Morgunblaðið - 08.02.2022, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 08.02.2022, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 2022 Erum með þúsundir vörunúmera inn á vefverslun okkar brynja.is Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is HÁGÆÐA EFNAVÖRUR FRÁ LIBERON Opið virka daga frá 9-18 lau frá 11-17 Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Ljóst er að beint og óbeint tjón sem atvinnufyrirtæki á Seyðisfirði hafa orðið fyrir í kjölfar skriðufallanna í desember árið 2020 hleypur á hundr- uðum milljóna króna, líklega millj- örðum, og hefur aðeins lítill hluti þess fengist bættur. Þetta kemur fram í umsögn verkefnisstjórnar Seyðisfjarðarverkefnisins um þings- ályktunartillögu sem Líneik Anna Sævarsdóttir og 17 aðrir þingmenn hafa lagt fram á Alþingi þar sem lagt er til að gerð verði úttekt á trygg- ingavernd í kjölfar náttúruhamfara. Verðlausar eignir á hættusvæði Í umsögninni sem Gauti Jóhann- esson, formaður verkefnisstjórnar- innar, sendir fyrir hönd stjórnarinn- ar er tillögunni fagnað en af umsögn hans má ráða að víða er pottur brot- inn í meðferð tjónamála í kjölfar náttúruhamfara. Vakin er athygli á að forgangsröð- un Ofanflóðasjóðs hafi eingöngu beinst að íbúðarhúsnæði þrátt fyrir að eigendur atvinnuhúsnæðis greiði árlegt ofanflóðagjald og þeir sem eiga atvinnuhúsnæði á hættusvæði fái enga lausn sinna mála þar sem eingöngu sé um uppkaup á íbúðar- húsnæði að ræða „og stjórnvöld gera ekki ráð fyrir að verja atvinnusvæði á hættusvæðum í fyrirsjáanlegri framtíð“. Enginn greinarmunur sé þó gerð- ur á íbúða- og atvinnuhúsnæði í lög- um um ofanflóðavarnir „og því má í raun segja að stjórnvöld séu ekki að sinna lögboðnu hlutverki sínu er snýr að atvinnulífi,“ segir þar. Óbilgirni við túlkun Jafnframt segir í umsögninni að mörg dæmi séu um að atvinnurek- endur standi frammi fyrir beinu fjár- hagstjóni þar sem hvorki þeir né starfsmenn treysti sér til að starfa í húsnæði á hættusvæði og slíkar eignir séu verðlausar þar sem eng- inn vilji kaupa þær. Í umfjöllun um tryggingamál kemur fram að nokkur atvinnufyr- irtæki hafi staðið frammi fyrir miklu tjóni sem ekki fáist að fullu bætt frá tryggingafélögum, „jafnvel þótt eig- endur fyrirtækjanna hafi talið sig fulltryggða. Ástæður þessa eru margvíslegar. Hér er fyrst og fremst um óbilgirni við túlkun á skilmálum að ræða en einnig má nefna kröfur um 10% sjáIfsábyrgð, sem margir töldu óréttlátt þar sem það var ekki í þeirra valdi að koma í veg fyrir ham- farir. Þá var tekist á um sönnunar- byrði vegna foktjóna í kjölfar ham- faranna, en í flestum tilvikum var ómögulegt að sanna hvaðan skriðu- brakið var, sem fauk á húseignir, og varð á endanum úr að Náttúruham- faratrygging varð að taka það tjón á sig,“ segir í umsögninni. Auk þessa fáist rekstrartjón ekki bætt þar sem bætur fyrir slíkt tjón falli niður við náttúruhamfarir. Tjón sem varðar t.d. matvæli hlaupi á tug- um milljóna vegna röskunar á starf- semi eftir flóðið og að vegasamband rofnaði, sem varð til þess að mikið magn matvæla eyðilagðist. Bent er á að búnaðardeild Bjarg- ráðasjóðs var lögð niður 2017 sem leitt hafi til þess að rekstrartjón fáist ekki lengur bætt, s.s. við mjólku- framleiðslu. Hella þurfti niður þús- undum lítra af mjólk á býli í Seyð- isfirði sem einangraðist vegna skrifðufalla. Öllum beiðnum bænda um bætur hafi verið hafnað. Vísuðu málinu frá „Málinu hefur verið vísað frá Náttúruhamfaratryggingu, frá af- urðastöð býlisins og Bjargráða- sjóði,“ segir í umsögninni. Náttúruhamfaratrygging hafi vís- að því frá þar sem vátryggingin bæti ekki afleitt tjón svo sem rekstrartap og afurðastöð býlisins hafnaði bótum á þeim forsendum að rekstrarstöðv- unartryggingin næði eingöngu yfir bruna, óveður og salmonellusýkingu. Afurðastöðin hafi svarað því til að tryggingin nái ekki til tjóns vegna skriðufalla og hún sé ekki aðili að málinu þar sem um náttúruhamfarir hafi verið að ræða. „Að síðustu leituðu bændur til Bjargráðasjóðs, sem hafnaði bóta- skyldu, enda væri hún eingöngu á gjaldskyldum fasteignum, girðing- um, túnum og rafmagnslínum er tengjast landbúnaði, á heyi og vegna uppskerubrests,“ segir í umsögn- inni. Er frá því sagt að fram komi í svari stjórnar Bjargráðasjóðs að tjónið vegna skriðufalla falli ekki undir umrædd ákvæði og þegar bún- aðardeildin var lögð niður 2017 var hætt að leggja á og innheimta bún- aðargjald sem hefði væntanlega get- að komið til móts við tjónið en núver- andi lög nái ekki yfir það. „Ljóst að afurðatjónið fellur á milli stafs og hurðar í kerfinu þar sem ekki virðist hafa verið gengið úr skugga um við lagabreytingar á verkefnum Bjargráðasjóðs að slíkt tjón sé tryggt,“ segir enn fremur og er tekið fram að mikilvægt sé að reglur um Bjargráðasjóð verði end- urskoðaðar eða tryggt með öðrum hætti í lögum að rekstrartjón bænda vegna náttúruhamfara verði bætt. Flytja þarf sögufræg hús Þessu til viðbótar er minnt á að aurskriðan féll á sögufræga byggð og allnokkur sögufræg hús á hættu- svæðinu á Seyðisfirði sem talið er nauðsynlegt að flytja. Því fylgi gríð- arlegur kostnaður og ljóst sé að sveitarfélagið muni þurfa meiri stuðning vegna þess. Tjónið gæti hlaupið á milljörðum - Fyrirtæki ekki fengið tjón sitt bætt eftir skriðuföllin á Seyðisfirði - Eigendur atvinnuhúsnæðis fá enga lausn sinna mála hjá Ofanflóðasjóði - Afurðatjón bænda lendir á milli stafs og hurðar í kerfinu Morgunblaðið/Eggert Seyðisfjörður Umsögnin byggist á reynslu atvinnurekenda á Seyðisfirði af því hvernig tekið var á tjónamálum eftir hamfarirnar í desember 2020.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.