Morgunblaðið - 08.02.2022, Page 21

Morgunblaðið - 08.02.2022, Page 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 2022 Andri, við gerum það ekki.“ Við vorum á toppnum. Ógleymanleg stund. Við vorum mjög góðir vinir, alltaf ævintýri í kringum okkur. Við stóðum alltaf saman. Þegar ég var að leita mér að húsnæði þá varstu þú að spyrja út um alln bæ fyrir mig. Þú hjálpaðir mér með að semja um kaup á hús- inu sem ég veit að án þín hefði ég ekki getað gert. Þegar húsið þurfti endurnýjun þá varst þú til staðar. Að mála húsið að innan öll kvöld syngjandi gömlu góðu lögin hans Hauks Morthens. Viltu með mér vaka er blómin sofa, vina mín, og ganga suður að tjörn? Þar í laut við lágan eigum kofa, lékum við þar okkur saman börn. Þar við gættum fjár um fölvar nætur fallegt var þar út við hólinn minn. Hvort er sem mér sýnist að þú grætur, seg mér hví er dapur hugur þinn? Hví ég græt og burt er æskan bjarta, bernsku minnar dáin sérhver rós. Það er sárt í sínu unga hjarta að sjá hve slokkna öll þín skærstu ljós. Ó, hve fegin vildi ég verða aftur vorsins barn og hérna leika mér. Nú er lamað þrek mitt, þrotinn kraftur þunga sorg á herðum mér ég ber. Hvað þá gráta gamla æskudrauma, gamla drauma bara ór og tár. Láttu þrekið þrífa stýristauma. Það er hægt að kljúfa lífsins ár. Kemur ekki vor að liðnum vetri? Vakni ei nýjar rósir sumar hvert? Voru hinar fyrri fegri betri? Feldu ei tár en glöð og hugrökk vert. (Guðmundur Guðmundsson) Á sumrin fórum við í berjamó, spiluðum golf, og nutum tímans saman í heimabænum þínum, Stykkishólmi. Þó ég hafi fæðst er- lendis og hafi búið mest allt líf mitt erlendis þá hefur Ísland alltaf ver- ið heima fyrir mig vegna þíns kær- leika. Þú munt alltaf eiga stað í hjartað mínu. Við bræðurnir, Ró- bert, Henrý, Oliver og ég, munum alltaf sakna þín. Þinn Andri Ibsen. Elsku amma Ebba. Það er komið að kveðjustund og söknuðurinn er svo mikill. Ég er ennþá að ná áttum þar sem þú varst svo mikill partur af mér og allri fjölskyldunni. Við töluðum svo mikið um framtíðina og trúði ég því alla tíð að þú myndir verða alla- vegana 100 ára og að við myndum fá að upplifa miklu meira saman en nú er raunin. Við vorum alltaf með húmorinn og gleðina í fyrirrúmi í gegnum óteljandi facetime-samtöl síðustu ár vegna veru minnar er- lendis þar sem þú lést tæknina svo sannarlega ekki stoppa þig. Þú varst alltaf á leiðinni til mín í heim- sókn til Svíþjóðar svo ég gæti boð- ið þér í kaffi í öllu fína silfrinu sem þú varst búin að gefa mér. Það er sárt að eiga mikið af framtíðar- plönunum eftir sem við töluðum svo mikið um og fá ekki að deila því með þér amma. En þú kenndir mér svo ótal margt og mun ég taka það allt með mér út í lífið. Þú varst alltaf til staðar og alltaf með okkur fjölskyldunni og því eru minningarnar óteljandi. Minn- ingarnar sem eru mér efst í huga eru allar helgarnar sem ég gisti á Sævanginum í Hafnarfirði. Þær einkenndust af ristuðu brauði með banana og heitu kakói í rúmið, sundferð í sundlaugina í Garðabæ, bökuðum pönnukökum og föndri yfir daginn. Í gegnum mína barn- æsku var það svo notalegt þegar þú komst einn virkan dag í viku suður til Njarðvíkur þegar ég var ekki á körfuboltaæfingum og átt- um við þann dag saman. Þá tókstu alltaf meðferðis snúða og ljúffengan kvöldmat. Svo má ekki gleyma öllum ferðunum saman til Stykkishólms, til Flórída til Þor- geirs, verslunarferðunum til Bost- on og skvísuferðunum meðal ann- ars til Danmerkur. Mikið uppáhald var eplakakan þín á að- fangadag sem við fengum