Morgunblaðið - 10.02.2022, Side 36
36 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2022
...algjör snilld! Hlaða Draga út og vefja Þrýsta og skera Geyma
• Klippir plastfilmur og ál
• 35% sparnaður
• Ódýrari áfyllingar
• Má setja í uppþvottavél
Engar flæ
kjur
Ekkert v
esen
Ómissandi í eldhúsið
Fæst í FK, Hagkaupum, Byko, Nettó, Krónunni og Húsasmiðjunni
www.danco.is
Heildsöludreifing
N Ý F O R M
H Ú S G A G N A V E R S L U N
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Mikið úrval af HVÍLDARST
með og án rafmagns lyftibú
Komið og
skoðið úrvalið
ÓLUM
naði
Ég gef kost á mér í
2. sæti í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík 12. mars
næstkomandi. Margir
hafa eða munu bjóða
sig fram í 2.-3. sæti
og ég hef metnað í 2.
sætið og vona að ég
njóti þar stuðnings.
Ég kem með nýja
reynslu inn í borg-
arstjórn eftir áratuga störf við
stjórnun stærri og smærri fyrir-
tækja, sprotafyrirtækja og stjórn-
un Háskólans í Reykjavík. Tel það
kost að hafa ekki verið rótgróinn
lengi í borgarmálum, en fylgt
sterkt eftir málefnum Sjálfstæð-
isflokksins. m.a. sem formaður vel-
ferðarnefndar í landsmálum og á
fyrra kjörtímabili sem formaður
menntamálanefndar. Mun njóta
þeirrar þekkingar og vonandi
áframhaldandi stuðnings í lands-
málum flokksins.
Leiðarljós mitt byggist á
eftirfarandi tíu stefnumiðum
1. Breyta verður áherslum í
skipulagsmálum og stjórnun borg-
arinnar. Draga verður úr forræð-
ishyggju og taka aukið tillit til
sjónarmiða þeirra sem búa og
starfa í borginni.
2. Stöðva verður flótta fyr-
irtækja og fólks frá borginni. Setja
þarf nýtt byggingarland strax í
uppbyggingu samhliða hófstilltri
þéttingu byggðar. Mikilvæg fyrir-
tæki og íbúar hafa verið að flýja
borgina undanfarin ár vegna
skorts á hagkvæmum og ódýrum
íbúðum og byggingarlandi.
3. Bæta verður aðstöðu og þjón-
ustu við fyrirtæki í öllum greinum
atvinnurekstrar. Öflug fyrirtæki
eru undirstaða atvinnulífs, tekju-
öflunar og velferðar hjá borg-
arbúum. Slakar almennings-
samgöngur, ónóg bílastæði og
þröng aðkoma hafa reynst mörgum
fyrirtækjum kostnaðarsöm. Sýnu
verri eru þó afleiðingar sífellt
meiri umferðartafa.
4. Skóla- og íþrótta-
mál verði í hávegum
höfð. Skólar verða að
þjóna einstaka hverf-
um og börnum, án
myglu, og án þess að
löng bið verði eftir
íþróttaaðstöðu eða
leikskólaplássi.
5. Bæta verður
þjónustu við eldri
borgara. Sinna verður
málefnum eldri borg-
ara af meiri framsýni
en hingað til, samhliða fjölgun
eldra fólks. Byggja þarf upp betri
aðstöðu til forvarna og endurhæf-
ingar sem hentar þessum aldurs-
hópum. Þá er stórt réttlætismál að
dregið verði úr álögum á lífeyr-
isþega.
6. Burt með biðraðir í heil-
brigðis- og velferðarmálum. Vel-
ferðarmál skipta höfuðborgarbúa
miklu máli og á því sviði þarf að
hafa samstarf við stjórnvöld. Verð-
um að losna við biðraðirnar sem
einkenna þessa þjónustu á fjöl-
mörgum sviðum.
