Morgunblaðið - 08.02.2022, Síða 16

Morgunblaðið - 08.02.2022, Síða 16
Í nýkapítalismanum er fagnaðar- boðskapurinn sá að varan skuli framleidd þar sem að- stæður henta best og síð- an flutt frjáls á milli landa og heimsálfa og all- ir hagnist. Þetta byrjaði nokkuð vel og Kína t.d. hófst upp í efnahagslegt stórveldi við þessa stefnumörkun. Þessu fylgdi líka nokk- uð frjáls för verkafólks og einhverjir græddu og græða á því. En nú eru blikur á lofti og þessi eilífðarvél uppgangsins höktir og það helst fyrir ófullkomleika mann- anna. Draumurinn um eilífan frið og samkomulag breyttist skyndilega í martröð og þeir sem í gær voru við- skiptafélagar og „bödd- ís“ eru nú óvinir og per- sónur „non grata“. Þá var næst að setja á viðskiptaþvinganir og frysta eignir óvinanna þar sem til þeirra næst. Þá verður hættulegt að opna gasleiðslur milli landa því þeim er hægt að loka. Í öllum áttum sjást óvinir á fleti fyrir og menn draga angalýj- ur alþjóðaviðskipta inn í bili. Sjálfs- þurft og fæðuöryggi verður málið, og við ræktum okkar rófur og kál sjálfir. Sunnlendingur... Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Viðskiptavæðing á undanhaldi Fæðuöryggi Sjálfs- þurftarbúskapur er það sem koma skal. Morgunblaðið/G.Rúnar 16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 2022 En eitthvað hafa samgöngumálin verið að þvælast fyrir Þor- steini Pálssyni. Hann skrifar í Fréttablaðið 3. febrúar sl. um deilur innan Sjálfstæðis- flokksins með og móti borgarlínu. Hann tekur þetta sem dæmi um að flokkurinn sé að sanna eigin glundroðakenn- ingu á sjálfum sér. Afar sorglegt fyrir fyrrverandi formann þessa flokks og ekki furða þótt hon- um líði illa. En sannleikur málsins er ekki svona sorglegur. Það er enginn á móti borgarlínu. Hópur sérfræðinga er búinn að benda á galla í áætlun Reykjavíkur sem gera hana alltof dýra. Sá hópur er líka búinn að sýna fram á að hægt er að gera jafn góða borgarlínu fyrir 20 milljarða í stað 50 eins og ríkið ætlar að leggja í þetta samkvæmt samgönguáætlun og dug- ir þó ekki til. Rauði dregillinn of dýr Að þurfa bara 20 milljarða en ekki 50 ætti að gleðja mjög fyrrverandi fjármálaráðherra. Ekki er það mjög skiljanlegt af hverju þetta fór fram hjá honum, þetta stendur allt á síðu sérfræðingahópsins, www.samgongurfyr- iralla.com. Munurinn er aðallega eitt atriði. Það er sérbraut fyrir strætó í miðju vegar, ein akrein í hvora átt lögð rauðu asfalti, sem er bönnuð fyrir bíla. Hún kostar 1.200 krónur á millimetra, 60 milljarða fyrir alla 50 kílómetrana sem borgarlínan á að ná yfir. En áætlun sérfræðingahópsins, sem ber nafnið létta borgarlínan, er ekki með þennan rauða dregil heldur sérbrautir fyrir strætó hægra megin eins og nú er og virkar vel. Framhald af járnbraut Reykjavíkurborg hefur tekið þess- ari tillögu mjög illa og borið út um allt að hópur léttu borgarlínunnar sé á móti borgarlínu og almannasam- göngum í heild sinni. Vissulega eru menn á móti hinni þungu línu borg- arstjórnarmeirihluta Reykjavíkur (bsmRvk). Hún ber þess merki að bsmRvk var orðinn fastur í gamla járnbrautarmálinu sem skaut upp í bsmRvk eftir 120 ár undir grænni torfu. Svo fastur að hann komst ekki út af því spori nema eft- ir einhverju sem líkist járnbraut og valdi BRT-kerfi (Bus Rapid Transit) fyrir borgar- línu, það líkist járn- braut. Kerfið er hannað fyrir strætólínur sem anna ekki álaginu, það getur tvöfaldað eða þre- faldað afkastagetuna, og er því vinsælt í þró- unarríkjum þar sem bílaeign er mjög lítil. Sérbrautin í miðju veg- ar er aðgreind með veggjum frá