Morgunblaðið - 10.02.2022, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 10.02.2022, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2022 ALVÖRU VERKFÆRI 190 EITTRAFHLÖÐUKERFI YFIR VERKFÆRI VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • TRYGGVABRAUT 24, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.is vfs.is Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Þrátt fyrir að ástandið í þjóðfélaginu sé að færast í eðlilegra horf eftir langvarandi erfiðleika í kórónuveiru- faraldrinum hefur þörfin fyrir mat- araðstoð lítið minnkað, að mati for- svarsmanna Fjölskylduhjálpar Íslands og Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur. Enn sé fjöldi fólks í þörf fyrir matarúthlutun. Miklar annir voru hjá starfsfólki og sjálfboðaliðum hjálparsamtak- anna fyrir jólin, eins og alltaf er. Þeir aðstoðuðu mörg þúsund manns með jólamatinn. Þar skipti framlag Kaup- félags Skagfirðinga sköpum því það lagði til margvísleg matvæli úr mat- vælaframleiðslu sinni eins og félagið hafði gert fyrir jólin 2020 og fyrir páskana í fyrra. „Kórónuveirufaraldurinn hafði mikil áhrif á atvinnulífið þegar hann skall á. Við litum á það sem sam- félagslega skyldu okkar sem stórs matvælaframleiðanda að styðja við þá sem misstu vinnuna eða stóðu höllum fæti af öðrum ástæðum með því að standa við bakið á hjálpar- stofnunum og höfum haldið því áfram í covid-faraldrinum,“ segir Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga. Hann seg- ir að félagið sé stolt af því að hafa getað orðið að liði við þessar að- stæður. Spurður hvað félagið hafi lagt í þetta verkefni segir hann, eins og áð- ur þegar hann hefur verið spurður, að ekki sé rétt að meta það í krónum og aurum en segja megi að KS hafi lagt til einhver hundruð þúsunda máltíða í kórónuveirufaraldrinum. Ekki komast allir að Fjölskylduhjálp Íslands var lokuð í janúar. Ásgerður Jóna Flosadóttir formaður segir að sjálfboðaliðar samtakanna hafi lagt mikið á sig fyr- ir jólin og nauðsynlegt hafi verið að gefa þeim frí. Þó hafi verið eins kon- ar neyðarúthlutanir á hverjum degi, yfirleitt eftir ábendingu frá starfs- fólki stofnana í heilbrigðis- og fé- lagskerfinu. Hún segir að mikið sé spurt um næstu matarúthlutanir. Ákveðið hafi verið að næst verði mat úthlutað í Iðufelli í Reykjavík 15. þessa mán- aðar og í Reykjanesbæ 16. febrúar. Hún segir að nú verði fólki gefinn kostur á að sækja um á netinu og þeir sem komast að fái smáskila- boð í síma um það hvenær nákvæm- lega þeir geti sótt matinn. Ásgerður segir að staðan sé þannig að reikna megi með að ekki komist allir að í fyrstu úthlutun. Þeg- ar búið verður að úthluta því sem til er lokist fyrir úthlutun í það skiptið en umsóknirnar færist yfir á næsta og ef til vill þar næsta úthlut- unardag. Einnig þurfi að taka tillit til sjálfboðaliðanna, þeir geti ekki unnið endalaust. Öryrkjar og hælisleitendur Spurð hvaða hópar sæki mest í matarúthlutun hjá Fjölskylduhjálp- inni segir Ásgerður að flestir séu á leigumarkaði. Ráðstöfunartekjur fólks hafi ekki aukist, þrátt fyrir yfir- lýsingar stjórnmálamanna um ann- að, margir hafi ekki efni á að leysa út lyfin sín eða borga fyrir sjúkrabílinn. Það komi til Fjölskylduhjálpar Ís- lands. Nefnir hún öryrkja, einstæða foreldra og einhleypa karlmenn. Um helmingur skjólstæðinga Fjöl- skylduhjálpar Íslands er af erlendu bergi brotinn, meðal annars hæl- isleitendur á ýmsum stigum í um- sóknarferli. Ásgerður gagnrýnir hugmyndir um að ríkið hætti allri að- stoð við hælisleitendur sem fengið hafi synjun. Þeir muni koma beint til Fjölskylduhjálparinnar og auka álagið þar. Hún segir að til þess að sinna þörfum fólksins þyrfti stærra húsnæði, fleiri sjálboðaliða og meira fjármagn til kaupa á mat. Anna Pétursdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur, segir að mat hafi verið úthlutað tvisvar í tveimur síðustu vikum jan- úarmánaðar og það verði gert í febr- úar og áfram, eftir því sem unnt verði. Hún segir að 300-400 manns komi til Mæðrastyrksnefndar á viku um þessar mundir. Hún segir að fólk úr ýmsum hóp- um sæki sér mat en telur að öryrkjar séu í mestri þörf fyrir aðstoð nú eins og oftast áður. Eins virðist einstæðar mæður hafa það slæmt. Hún nefnir einnig heimilislaust fólk og fíkla. Ekki telur Anna að það fækki í hópi skjólstæðinga Mæðrastyrks- nefndar þótt kórónuveirufaraldurinn sé að fjara út. Tekur þó fram að fleiri séu með vinnu og finnst að færra fjölskyldufólk komi núna en oft áður. Annars hafi þörfin verið nokkuð stöðug. Mæðrastyrksnefnd aðstoði marga í hverri viku. KS fær þakkir fólksins Anna Pétursdóttir segir að mikil vinna fari í að safna fé til að kaupa mat. Einnig fáist matur gefins frá fyrirtækjum og nefnir sérstaklega framlag Kaupfélags Skagfirðinga. Mikið hafi munað um það. Ásgerður Jóna Flosadóttir segir óljóst um framhaldið. Kaupfélag Skagfirðinga hafi stutt Fjölskyldu- hjálp Íslands og aðrar hjálparstofn- anir þrisvar sinnum, fyrir jólin 2020, páskana á síðasta ári og síðan um jól- in. Hún segir að forsvarsmenn fyrir- tækisins fái bestu þakkir fólksins sem notið hefur þess mikla stuðnings sem fyrirtækið hefur veitt síðustu misseri. Hún segir að fleiri fyrirtæki séu að taka við sér og sendi mat til úthlutunar. Margir treysta á matarúthlutun - Þeim sem leita til hjálparsamtaka fækkar lítið þótt ástandið í þjóðfélaginu færist í eðlilegra horf - Matvæli sem Kaupfélag Skagfirðinga gaf í kórónuveirufaraldrinum eru sögð hafa skipt sköpum Morgunblaðið/Árni Sæberg Flutningar Fjölskylduhjálp Íslands, Mæðrastyrksnefndir Reykjavíkur og Kópavogs og fleiri samtök hafa á síðustu misserum fengið margar sendingar að norðan, matvæli í hæsta gæðaflokki, fyrir fjölskyldur sem þurfa á að halda. Þórólfur Gíslason Ásgerður Jóna Flosadóttir Anna H. Pétursdóttir Fjölskylduhjálp Íslands er að koma sér upp svokölluðum matarbanka sem opinn verður alla virka daga og fólk getur sjálft valið sér vörur úr. Þangað er beint matvælum sem eru við það að renna út á tíma en eru góður matur ef hann er not- aður strax. Þá er stefnt að því að bjóða upp á heita súpu sem fólk geti tekið heim með sér. Ásgerður Jóna Flosadóttir, for- maður Fjölskylduhjálpar Íslands, fagnar því að vera komin með hús- næði fyrir matarbanka í Iðufelli 14, í sama húsi og Fjölskylduhjálpin hefur til afnota. Þangað verði beint mat sem sé að renna út á tíma og fyrirtæki gefi í stað þess að setja í urðun. Einnig vörur sem hafi verið frystar áður en kom að síðasta söludegi. Hún segir að þetta séu góðar vörur en þurfi að notast strax. Þá dragi þetta úr matarsóun og sé gott innlegg í loftslagsmálin. „Fyrirtækin hringja orðið í okkur á morgnana og við sækjum matinn til þeirra jafn- óðum,“ segir Ásgerður. Matarbankinn verður að hennar sögn með opið alla virka daga frá klukkan eitt til fimm. Fólk sem áður hefur skráð sig á netinu fær smáskilaboð í símann um það klukkan hvað og hvaða dag það getur sótt sér mataraðstoðina og valið sér mat sem þar verður í boði hverju sinni. Matarbanki Fjölskylduhjálpar Ís- lands verður opnaður í mars. „Markmiðið er að ekkert barn fari svangt að sofa og að öll börn geti farið með nesti í skólann.“ Hugmyndin er einnig að elda súpur þannig að seinnihluta dags geti skjólstæðingar Fjölskyldu- hjálparinnar komið með eigin ílát og farið með súpu og brauð með sér heim. helgi@mbl.is Unnið að opnun matarbanka FJÖLSKYLDUHJÁLP ÍSLANDS Morgunblaðið/Árni Sæberg Nýjung Matarbankinn verður í sama húsi og Fjölskylduhjálpin hefur til umráða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.