Morgunblaðið - 08.02.2022, Page 10

Morgunblaðið - 08.02.2022, Page 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 2022 Sími 555 2992 og 698 7999 • Við hárlosi • Mýkir liðina • Betri næringar- upptaka Náttúruolía sem hundar elska Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta. Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við mælum með Dog Nikita hundaolíu. Páll Ingi Haraldsson EldurÍs hundar Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda • Gott við exemi • Betri og sterkari fætur Sextán bjóða sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi fyrir komandi sveitarstjórnar- kosningar. Opið prófkjör verður haldið 12. mars næstkomandi og verður kosið verður um sex efstu sætin. Sem kunnugt er tilkynnti Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri að hann gæfi ekki kost á sér aft- ur fyrir flokkinn. Til þessa hafa aðeins Ásdís Kristjánsdóttir, aðstoðarfram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnu- lífsins, og Karen Elísabet Hall- dórsdóttir bæjarfulltrúi lýst því yfir að þær sækist eftir efsta sæt- inu. Þessi bjóða sig fram: Andri Steinn Hilmarsson, Axel Þór Eysteinsson, Ásdís Kristjáns- dóttir, Bergur Þorri Benjamíns- son, Elísabet Sveinsdóttir, Guð- mundur Gísli Geirdal, Hanna Carla Jóhannsdóttir, Hannes Steindórsson, Hermann Ármanns- son, Hjördís Ýr Johnson, Karen Elísabet Halldórsdóttir, Lilja Birgisdóttir, Ómar Stefánsson, Rúnar Ívarsson, Sigvaldi Egill Lárusson og Tinna Rán Sverris- dóttir. Sextán frambjóðendur taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi Ásdís Kristjánsdóttir Karen Elísabet Halldórsdóttir Bragi Bjarnason íþróttafræðingur gefur kost á sér til að leiða lista Sjálfstæðis- flokksins í Ár- borg en prófkjör fer fram 19. mars. Bragi er fer- tugur að aldri og er deildarstjóri frístunda- og menningardeildar Ár- borgar. Hann segist í tilkynningu leggja áherslu á ábyrgan rekstur sveitarfélagsins þar sem öflug fjár- málastjórn og forgangsröðun skapi tækifæri og forsendur til að veita íbúum sveitarfélagsins betri þjón- ustu til framtíðar. Þá vilji hann leggja sín lóð á vogarskálar til að fjölga atvinnutækifærum í Árborg. Bragi vill leiða D-listann í Árborg Bragi Bjarnason Örn Viðar Skúlason býður sig fram í 3. til 4. sæti á lista Sjálfstæðis- flokksins á Sel- tjarnarnesi í prófkjöri sem fer fram 26. febrúar næst- komandi. Örn Viðar hef- ur verið formaður Sjálfstæðis- félags Seltirninga sl. tvö ár. Hann er hagverkfræðingur að mennt, með meistarapróf í fjármálum fyr- irtækja og hefur víðtæka reynslu af rekstri og stjórnun fyrirtækja. Hann starfar í dag sem fjárfest- ingastjóri hjá Nýsköpunarsjóði og situr í stjórnum nokkurra sprota- fyrirtækja. Örn Viðar sækist eftir 3.-4. sæti Örn Viðar Skúlason Björgvin Páll Gústavsson, landsliðs- markvörður í handknattleik, sækist eftir 1.