Morgunblaðið - 10.02.2022, Side 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2022
Þótt Pútín forseti eigi sjálfsagt
ekki vinsemd margra vestan
við sig virðist hann kæra sig koll-
óttan. Hann veit að töluverður fjöldi
er á bak við Xi, forseta Kína, en þeir
báru saman bækur nýlega og virtist
fátt skyggja á þá vináttu.
- - -
Þar sem bandarísk forysta er
óvenjuveik um þessar mundir
reyna leiðtogar Evrópu að laumast
inn í tómarúmið. Það er skiljanleg
viðleitni en hefur þó þann brag að
Pútín hafi tekist að sundra vest-
rænni samstöðu.
- - -
Biden og Scholz kanslari funduðu
á dögunum og héldu illa lín-
unni, gasleiðslunni miklu, á milli
kanslarans í Berlín og Kremlarjarls.
- - -
Macron forseti hefur annað aug-
að á komandi forsetakosn-
ingum og gaf til kynna að hann
hefði lausn Úkraínumáls í hendi og
settist á fund með Pútín í Kreml.
- - -
Þeir sátu við borð sem var á
lengdina eins og tvö billjarðs-
borð og var táknrænt að sjá slíka
fjarlægð á tveggja manna fundi
- - -
Pútín hrósaði Macron fyrir fram-
takið, en þótti fararnestið lítið.
Boris Johnson vildi fund með Pútín
en fékk ekki, þar sem hann hafði
þegar sent menn og hergögn til
Kiev. En Pútín á ekki góðra kosta
völ. Stríð er ekki borðleggjandi eins
og taka Krímskaga síðast. Dipló-
matísk lausn án árangurs þýðir að
hunskast heim með skott á milli
lappa.
- - -
Það yrði líka dýrt spaug.
Fáir góðir kostir
STAKSTEINAR
Eitt tilboð barst í byggingu þjón-
ustuhúss við Hengifoss í Fljótsdal.
Austurbygg verktakar ehf. buðu
258,2 milljónir króna í verkið og var
tilboðið 43% yfir kostnaðaráætlun,
sem hljóðaði upp á 180,7 milljónir.
Á fundi sveitarstjórnar Fljóts-
dalshrepps í byrjun mánaðarins var
sveitarstjóra falið að ræða við bjóð-
anda um leiðir til hagræðingar og
lækkun kostnaðar. Þær viðræður
eru komnar í gang. Helgi Gíslason
sveitarstjóri segist gera sér vonir
um að samningsflötur finnist og hús-
ið verði komið upp fyrir lok ársins.
Hengifoss er vinsæll viðkomu-
staður ferðafólks enda fossinn fal-
legur sem og gljúfrið sem hann fellur
í. Um 90 þúsund gestir lögðu leið sína
þangað áður en kórónuveiru-
faraldurinn dró úr aðsókn. Fljóts-
dalshreppur efndi til hönnunarsam-
keppni 2016 um aðstöðubyggingu
ásamt lausnum á hvíldar- og útsýn-
isstöðum, hliðum og merkingum.
Vinningstillagan er eftir arkitektana
Erik Rönning Andersen og Sigríði
Önnu Eggertsdóttur. Fjármögnun til
uppbyggingar á svæðinu kemur að
hluta frá Framkvæmdasjóði ferða-
mannastaða.
Í nóvember í fyrra var gengið frá
lóðaleigusamningi milli Fljótsdals-
hrepps og landeigenda. aij@mbl.is
Buðu 258 milljónir í þjónustuhús
- Eitt tilboð barst í byggingu við
Hengifoss - 43% umfram áætlun
Tölvumynd/ZIS AS
Þjónustuhús Byggt verður eftir
verðlaunatillögu frá árinu 2016.
Afli norsku loðnuskipanna á vertíð-
inni var í gærmorgun orðinn rúm-
lega 32 þúsund tonn. Alls hafa
norsku skipin heimild til að veiða um
145 þúsund tonn af loðnu við Ísland
fram til 22. febrúar og eiga því eftir
að veiða um 113 þúsund tonn. Í fyrra
voru heimildir þeirra alls 42 þúsund
tonn. Í Fiskeribladet/Fiskaren í
Noregi mátti í vikunni lesa um
óánægju með stífar reglur og erfið-
leika við veiðar norsku skipanna.
Íslensku skipin voru í gær ýmist á
trolli úti af Héraðsflóa eða að reyna
fyrir sér á loðnunót frá Stokksnesi
að Hrollaugseyjum. Nokkrar út-
gerðir bíða reyndar átekta eftir að
Hafrannsóknastofnun tilkynnti að
hugsanlega yrðu heimildir skertar
um alls 100 þúsund tonn.
Biðu eftir að geta byrjað veiðar
Nokkur norsk skip voru um miðj-
an dag í gær á eða í grennd við miðin
úti af Austfjörðum. 47 norsk skip
höfðu verið í höfn eða inni á fjörðum,
ýmist í vari vegna veðurs eða að bíða
eftir heimild til að mega hefja veiðar.
Mörg þeirra höfðu tekið stefnuna á
miðin eftir hádegi í gær.
Hverju sinni mega 30 skip vera að
veiðum, þau mega aðeins veiða í nót
og mega ekki veiða fyrir sunnan
línu, sem er dregin beint í austur frá
punkti sunnan Álftafjarðar. Veiðar
Norðmanna eru því orðnar barátta
við klukkuna og bæði þarf veður að
batna frá því sem verið hefur og afli
að glæðast svo dæmið gangi upp.
Mikill munur á verði
Þó svo að kvótinn sé mun stærri í
ár heldur en á síðustu vertíð er það
sama ekki að segja um verðið sem
fæst fyrir loðnuna. Fram kemur í
Fiskaren að í ár fáist um 2,80 krónur
norskar fyrir kílóið í bræðslu, en í
fyrra hafi loðnan að mestu farið til
manneldis. Metverð hafi þá fengist
fyrir aflann og kílóið gefið að með-
altali 14,35 norskar. Í íslenskum
krónum eru þetta um 39,5 krónur í
ár, en rúmlega 200 krónur í fyrra.
Selji norsku skipin afla til ís-
lenskra verksmiðja í gegnum upp-
boð hjá Norges sildesalgslag taki
það þrjá daga aukalega að komast á
lista þeirra 30 skipa sem hverju sinni
mega stunda veiðar. Sé siglt til lönd-
unar í Noregi er olíukostnaður mikill
Meðan beðið sé eftir því að kom-
ast á veiðilistann þurfi í flestum til-
vikum að bíða í höfn á Íslandi því
skip komast ekki á þann lista fyrr en
þau eru komin í íslenska lögsögu.
aij@mbl.is
Norðmenn í kapp-
hlaupi við klukkuna
- Nokkur íslensk skip byrjuð á loðnunót
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Baðinnréttingar
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
2
0
0
0
—
2
0
2
0
Tímabundin opnunartími
vegna Covid–19
Mán. – Föst. 10–17
Laugardaga 11–15