7. Lækka verður álögur á þá
sem búa við kröppust kjör. Þá
verður að endurskoða velferð-
arkerfið heildstætt og losa um fá-
tæktargildrur innan þess t.d. varð-
andi fasteignagjöld o.fl. Það á ekki
síst við um þann vaxandi fjölda
eldri borgara sem býr við fátækt,
m.a. vegna slakra lífeyrisréttinda
og engra launatekna eða fjár-
magnstekna.
8. Snúa verður vörn í sókn í hús-
næðismálum. Uppbygging hús-
næðis hefur verið vanrækt og sér-
staklega ódýrt húsnæði fyrir yngra
fólk og tekjulága. Úr því verður
bætt á kjörtímabilinu. Leigumark-
aður þarf einnig að vera virkur og
öruggari fyrir leigutaka.
9. Endurskoða verður sam-
göngusáttmála höfuðborgarsvæð-
isins milli ríkis og sveitarfélaga.
Endurskoðun er nauðsynleg á
nokkrum mikilvægum þáttum og
einnig tryggja að framkvæmdir og
tíma- og fjárhagsáætlanir samn-
ings ríkis og sveitarfélaga standist.
Flýta verður framkvæmdum fyrir
bifreiðar, hjól og gangandi og ekki
hægt að bíða í 15-20 ár eftir full-
kláraðri svokallaðri „borgarlínu“.
Allir samgöngumátar eru nauðsyn-
legir. Þeir eru í óviðunandi ástandi
og verða eftir nokkur ár í enn al-
varlegra ástandi, nema til komi
einfaldari, ódýrari og fljótlegri
lausn á borgarlínu.
10. Taka verður fjármál borg-
arinnar föstum tökum. Síðast en
ekki síst þarf að bæta fjármála-
rekstur borgarinnar og snúa við
þeirri skuldasöfnun sem hefur við-
gengist allt of lengi í boði vinstri
meirihluta borgarstjórnar.
Stöðva flótta fyrirtækja
frá höfuðborginni
Ég vil sérstaklega nefna flótta
fyrirtækja úr höfuðborginni. Nokk-
ur nýleg dæmi. Sýslumaður höfuð-
borgarsvæðisins flutti í Kópavog
árið 2016. Höfuðstöðvar Íslands-
banka fluttu í Kópavog í lok sama
árs. Tryggingastofnun ríkisins í
Kópavog árið 2019 og starfsemin í
Orkuhúsinu við Suðurlandsbraut
flutti í Kópavog árið 2019. Haf-
rannsóknastofnun fór 2020 til
Hafnarfjarðar, ýmis heilbrigðisfyr-
irtæki í Urðarhvarf í Kópavogi ár-
in 2019-2021 og Vegagerðin til
Garðabæjar 2021. Tækniskólinn
fyrirhugar flutning til Hafn-
arfjarðar svo og Icelandair innan
skamms og Víkingbátar, öflugt og
stækkandi framleiðslufyrirtæki
smábáta, flytur af Kistumel í
Reykjavík árið 2023 til Hafnar-
fjarðar.
Byggðaþróun til framtíðar
Reykjavík hefur dregist aftur úr
hvað varðar þróunar byggðar, ekki
síst með Sundabraut yfir í Geld-
inganes, Álfsnes og Kjalarnes þar
sem í heildina litið má byggja tug-
þúsundir íbúða. Einnig eru mögu-
leikar til frekari byggðar í þéttbýli
á landi Keldna, Keldnaholti og í
Úlfarsársdal. Frestun Sundabraut-
ar er stærsta hneykslið og þar
gerði borgin ekkert til að ýta á eft-
ir verkefninu og þvældist frekar
fyrir.
Breyttir og betri tímar bíða
Reykvíkinga eftir næstu kosningar.
Það er kominn tími á nýtt verklag
og framtíðarsýn fyrir höfuðborg-
ina; við viljum koma Reykjavík aft-
ur í fremstu röð. Varla er hægt að
taka þátt í skemmtilegra verkefni
en að vinna að því að gera borgina
betri fyrir íbúa, fjölskyldufólk og
fyrirtækin. Ég er reiðubúinn að
vera hluti af öflugri liðsheild sjálf-
stæðisfólks og þjóna borgarbúum
með þá þekkingu og reynslu sem
ég hef fram að færa.