öðr- um hlutum vegarins. Hún gegnir því hlutverki að passa að múlasnar og handkerrur séu ekki að þvælast fyrir strætó. Ekki mikið um það í Reykja- vík. En þetta er næsti bær við járn- braut. Einkunnarorðin sem Scott Rutherford, upphafsmaður BRT, valdi hugmyndinni voru „think train, ride bus“, hugsaðu þér að þú sért í lest þegar þú ferð með strætó. Gallar þungu borgarlínunnar Létta línan hefur skapað dálitla „panik“ í bsmRvk. En við því er ekk- ert að gera. Það verður aldrei neitt úr þungu línunni. Ef þeim tekst að gera fyrsta áfangann af fimm má það telj- ast gott. Þetta eru gallar þungu lín- unnar: . Meirihluti fjármagnsins fer í rauða dregilinn sem ekkert er með að gera. . Það vantar a.m.k. 30-50 milljarða til að klára verkið. . Þá vantar enn 30+ milljarða fyrir nýjum strætisvögnum á hreinorku. . Borgarlína á að fara 30 km/klst. eins og gamli strætó, sem er allt of hægt. . Áætlanir um að farþegatalan þre- faldist eru gersamlega óraunhæfar. . Skýrslur um þjóðhagslegan hagn- að innihalda staðreynda- og reikni- villur. Umferðartafir eru vandamál dagsins Verst er nú samt að þunga borg- arlínan var kynnt sem allsherjar- lausn á samgöngumálum Reykjavík- ur. Hún á þvert á móti eftir að gera samgöngumálin mun verri því um- ferð hefur aukist og tafirnar með, og rauði dregill þungu línunnar bætir í tafirnar. Þetta er mjög bagalegt, hóp- ur léttu línunnar hefur reiknað út að nú kosta tafirnar 36 milljarða á ári og geta hæglega tvöfaldast á stuttum tíma. Þá auka þær eldsneytiseyðslu sem nemur 34.000 tonnum á ári, en það jafngildir viðbótarlosun á CO2 sem nemur 100.000 tonnum á ári. Þessi erfiða staða kemur upp nú vegna þess að ekkert að marki hefur verið gert í samgöngumálum Reykja- víkur í um 20 ár, nema bíða eftir borgarlínu. Hagkvæmni- og loftslagssjónarmið Á þessum tíma hefur dæmið því snúist við, hagkvæmni- og loftslags- sjónarmiðin segja að nú skuli ráðist í tafaminnkandi aðgerðir í borginni. Ýmsar slíkar eru í samgöngusátt- málanum, t.d. gatnamótin Bústaða- vegur/Reykjanesbraut sem borga sig upp á innan við ári, og Sundabraut sem á að færa okkur 200+ milljarða samfélagshagnað, núna 50 árum eftir að hugmyndin kom fram. Gallinn er bara sá að bsmRvk hefur staðið með löppina fyrir þessum áformum og notar til þess skipulagsvald Reykja- víkur. En ef tekst að koma léttu borgar- línunni í gegn, þá munar það öllu. Samgöngusáttmáli með þungu línuna inni er ekki framkvæmanlegur og gerir lítið gagn, en með léttu línunni verður hann mjög fýsilegur. Þetta ættu ráðherrar (fyrrverandi og nú- verandi) að taka til athugunar. Borg- arstjóri líka, en eitthvað er lítil von með það, hann ætlaði að bjarga öllu með borgarlínunni á síðasta kjör- tímabili og kjörtímabilinu þar áður líka, og nú á að bjarga þeim á næsta kjörtímabili. En það getur tekist ef Þorsteinn Pálsson getur sannfært hann. Hver veit? Það er enginn á móti borgarlínu, það þarf bara að gera hlutina rétt. Eftir Jónas Elíasson » Þorsteinn Pálsson er fyrrverandi formað- ur og ráðherra Sjálfstæðisflokksins. Hann nýtur almenns trausts fyrir greinar í blöðum og heiðarlega framgöngu. Jónas Elíasson Höfundur er verkfræðiprófessor. Borgar(sig ekki)línan Mikil er sú gæfa að geta öllum stundum af æðruleysi lagt aðstæð- urnar í Guðs almáttugu kærleikshendur og þannig falið sig og sína, menn og málefni, ástandið og allt það annað sem á okkur hvíl- ir af einlægni í hans hendur. Ævigangan verður eitthvað svo ólýsanlega léttbærari. Maður fyllist óskiljanlegum friði, þakklæti og auðmýkt. Og traustið og friðurinn sem því æðruleysi