Morgunblaðið - 08.02.2022, Page 22

Morgunblaðið - 08.02.2022, Page 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 2022 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30, nóg pláss. Botsía kl. 10.15 Postulínsmálun kl. 12.30.Tálgað í tré kl. 13. Kaffi kl. 14.30-15.20. Nánari upplýsingar í síma 411-2702. Allir velkomnir. Árskógar 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-16. Opin vinnustofa kl. 9-12. Leikfimi m. Milan kl. 10. Leshringur kl. 11.15 Handavinna kl. 12-16. Karlakórsæfing kl. 12.45. Brids kl. 12.30. Hádegismatur kl. 11.30- 12.30. Innipútt kl. 14. Heitt á könnunni. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Allir velkomnir. Sími. 411-2600. Boðinn Pílukast kl. 9. Ganga / stafganga kl. 10. Brids og kanasta kl. 13. Sundlaugin er opin frá kl. 13k30-16. Bústaðakirkja Félagsstarf heldri borgara, opið hús í safnaðarsal frá kl. 13-16 á miðvikudag. Spil, handavinna, hugleiðing og bæn. Góðir gestir koma til okkar, feðginin Laufey Dóra og Áskell en þau hafa verið að hanna og framleiða kjóla með sjálfbærni og umhvefissjónar- mið í huga. Laufey Dóra er læknir og Áskell er blaðamaður og ljós- myndari. Kaffið góða á sínum stað. Hlökkum til að sjá ykkur. Fella- og Hólakirkja Félagsstarf eldri borgara í dag, þriðjudaginn 8. febrúar, hefst með kyrrðarstund kl. 12. Umsjá Kristín Kristjánsdóttir djákni og Arnhildur Valgarðsdóttir organisti. Hlökkum til að sjá ykkur. Verið hjartanlega velkomin. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.30-11. Prjónað til góðs kl. 8.30-12. Morgunleikfimi með Halldóru á RÚV kl. 9.45-10. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Myndlistarhópurinn Kríur kl. 12.30-15.30. Heimaleikfimi á RÚV kl. 13-13.10. Bónusrútan kl. 13.10. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Bókabíllinn kl. 14.45. Garðabær Pool-hópur í Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Qi-gong í Sjálandi kl. 9. Stólajóga kl. 11 í danssal Sjálandsskóla. Leikfimi í Ásgarði kl. 12.15. Botsía í Ásgarði kl. 13.10. Njálulestur í Jónshúsi kl. 13 –15. Smiðjan opin fyrir smíðahóp kl. 13–16. Gjábakki Kl. 8.30 til 11.30 opin handavinnustofa og verkstæði. Kl. 9 til 10.15 heilsu-Qi-gong. Grafarvogskirkja Opið hús fyrir eldri borgara! Í dag, þriðjudaginn 8. febrúar verður opið hús fyrir eldri borgara í Grafarvogskirkju. Opna húsið er kl. 13-15. Margt er til gamans gert. Boðið er upp á kaffi og meðlæti að opna húsinu loknu. Umsjón hefur Sigrún Eggertsdóttir. Kyrrðarstund hefst kl. 12. Að henni lokinni er léttur hádegisverður gegn vægu gjaldi. Allir hjartanlega velkomnir! Gullsmári 13 Myndlist kl. 9.Tréútskurður kl. 13. Kanasta kl. 13 allir velkomnir (byrjendur sem lengra komnir). Korpúlfar Listmálun í Borgum kl. 9, morgunleikfimi í Borgum kl. 9.45 og botsía í Borgum kl. 10. Helgistund í Borgum kl. 10.30 og leikfimis- hópur Korpúlfa, Margrétar-hópur, í Egilshöll kl. 11. Spjallhópur í lista- smiðjunni í Borgum kl. 13 og sundleikfimi kl. 14 í Grafarvogssund- laug. Minnum á Korpúlfabingó á morgun 9. febrúar kl. 13 í Borgum, margt góðra vinninga. Minnum á grímuskyldu. Neskirkja