Morgunblaðið - 10.02.2022, Side 46
46 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2022
✝
Friðbjörg Þór-
unn Oddsdóttir
fæddist í Reykjavík
10. febrúar 1938.
Hún lést á Drop-
laugarstöðum 20.
janúar 2022. For-
eldrar Friðbjargar
voru Oddur Halldór
Ólafsson, fæddur á
Leirá í Leirársveit
12. júlí 1886, dáinn
13. júní 1978, og
Pálína Sigrún Jóhannsdóttir,
fædd á Grafarósi á Höfðaströnd
12. október 1898, dáin 31. maí
1941. Tvíburasystir Friðbjargar
er Jórunn Guðrún, dáin 26. mars
2018. Systkini Friðbjargar, sam-
mæðra, eru: Axel Þorlákur Jó-
freð Ólafur, fæddur 1. júní 1927,
dáinn 14. maí 1968.
Unnusti Friðbjargar var Ing-
ólfur Skagfjörð Bjarnason, fæddur
24. október 1938, dáinn 17. janúar
1967. Þau áttu tvö börn; Rósu
Skagfjörð, fædda 12. desember
1958, og Sigurjón Inga fæddan 17.
desember 1960.
Eiginmaður Friðbjargar var
Hjalti Skaftason, fæddur 8. mars
1940. Þau slitu samvistir 1982.
Börn þeirra eru: Óskar Þór, fædd-
ur 4. júní 1971, Valdimar Númi,
fæddur 15. september 1972, og
Pálína Ósk, fædd 5. nóvember
1975.
Sambýlismaður Friðbjargar var
Eyjólfur Eyjólfsson, fæddur 9. júní
1937. Þau bjuggu lengst af saman
að Ársölum 3 í Kópavogi. Síðustu
þrjú árin bjó Friðbjörg á hjúkr-
unarheimilinu Droplaugarstöðum
vegna Alzheimer-veikinda sinna.
Útför Friðbjargar fer fram frá
Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, 10.
febrúar 2022, kl. 15.
hann Sölvason,
fæddur 15. janúar
1931, dáinn 15.
október 2019, og
Svala Guðmunda
Sölvadóttir, fædd 4.
apríl 1933, dáin 23.
október 2008.
Systkini samfeðra
eru: Fjóla Borg-
fjörð, fædd 2. júlí
1911, dáin 6. októ-
ber 1985, Katrín,
fædd 12. desember 1917, dáin
18. apríl 1966, Þorsteinn, fædd-
ur 25. nóvember 1919, dáinn 27.
júlí 1994, Gísli, fæddur 6. júlí
1922, dáinn 5. janúar 1995, Hall-
dór, fæddur 4. desember 1924,
dáinn 20. október 1952, og Al-
Elsku mamma. Mikið sem
söknuðurinn er sár. Okkar sam-
band var alla tíð mjög náið og þú
ekki síður vinkona mín en móðir.
Ég á margar góðar minningar um
okkar tíma saman. Þú heimsóttir
mig á öllum þeim stöðum sem ég
hef búið á erlendis, það var besta
tilfinningin að vita að þú værir á
leiðinni til mín. Þegar ég flutti að
heiman og eignaðist mitt eigið
heimili varstu tíður gestur. Það var
alltaf svo gott að hafa þig hjá sér
því þú hafðir svo góða nærveru.
Alltaf hæg og róleg, blíð og góð.
Þegar ég fletti í gegnum gamlar
myndir úr mörgum af þínum
myndaalbúmum sé ég hversu stolt
þú varst af afkomendum þínum. Ef
einhver hélt veislu eða við fjöl-
skyldan komum saman þá áttir þú
myndaseríu af þeim viðburði.
