Morgunblaðið - 08.02.2022, Page 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 2022
✝
Ebba Júlíana
Lárusdóttir var
fædd í Stykkishólmi
7. mars 1934. Hún
lést á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja
1. febrúar 2022.
Foreldrar Ebbu
voru hjónin Ásta
Þorbjörg Pálsdóttir
úr Höskuldsey, f.
1900, d, 1987, og
Lárus Elíasson úr
Helgafellssveit, f. 1893, d. 1971.
Ebba var næst yngst sjö systkina.
Elstur var Bjarni, f. 1920, d.
2014, Svanlaugur Elías, f. 1924,
d. 2016, Helga Kristín, f. 1928, d.
2015, Lea Rakel, f. 1929, Hrefna,
f. 1933, og Gunnlaugur, f. 1935.
Ebba giftist Þorgeiri Ibsen,
fyrrverandi skólastjóra í Hafn-
arfirði, þann 10. desember 1955.
Þau bjuggu saman alla sína tíð í
is, eiginkona hans er Katia Stein-
feld, b) Oliver Aron, c) Henry Elí-
as, d) Robert Erik.
Ebba Júlíana fæddist í Stykk-
ishólmi og ólst þar upp. Hún lauk
gagnfræðaprófi 1951 og stund-
aði nám í hússtjórn við St. Reste-
rup í Danmörku 1954. Ebba vann
hjá Pósti og síma í Stykkishólmi
og síðar Landsímanum í Reykja-
vík um nokkurt árabil. Þá var
hún ritari við Lækjarskóla í
Hafnarfirði frá 1968 þar til hún
lét af störfum vegna aldurs. Frá
árinu 1988 lagði Ebba einnig
stund á glerlist. Ebba hélt fjölda
einka- og samsýninga bæði
heima á Íslandi og erlendis. Ebba
lagði stund á handbolta á sínum
yngri árum og lék badminton um
árabil. Ebba varð m.a. Íslands-
meistari í badminton, í einliða-
leik sex ár í röð, 1952-1958, og
tvíliðaleik fjórum sinnum.
Útför Ebbu Júlíönu fer fram
frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 8.
febrúar 2022, klukkan 15. Þeir
sem ekki hafa tök á að mæta í út-
förina geta fylgst með henni í
beinu streymi. Hlekkur á
streymi: http://www.mbl.is/andlat
Hafnarfirði. Þor-
geir var fæddur á
Suðureyri við Súg-
andafjörð 26. apríl
1917, hann lést
þann 8. febrúar
1999.
Börn þeirra eru:
1) Ásgerður, f.
1960, gift Júlíusi
Helga Valgeirs-
syni, f. 1957. Börn
þeirra eru a) Atli
Geir, kvæntur Gígju Eyjólfs-
dóttur. Börn þeirra eru Patrekur
og Hildigunnur. b) Ebba Lára,
gift Theodóri Ingibergssyni.
Börn þeir eru Valgerður Björk,
Júlíus Ingi og Elvar Atli. c) Guð-
laug Björt, sambýlismaður henn-
ar er Hannes Iwarsson.
2) Þorgeir Ibsen, f. 1966,
kvæntur Denise Ibsen, f. 1967.
Börn þeirra eru a) Andrew Kurt-
Mamma mín, þá ertu farin í
sumarlandið. Ég gæti ekki óskað
mér betri móður. Þú varst alltaf til
staðar fyrir mig.
Þú og pabbi áttuð alltaf nægan
tíma fyrir okkur systkinin og fyrir
barnabörnin, þið pössuðuð alltaf
upp á að við værum sterkur hluti
af ykkar lífi. Á æskuárum okkar
systkinanna var mikið um ferða-
lög, hvort sem það var út á land,
upp á fjall eða til útlanda, og alltaf
fengum við að fljóta með. Það að
ferðast með ykkur var sérstaklega
skemmtilegt.
Það má með sanni segja að þú
lést ekki fjarlægðina halda aftur
af þér. Það var alveg sama hvert
ég flakkaði. Þið pabbi voruð alltaf
til í koma og vera hjá okkur og
eiga ógleymanlegar stundir með
okkur. Eftir að pabbi dó þá varst
þú líka ótrúlega dugleg að heim-
sækja okkur Denise og strákana,
hvort sem það var til London eða
Bandaríkjanna. Fyrir það verðum
ég og mín fjölskylda ævinlega
þakklát.
Hólmurinn átti sérstakan stað í
þínu hjarta. Þér þótti vænt um að
okkur skyldi takast að endur-
byggja Silfurgötu 1 í Stykkishólmi
og varst ótrúlega ánægð með út-
komuna. Samverustundirnar okk-
ar þar eru ómetanlegar.