Krossgötur kl. 13. Sr. Skúli S. Ólafsson fjallar um Brynjólf Sveinsson sem Skálholtsbiskup. Kaffiveitingar. Seltjarnarnes Vatnsleikfimi kl. 7.10. Kaffikrókur alla morgna kl. 9- 11.30. Pútt kl. 10.30 að Austurströnd 5. Ath. Helgistundin sem vera átti í salnum á Skólabraut í dag frestast um viku og verður þriðjudaginn 15. febrúar kl. 13.30. Karlakaffi í safnaðarheimilinu kl. 14. Örnámskeið, roð og leður á neðri hæð félagsheimilis kl. 15.30. Nk. fimmtudag verður bingó í salnum á Skólabraut kl. 13.30. Allir velkomnir. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Til sölu HEITIRPOTTAR.IS Sími 777 2000 Saltvatnspottar, klórpottar og hitaveitupottar Eigum til á lager alla tegundir potta Sendum hvert á land sem er Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Færir þér fréttirnar mbl.is atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á ✝ Rafn Hjartar- son fæddist á Hellissandi 27. júlí 1935. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Akranesi 28. janúar 2022. Foreldrar hans voru Jóhanna Vig- fúsdóttir, f. 11. júní 1911, d. 29. apríl 1994, og Hjörtur Jónsson, f. 28. októ- ber 1902, d. 10. ágúst 1963. Systkini hans eru: Snorri, lát- inn, Hreinn, látinn, Hróðmar, Jón, Aðalheiður, látin, og Vigfús. Eiginkona Rafns er Elsa Guð- mundsdóttir f. 2. febrúar 1937. Dætur þeirra eru: 1) María Guð- munda, gift Þorsteini Ósk- arssyni og eiga þau þrjú börn. 2) húsasmíðameistari 1962. Þar kynntist hann Elsu Guðmunds- dóttur. Þau giftu sig hinn 11. júní 1960 í Akureyrarkirkju. Rafn vann hjá Þorgeiri og Ellert með náminu og í mörg ár á eftir. Var formaður Trésmiðafélags- ins um árabil. Rafn fór í Lögregluskólann í Reykjavík og 1972 byrjaði hann í lögreglunni á Akranesi og sinnti því starfi til 1988, er hann hóf störf í Landsbankanum á Akra- nesi þar sem hann vann til starfsloka. Rafn starfaði einnig í mörg ár með frímúrarareglunni Akri. Hann hafði mikið yndi af söng, var í mörg ár í Karlakórn- um Svönum á Akranesi. Útför Rafns fer fram frá Akraneskirkju í dag, 8. febrúar 2022, klukkan 13. Streymt verð- ur frá útförinni á vef Akra- neskirkju, www.akraneskirkja.is Hlekkur á streymi: https://www.mbl.is/andlat Jóhanna Kristín, gift Hauki Líndal Jónssyni og eiga þau þrjú börn. 3) El- ísabet, gift Ríkarði Pálssyni og eiga þau tvö börn. Barnabörnin eru níu, þar af er eitt látið. Barna- barnabörnin eru fimmtán og langa- langafabörnin tvö. Rafn ólst upp á Munaðarhóli á Hellissandi og átti þar sín æsku- ár með foreldrum og systkinum. Lá leið hans í Bændaskólann á Hvanneyri þar sem hann útskrif- aðist sem búfræðingur árið 1955. Eftir það fór hann í húsa- smíðanám í Iðnskólanum á Akranesi og útskrifaðist sem Elsku pabbi. Nú að leiðarlok- um koma margar minningar upp í hugann. Fyrsta minning mín er þegar ég var fjögurra ára og þú komst inn í líf okkar mömmu. Þá baðstu skipstjóra sem sigldi utan að kaupa handa mér dúkkuvagn og dúkku. Okkar samband hefur alla tíð verið sterkt og yndislegt. Þegar ég ólst upp ein hjá ykkur og þegar systur mínar tvær voru litlar fór ég oft með þér í pöntun, það var pöntunarfélag fyrir starfsfólk Þ og E. Það