Fyrir um 12 árum grunaði þig
að þú gætir mögulega verið komin
með alzheimersjúkdóminn. Við
sem stóðum þér næst vorum frekar
vantrúuð og töldum líklegra að um
eðlileg elliglöp væri að ræða. Þar
sem þú hafðir lengi unnið við
umönnun á alzheimerveikum
þekktirðu þennan sjúkdóm vel. Þú
stóðst fast á því að fara í greiningu,
sem svo leiddi í ljós að þú hafðir
rétt fyrir þér. Þar hófst fyrsta
sorgarstundin. Margar fleiri fylgdu
í kjölfarið þegar geta þín fór þverr-
andi. Þú hættir að geta komið eins
oft í heimsókn til mín, þú hættir að
vita hvað strákarnir mínir hétu, þú
hættir að geta tjáð þig, hugsað um
þig og gengið. Síðustu þrjú árin
varstu á hjúkrunarheimili þar sem
vel var hugsað um þig. Ég heim-
sótti þig eins oft og ég gat en kom
út í hvert skipti með tárin í aug-
unum. Ég var svo heppin að fá að
sitja hjá þér síðustu augnablikin
þín, það síðasta sem þér tókst að
gera var að kyssa á handarbak
okkar systra.
Elsku fallega mamma mín, þeg-
ar ég lít yfir farinn veg finn ég bara
fyrir þakklæti. Ég er svo þakklát
fyrir að hafa fengið þig sem móður
og ég er þakklát fyrir allar góðu
minningarnar. Þú stóðst mér við
hlið á erfiðum sem góðum stund-
um. Ég er þakklát fyrir að hafa
fengið að hafa þig í lífi mínu svona
lengi og fyrir allt það sem þú hefur
kennt mér. Ég veit þó að ég mun
aldrei verða eins góður kokkur eða
bakari og þú varst. Ég mun halda
minningu þinni lifandi og segja
drengjunum mínum sögur af þér.
Þú verður alltaf í hjarta mínu.
Þín dóttir,
Pálína.
Friðbjörg Þórunn
Oddsdóttir
Elsku pabbi, það
er erfitt að hugsa til
þess að þú sért farinn
og það er sárt að koma heim og þú
ekki til staðar fyrir okkur. Þú barst
ávallt hag okkar allra fyrir brjósti,
alltaf til staðar fyrir okkur stór sem
smá og litlu afa- og langafabörnin
þín sóttu til þín.
Þú varst fyrirmynd fyrir okkur
með svo margt, hagyrðingur af
Guðs náð, hugsuður, oft með riss-
blöðin við hendina og minnismið-
Birgir
Thorsteinson
✝
Birgir Thor-
steinson fædd-
ist 24. ágúst 1941.
Hann lést 1. janúar
2022.
Útför Birgis fór
fram frá Hruna-
kirkju 12. janúar
2022.
ana á lofti, þúsund-
þjalasmiður,
skipulagður, varst
alltaf að. Þú byggðir
húsið okkar og gróð-
urhúsin frá grunni,
hannaðir og smíðaðir
m.a. flokkunarvél og
færibönd fyrir tómat-
ana, sturtuvagn,
tjaldvagn, gerðir upp
gamlan Massey
Ferguson frá grunni.
Einnig prjónaðir þú lopapeysur í
samvinnu við mömmu og ekki má
gleyma flatkökubakstrinum.
Þú hafðir alltaf löngun til að
eignast trillu eða lítinn bát, varst
búinn að rannsaka og ná þér í
teikningar en hafðir svo ekki heilsu
til svo stórra framkvæmda. Í stað-
inn smíðaðir þú lítinn bát úr kaffi-
dós en entist ekki þrek til að mála
hann. Þú elsku pabbi sem varst
ávallt fyrstur út til vinnu á morgn-
ana og síðastur inn að kveldi, alltaf
að! Þannig var líf þitt allt til enda.
Aleinn ræ ég út á djúpi.
Ó, sú sjónin skær.
Sjórinn gullnum sólskinshjúpi
sveipast, fjær og nær.
(Steingr. Thorsteinsson)
Elsku pabbi okkar, það voru
þungbær sporin er við fylgdum þér
síðasta spölinn og þung er sorgin og
söknuður okkar og mömmu.