fylgir er ekkert annað en ómetanleg Guðs gjöf. Minnumst þess sem Jesús gerði fyrir okkur. Því þannig og aðeins þannig munum við komast af og lífi halda, líka þegar við kölluð verðum burt úr heimi þessum. Í kærleikanum er fólgin lausn Kærleikurinn er ekki eigingjarn. Hann segir ekki þegar mér hentar, þegar mér þóknast eða þegar ég vil eða nenni og þá þegar ég fæ hvað mest út úr honum til baka. Nei, kærleikurinn hlustar, kemur auga á og sér. Hann opnar hjarta sitt fyrir aðstæðum, þörf og neyð náungans án þess að spyrja um endur- gjald. Um leið og hann er brottför úr sjálfinu leiðir hann til umhyggju og sjálfsmeðvitundar. Kærleikurinn nær út fyrir alla flokka og fé- lög, hópa, hagsmuna- samtök eða pólitískar samfylkingar. Kærleikurinn er miskunnsamur. Ekki sjálfhverfur. Hann er raunveruleg umhyggja frá innstu hjartans rótum. Hann uppörvar, er jákvæður og hvetjandi. Því hann á uppsprettu sína í hinni tæru lind lífs- ins. Kærleikurinn breytir refsingu í fyrirgefningu. Hann kemur í veg fyrir ósætti. Hann flytur frið og leitar sátta. Hann stuðlar að gleði og veitir fögnuð. Gleði og fögnuð sem byggður er á djúpri alvöru sem leiðir til var- anlegrar hamingju. Hamingju sem umbreytir hjörtum fólks svo það snýr sér frá ranglæti og óréttvísi inn í hið upplýsandi eilífa ljós sannleikans. Kærleikurinn stuðlar að skilningi og eflir samkennd og samstöðu. Hann er nærgætinn, alúðlegur og hlýr. Kærleikurinn er gjafmildur og þakklátur. Hann er líknandi og veitir hjörtunum frið. Eilífan frið sem er æðri öllum mannlegum skilningi. Kærleikurinn fer ekki í mann- greinarálit og tekur sér ekki frí. Hann er ekki aðeins falleg orð heldur lætur hann verkin tala. Í kærleik- anum er fólgin lausn. Ólýsanlegur lækningamáttur og sigurkraftur. Farvegur friðar og sátta Kærleikans Guð gefi okkur af náð sinni að leitast við að láta það eftir okkur að fá að vera farvegir kærleika hans og réttlætis. Fyrirgefningar og sátta. Friðar og fagnaðarerindis, hvern einasta dag og hverja stund, um ókomna tíma. Kynslóð eftir kyn- slóð, þar til við samlögumst honum, ljósi lífsins í himinsins heilögu eilífu dýrð. Með kærleiks- og friðarkveðju. – Lifi lífið! Farvegur kærleika og réttlætis, friðar og sátta Eftir Sigurbjörn Þorkelsson »Kærleikans Guð gefi okkur af náð sinni að fá að vera farvegir kær- leika hans og réttlætis, fyrirgefningar, friðar og sátta. Sigurbjörn Þorkelsson Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins. Enn á ný hefur orðið umræða á Alþingi um kórónuna á Alþingis- húsinu. Þjóðræknum Íslendingum sumum finnst ótækt að þannig skulum við sífellt vera minnt á að við áttum kónga fyrrum sem ríktu yfir konungsrík- inu Íslandi, þótt víðs- fjarri byggju. Þeir voru að vísu ekki Íslendingar, og litl- ir Danir einnig, því að kóngar og drottningar eru flest samsett af fjöl- mörgum þjóðernum, og aðeins að litlu af þjóðerni síns lands. Hér er ekki um að ræða danska kórónu að- eins, heldur konungsríkisins alls sem var, hvort sem okkur líkar betur eða verr að heyra. Á þeirri tíð sem Alþingishúsið var byggt var siður víða um lönd að skreyta ýmsar stórbyggingar merkj- um ríkjandi þjóðhöfðingja, og jafnvel nefna borgir og meiri háttar mann- virki eftir þeim. Hingað barst þessi siður er farið var að byggja hús úr varanlegu efni, steini, þó ekki víða tíðkaður hér. Má þó nefna nafndrátt Friðriks konungs fimmta yfir frúar- dyrum Hóladómkirkju og marmara- töflu yfir stöpuldyrum með áletrun á latínu sem segir að kirkjan hafi verið byggð að frumkvæði konungsins. Kóróna og nafndráttur Kristjáns konungs