okkur svo oft tvær í morgunmat á jóla- dag. Þú komst mér líka í golf og var það mjög skemmtilegt að eiga sameiginlegt áhugamál og eyða ennþá meiri tíma saman. Amma, þú ert fyrirmyndin mín. Þú hugsaðir alltaf fyrst um alla aðra og varst svo gestrisin. Þú varst alltaf svo stolt af mér og ég talaðir svo fallega til mín, bæði við mig og í kringum aðra. Þú sýndir alltaf öllu svo mikinn áhuga í mínu lífi og því var alltaf svo gaman að spjalla við þig um lífið og tilveruna. Þú varst líka alltaf svo glæsileg og það vita allir sem þig þekktu þar sem þú varst alltaf svo smart og í fínasta tauinu. Við höfðum líka rætt það mikið að það er miklu betra að vera fínni í öllum tilefnum en ekki og áttum við það sameiginlegt. Ég er svo þakklát að hafa getað eytt seinustu dögunum þínum hjá þér á sjúkrahúsinu þar sem við gátum átt kveðjustund saman. Það er svo erfitt að hugsa til þess að þú verðir ekki lengur hjá okkur en ég lofa að halda minningunni þinni á lofti alla tíð, amma. Þú verður alltaf í hjarta mínu og ég veit að þú veist það. Elska þig amma mín! Þín ömmustelpa, Guðlaug Björt Júlíusdóttir. Elsku Ebba móðursystir okkar er fallin frá. Hún var yngst systranna á Silf- urgötunni í Stykkishólmi en þær voru fjórar og bræðurnir þrir. Bræðurnir Bjarni og Svanlaugur eru látnir en Gunnlaugur, sem er yngstur, býr í Stykkishólmi. Syst- urnar voru fjórar, þær Helga, Lea, Hrefna og Ebba. Þær voru einstaklega samrýndar og miklar vinkonur en mamma Helga dó 2014. Við minnumst Ebbu fyrst þeg- ar við vorum lítil að koma í heim- sókn til ömmu og afa á Silfurgöt- unni. Hún átti fallegt lítið herbergi í húsinu og var alltaf svo góð við okkur frændsystkini sín. Árin liðu og hún eignaðist fjölskyldu. Þor- geir var maðurinn hennar og þau eignuðust Ásgerði og Þorgeir. Þau bjuggu í fallegu húsi í Hafnar- firði alveg við hraunjaðarinn þar sem fallegir burknar uxu villt. Þar þótti krökkunum gaman að leika sér. Ebba var mikil blómakona og njótum við frændsystkinin þess að hafa fengið afleggjara af fjölærum plöntum frá þeim Ebbu og Hrefnu móðursystrum okkar. Alltaf var hún hjálpsöm og velviljuð við fólk- ið sitt. Jólaboð fjölskyldunnar voru ár- legur viðburður þar sem allir hitt- ust og átti Ebba mikinn þátt í því að þau voru haldin og velheppnuð. Þá var hún ákveðin og jákvæð þegar kom að því að endurbyggja frá grunni húsið okkar á Silfurgöt- unni. Ebba frænka var listræn og eru fjölbreytt glerlistaverk fagurt vitni um hæfileika hennar á því sviði. Við andlát Ebbu viljum við þakka fyrir kynnin og samveru- stundirnar. Við sendum Ásgerði, Þorgeiri og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Hvíl í friði elsku Ebba. Ásta Lára, Guðbrandur, Erla, Ágúst og Þröstur. HINSTA KVEÐJA Elsku amma, ég kveð þig með ljóðinu hans afa „Til vina“. Þótt ævitíminn eyðist og ört verði þáttaskil, vér eigum margs að minnast og margs að hlakka til. Og sérhver með oss eldist, sem unnum vér hér á jörð og á vorn hug og hjarta, vora heill og þakkargjörð. (ÞI) Takk fyrir allt elsku amma. Minning þín er ljós í lífi okkar. Atli Geir Júlíusson. - Fleiri minningargreinar um Ebbu Lárusdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Guðrún Ein- arsdóttir Thorlacius var fædd 7. júlí 1925 í Reykjavík. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Sól- túni 20. janúar 2022. Foreldrar henn- ar voru Einar Tóm- asson, kola- kaupmaður í Reykjavík, f. 18. febrúar 1893, d. 12. september 1966, og eig- inkona hans Ragnhildur Jóns- dóttir, f. 26. júlí 1893, d. 1. maí 1961. Systkini Guðrúnar eru: Elín, f. 1917, d. 1982; Jóna Sigurveig, f. 1920, d. 2000; Ásta, f. 1922, d. 1991; Anna, f. 1923, d. 2011; Tómas, f. 1927, d. 2008; Sigríð- ur, f. 1929, d. 2019; Inga, f. 1930; Ragnhildur, f. 1931, d. 1986; Soffía, f. 1932, d. 2005, og Kristján, f. 1935, d. 2003. Guðrún giftist 18. apríl 1946, Þorleifi Thorlacius sendiherra. Hann var fæddur 18. apríl 1923, d. 3. febrúar 1986. Foreldrar mars 1956. Börn þeirra: Íris Thorhild, f. 1991, og Katharina Ragnhild, f. 1992. 4) Ragnhild- ur, f. 6. desember 1957, gift Torben von M. Bondrop, f. 27. janúar 1958. Börn þeirra: Pét- ur, f. 1987, Stígur, f. 1990, og Caroline, f. 1995. Guðrún var alin upp í Reykjavík, lauk prófi frá hús- mæðraskólanum á Laugalandi í Eyjafirði 1945. Um 1945 var hún afgreiðslustúlka í hann- yrðaverslun í Reykjavík. Hún veiddi lengi vel með föður sín- um í Elliðaánum og kenndi síð- ar afkomendum sínum hand- tökin við árbakkann. Guðrún var sæmd gullmerki Stangveiði- félags Reykjavíkur 17. maí 2019, en þá voru 78 ár liðin frá því hún skráði sig í SVFR fyrst kvenna. Guðrún fluttist ásamt Þorleifi 1952 til Óslóar í Noregi, en vegna starfa Þorleifs í utan- ríkisþjónustunni bjuggu þau er- lendis í yfir 20 ár, s.s. í Noregi, Þýskalandi og Danmörku. Eftir að þau fluttust heim bjuggu þau á Seltjarnarnesi. Síðustu árin bjó Guðrún í Kópavogi uns hún fluttist á hjúkrunarheimilið Sól- tún vorið 2020, þar sem hún lést. Langömmubörnin eru 14 og eitt langalangömmubarn. Útför Guðrúnar fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 8. febr- úar 2022, klukkan 13. hans voru Þor- steinn Thorlacius, f. 26. september 1886, d. 29. maí 1970, bóksali á Ak- ureyri og prent- smiðjustjóri í Reykjavík, og Þor- björg Þorleifsdóttir Thorlacius, f. 2. júlí 1895, d. 12. febrúar 1985. Börn Guðrúnar og Þorleifs eru: 1) Þorsteinn, f. 12. ágúst 1946, kvæntur Guð- nýju Jónasdóttur Thorlacius, f. 30. apríl 1947. Börn þeirra eru Guðrún Tinna, f. 1971, Jónas Einar, f. 1978, Þorleifur, f. 1984. 2) Einar, f. 18. mars 1952, kvæntur Helgu Ásgeirsdóttur Thorlacius, f. 7. febrúar 1950. Börn þeirra eru Nadine Guð- rún, f. 1975, Þórdís Ásta, f. 1983, og Steinunn Erla, f. 1984. 3) Þorbjörg, f. 13. febrúar 1954. Fyrri eiginmaður: Helmut Wes- termann, f. 20. maí 1951. Börn þeirra: Sven-Peter, f. 1971, d. 2015, Jon Einar, f. 1974. Seinni eiginmaður: Klaus Lethaus, f. 4. Elsku mamma, komið að kveðjustund. Þú kvaddir okkur hinn 20. janúar. Síðustu mánuðir voru þér efalaust erfiðir, þar sem heilsu hrakaði, en alltaf varstu glöð og kvartaðir aldrei. Þú brýndir fyrir okkur afkomendum mikilvægi þess að standa saman, enda varst þú úr mjög samhentri fjölskyldu í ellefu systkina hópi. Þú varst á langri ævi ávallt ein- læg og trú, hæversk og góð, nær- gætin og skilningsrík. Áhugamál áttir þú mörg og má sérstaklega nefna stangveiði og elda- mennsku, sem þú leiðbeindir mér um, og hef ég leitast við að miðla þessum fróðleik áfram til minna barna. Langdvölum bjugguð þið pabbi í Noregi, Þýskalandi og Danmörku vegna starfa hans og eru margar og góðar minningar frá tíðum heimsóknum til ykkar. Þótt þú sért nú aðeins minningin ein mun ég ávallt minnast þín með hugheilu þakklæti og hjart- ans hlýju. Með ástarþökk ertu kvödd í hinsta sinni hér. Hlýhug allra vannstu sem fengu að kynn- ast þér. Allt er geymt, engu gleymt, ekkert er fullþakkað. Flýg ég og flýg yfir furuskóg, yfir mörk og mó, yfir mosató, yfir haf og heiði, yfir hraun og sand, yfir vötn og vídd, inn á vorsins land. Flýg