En nú ert þú búinn að kasta káp-
unni og sálin þín er frjáls, því gleðj-
umst við með þér og hlökkum til að
hitta þig í sumarlandinu er okkar
tími kemur.
Trúðu á tvennt í heimi
tign sem hæsta ber:
Guð í alheimsgeimi,
Guð í sjálfum þér.
(Steingr. Thorsteinsson)
Sigríður, Axel, Böðvar
Bjarki og Þorsteinn.
Elsku afi.
Það er svo ótrúlegt til þess að
hugsa að fá ekki að hitta þig aftur.
Að koma til þín og ömmu í morg-
unkaffi þar sem þú sast í sætinu
þínu í horninu, alltaf tilbúinn að gefa
þér tíma, hlusta á okkur og spjalla
þrátt fyrir að þú hefðir alltaf meira
en nóg fyrir stafni. Þú hefur alla tíð
verið svo stór partur af okkar lífi,
rólegur og yfirvegaður en alltaf
stutt í brosið og alltaf til í að hjálpa
okkur ef við þurftum á að halda og
veita góð ráð þegar þess þurfti.
Mikið sem okkur finnst við vera
lánsamar að hafa alist upp svona ná-
lægt ykkur ömmu, verið með í öllu
og unnið við hliðina á þér í gróð-
urhúsunum þínum. Þú sast aldrei
auðum höndum, varst alltaf með
einhver verkefni í gangi og allt virt-
ist leika í höndunum á þér. Við
minnumt þá sérstaklega bátanna
sem þú smíðaðir handa okkur úr
rauðu mexíkósku kaffidollunum
sem við létum sigla í heita pottinum
eða útvarpsins sem þú smíðaðir og
við hlustuðum á í bílskúrnum með-
an við pökkuðum tómötum. Þegar
við vorum litlar og þú og amma fór-
uð til útlanda þá áttum við alltaf
von á að fá helstu ferðapunktana
frá ykkur á póstkorti sem þið skrif-
uðuð með hástöfum skýra og skilj-
anlega svo við gætum örugglega
lesið þá. Þegar heim var komið
komu yfirleitt upp úr ferðatösk-
unni sparikjólar sem við systur
vorum hæstánægðar með. Amma
sagði okkur nýlega að eftir eina
ferðina hefðuð þið komið heim með
tvö pör af sparikjólum af því þú
varst ekki hrifinn af þeim sem hún
valdi og hefðir þá farið sjálfur og
keypt nýja kjóla á okkur.
Við minnumst þín þar sem þú
sast inni á skrifstofunni þinni innan
um allar bækurnar að skrá niður
og rissa upp hvernig báturinn sem
þú ætlaðir að smíða ætti að vera.
Allar stundirnar sem þú varst bú-
inn að vera að spá og spekúlera svo
nákvæmur eins og með allt annað
sem þú gerðir. Það er svo leitt að
þér hafi ekki tekist að byrja á
draumabátnum þínum því alveg
erum við vissar um að þetta hefði
orðið stórkostlegur bátur.
Okkur langar að minnast þín
með bæninni þinni.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Þínar afastelpur,
Eva og Sonja.
Stapahrauni 5, Hafnarfirði
Sími: 565 9775
www.uth.is - uth@uth.is
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Kristín
699 0512
Ástkær eiginmaður minn, faðir og
fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,
BIRGIR BRYNJÓLFSSON,
Fjalli,
ævintýramaður, vélstjóri og
fjallakönnuður,
lést á Landakotsspítala miðvikudaginn 19. janúar eftir langvinn
veikindi. Bálför fer fram frá Fossvogskirkju
mánudaginn 14. febrúar klukkan 13.
Allir hjartanlega velkomnir.
