Morgunblaðið - 10.02.2022, Side 41

Morgunblaðið - 10.02.2022, Side 41
MINNINGAR 41 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2022 ✝ Ragnhildur Jóna Magn- úsdóttir fæddist á Lambhóli við Skerjafjörð 1. ágúst 1924. Hún lést á Hrafnistu Hafnarfirði 2. febrúar 2022. Foreldrar Ragn- hildar voru Magn- ús Helgi Jónsson, f. 8. júlí 1895, d. 19. desember 1957, og Sig- urlína Ebenezersdóttir, f. 6. maí 1893, d. 19. febrúar 1981. Þau eignuðust fjórar dætur og bjuggu á Lambhóli við Skerja- fjörð. Þar ólust dæturnar upp og þar bjó Ragnhildur til ævi- loka. Elst var Ingibjörg Ebba, f. 1923, Ragnhildur, f. 1924, Unnur, f. 1925, og Helga, f. 1931. Skólagangan hófst í for- skóla Ragnheiðar Jónsdóttur, þaðan lá leiðin í Miðbæjarskól- ann og loks í Ingimarsskóla. Síðar sótti hún námskeið m.a. í útsaumi og teikningu. Haustið 1947 fór Ragnhildur til náms í Sorö í Danmörku. Ragnhildur og Kristján giftu sig 31. maí 1952 og eign- uðust sjö börn: 1) Sigurlína hías, Bjarki Hrafn, Agnes Edda og Andri Heiðar. b) Hans Óttar. c) Íris Harpa, maki Aron Bjarki, barn Þór- hildur Fanney. 6) Auður Gróa, f. 22. júlí 1963. Maki Guð- mundur Bragason. Börn: a) Bragi, maki Aníta Steinunn Dagnýjardóttir, þeirra börn: Hildur Freyja og Ronja. b) Bjarni. 7) Unnar Jón, f. 12. maí 1966, d. 9. nóvember 2014. Maki Guðný Einarsdóttir. Börn: a) Kristján Óðinn, maki Birgitta Dröfn Sölvadóttir, þeirra börn: Benjamín Daði, Apríl Björk og Maísól Ýr. b) Unnur Sylvía, f. 1989, maki Fannar Örn Ómarsson. Börn: Unnar Logi, Daníel Hrafn, Hrefna Guðný, Einar Hafberg og óskírður drengur. Er börnin uxu úr grasi hóf Ragnhildur störf utan heimilis hjá Hjallavík, Granda og loks í Nóa-Síríusi til sjötugs. Einnig sinnti hún sjálfboðaliðastarfi á vegum Rauða krossins. Ragn- hildur fylgdist vel með öllu og lét engan bilbug á sér finna þótt ellin sækti á. Sjón og heyrn dofnuðu, en hún hélt samt sem áður heimili í Lamb- hól til 95 ára aldurs eða þar til hún fékk inni á Hrafnistu í Hafnarfirði, þar sem hún and- aðist. Útför Ragnhildar fer fram frá Neskirkju í dag, 10. febr- úar 2022, klukkan 13. Hlekkur á streymi: https://www.mbl.is/andlat Sjöfn, f. 1. ágúst 1947, d. 2. apríl 2009. Maki: Trausti Björnsson, f. 5. janúar 1943. Börn þeirra: a) Halldóra, f. 1965. Börn hennar Elín Sjöfn, Marta María, Stefán Björn. b) Björn, f. 1967, maki Hera Grímsdóttir, börn: Hörður, f. 1989, d. 2015, og Helen María, f. 1989, maki Ar- on Franklín Jónsson, þeirra börn Trausti Franklín, Herdís og Salka. 2) Sylvía Hrönn, f. 11. september 1952. 3) Krist- ján, f. 1. apríl 1954. Börn: a) Ólafur Guðsteinn, f. 1975. Maki Kristina. Þeirra börn: Anna Líf, Roza, Hrefna Ólöf Lilja, Miro Ebenezer, Anelka og Ragnhildur. b) Kristján Kári, maki Halla Bergþórs- dóttir, þeirra börn Kristján Darri og Svanhildur Ósk. c) Daníel Heimir. 4) Magnús Helgi, f. 3. maí 1955, d. 27. júní 2007. 