var opið á fimmtudagskvöldum, þá fékk ég að afgreiða mennina og fékk að launum Malta-súkkulaði og App- elsín. Man alltaf þegar ég setti fæturna í gjörðina og við duttum! Það var bara staðið upp, þó svo að ég væri að drepast í fótunum, og haldið áfram því ég vildi ekki missa af súkkulaðinu og gosinu. Man líka eftir að hafa farið með þér á kóræfingu í Bíóhöllinni, og ég söng Fuglinn í fjörunni. Í bílskúrnum á Vogabrautinni gerðist margt, þú kenndir okkur að smíða og passa að pússa alltaf vel áður, og þar var sungið og rædd málin gegnum tíðina. Svo komu börnin okkar systra og þá voru þau öll í bílskúrnum að dunda sér með þér og þú kenndir þeim margt eins og okkur; smíða skip og báta og gera bát úr bréf- um. Þú kenndir þeim líka bæn- irnar. Ég ólst upp í góðu umhverfi og fékk gott uppeldi þar sem þú kenndir mér bænirnar strax. Ég var ekki alltaf sátt við að læra fað- irvorið utan að en það sem ég er þakklát ykkur mömmu fyrir að gefast ekki upp. Samband ykkar mömmu hefur alltaf verið svo fallegt og ástríkt og þið báruð alltaf svo mikla virð- ingu hvort fyrir öðru. Voruð lika alltaf eins og nýtrúlofuð, allt til enda. Undanfarin ár hefur alzheimersjúkdómurinn gengið nærri þér og verið þér erfiður og okkur fjölskyldunni líka. En alltaf varst þú blíður og góður og við kynntumst nýjum manni, sem við fjölskyldan elskuðum meira en allt annað. Í covid var alltaf sunnudags- kaffi hjá okkur í fjölskylduni. Þá kom Sigurlaug oft með rjóma- pönnukökur sérstaklega handa þér því þú ljómaðir alltaf þegar þú sást pönnsurnar. Fyrir þær stundir er ég mjög þakklát í dag. Seinustu dagar þínir voru á sjúkrahúsinu umvafinn fjölskyld- unni og það var yndislegt að geta verið svona mikið hjá þér og hald- ið í sterka hönd þína elsku pabbi. Starfsfólki HVE þakka ég fyrir alla góðvildina sem þau sýndu okkur, starfsfólki Höfða þakka ég fyrir umhyggju við pabba. Hittumst síðar elsku pabbi. Þín dóttir, María Guðmunda Kristinsdóttir. Elsku pabbi minn. Minning- arnar um góðan mann streymdu fram í hugann þegar ég hélt í höndina á þér síðustu dagana þína, allt þetta góða sem þú gafst af þér til okkar systranna og mömmu. Maður er aldrei tilbúinn til að sleppa takinu, en það kom að því þótt sárt væri. Nú ertu kominn í Sumarlandið fagra og það kæmi mér ekki á óvart að þú syngir þar Ó blessuð vertu sumarsól, en söngurinn var þitt yndi á yngri árum og skemmtilegar minningar um ferðalögin þar sem lagið var tekið í bílnum og við tókum öll undir með þér og sungum einhver falleg sumarlög. Skemmtilegu tjaldútilegurnar við Skorradalsvatnið, þar sem þú leyfðir mér einu sinni að prófa að keyra og munaði litlu að ég keyrði tjaldið niður, en við hlógum bara á eftir. Allar ferðirnar á Snæfellsnesið, þínar æskuslóðir, við systurnar vorum alltaf svo spenntar að fara á Hellissand, þar sem þú sýndir okkur staði sem þú hafðir komið á þegar þú varst ungur. Gleymi aldrei ferðinni niður í Dritvíkina, þar sem þú sagðir okkur söguna á bak við stóru steinana í fjörunni og auðvitað tókstu upp stærsta og þyngsta steininn og lyftir honum upp, enda varstu sterkasti pabbi í heiminum fannst