Morgunblaðið - 10.02.2022, Side 16

Morgunblaðið - 10.02.2022, Side 16
16 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2022 Auglýst eftir framboðum til stjórnar Almenna lífeyrissjóðsins - Með framboðum skulu fylgja helstu upplýsingar um frambjóðanda, s.s. nafn, kennitala, netfang, sími og heimilisfang Óskað er eftir framboðum til stjórnar Almenna lífeyrissjóðsins. Stjórnar- kjör fer fram með rafrænum hætti. - Samkvæmt samþykktum sjóðsins skal stjórn skipuð þremur konum og þremur körlum og þriggja manna varastjórn skal skipuð minnst einum karli og einni konu. - Kjörtímabili tveggja karla í aðalstjórn og eins karls í varastjórn rennur út á ársfundinum. Eingöngu karlar geta boðið sig fram í aðalstjórn en bæði karlar og konur í varastjórn. - Allir sjóðfélagar geta boðið sig fram til stjórnar en nánari hæfisskilyrði er að finna í 31. gr. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Framboðsfrestur er til kl. 23:59 þann 24. febrúar 2022. Framboð verða að berast kjörnefnd fyrir lok framboðsfrests til þess að teljast lögleg. Hægt er að senda framboð á netfangið kjornefnd@almenni.is Kjörnefnd Almenna lífeyrissjóðsins, 10. febrúar 2022 Í kjörnefnd sitja Ólafur H. Jónsson, Ingvar Júlíus Baldursson og Lára V. Júlíusdóttir Nánar á: www.almenni.is - Taka skal fram hvort framboð er aðeins til aðalmanns, aðeins til varamanns eða aðalmanns og varamanns til vara - Lögmætum frambjóðendum verður boðið að kynna sig á vef sjóðsins Nánar um framboð: BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Orkubú Vestfjarða er að undirbúa frekari jarðhitaleit í nágrenni Ísa- fjarðar og Patreksfjarðar. Ef það tækist að fá nægilegt heitt vatn fyrir hitaveitur þessara staða, sem nú eru rafkyntar, yrði hægt að færa yfir á jarðhita 80% þeirra notenda á Vestfjörðum sem nú treysta á raf- kyntar hitaveitur með skerðanlegri orku. Orkubús- stjóri telur eigi að síður þörf á að auka raforku- framleiðslu í landshlutanum og styrkja svæðis- bundna flutningskerfið til að auka af- hendingaröryggi raforku og telur virkjun í Vatnsfirði besta kostinn. Landsvirkjun hóf að skerða af- hendingu raforku til fjarvarmaveitna á köldum svæðum á miðnætti. Ástæðan er léleg vatnsstaða á há- lendinu og ákvæði í samningum um að skerða megi afhendingu. Áhrif í sjö byggðarlögum Hefur skerðingin áhrif á sex fjar- varmaveitur Orkubús Vestfjarða, það er að segja í Bolungarvík, á Ísa- firði þar sem tvær ótengdar veitur eru, Suðureyri, Flateyri og Patreks- firði og fjarvarmaveitu Rarik á Seyð- isfirði. Fjarvarmaveiturnar fá ótryggða orku frá Landsvirkjun með um það bil 50% afslætti yfir vetrarmánuðina, og meiri afslætti á sumrin. Mun skerðingin hafa mikil áhrif á fjárhag veitnanna sem þurfa að brenna dýru jarðefnaeldsneyti til að hita vatnið. Aukakostnaðurinn er um 4 milljónir á dag hjá OV, samkvæmt fyrstu áætl- unum, sem gera 360 milljónir ef skert verður í þrjá mánuði. Kostnaður Ra- rik á Seyðisfirði eykst um 60 millj- ónir. Þá eykur notkun jarðefnaeldis- neytis í stað grænnar raforku vistspor starfseminnar mikið. Elías Jónatansson orkubússtjóri segir að náðst hafi samningar um olíukaup sem geri kostnaðinn eitt- hvað minni en reiknað var með. Auka- kostnaðurinn sé eigi að síður tilfinn- anlegur og skerði eigið fé fyrirtækisins og getu til framkvæmda í framtíðinni. Segir hann að þarna fjúki hagnaður síðustu tveggja ára út um gluggann. Engar ákvarðanir hafi þó verið teknar um að draga úr fram- kvæmdum við uppbyggingu raforku- kerfis Vestfjarða. Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri Rarik, segir að til standi að loka fjar- varmaveitunni á Seyðisfirði. Komið sé að endurnýjun kerfisins og viðræður séu við sveitarfélagið og stjórnvöld um hvað taki við. Rarik er tilbúið að leggja notendum til rafmagnshitatúp- ur og styrkur úr orkusjóði ætti að duga til að greiða stóran hlut af kostn- aði við kaup og uppsetningu varma- dælna. Gangi þetta eftir ætti kostn- aður allra notenda við húshitun að lækka. Getur Tryggvi þess til viðbótar að ef ekki hefði verið búið að tengja hita- veituna á Höfn í Hornafirði við jarð- hita hefði kostnaður Rarik þar aukist um 150 milljónir vegna skerðinganna nú. Það hefði komið sér vel fjárhags- lega fyrir allar fjarvarmaveiturnar að skipta yfir á forgangsorku. Samning- ar þeirra við Landsvirkjun heimila það ekki. Látið reyna á jarðhitaleit Spurður um lausnir á vanda fjar- varmaveitnanna á Vestfjörðum segir Elías að það sé ekki á