5) Jóhannes Bragi, f. 7. janúar 1960. Maki Svava Hansdóttir. Börn: a) Ragnhild- ur, maki Sveinn Orri Sveins- son. Þeirra börn: Sveinn Matt- Mjög kær móðir mín er látin. Orðin 97 ára og varð langelst í systkinahópi sínum, en þær voru fjórar systurnar; mamma, Unn- ur, sem lést langt fyrir aldur fram, og svo Helga og Ebba. Mamma lifði heldur betur miklar breytingar sem urðu á samfélaginu á æviskeiði hennar. Hún var ung kona í seinna stríði þegar Bretar hernámu Ísland og breskir hermenn voru meira og minna á vappi nálægt heimili hennar á Lambhóli við Skerja- fjörð þar sem hún átti heimili (fyrst í eldra húsinu sem byggt var á fæðingarári hennar 1924 og svo í nýrra húsinu sem hún byggði með pabba og frændfólki sínu 1952) alla sína ævi að und- anskildu einu og hálfu ári á Seyð- isfirði, þar sem fjölskyldan bjó 1967 til 1969. En hún var ekki alltaf á Lambhóli. Þau pabbi voru dugleg að ferðast um landið með barnaskarann og síðar barna- börnin alla tíð. Hún ferðaðist einnig töluvert til útlanda. Mamma lifði tímana tvenna og fékk margvísleg verkefni upp í hendurnar. Hún leysti þau öll með mikilli prýði. Stóð sig ávallt mjög vel með úrlausn þeirra sem voru sum hver ansi erfið eins og að missa þrjú börn sín af sjö á sínu æviskeiði. En það breytti henni ekki. Hún lagði aldrei árar í bát, heldur hélt sínu striki og hélt öllu gangandi, sama hvað bjátaði á. Hún var heimavinnandi hús- móðir (eins og þá var títt enda engir leikskólar) á stóru barna- heimili þar sem nóg var að gera. Og er um hægðist þegar yngsta barnið Unnar var aðeins kominn til vits var hún jafnframt útivinn- andi til að hjálpa til við að afla heimilinu tekna. Og hún vann úti meðfram heimilishaldinu alveg til sjötugs. Hún var raunverulega algjör hetja. Mamma var mjög félagslynd og átti margar vinkonur og var í miklum og nánum samskiptum við stórfjölskyldu sína og mestallt frændfólk sitt alla sína tíð. Hún var einnig ólöt við að hvetja okk- ur systkinin áfram og lagði mikla áherslu á samheldni og einingu milli okkar og innan fjölskyld- unnar. Er ég ekki í nokkrum vafa um að við systkinin eigum henni mikið að þakka með hvað okkur hefur tekist vel að halda góðri samheldni í okkar hópi alla tíð. Hún lagði líka heldur betur sitt af mörkum við að deila upplýsingum og fréttum milli okkar systkin- anna og annarra fjölskyldumeð- lima, með því að hringja í okkur nánast daglega til að spyrja frétta og athuga hvernig við hefð- um það. Hún hafði áhuga á og lét sig það virkilega varða hvernig gengi hjá sínu fólki, bæði vinum og vandamönnum. Og hún vildi stuðla að því og hjálpa til með að allt gengi eins vel og mögulegt væri. Mamma bjó á Lambhóli til 2020 er hún fór á Landakot og síðan á Hrafnistu Hafnarfirði, en þá var sjónin nánast farin og heyrnin orðin léleg. En hún var sæmilega hress og ótrúlega minnug á nöfn og atburði í sínu lífi, allt þar til undir það síðasta, er heilsunni hrakaði verulega ein- hverjum vikum áður en hún lést. Ég kveð mömmu með söknuði. Kristján Kristjánsson. Í dag kveð ég eina af þeim kon- um sem haft hafa hvað mest áhrif á líf mitt, elskulega tengdamóður mína Ragnhildi eða Hildu eins og hún var oftast kölluð af þeim sem hana þekktu. Hildu kynntist ég fyrst þegar ég og sonur hennar Jóhannes byrjuðum saman fyrir 42 árum, ég 16 og hann 19 ára. Fyrstu kynni mín