sjöunda voru yfir kórdyrum Bessastaðakirkju, en var ruslað út úr kirkjunni að fyrirsögn misviturra of- ríkismanna fyrir miðja síðustu öld; Moltke greifi fékk skjaldarmerki sitt sett á stöpul kirkjunnar, en nafn- dráttur konungs, kóróna og bygging- arár voru á veðurvita á kirkjuturni. Er hús loftskeytastöðvarinnar var byggt á Melunum var sett yfir dyr þáverandi skjaldarmerki landsins, fálki, og kóróna yfir. Eins var um Safnahúsið við Hverfisgötu, og meira en það, ævafornt sólartákn, komið upphaflega austan úr löndum, haka- kross, var markað í gólfið í anddyr- inu, en hefur ekki þótt heppilegt er fram í sótti og var fjarlægt. Er Prestsbakkakirkja á Síðu var reist árin 1858-1859 var nafndráttur Friðriks konungs sjöunda, með kór- ónu yfir, settur framan á stöpul kirkjunnar, og er þar enn. Á turni Kálfatjarnarkirkju var settur veður- viti með byggingarári kirkjunnar, 1893, og kóróna yfir, sem enn prýðir kirkjuna. Dómkirkjan í Reykjavík var upp- haflaga byggð á árunum 1787-1797 en var endurbyggð með mikilli breyt- ingu árin 1847-1848. Þá var settur framan á turninn nafndráttur Krist- jáns konungs áttunda með kórónu yf- ir, og sams konar nafndráttur með kórónu settur á veðurvitann á turn- þakinu. Þegar kirkjuþak og turninn voru síðar klædd eirþynnum voru merkin fjarlægð, en ekki kastað heldur geymd á kirkju- lofti. Þegar gert var við kirkjuna á ný og turn- inn færður nær upphaf- legu formi var konungs- merkjunum komið fyrir á ný, og virtust menn ánægðir með það. Kórónan yfir dyrum Loftskeytastöðvarinnar var tekin ofan einhvern tíma eftir lýðveldis- stofnunina. Henni var þó ekki kastað, og nú fyrir allnokkrum árum var hún sett aftur á sinn stað yfir dyrnar, sómir sér vel og hefur víst enginn hreyft andmælum. Fleiri hús kunna að vera merkt konungum Íslands á fyrri tíð án þess að mér sé kunnugt, og má hér minna á styttu Kristjáns konungs 9. á stjórnarráðsblettinum sem sett var upp í þakkarskyni fyrir það að hann „færði okkur stjórnarskrá“ árið 1874. Á fótstallinum er nafndráttur kon- ungs, og kóróna yfir. Hafa einhverjir haft á orði að fjarlægja bæri stytt- una, en til hvers? Þegar Alþingishúsið var byggt ár- ið 1881 var þessari siðvenju haldið og nafndráttur konungs Íslands settur á húsið. En ekki aðeins það, heldur voru beggja vegna útidyra settir skildir, annar með þorskmerki Ís- lands en hinn með ljónunum þremur, hvort tveggja var þá í skjaldarmerki landsins. Merkin voru fyrir löngu tekin ofan, en eru varðveitt. Hér er um söguleg minnismerki að ræða, sið sem var ríkjandi á sínum tíma. Flest þessara merkja eru á friðuðum byggingum, svo sem á Al- þingishúsinu, og því friðlýst einnig. Friðlýsingin er samkvæmt lögum sem Alþingi sjálft hefur sett. Færi svo að ákveðið yrði að fjar- lægja kórónu konungs Íslands af Al- þingishúsinu yrði það vart gert nema með nýjum lögum frá Alþingi. Gætu þá jafnframt önnur teikn um sam- skipti Íslands og Danmerkur fengið að fjúka í kjölfarið. Væri slíkt í raun- inni hneisa og þjóðarskömm, lítils- virðing á sögunni sem „söguþjóðin“ státar sig af á hátíðarstundum. Sums staðar í löndum þykir nú ráð að fella styttur og ummerki fyrri alda harð- stjóra. Jafnvel hafa menn einhvers staðar viljað má söguna út og byrja nýtt tímatal með upphafi harð- stjórnar. Um kórónur og kóngamerki Eftir Þór Magnússon Þór Magnússon » Færi svo að ákveðið yrði að fjarlægja kórónu konungs Íslands af Alþingishúsinu yrði það vart gert nema með nýjum lögum frá Al- þingi. Höfundur er fyrrv. þjóðminjavörður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.