Takk fyrir allar góðu stundirn-
ar. Ég elska þig.
Þorgeir Ibsen.
Það eru forréttindi að hafa átt
móður sem sýndi mér alltaf traust
í öllu því sem ég tók mér fyrir
hendur, var stolt af mér og lét það
óspart í ljóst. Ég var því það lán-
söm að eiga mömmu sem ekki var
bara mamma mín heldur mín
besta vinkona og stuðningsmaður
Móðir mín fæddist í Stykkis-
hólmi og ólst upp á æskuheimili
sínu undir Þinghúshöfðanum. Á
einum fegursta útsýnisstað lands-
ins með útsýni yfir Breiðafjörðinn
þar sem sólarlagið er engu líkt.
Hún var alltaf Hólmari og Hólm-
urinn var hennar athvarf og sælu-
reitur. Frændgarðurinn í Stykk-
ishólmi var stór og þangað var
alltaf gott að koma, ekki síst eftir
að búið var að endurbyggja æsku-
heimilið. Þar fannst móður minni
best að vera.
Móðir mín hafði einstakt auga
fyrir fallegum hlutum og var mikil
smekkmanneskja. Henni var
einnig margt til lista lagt og var
mjög listræn í sér, hannaði skálar
og glerlistaverk sem hún bæði
seldi og sýndi á sýningum hér-
lendis sem erlendis. Við fjölskyld-
an sem og aðrir eigum eftir hana
falleg verk sem hún færði okkur
og öðrum þegar tilefni gafst til.
Hún vildi alltaf vera að gleðja aðra
og var mjög gjafmild. Hún hélt
dýrindisveislur án nokkurrar fyr-
irhafnar, hafði unun af garðyrkju
og ber garðurinn hennar á Sæv-
angi þess glöggt merki.
Móðir mín er okkur fyrirmynd
hvernig njóta eigi heilsusamlegs
lífernis. Hún fór mikið á skíði með
okkur fjölskylduna hér á árum áð-
ur og fór með skíðavinkonum sín-
um í skíðaferð til Madonna á Ítal-
íu. Hún fór að spila golf og
eignaðist golfvinkonur og fór í
golfferð erlendis. Spilaði golf bæði
hér á landi og í Florida þegar hún
var í heimsókn hjá Þorgeiri syni
sínum. Var í leikfimi með eldri
borgurum og fór á nær á hverjum
degi í sund í sundlaug Garða-
bæjar, lærði skriðsund á efri árum
og synti alltaf sínar ferðir og svo
var spjallið tekið í pottinum.
Það var mikill missir hjá
mömmu minni þegar hún missti
föður minn og saknaði hún hans
alltaf. Hún hélt ótrauð áfram, átti
góða vini og fjölskyldu sem hún
vildi vera sem mest í kringum.
Hún ferðaðist mikið með okkur
fjölskyldunni bæði innanlands og
erlendis og eru ófáar ferðirnar
sem við fórum saman til að heim-
sækja Þorgeir og hans fjölskyldu.
Hún var líka dugleg að ferðast ein
og heimsækja þau hvort sem þau
bjuggu í London, Florida eða
Bahamas. Hún vildi vera sem
mest með sínu fólki og fylgdist vel
með öllum. Barnabörnin og síðar
langömmubörnin voru hennar líf
og yndi og að leika við þau og vera
með þeim á þeirra forsendum
fannst henni best. Amma Ebba
var ómissandi og var mikið með
okkur, bæði í hversdagslífinu sem
og á öllum hátíðis- og tyllidögum
og þegar merkisviðburðir voru í
lífi okkar. Það verður því skrítið að
hafa hana ekki lengur með okkur
þar sem hennar líf var svo samofið
okkar.
Maður syrgir af því að maður
elskaði og var elskaður. Söknuð-
urinn er mikill en jafnframt þakk-
læti fyrir allar góðu stundirnar
sem við áttum saman. Minning-
arnar eru dýrmætar og þær verða
aldrei frá manni teknar.
Takk fyrir allt, elsku mamma.
Þín dóttir,
Ásgerður Þorgeirsdóttir.
Elsku amma. Nú er komið að
kveðjustund. Það sem ég á eftir að
sakna þín mikið. Nú streyma fram
margar minningar um þig. Sam-
bandið okkar var einstakt, ég
hefði ekki getað verið heppnari
með ömmu. Þú varst ekki bara
heimsins besta amma, þú varst
líka ein besta vinkona mín.