okkur systrum alltaf. Eftir að ég flutti ung að árum austur á Eskifjörð með Hjört átt- um við og börnin mín samt eftir að njóta þinnar samveru og hjálpar sem húsasmíðameistari. Þegar við Haukur byrjuðum að byggja húsið okkar, bara tvítug að aldri, þá kom sér vel að eiga pabba sem smið sem varði mörgum stundum við að aðstoða okkur í sumarfríinu sínu, takk pabbi minn, fyrir alla hjálpina. Góðar minningar koma líka upp þegar við ferðuðumst með ykkur mömmu um Austurlandið þegar þið komuð í heimsókn, reyndum alltaf að finna nýja og nýja staði til að fara með ykkur á, með nesti með okkur til að borða úti í náttúrunni. Leita að sér- kennilegum steinum, en það var líka áhugamál hjá þér og einnig hjá mér og fleiri afkomendum þín- um. Eftir því sem árin liðu fann ég fyrir því hve langt í burtu ég var frá ykkur, vildi getað notið meiri samveru með ykkur, en ég reyndi þó alltaf að heimsækja ykkur í hvert skipti sem ég átti leið suður, því það skipti mig miklu máli, þeg- ar aldurinn færðist yfir ykkur mömmu, að hitta ykkur, áður en það yrði of seint einn daginn. Hvíl þú í friði pabbi minn, við systurnar pössum mömmu fyrir þig eins og þú baðst um. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Þín dóttir, Jóhanna Kristín Rafnsdóttir. Rafn Hjartarson ✝ Kristín Guð- mundsdóttir fæddist í Króki, Ásahreppi, Rangárvallasýslu, 20. nóvember 1923. Hún lést 22. janúar 2022. Foreldrar henn- ar voru Guð- mundur Ólafsson, f. 21.12. 1888, d. 2.5. 1989 og Guðrún Gísladóttir, f. 13.12. 1889, d. 6.9. 1935. Kristín var sjöunda barn hjónanna en þau áttu 14 börn. Systkini hennar voru: Guðrún Lovísa, f. 1915, d. 2007. Viktoría Guðrún, f. 1916, d. 2002. Guð- bjartur Gísli, f. 1918, d. 1996. Ólafur, f. 1920, d. 2009. Eyrún, f. 1921, d. 2014. Hermann, f. Sævar Björnsson, f. 26.6. 1944. Kona hans er Pálína Ellen Jóns- dóttir, f. 11.7. 1952. Kristín og Einar hófu búskap í Reykjavík og bjuggu þar alla tíð. Kristín ólst upp í Króki í Ása- hreppi. Á 12. ári missti hún móður sína. Eftir hefðbundna skólagöngu sem var á þessum árum, fór hún í Húsmæðraskól- ann í Hveragerði. Eftir að Örn fæddist bjó hún í Króki en 1953 fluttu þau til Reykjavíkur þegar Kristín og Einar hófu búskap. Kristín starfaði lengi hjá Sæl- gætisgerðinni Víkingi og síðar hjá Þvottahúsi ríkisspítalanna. Hún gegndi trúnaðarmanna- störfum á báðum stöðum. Kristín og Einar áttu lengi sumarbústað í Öndverðarnesi í Grímsnesi. Þau höfðu gaman af því að dansa og voru lengi í samkvæmisdönsum hjá Heiðari Ástvaldssyni. Útför Kristínar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 8. febrúar 2022, klukkan 15. 1922, d. 2014. Dag- björt, f. 1925, d. 2011. Sigurbjörg, f. 1926, d. 2014. Ing- ólfur, f. 1927, d. 2006. Valtýr, f. 1928, d. 2015. Ragnheiður, f. 1929, d. 1999. Gísli, f. 1930, d. 1977. Sigrún, f. 1931, d. 2015. Kristín giftist 14. mars 1954 eftirlifandi eigin- manni sínum, Einari Inga Hjálmtýssyni, f. 1.8. 1930. For- eldrar hans voru: Hjálmtýr Ró- bert Brandsson, f. 11.11. 1908, d. 17.3. 1932 og Þórey Helga Einarsdóttir, f. 31.10. 1906, d. 26.5. 