af henni eru mér alltaf mjög minnisstæð og í leið svo lýs- andi fyrir hana. Ég hafði verið í heimsókn hjá Jóa, það var kom- inn matartími og ég ætlaði að lauma mér út. En það voru fáir sem gátu laumast fram hjá Hildu minni, og þá sérstaklega ef hún taldi að hún gæti gert eitthvað fyrir einstaklinginn eða að hún vissi ekki hverra manna hann væri. Nú, það var eins og við manninn mælt. Áður en ég vissi af sat ég þarna við matarborðið og hún slengdi hverju spældu egginu á diskinn minn á fætur öðru, á meðan hún yfirheyrði mig um hver væri pabbi minn, mamma mín, afi minn og amma mín. Svona hélt hún áfram alveg þar til ég stóð á gati í minni eigin ættfræði og hafði lagst ofan á diskinn til þess að sporna við því að fá enn einu spælda egginu slengt á hann, því meiru kom ég engan veginn niður og reyndar gat ég ekki borðað spælt egg lengi á eftir. En samræðurnar við Hildu voru aldrei bara á eina vegu, hún tók ekki bara til sín það sem hún vildi vita, hún var svo mikill hafsjór af þekkingu og visku og kunni svo sannarlega að miðla því til annarra. Þarna kynntist ég konu sem setti ekki fyrir sig eitthvert kynslóðabil eða litaði skoðanir sínar með fordóm- um gegn mönnum og málefnum, hjá henni voru allir jafn merki- legir og elskaðir, og úr hennar húsi gekk enginn út nema með mettan maga og vel nærða sál. Strax þarna tók hún mig í sinn stóra faðm og umvafði mig án nokkurra skilyrða, strax þarna eignaðist ég eina af mínum fal- legu fyrirmyndum sem hafa leitt mig áfram í lífinu. Fyrir það verð ég henni ævinlega þakklát. Það gefur augaleið að á þeim 42 árum sem við höfum verið samferða í gegnum lífið safnast upp margar góðar minningar, minningar sem eru mér og okkur fjölskyldunni ómetanlegar í dag. En Hilda mín skildi ekki bara eft- ir góðar minningar í brjósti okkar sem við yljum okkur við, hún var í senn svo mikill verndari og kenn- ari. Hún var leiðtogi af Guðs náð. Lífið fór ekki alltaf mjúkum höndum um hana og voru þau mörg erfið verkefnin sem hún fékk óbeðin upp í hendurnar. En með æðruleysi sínu og yfirvegun kenndi hún okkur að sama hvaða verkefni við fáum, þá er ljósið alltaf fyrir framan okkur, við þurfum bara að horfa í rétta átt. Elsku Hilda mín takk fyrir allt sem þú hefur kennt mér og gefið. Góði Guð um leið og ég bið þig að taka elsku Hildu mína í faðm þinn vil ég þakka þér fyrir að hafa gefið mér þessa stóru gjöf að fá að eiga hana sem tengdamömmu öll þessi ár. Svo þakklát er ég Hilda mín fyrir okkar góðu kynni, Guð varðveiti þig og verkin þín ég kveð þig nú að sinni. Kær kveðja, Svava Hansdóttir. Ég veit satt best að segja ekki hvernig ég á að fara að því að skrifa minningarorð um ömmu mína. Mér finnst einstaklega erf- itt að ætla mér að berja saman texta sem kemst nálægt því að lýsa því hve mikils virði hún er mér. Nei, eiginlega er það ógjörn- ingur, orðin eru hjóm eitt, það er vart að ég treysti orðum mínum, þau ríma engan veginn við það sem innra með mér býr, þau eru of fátækleg, dauð, tilfinninga- snauð og asnaleg þegar kemur að því að spegla hug minn, spegla hvernig mér er raunverulega