Alltaf var gott að koma til þín á
Sævanginn í Hafnarfirði. Á mín-
um yngri árum gisti ég oft hjá
ykkur afa, það þótti mér svo gam-
an. Þú varst alltaf svo dugleg að
koma til okkar í Njarðvík og sást
þú um heimilið ákveðna vikudaga.
Það var mikill spenningur að
koma heim úr skólanum þegar ég
vissi að þú varst heima, oftast voru
það ilmandi heitir snúðar sem
tóku á móti manni. Þegar við
Teddi vorum í háskólanámi og
bjuggum í nokkur ár í Kópavogi
eyddum við ófáum dögum hjá þér,
það var svo notalegt að vera hjá
þér. Margar voru utanlandsferð-
irnar okkar, bæði öll stórfjölskyld-
an saman eða við skvísurnar í
verslunarferð, það þótti þér nú
ekki leiðinlegt. Þér þótti svo vænt
um ættaróðalið þitt í Stykkishólmi,
þar leið þér svo vel. Margar voru
ferðirnar í Hólminn þar sem ým-
islegt var brallað.
Fjölskyldan skipti þig miklu
máli og varst þú alltaf svo ánægð
þegar við vorum öll saman. Þú
varst svo stolt af þínu fólki, studdir
okkur og fylgdist vel með öllu. Það
var svo gott að koma í heimsókn
með börnin til þín. Þú varst alltaf
að gera eitthvað með börnunum,
þú gafst þeim tíma og athygli, sett-
ist með þeim á gólfið og lékst við
þau. Litlu langömmu börnin þín
áttu sérstakan stað í hjarta þér, þú
naust þín svo vel í kringum þau.
Ég mun halda minningu þinni á
lofti, tala um þig og segja Valgerði
Björk, Júlíusi Inga og Elvari Atla
sögur af þér, þú varst í svo miklu
uppáhaldi hjá þeim. Alla tíð vorum
við í góðu sambandi, ef við hitt-
umst ekki þá heyrðum við hvor í
annarri alla daga og stundum oft á
dag. Ég á eftir að sakna símtal-
anna okkar mikið.
Í febrúar 2021 fluttir þú í
heimabæinn okkar, það var nota-
leg tilfinning að hafa þig nær okk-
ur og auðveldara var að skjótast til
þín í heimsókn. En stoppið var
stutt þar því þú brotnaðir í október
og dvaldir þú þína síðustu mánuði
á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Að hafa ekki fengið að vera nógu
mikið hjá þér og eiga með þér síð-
ustu mánuðina vegna ástandsins í
samfélaginu reyndist mér afar erf-
itt. Ég hefði viljað getað átt með
þér góðar samverustundir á
sjúkrahúsinu. Við heyrðumst í
myndsímtali nánast alla daga og
við kíktum á gluggann hjá þér, það
hjálpaði okkur mikið. Ég er þakk-
lát fyrir að hafa fengið að eiga síð-
ustu dagana með þér þar sem við
gátum aðeins spjallað og verið
saman.
Elsku amma mín, söknuðurinn
er mikill. Ég kveð þig með trega
og sorg í hjarta. Mikið er ég stolt
af því að hafa átt þig sem ömmu.
Ég er afar þakklát fyrir tímann
sem ég átti með þér, allt sem þú
kenndir mér, gafst mér og allar
minningarnar okkar. Þær mun ég
geyma í hjarta mínu um ókomin
ár.
Ég kveð þig með orðunum sem
þú kvaddir mig með: „Takk fyrir
allt, elsku engillinn minn.“
Þín ömmustelpa og nafna,
Ebba Lára Júlíusdóttir.
Elsku amma mín.
Ég þakka þér fyrir allar frá-
bæru stundirnar sem við höfum
átt saman. Margar góðar minning-
ar sem við eigum. Frá því ég var
lítill strákur hefur þú hugsað vel
um mig. Mér fannst svo gaman að
leika í hrauninu á Sævangi í Hafn-
arfirði. Ég man eftir hestasteinin-
um í garðinum þínum þar sem ég
ímyndaði mér að ég væri kúreki
eða indjáni. Þú varst alltaf hetja
mín.
Þú kenndir mér á skíði í Blá-
fjöllum, eins svo þú kenndir pabba.
Þegar ég var eldri þá komst þú á
alla fótboltaleikina mína. Þú fagn-
aðir mest af öllum áhorfendum.
Amma var mikil stuðningskona
fyrir mig, alltaf í mínu horni. Þú
gafst mer kraft til að halda áfram
og ekki gefast upp.
Amma var góður lífsleiðbein-
andi, með góðar ráðleggingar.