Boða breyttar og betri
áherslur fyrir Reykvíkinga
Eftir Þorkel
Sigurlaugsson »Ég kem með nýjar
áherslur inn í borg-
armálin. Hlusta skal á
íbúa og atvinnurek-
endur við borgarþróun
og stöðva óánægju og
flótta fólks og fyrir-
tækja.
Þorkell Sigurlaugsson
Höfundur er formaður velferðar-
nefndar Sjálfstæðisflokksins.
Mjög reglulega fá
borgarbúar stórkarla-
legar yfirlýsingar frá
ráðamönnum í
Reykjavík um for-
dæmalausa uppbygg-
ingu á íbúðamarkaði í
borginni. Stöðugar
fréttatilkynningar
berast frá kynning-
ardeild borgarinnar
um mesta uppbygg-
ingarskeið sögunnar,
inn um bréfalúgur
borgarbúa berast
tonnin öll af óumhverf-
isvænum pappír sem
mæra þá lýsingu, auk
þess sem borgarstjóri
og formaður skipu-
lagsráðs halda þessum
fordæmalausa áróðri
uppi við öll tækifæri.
En hvað skyldu aðrir
segja? Er íbúðamark-
aðurinn á sömu skoð-
un? Eru sérfræðingar á sömu skoð-
un? Eða borgarbúar almennt? Alls
ekki.
Þeir sem best þekkja til segja allt
aðra stöðu vera uppi á íbúðamark-
aði. Benda á staðreyndir og færa
rök fyrir sínu máli. Segja ástandið
grafalvarlegt og að staðan hafi áhrif
á alla, m.a. í gegnum vexti og verð-
bólgu. Íbúðum í byggingu fækkar,
íbúðir til sölu eru í sögulegu lág-
marki, uppbyggingaráform eru ekki
í takt við þarfir, skortur er á lóðum
og skipulagi og hagkvæmar íbúðir
eru ekki í boði. Fyrir þessu færa
sérfræðingar rök og vísa í opinber-
ar tölur. Það er ástandið í dag. Það
þekkja allir.
Þéttingarstefna meirihlutans í
Reykjavík er pólitísk
ákvörðun og hefur ver-
ið ráðandi síðustu kjör-
tímabil innan borgar-
marka. Í nágranna-
sveitarfélögunum
hefur áherslan verið á
blandaða byggð og
fjölbreytt framboð af
lóðum, sérstaklega er
það áberandi í sveit-
arfélögunum í kring-
um höfuðborgar-
svæðið. Þangað sækir
unga fólkið sem vill
búa rúmt og grænt
með fjölskyldum sín-
um. Um það vitna
mannfjöldatölur og
gríðarlega aukin um-
ferð til og frá höfuð-
borginni.
Þetta sjá allir, nema
þeir sem af ein-
hverjum ástæðum
vilja halda öðru fram.
En þeir sömu aðilar
bera ábyrgðina á
ástandinu í dag, hafa
haldið um stjórnina í skipulags-
málum um langt árabil. Þeirra er
sökin. Ástandið á íbúðamarkaði
breytist ekkert þótt meirihlutinn í
Reykjavík tali um fordæmalausa
uppbyggingu og sendi frá sér
hverja fréttatilkynninguna á fætur
annarri. Ástandið er allt annað og
öllum kunnugt.
Það sem hins vegar er fordæma-
laust er þvættingurinn og rang-
færslurnar í kringum þessi graf-
alvarlegu mál. Það er kominn tími
til að horfast í augu við staðreyndir
og leyfa öðrum að fást við þennan
mikilvæga málaflokk.
Fordæmalaust
hvað?
Eftir Örn
Þórðarson
Örn Þórðarson
» Þeir sem
best þekkja
til segja allt
aðra stöðu vera
uppi á íbúða-
markaði. Benda
á staðreyndir og
færa rök fyrir
sínu máli.
Höfundur er borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins.
Allt um sjávarútveg