inn- anbrjósts. Eiginlega er þetta til- gangslaust. Og ekki hefi ég hug á að lýsa þeim stundum sem við átt- um saman. Þær voru svo margar. Mér myndi örugglega takast að gera þær yfirborðskenndar og leiðinlegar sem þær aldrei voru. Orð eru stundum svo marklaus og smá. Með ömmu minni er farin sú manneskja sem mér þykir mest til koma. Ég sætti mig satt best að segja illa við andlát hennar, finnst sú staðreynd tóm svik og vissulega enn ein staðfestingin á því hve mark- og tilgangslaust þetta blessaða líf er. Samt býst ég við að telja megi mig heppinn. Ég fékk að njóta þess að hafa hana í lífi mínu í heil 46 ár, mína uppá- haldsmanneskju. Amma var sú sem reyndist mér best, hafði áhuga á öllu því lítilfjörlega sem ég aðhafðist sem vitlaus pjakkur, heimskur táning- ur eða fullveðja fáviti, hún sýndi mér aldrei annað en góðmennsku og hlýju, var viðræðugóð og vel máli farin og fjári skemmtileg. Já, hún var einfaldlega best og líf mitt verður sannlega aldrei samt aftur. Já, vissulega má telja mig heppinn. 46 ár með ömmu. Samt líður mér ekki þannig. Margt er ósagt. Svo margt fer í endalausan pytt viðtengingarháttarins líkt og raunin er allajafna þegar einhver deyr, lætur í lægra haldi fyrir tímanum. Sumt fólk er hreinlega ómissandi. Amma var ein af því fólki. Já, mér finnst ósanngjarnt að hún hafi dáið, hafi þurft að veik- last og deyja. Manneskja sem samt aldrei kveinkaði sér í mín eyru og var sannlega mesti harð- jaxl sem ég hefi komist í tæri við. Allir kraftakarlar og -kerlingar heimsins eru ekkisens aumingjar við hlið hennar. Amma gerði og gerir veröldina að betri stað og mig sannlega að betri manni, þótt ég eigi langt í land með að teljast góður maður. Ekki er ég viss um að mér auðnist á minnsta hátt að gera heiminn betri en alltént er tilvist ömmu minnar stöðug áminning um að slíkt sé mögulegt og það í þessum blessaða heimi eilífra hörmunga. En Guð minn góður hvað það verður erfitt án hennar beinu af- skipta, þótt vissulega megi hafa hana að leiðarljósi á þeirri lífs- braut sem ég enn á eftir að feta. Æ! Það er svo margt sem býr innra með mér en ég veit ekki hvernig má koma því frá mér. Ég á, eins og örugglega allir sem kynntust henni, eftir að sakna hennar, ég á eftir að sakna þess að drekka með henni endalaust kaffi og spjalla um heima og geima, ég á eftir að sakna mann- gæsku hennar og viðmóts. Auð- vitað veit ég vel að ég get sótt mér ýmislegt í minningasarpinn frá þessum 46 árum, en það er ekki það sama. Það er hreint ekki það sama. Takk fyrir allt, amma, þú ert mér allt. Ólafur Guðsteinn Kristjánsson. Það er sárt að sakna. Ljúfsárt þegar ég hugsa til Hildu móður- systur minnar sem var mér svo kær. Margar góðar minningar sem ylja. Það var gott og hress- andi að koma í Lambhól og heim- sækja Hildu. Hún var gestrisin og maður fann svo innilega hvað maður var velkominn. Ég fór allt- af glaðari af hennar fundi og margs vísari um lífið og tilveruna. Hún sagði fréttir af sínu fólki og spurði frétta. Sýndi einlægan áhuga á velferð ættingja og vina. Það var gaman að hlusta á hana segja brot úr lífi sínu í gamla daga. Segja