1992. Kristín átti einn son, Örn Stína frænka var móðursystir mín. Hún var sú sjöunda í röð- inni af systkinunum frá Króki sem voru fjórtán talsins. Móðir mín Sigrún var litla systir henn- ar. Stína er nú sú síðasta til að kveðja af systkinahópnum, í hárri elli. Æskuminningar mínar eru margar tengdar þeim Stínu og Einari eiginmanni hennar. Ég kom oft á Flókagötuna í risið til þeirra með foreldrum mínum og Fríðu systur. Þar bjuggu þau ásamt Erni syni Stínu og Þór- eyju móður Einars. Stína vann lengi í Sælgætisgerðinni Víkingi og nutum við systkinabörnin góðs af því. Á flestum heimilum systkina Stínu voru til brúnir bréfpokar fullir af súkkulaði og öðru góðgæti sem Stína kom reglulega með færandi hendi. Á sumrin ferðuðumst við saman um landið með Stínu og Einari og fleiri systrum hennar. Sofið var í tjöldum og til eru margar myndir og minningar úr þessum ferðum. Seinna eignuðust Stína og Einar sumarbústað í Gríms- nesinu og undu sér vel. Þangað kom ég oft sem krakki. Stína var mjög vinnusöm í bústaðnum. Ég man eftir henni í köflóttri vinnu- skyrtu að bera á spýtur og mikil vinna hjá henni fólst í að halda eldinum í kamínunni logandi. Hún bakaði líka oft pönnukökur með kaffinu handa okkur gest- unum. Stína og Einar voru sam- hent og ræktuðu upp mikinn og fallegan gróður í kringum bú- staðinn. Þegar þau fluttu á Kleppsveginn kom ég þangað með mömmu og stundum bök- uðu þær flatkökur og kleinur saman systurnar. Á Bústaðaveg- inum hjá Böggu systur hennar og fjölskyldu hitti ég Stínu og Einar oft því þar var viðkomu- staður flestra systkinanna. Stína kom þá keyrandi því hún tók bíl- próf mjög snemma. Hún hafði lært á bíl hjá Valla bróður sínum eins og margar af systrunum gerðu. Einar hefur sagt mér að hún hafi verið mjög flinkur bíl- stjóri. Þau skiptust oft á að keyra á ferðum sínum. Einar og Stína fóru nokkrar ferðir til Noregs og heimsóttu þar Lóu frænku og hennar fjölskyldu og nutu þess að að keyra um það fallega land. Árið 2011 ákváðu þau hjónakornin þá háöldruð að flytja í aðra íbúð með betra að- gengi. Þau komu mörgum að óvart þegar þau keyptu íbúð á jarðhæð í Ferjuvaði í Norðlinga- holti. Við mamma grínuðumst með það í góðu að þau hefðu flutt í Norðlingaholtið með unga fólkinu á meðan flestir jafnaldr- ar þeirra fóru í þjónustuíbúðir. Þetta lýsir þeim hjónum vel því dugleg og sjálfbjarga hafa þau alltaf verið. Hin síðari ár naut Stína mjög góðs af því hve Einar er ern og hefur sinnt henni mjög vel. Mér er minnisstætt að ef hún var á sjúkrahúsi færði hann henni rjómaís, því ís var í uppá- haldi hjá henni. Stína var frekar dul en jafnlynd og dagfarsprúð kona. En gat þó stokkið upp á nef sér ef eitthvað var gert á hlut hennar. En það var fljótt úr henni. Ég fann vel fyrir vænt- umþykju hennar í minn garð og eftir að mamma kvaddi 2015 fór ég að fara til þeirra reglulega. Ég fékk að setja rúllur í hárið á henni og aðstoða með ýmislegt. Stína kvaddi mig alltaf með orð- unum: „Ég bið að heilsa fólkinu þínu“ og þannig kveð ég þig, kæra frænka, með þakklæti fyrir stundir okkar saman. Guðrún Ólafsdóttir. Kristín Guðmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.