ég og flýg yfir fjallaskörð, yfir brekkubörð, yfir bleikan svörð, yfir foss í gili, yfir fuglasveim, yfir lyng í laut, inn í ljóssins heim. (Hugrún) Þorsteinn. Elsku tengdamóðir mín og vinur, Guðrún, hefur kvatt okk- ur, 96 ára gömul, í sátt við langt og farsælt æviskeið. Guðrún var alin upp í stórum systkinahópi á Bergstaðarstræti í Reykjavík. Hún var alltaf stolt af fjölskyldunni og lét það í ljós hve henni þótti vænt um allt frændfólkið sitt. Hún fylgdist líka vel með þessum stóra hópi. Já þau Bergstaðastrætissystkin- in og þeirra afkomendur eru al- veg einstök. Guðrún var mikil fjölskyldumanneskja, hún pass- aði upp á afkomendurna og var alltaf til staðar ef eitthvað bjátaði á. Hún var stálminnug og mundi alla afmælisdaga allra ættingj- anna. Og háöldruð átti hún það til að minna yngra fólkið á tann- læknatíma o.fl. Dætur okkar og barnabörn eiga margar góðar minningar af ömmu Guðrúnu og mun hennar verða sárt saknað í þeirra hópi. Þegar ég minnist Guðrúnar er ég full þakklætis fyrir allt sem hún hefur verið fjölskyldunni. Okkar fyrstu kynni voru fyrir 54 árum þegar ég kom heim með Einari syni hennar á Hofsvalla- götuna. Ég kunni strax vel við þessa glæsilegu konu og bar allt- af síðan mikla virðingu fyrir henni. Og seinna þegar við Einar fluttumst til Þýskalands kynntist ég henni enn betur, því við dvöld- um hjá Þorleifi og henni í Bonn í öllum fríum. Þá var gjarnan tek- ið í spil og spiluð bridge langt fram á nótt. Guðrún var afbragðsgóður kokkur og galdraði fram dýrindis veislumat fyrir smáar sem stórar móttökur. Enda var oft gest- kvæmt hjá þeim hjónum hvar sem þau bjuggu í heiminum. Það var unun að fylgjast með og læra af henni við matargerðina. Hún var listræn í höndunum og saumaði út og prjónaði hvert listaverkið á fætur öðru. Öll fjöl- skyldan átti peysur frá henni. Guðrún hafði gaman af að veiða og byrjaði ung að veiða í Elliðaánum með föður sínum. Guðrún var lunkinn veiðimaður. Hún hélt áfram veiðinni meðan heilsan leyfði og veiddi síðasta laxinn árið 2000 í Elliðaánum. Hún var sæmd gullmerki SVFR árið 2019, enda félagi nr. 1. Það var gaman að ræða bók- menntir við tengdamóður mína, hún las mjög mikið og var þakk- lát fyrir að geta hlustað á hljóð- bækur fram í andlátið. Hún hvatti líka barnabörnin til lesturs og gaf þeim ævinlega bækur í jólagjöf. Hún fylgdist líka vel með þjóð- málum og hafði sterkar skoðanir á flestu sem gerðist á vettvangi stjórnmálanna og var oft rökrætt um þau mál við stofuborðið hjá henni. Einnig hafði hún unun af sígildri tónlist og leiddi mig inn í þann heim með því að setja plötu á fóninn og njóta þess að hlusta í rólegheitum. Ég minnist með hlýju allra heimsókna Guðrúnar til Akur- eyrar, er við Einar bjuggum þar ásamt fjölskyldunni. Þá var farið í berjamó, göngutúra í Kjarna- skógi á nýársdag, nestistúra í Vaglaskóg að sumri og margt fleira. Við fórum nokkrar ferðir með Guðrúnu til Danmerkur og Þýskalands að heimsækja dætur hennar. Starfsfólki Sóltúns vil ég þakka fyrir hlýja umönnun Guð- rúnar síðastliðin tvö ár. Með þessum orðum kveð ég þig elsku Guðrún, minning um glæsilega konu mun lifa að eilífu. Helga. Amma. Ég keyrði inn Berg- staðastrætið og framhjá húsinu ykkar áðan, framhjá húsinu þar sem þú áttir alla æskuna með þínu besta fólki. Afi þinn og amma, pabbi og mamma og þið öll systkinin á Bestó. Hugsaði um sögurnar sem þú hefur sagt mér af æskunni í ungu Reykja- vík. Göturnar í miðbænum eins og þær voru þá, fólkið í húsun- um. Sögur af ykkur afa þegar þið