Morgunblaðið - 08.02.2022, Side 32
Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes
www.gaeludyr.is
Með kaupum á
100 lítra+ fiskabúrum
fylgir afsláttarkort sem
veitir 20% afslátt af öllu
í fiskadeild í 30 daga
Leikhúsunn-
endum gefst
tækifæri til að
skyggnast örlítið
á bak við tjöldin á
Leikhúskaffi sem
Borgarbókasafn-
ið í Kringlunni
hefur boðið upp á
í samstarfi við Borgarleikhúsið á síðustu misserum. Að
þessu sinni fá gestir innsýn í verkið Tu jest za drogo (Úff
hvað allt er dýrt hérna) sem leikhópurinn PóliS stendur
að. Á Leikhúskaffinu í dag kl. 17.30-19.00 segja Ólafur
Ásgeirsson, höfundur og leikari, og Aleksandra Skolo-
zynska leikkona gestum frá verkinu. Leikritið er ferða-
saga tveggja ungra Pólverja sem koma til landsins til að
vinna og safna peningum fyrir brúðkaup sitt heima í
Póllandi. Á ferðalaginu hitta þau fyrir furðulegt fólk og
lenda í ýmsum ævintýrum sem reyna á samband þeirra.
Að kynningu lokinni verður rölt yfir í leikhúsið þar sem
leikmynd og önnur umgjörð verksins verður skoðuð.
Úff hvað allt er dýrt hérna kynnt á
Leikhúskaffi Borgarbókasafnsins
ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 39. DAGUR ÁRSINS 2022
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 776 kr.
Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
FH og Haukar unnu bæði góða sigra í úrvalsdeild karla í
handknattleik, Olísdeildinni, í gærkvöldi. FH vann
öruggan útisigur á botnliði HK á meðan Haukar sóttu
frækinn útisigur í Garðabæinn gegn Stjörnunni.
Bæði lið eru nú með 22 stig að loknum 14 leikjum í
tveimur efstu sætum deildarinnar og er það aðeins ögn
betri markatala FH sem skilar liðinu toppsætinu. »26
Hafnarfjarðarliðin hnífjöfn
á toppi deildarinnar
ÍÞRÓTTIR MENNING
deild og á tímamótunum heillaðist
Smári af félaginu.
Smári hefur nokkrum sinnum
komið á Selhurst Park, heimavöll
Palace. Hann segir sérstaklega eft-
irminnilegt þegar fjölskyldan hafi
verið í fríi í Bretlandi sumarið 1996.
„Þá barst okkur boð um að heim-
sækja Selhurst Park. Í heimsókn-
inni var rætt við starfsfólk félagsins
og allir krókar og kimar vallarins
skoðaðir. Við enduðum í bikarasafn-
inu. Margir hlæja dátt þegar ég segi
frá því en tilfellið er að þarna er sal-
ur fullur af bikurum. Að skoðunar-
ferðinni lokinni var okkur boðið inn
á skrifstofu Dave Bassett, þáver-
andi framkvæmdastjóra, og þar var
komandi keppnistímabil rætt.“
Leikmenn koma og fara og Smári
segir að margir hafi verið í uppá-
haldi hjá sér, meðal annars hafsent-
inn Jim Cannon og sóknarmennirnir
Ian Wright og Mark Bright. „Marg-
ir góðir hafa spilað með Palace en
helsta vandamálið er að þegar menn
fara að skína koma stórliðin eins og
gráðugir úlfar og kaupa þá. Núna
eru flottir leikmenn í liðinu og nægir
þar að nefna Wilfried Zaha.“
Crystal Palace er almennt ekki
fyrsta liðið sem kemur upp í hugann
þegar rætt er um enska fótboltann
en Smári segir að hann sé langt frá
því að vera einn í heiminum. „Ég
þekki þó nokkra stuðningsmenn Pa-
lace og veit um fleiri. Það er eitt
sem greinir þennan hóp frá stuðn-
ingsmönnum annarra félaga; hann
hefur takamarkalaust vit á knatt-
spyrnu og er alltaf sæll og glaður
með liðið sitt. Hann veit að ef mikið
verður um ósanngjörn úrslit þá mun
leiðin á endanum liggja upp á ný.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Enski boltinn er byrjaður að rúlla á
ný eftir stutt hlé. Smári Geirsson,
fyrrverandi kennari og skólameist-
ari Verkmenntaskóla Austurlands í
Neskaupstað, er áhangandi enska
úrvalsdeildarliðsins Crystal Palace,
sem sækir Norwich heim annað
kvöld, og vonar það besta. „Ég hef
verið grjótharður stuðningsmaður
Palace frá 1969,“ leggur hann
áherslu á. „Ég er alltaf ánægður
með mína menn og þótt úrslitin hafi
oft verið ósanngjörn erum við Pa-
lace-menn ávallt glaðir og ham-
ingjusamir.“
Frá barnæsku hefur Smári haft
áhuga á íþróttum. Hann var til
dæmis í knattspyrnuráði Þróttar í
Neskaupstað og reyndar formaður
þess um tíma. Hann hefur skrifað
margar bækur sagnfræðilegs eðlis
og er nú að ljúka heilmiklu verki um
sögu Fáskrúðsfjarðar sem á að
koma út síðar á árinu. „Það er alltaf
nóg að gera í skrifunum og það hef-
ur verið skemmtilegt að glíma við
Fáskrúðsfjarðarsöguna. Nú skrifa
ég einnig fréttir á heimasíðu Síld-
arvinnslunnar sem er afskaplega
hressandi.“
Ýmislegt ræður stuðningi Íslend-
inga við ensk fótboltalið. „Ég hef
alltaf haft óbeit á því að halda með
stórliðum,“ segir Smári. „Þegar ég
var stráklingur hélt ég með Burnley
og síðan með Wolves því Úlfarnir
léku í eins búningum og Þróttur
Nes. Það var síðan árið 1969 að Pa-
lace kom upp í efstu deild og ég
fann á mér að þetta væri lið sem
vert væri að styðja. Mér fannst
nafnið á félaginu forvitnilegt og þar
sem ég hef áhuga á sögu fór ég að
setja mig inn í sögu þess.“
Gömul saga
Upphaf Crystal Palace má rekja
til heimssýningarinnar 1851. Gler-
hýsið og sýningarhöllin Crystal Pa-
lace var þá reist í Hyde Park í
Lundúnum. Eftir sýninguna var
mannvirkið síðan flutt í suðurhluta
borgarinnar. Verkamenn og aðrir
starfsmenn við bygginguna stofn-
uðu samnefnt áhugamannafélag en
atvinnumannafélagið varð síðan að
veruleika 1905. Vorið 1969 vann
Crystal Palace sér fyrst sæti í efstu
Sæll stuðningsmaður
- Smári Geirsson hefur haldið með Crystal Palace í nær 53 ár
Ljósmynd/Hákon Ernuson
Fótbolti Smári Geirsson er harður stuðningsmaður Crystal Palace.