-2. sæti á lista Fram- sóknarflokksins í Reykjavík fyrir borgarstjórnar- kosningarnar í vor. Hann til- kynnti þetta á Facebook-síðu sinni í gær. „Mig langar að taka ábyrgð á því að gæta velferðar barna og ann- arra viðkvæmra hópa í samfélag- inu. Að auki þá hafa málefni barna snertiflöt við nánast allan rekstur borgarinnar og mynda einn helsta útgjaldalið sveitarfélagsins,“ skrif- aði Björgvin Páll meðal annars. Staðfestir framboð fyrir Framsókn Björgvin Páll Gústavsson 2022 SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR Samkvæmisdansararnir og hjónin Hanna Rún Bazev Óladóttir og Ni- kita Bazev eru fyrst íslenskra para til þess að tryggja sér þátttökurétt á heimsleikum Alþjóðadansíþrótta- sambandsins, WDSF, sem haldnir verða í Alabama í Bandaríkjunum í sumar. Frammistaða parsins í und- ankeppni heimsleikanna á Fene á Spáni varð til þess að þau eru í hópi þeirra 16 para sem valin hafa verið til keppni í latin-dönsum. „Þarna verða bara topppörin í heiminum,“ segir Bergrún Stef- ánsdóttir, formaður Dansíþrótta- sambands Íslands. „Þetta er ótrúlega gaman og það er mikill heiður að fara fyrir hönd Íslands. Þetta var markmið hjá okkur, bæði af því að íslenskt par hefur aldrei áður farið á þessa leika og af því þeir eru bara haldn- ir á fjögurra ára fresti svo það hefði verið leiðinlegt að bíða í fjög- ur ár eftir næsta tækifæri. En þetta hafðist,“ segir Hanna Rún. „Hanna Rún og Nikita eru búin að sýna fram á undraverðan ár- angur. Að ná inn á þessa leika eftir það sem hún lenti í er náttúrulega bara stórkostlegt,“ segir Bergrún og vísar til þess að Hanna Rún lamaðist tímabundið á öðrum fæti eftir misheppnaða mænurótardeyf- ingu þegar hún eignaðist sitt ann- að barn fyrir tveimur árum. Hanna segir barneignirnar hafa haft áhrif á æfingarútínuna, fjölskyldan sé nú í fyrsta sæti. ragnheidurb- @mbl.is Glæsileg Hanna Rún og Nikita eru samkvæmisdansíþróttinni til sóma. „Undraverður árangur“ danspars - Taka þátt í heimsleikum WDSF Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Liðið Dodici frá Vopnafjarðarskóla bar sigur úr býtum í hinni árlegu tækni- og hönnunarkeppni First Lego League sem fram fór um helgina í streymi. First Lego League er alþjóðleg Lego-keppni sem nær til yfir 600.000 ungmenna í 110 löndum víða um heim. Með sigrinum tryggði liðið sér þátt- tökurétt í Norðurlandakeppni First Lego League sem áætlað er að fari fram í Noregi í næsta mánuði. Að þessu sinni tóku tíu lið frá níu grunnskólum þátt í keppninni hér á landi en þátttakendur voru á aldr- inum 10-16 ára. Liðin voru metin út frá fjórum þáttum: liðsheild, for- ritun og hönnun vélmennis, nýsköp- unarverkefni og loks vélmenna- kappleik. Þema hvers árs er byggt á Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og í ár voru það vöru- flutningar. Í útsendingu frá keppninni var fylgst með liðunum í vélmenna- kappleiknum en hann felst í að leysa þrautir með LEGO-þjarki á keppnisborði sem tengist þema árs- ins. „Þegar þau taka sig til þá eru þau samheldin, sérstaklega þegar það kemur að svona keppni. Þau eru með keppnisskap,“ segir Sólrún Dögg Baldursdóttir, umsjónar- maður liðsins. „Við hittumst í skól- anum og horfðum á keppnina sam- an. Það var mikil gleði og spenningur.“ Sólrún segir þau stefna á að fara til Noregs verði keppnin haldin þar, það eigi þó enn eftir að komast endanlega á hreint hvort hún verði haldin þar í landi eða rafrænt. Nemendur á Vopnafirði krýndir Lego-meistarar - Sigruðu í tækni- og hönnunarkeppni First Lego League Dodici Þær Þórhildur og Berglind sáu um að stýra vélmenninu í kappleik.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.