voruð ung og að draga ykkur saman. Ég sé ykkur fyrir mér þegar þið gangið saman löngu leiðina úr miðbænum að Lind- argötu þar sem afi leigði her- bergi. Hann bauð þér inn og þið settust við skrifborð þar sem hann las fyrir þig ljóð, svo róm- antískt og fallegt. Nú man ég ekki hvert ljóðið var en sagan finnst mér svo krúttleg og gam- an að hugsa um ykkur svona ást- fangin og sólgin í að eyða tím- anum saman. Svona hugsa ég til þín, þú ert ung og björt og glöð í blóma lífs þíns. Með afa eins og þú ert núna. Ég fór líka í huganum upp að Elliðaám þar sem þú fórst svo oft með pabba þínum að veiða sem stelpa og þar sem við afkomend- ur þínir förum líka öll sumur. Laxveiðikonan og stangveiði- félagi nr. 1. sem þekkir ána sína út og inn, alla bestu staðina. Flatkökur með hangikjöti og harðfiskur er besta nestið í veið- ina. Það vita allir, líka fyrir grænmetisætur. Heimalagaða kindakæfan þín var líka síðasta vígið. En svo kom að samtalinu um að nú myndi ég ekki borða meiri kæfu. Manstu! Þú skildir það, alltaf styðjandi. Staðföst, sumir hefðu sagt þver en mér finnst fallegt að vera staðföst. Þú varst þannig, líka nægjusöm, jákvæð og dugleg. Svo hélst þú alltaf þínu striki og þorðir að hafa skoðun. Það er töff. Amma töffari! Og þú hlærð að mér þegar ég segi að mér finnist þú vera töffari, en það var gaman að hlæja saman og finna streng í sama húmor. Það nýj- asta af nálinni hjá okkur er sam- talið um smásögur Þórarins Eld- járns sem við vorum báðar að lesa. Við vorum sammála um fyndnustu söguna og ætluðum að lesa hana aftur í vikunni. „Seim tæm next spríng“ amma mín! Og við hlógum innilega að vitleys- unni. Svo fór ég bara í eldhúsið að gera mat. Gerði grænmetis- lasagna og velti fyrir mér hvaða mat þú hefðir gert? Pottþétt ekki lasagna, en kannski kjötsúpu eða einhvern góðan fisk. Þú hafðir þína skoðun á mat og í eldhúsinu varstu sannanlega á heimavelli. Linsoðið egg handa afa, saltkjöt og baunir mínus kjöt, nýtt brauð með dönskum osti, döðlukaka með rjóma og lakkrís, alltaf nóg af lakkrís. Annars hafa samverustund- irnar okkar verið svo ótal margar og góðar undanfarin ár. Það var gott að hægja á og gefa rými með þér. Allt stússið okkar saman, hingað og þangað sem þú þurftir að fara og samtölin um stórfjöl- skylduna alla, upp og niður ætt- artréð. Þú varst með öll tengslin á hreinu, kristaltær í hugsun, kýrskýr. Það versta er að mér finnst ég ekki muna neitt af þessu núna. En ég ætla ekki að hafa áhyggjur af því, treysti því að ég geti spurt þig í draumi ef ég þarf eitthvað að rifja upp. Góð ævi, gjöful og rík. Takk fyrir þig amma mín og allar góðu stundirnar okkar sam- an. Þar til við hittumst á ný. Þín Guðrún Tinna. Guðrún Einars- dóttir Thorlacius Ástkær bróðir, mágur og frændi, ÞÓRÐUR TÓMASSON, Skógum, lést fimmtudaginn 27. janúar á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Selfossi. Útför Þórðar hefur þegar farið fram í kyrrþey, samkvæmt ósk hins látna. Fjölskyldan þakkar öllum auðsýnda samúð. Guðrún Tómasdóttir Magnús Tómasson Kristín Magnúsdóttir og fjölskylda Tómas Birgir Magnússon og fjölskylda Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BRYNJÓLFUR GÍSLI KRISTINSSON, andaðist á hjúkrunarheimilinu Grund mánudaginn 31. janúar. Sérstakar þakkir til heimilis- og starfsfólks fyrir hlýlegt viðmót og góðar stundir. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Arna Sigríður Brynjólfsdóttir Kristinn Brynjólfsson Sæunn Brynjólfsdóttir tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.