsund tonn, en haustráðgjöfin var upp á 904 þúsund tonn í ráðlögðu heildar- aflamarki á yfirstandandi vertíð. Að lokinni yfirferð Árna Friðriks- sonar á næstu dögum verður gefin út lokaráðgjöf. Ef vel gengur gæti mælingunni lokið á fjórum dögum og lokaráðgjöf legið fyrir um miðja næstu viku. Gerðu hlé á veiðum Í kjölfar tilkynningar Hafrann- sóknastofnunar um mögulega skerðingu á aflaheimildum um 100 þúsund tonn gerðu m.a. Brim hf. og Vinnslustöðin hlé á veiðum. Þær upplýsingar fengust hjá Brimi í gær að staðan yrði metin að nýju í lok vikunnar. Uppsjávarskipin þrjú sem fyrirtækið gerir út eru nú í Reykjavík. Tvö þeirra eru tilbúin til nótaveiða og það þriðja verður klárt á miðvikudagskvöld. Kvóti Brims minnkar um 14.500 tonn verði af skerðingu. Á heimasíðu Vinnslustöðvarinnar segir að verði heildarkvótinn minnkaður um 100 þúsund tonn þýði það að samanlagður kvóti Vinnslustöðvarinnar og Hugins minnki um níu þúsund tonn. Af heildarkvóta íslenskra skipa upp á 662 þúsund tonn, eins og hann var gefinn út í haust, er búið að veiða 294 þúsund tonn og því eftir að veiða um 369 þúsund tonn sam- kvæmt því sem lesa má á heimasíðu Fiskistofu. Síðustu vikuna virðist eitthvað hafa ræst úr nótaveiðum norskra skipa fyrir sunnanverðum Aust- fjörðum. Þau hafa ýmist landað í Noregi eða hérlendis. Í gær lágu mörg þeirra inni á fjörðum fyrir austan vegna veðurs. Styttist í loðnuveiðar með nót - Átta skip héldu sjó í vonskuveðri 72 mílur austur af Langanesi - Farið á ný til mælinga á morgun Morgunblaðið/Börkur Kjartansson Vertíð Suðurey VE var eitt þeirra skipa sem í gær voru um 70 mílur austur af Langanesi. Íslensku skipin hafa verið á trolli, en nótaveiðar byrja fljótlega.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.