Victoría Björk Vilhjálmsdóttir
Brynja Birgisdóttir
Anna María Birgisdóttir Jóhann Friðrik Gíslason
Arnar Þór Haraldsson Anna Caroline Wagner
Birgir Örn Ragnarsson Metta Sang-Ngam
Margrét Tanja Ragnarsdóttir Hrannar Hólm Sigrúnarson
Anna Lilja Victoríudóttir Stefán Máni Sigþórsson
Aron Ágúst Birgisson
Elín Ösp Axelsdóttir Carlos Friðrik Sanchez
Vilhjálmur Ragnarsson Ólöf Þuríður Pétursdóttir
Þórður A. Úlfur Júlíusson
Guðbjörg Inga Axelsdóttir
og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
JÓN STEINDÓR ÁSGEIRSSON
vélstjóri,
Ólafsvegi 5, Ólafsfirði,
lést 7. febrúar á Hornbrekku, Ólafsfirði.
Útför hans fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju þriðjudaginn
15. febrúar klukkan 13.
Hafdís Jónsdóttir Guðmundur Ólafsson
Gunnlaugur K. Jónsson Guðrún Ólafsdóttir
Guðlaug Jónsdóttir Sveinn Ingvason
Kristinn Jónsson
Sigríður Soffía Jónsdóttir Ásbjörn Már Jónsson
Katrín Jónsdóttir Vignir Siggeirsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar,
afi og langafi.
ÓSKAR HENNING VALGARÐSSON
ÁLDAL
vélvirki,
Hólastekk 2
lést á Líknardeild Landspítalans föstudaginn 28. janúar.
Hann verður jarðsunginn frá Garðakirkju í Garðabæ
mánudaginn 14. febrúar klukkan 13.
Blóm vinsamlega afþökkuð en þeim sem vildu minnast hans er
bent á Krabbameinsfélagið.
Kolbrún Karlsdóttir
börn, barnabörn og langafabörn
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við fráfall og útför
ástkærs föður, tengdaföður, afa og langafa,
GUÐNA B. GUÐNASONAR,
fyrrverandi kaupfélagsstjóra.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
hjúkrunarheimilisins Sunnuhlíðar í Kópavogi fyrir góða
umönnun.
Gunnar Guðnason Erna Olsen
Þórólfur Guðnason Sara Hafsteinsdóttir
Guðni B. Guðnason Ásta Björnsdóttir
afabörn og langafabörn
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
INGÓLFS BJÖRNSSONAR,
fyrrverandi bónda í Drangshlíðardal,
Austur-Eyjafjöllum.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Kirkjuhvols á Hvolsvelli
fyrir góða umönnun og sérlega gott viðmót. Einnig færum við
öllu vistfólki þakkir fyrir samfylgdina og góða nærveru.
Lilja Sigurgeirsdóttir
Sigurgeir Líndal Ingólfsson Drífa Björk Guðmundsdóttir
Guðni Úlfar Ingólfsson Magðalena Karlotta Jónsdóttir
Guðrún Þórey Ingólfsdóttir Þorgeir Guðfinnsson
Hjalti Páll Ingólfsson Kristjana Axelsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Okkar ástkæri
EYSTEINN BRAGASON
sjómaður,
Vesturbergi 8, Reykjavík,
lést miðvikudaginn 26. janúar. Útförin hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Blessuð sé minning hans.
Hrefna Guðmundsdóttir
Bragi Emilsson
Valgeir Gestur Eysteinsson
Björgvin Bragason Maria Silva
Anton Emil Bragason Guðrún Kristófersdóttir
Bryndís Bragadóttir Elvar Grétarsson
Andrés Bragason Elínborg Rabanes
Sjöfn Bragadóttir
Helga Bragadóttir
og frændsystkini hins látna
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
SUMARLIÐI AÐALSTEINSSON
málarameistari,
Árskógum 5,
verður jarðsunginn frá Seljakirkju
þriðjudaginn 15. febrúar klukkan 13.
Elín Salína Hjörleifsdóttir
Heiðar Sumarliðason Þorbjörg Daphne Hall
Hjörleifur Sumarliðason Maríanna Finnbogadóttir
Aðalsteinn Sumarliðason Maren Kjartansdóttir
og barnabörn