frá þegar hún var í sveit á sumrin í Borgarfirði og fór þangað með skipi frá Reykjavík. Segja frá húsmæðraskólanum í Sorø á Sjálandi. Hjólaferðalagi í Danmörku með vinkonu, brattar og hugrakkar ungar konur. Ferðalög með Stjána kærastan- um sínum, síðar eiginmanni. Það var svo áhugavert að fá innsýn í líf hennar sem barns og ungrar konu. Þá kynnist maður svoldið upp á nýtt. Sér nýjar hliðar á manneskjunni og böndin styrkj- ast. Ég man stað og stund þegar fordómar mínir gagnvart mér eldra fólki brustu. Ég var tæp- lega tvítug. Kom heim úr skólan- um og þá sátu þær Lambhóls- systur, Ebba, Hilda og Helga móðir mín, í eldhúskróknum og spjölluðu saman. Það var svo gott að heyra óminn frá þeim. Það var svo gott að setjast hjá þeim og hlusta. Ég skynjaði og skildi þá hvað þær voru fróðar, víðsýnar, umburðarlyndar og skemmtileg- ar. Kynslóðabilið hvarf og þær voru dýrmætar vinkonur mínar. Hilda var vitur kona og ráða- góð. Af væntumþykju gaf hún góð ráð í stórum og smáum málum. Hún lét sig varða. Núna er ég stödd á Tenerife og ég var ný- komin úr sjónum þegar mér bár- ust tíðindin um andlát Hildu. Fyrir nokkrum árum þegar ég var á sólarströnd hvatti Hilda mig til að ganga sem oftast í sjón- um, það væri svo heilnæmt og margra meina bót. Ég hlýði þessu og verður alltaf hugsað til Hildu þegar ég geng berfætt í flæðar- málinu. Þegar Hilda var heima- sæta í Lambhól, þá sendi mamma hennar hana út til að sækja sjó í vaskafat. Vaskafatið bar Hilda inn á eldhúsgólf til mömmu sinn- ar svo hún gæti farið í heilsusam- legt fótabað í söltum sjó. Þær vissu sínu viti, þá sem nú. Þegar Helga móðir mín dó fyr- ir rúmum 25 árum sýndi Hilda okkur systkinunum ræktarsemi, alltumvefjandi og umhyggjusöm. Ég er þakklát fyrir að hafa átt hana að. Hilda og Stjáni áttu sjö börn. Þrjú barna þeirra eru látin. Lambhóls-systkinin eru sam- hentur hópur, trú og trygglind. Hilda var í góðum höndum barna sinna og fjölskyldu síðustu miss- erin, þegar heilsu hennar hrak- aði. Ég votta þeim öllum samúð mína. Hilda kvaddi alltaf svo fallega. Hún fylgdi manni til dyra, stóð úti á tröppum, horfði á eftir manni og vinkaði. Ég er í burtu núna og get ekki fylgt henni til grafar. En ég kveð hana í huganum, þakka fyrir allar góðu stundirnar og óska henni góðrar ferðar. Signhildur Sigurðardóttir. Ragnhildur Jóna Magnúsdóttir ✝ Bergþóra Guð- mundsdóttir fæddist í Reykjavík 26. janúar 1936. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Mánateig á Hrafn- istu 31. janúar 2022. Foreldrar Berg- þóru voru hjónin Guðríður Ólafs- dóttir, f. 5. júlí 1901, d. 4. mars 1988, og Guðmundur Helgi Eiríksson, f. 1. ágúst 1903, d. 7. maí 1950. Systur hennar eru Helga, f. 16. sept- ember 1927, d. 5. apríl 2012 í Kaliforníu; Sesselja A., f. 21. júlí 1978. Börn þeirra: Halldóra Frið- mey, f. 19. september 1985, Bergþóra, f. 15. mars 1990, og Brynjólfur Þór, f. 25. maí 1997. 2) Gunnar Þór, f. 14. mars 1956, sambýliskona hans Herdís Krist- insdóttir, f. 6. janúar 1961. Börn þeirra: Kristinn Þór, f. 18. nóv- ember 1984, og Kjartan Þór, f. 7. desember 1988. 