valdi fyrir- tækisins að leysa bráðavandann öðru- vísi en með brennslu olíu. Vísar hann þeirri spurningu til stjórnvalda hvort veitunum verði veittur fjárhagslegur stuðningur eða gripið á annan hátt inn í til að afstýra olíubrennslu. Stjórnendur fyrirtækisins hafi hins vegar verið að líta til lausna á raf- orkuvanda landshlutans til lengri tíma. Fyrsta aðgerðin er að halda áfram með leit að jarðhita í nágrenni raf- kyntu veitnanna, samkvæmt rann- sóknaráætlun sem liggur fyrir. Unnið hefur verið að verkefnum í Súganda- firði, á Patreksfirði, í Bolungarvík og á Flateyri. Nægur jarðhiti hefur þeg- ar fundist í Súgandafirði en annars staðar eru hugsanlegir möguleikar sem byggjast á notkun varmadælna. Fyrir dyrum stendur að leita áfram eftir jarðhita á Ísafirði en þar er talið að jarðhiti leynist þótt vatnsæðin hafi ekki fundist. Elías segir að töluverð áhætta sé við jarðhitaleit. Nefnir að rannsóknir gætu kostað 100 milljónir og þegar hiti finnst þurfi 300 milljónir til viðbótar til að virkja hann. „Við höfum viljað fá orkusjóð með okkur í þetta – og erum tilbúnir með umsókn sem við sendum formlega inn þegar opnað verður fyrir umsóknir,“ segir Elías og bætir við að þar séu auðvitað einnig tækifæri fyrir stjórnvöld til að grípa inn í með sérstökum fjárveit- ingum til sjóðsins til þess að fjár- magna leitarátak á svæðum þar sem nú eru rafkyntar hitaveitur. Hann segir að þótt ekki finnist nógu heitt vatn til að nota beint í hita- veituna geti volgt vatn nýst vel með varmadælu, líkt og í Vestmannaeyj- um. Vonast Elías til að nægjanlega heitt vatn finnist á Patreksfirði og Ísafirði. Með því væri hægt að færa 80% af notendum rafkyntra fjar- varmaveitna á Vestfjörðum yfir á jarðhita. Síðar verði að koma í ljós hvernig vandi þeirra 20% rafkyntu veitna sem eftir eru verði leystur. Heimilin sem þeim tengjast verði þó aldrei skilin eftir í óvissu. Undirbúa frekari leit að jarðhita - Fjarvarmaveiturnar skiptu yfir á jarðefnaeldsneyti í nótt þegar lokað var fyrir skerðanlega raforku - Mikill aukakostnaður og losun gróðurhúsalofttegunda fylgir - Orkubúið vill láta reyna á jarðhitann Hitaveita Olíukatlarnir hafa verið ræstir í fimm þorpum Vestfjarða vegna þess að Landsvirkjun skerðir orkuafhendingu til fjarvarmaveitna. Elías Jónatansson Afhendingaröryggi til notenda á Vestfjörðum er ótryggt vegna þess að flutningskerfið er ekki nægjan- lega gott. Skerða þarf afhendingu þegar rafmagnið slær út vegna óveð- urs og einnig vegna viðhalds. „Við leggjum áherslu á að svæðisbundna kerfið verði hringtengt, bæði á suðurfjörðum og norðurhluta Vest- fjarða. Það er komið inn í áætlanir Landsnets en framkvæmdum þyrfti að flýta,“ segir Elías. Sömuleiðis er rætt um mikilvægi þess að tryggja betur aðflutning orku til Vestfjarða. Virkjun betri en ný Vesturlína Þetta tengist áhuga Orkubús Vestfjarða á virkjun í Vatnsfirði. Elías segir að 20-30 megavatta virkj- un þar yrði fjárhagslega hagkvæm. Þá sé staðsetning hennar hentug gagnvart tengingu við svæðis- bundna raforkukerfið á suður- og norðurhluta Vestfjarða. Þá sýni skýrsla Landsnets að virkjun á þessu svæði með því öryggi sem hún skapaði gæti frestað þörf fyrir tvö- földun Vesturlínu úr Hrútafirði að Mjólkárvirkjun. Elías nefnir í þessu sambandi að ný Vesturlína myndi kosta 15 milljarða og tæki örugglega langan tíma að undirbúa fram- kvæmdina. Sama skýrsla sýndi að afhendingaröryggi raforku á norð- urhluta Vestfjarða myndi aukast mun meira með virkjun en nýrri Vesturlínu. Ríkið á það land í Vatnsfirði sem þarf undir virkjun og ríkið og Orkubú Vestfjarða eiga landið sem færi undir línu fyrir tengingu virkj- unarinnar. Eigi að síður eru mörg ljón á veginum. Vatnsfjörður er friðland og eftir er að fjalla um virkjunarkostinn í rammaáætlun. Elías bendir í því sambandi á að friðlýsingarskilmálar útiloki ekki virkjun og að mun meira rask sé í friðlandinu vegna vega- gerðar um Dynjandisheiði en nokk- urn tímann yrðu á láglendinu í Vatnsfirði vegna virkjunar. Sveitar- félögin eru almennt jákvæð fyrir þessum möguleika, að sögn Elíasar, þótt engin formleg afgreiðsla hafi farið fram í Vesturbyggð um breyt- ingar á skipulagi, enda málið ekki komið á það stig. Virkjun í Vatns- firði myndi leysa vandann - Bæta þarf dreifikerfi raforku á Vestfjörðum og tryggja næga orku Morgunblaðið/Sigurður Bogi Göngubrú Fallegt svæði í Vatnsfirði hefur verið friðlýst sem friðland.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.