Þegar mér fannst lífið erfitt hélt
hún mér á sporinu „það leggst allt-
af eitthvað til“. Mikið hefur þú rétt
fyrir þér, amma. Þegar ég var ekki
viss hvað ég vildi gera í lífinu þá
varst þú til staðar með hugmyndir
og leiðsögn. Þú þekktir mig best.
Það varst þú sem bentir mér á
flugvirkjun sem starfsferil. Ætti
ég ekki bara prófa það? Heldur
betur. Þetta var fyrir tíu árum síð-
an og þessi starfsferill hefur gefið
mér svo margt. Takk amma.
Ég mun aldrei gleyma ferðalag-
inu okkar til Parísar. Þú sem varst
lofthrædd og vildir bara fara hálfa
leið upp á Eiffelturninn … við
komum ekki alla leið til Parísar til
að fara hálfa leið amma! „Nei,
Ebba Júlíana
Lárusdóttir
Elskuleg frænka okkar,
SIGRÚN ÞORLEIFSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Grund
laugardaginn 29. janúar.
Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju
miðvikudaginn 9. febrúar klukkan 13.
Athöfninni verður einnig streymt og má nálgast hlekk á
youtube-síðu Grafarvogskirkju.
Hlekk á streymi má nálgast á mbl.is/andat
Systkinabörn og fjölskyldur
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
VALGERÐUR ÁGÚSTSDÓTTIR
frá Geitaskarði,
Flúðabakka 1, Blönduósi,
lést 31. janúar. Útför hennar fer fram frá
Blönduóskirkju föstudaginn 11. febrúar klukkan 14.
Hægt verður að nálgast streymi frá útförinni á facebooksíðu
Blönduóskirkju.
Ágúst, Sigríður Heiða, Ingunn Ásdís
Þorbjörn, Hildur Sólveig
og fjölskyldur
Okkar ástkæri
ÞORVALDUR TRYGGVASON,
fv. aðalbókari Flugleiða,
lést á hjúkrunarheimilinu Grund
fimmtudaginn 27. janúar.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni
fimmtudaginn 10. febrúar klukkan 15.
Jóhanna H. Sveinbjarnardóttir
Hildur Þorvaldsdóttir Gunnar Indriðason
Þór Þorvaldsson Edda Eðvaldsdóttir
Tryggvi Þorvaldsson Unnur Gylfadóttir
og fjölskyldur
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
LAUFEY ALDA ÓLAFSDÓTTIR,
Leirubakka 6, Seyðisfirði,
lést fimmtudaginn 3. febrúar á hjúkrunar-
heimilinu Fossahlíð.
Útför fer fram frá Seyðisfjarðarkirkju 16. febrúar klukkan 14.
Þorbjörg Finnbogadóttir Kjartan Kjartansson
Vera Kapitóla Finnbogadóttir Jón Hilmar Jónsson
Magnús Stefánsson Þorgerður Magnúsdóttir
Guðrún Stefánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elsku eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
SONJA HULDA EINARSDÓTTIR
frá Atlastöðum í Fljótavík,
til heimilis að Hjallabraut 33,
Hafnarfirði,
lést á LSH Fossvogi mánudaginn
24. janúar. Útför hefur farið fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir til
starfsfólks á B-2 fyrir góða umönnun í sjúkralegunni.
Gísli Bjarnason
Steinar Gíslaon Karólína M. Vilhjálmsdóttir
Börkur Gíslason Sigurrós Gunnarsdóttir
Hilmar Gíslason Bára Rósa Jónasdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
BJARNAR INGIMARSSON,
Smyrlahrauni 44, Hafnarfirði,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
mánudaginn 24. janúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlátið og útförina.
Jóhann Guðni Bjarnarsson Þórunn Huld Ægisdóttir
Guðný Bjarnarsdóttir Karl Óskar Magnússon
Ingibjörg Bjarnarsdóttir Sigurður Pétur Sigurðsson
Ottó Albert Bjarnarsson Sandra Gísladóttir
afabörn og langafabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
MAGNEA ÓLÖF JÓNSDÓTTIR,
lést laugardaginn 5. febrúar á líknardeild
Landspítalans.
Sævar Daníelsson
Jökull Sævarsson
Íris Sævarsdóttir Erik Robert Qvick
Patrik Írisarson Santos
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
SUMARLIÐI AÐALSTEINSSON
málarameistari,
Árskógum 5,
lést af slysförum aðfaranótt 4. febrúar.
Elín Salína Hjörleifsdóttir
Heiðar Sumarliðason Þorbjörg D. Hall
Hjörleifur Sumarliðason Maríanna Finnbogadóttir
Aðalsteinn Sumarliðason Maren Kjartansdóttir
og barnabörn