3) Hafdís, f. 5. október 1959, eiginmaður henn- ar Hermann Sævar Ástvaldsson, f. 4. janúar 1951. Börn þeirra: Bergþóra Linda, f. 27. október 1977, Arnar Freyr, f. 16. júlí 1989, og Ármann Freyr, f. 9. maí 1993. 4) Berglind, f. 3. ágúst 1966, sambýlismaður hennar Magnús Egilsson f. 24. júlí 1964. Börn hennar: Auður Eir, f. 15. maí 1988, og Guðni Þór, f. 30. september 1994. Útförin fer fram frá Guðríð- arkirkju í dag, 10. febrúar 2022, klukkan 13. 1933, d. 2. maí 2020 í Kaliforníu; og Margrét Stella, f. 23. sept 1934. Fyrrverandi eig- inmaður Bergþóru var Ármann Þór Ás- mundsson, f. 19. maí 1934, d. 25. apríl 2010 (þau skildu). Börn þeirra: 1) Guð- mundur Þór, f. 1. júní 1954, sambýlis- kona hans Danfríður Brynjólfs- dóttir, f. 23. september 1958. Börn hans: Hildur, f. 25. desem- ber 1973, Ármann Þór, f. 12. maí 1975, og Sandra Dögg, f. 16. júní Elsku amma Bergþóra. Mér finnst ótrúlega skrítið að hugsa til þess að þú sért farin. Þú hefur alltaf verið partur af lífi mínu en svo skyndilega ertu ekki hér lengur. Ég á svo margar góðar minn- ingar um þig sem ég mun ávallt varðveita. Þegar ég fer að hugsa, þá kem- ur upp í hugann á mér þegar þú varst að koma í strætó í heimsókn til okkar í Lautasmárann. Ég sá þig koma labbandi niður brekk- una en svo stoppaðir þú til þess að spjalla við kisu sem var á göngu þar líka. Þú varst alltaf mikill dýravinur og hef ég það sterkt frá þér. Frá því að ég man eftir mér hefur þú eytt jóladegi með okkur fjölskyldunni. Þú komst alltaf í hangikjöt í hádeginu og eyddir svo öllum deginum með okkur. Þegar ég var lítil tókstu þér alltaf tíma og komst inn í herbergið mitt til að skoða dótið sem ég fékk í jólagjöf. Þú elskaðir mat- inn sem mamma eldaði og talaðir oft um hvað þú hlakkaðir til að koma til okkar á jóladag og fá matinn hennar Danný. Þú alveg ljómaðir í hvert sinn og sagðir: „Maturinn hennar Danný er svo góður,“ svo straukstu magann um leið og þú sagðir þetta og bættir við: „En ég grennist alla- vega ekki á meðan ég er í heim- sókn“ og hlóst. Næstu jóladagar verða ansi tómlegir án þín, elsku amma mín. Þú hringdir oft í mig á afmæl- isdeginum mínum til að óska mér til hamingju með daginn, mér þótti óskaplega vænt um að fá þessi símtöl. Líka þegar ég var ólétt að Mána, þá hringdir þú oft bara til þess að athuga hvernig mér gengi og liði. Þú varst svo spennt að fá enn eitt langömmu- barnið og varst alltaf með það á hreinu númer hvað hann væri í röðinni yfir öll langömmubörnin þín. Ég var skírð í höfuðið á þér og vorum við alnöfnur. Þú minntist oft á það og sagðir öðru fólki frá því ef við vorum saman t.d. í veislu. Þú brostir alltaf og sagðir: „Þarna er hún Bergþóra mín, ég og hún erum alnöfnur,“ svo tókstu utan um mig og hlóst. Ég sakna að heyra ekki hláturinn þinn, elsku amma. Ég gæti skrifað mikið meira en ætla að láta þetta duga núna. Elsku amma Bergþóra, takk fyrir allt. Þú varst svo góð og hlý amma. Þú munt alltaf eiga stóran stað í hjarta mínu. Hvíldu í friði, elsku amma. Þitt barnabarn, Bergþóra Guðmundsdóttir. Bergþóra Guðmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.