Morgunblaðið - 19.02.2022, Side 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2022
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
KAFFIVÉLAR SEM HENTA ÞÍNUM REKSTRI
GOTT KAFFI KÆTIR
Bravilor TH
Frábær uppáhellingarvél
með vatnstanki.
Bravilor THa
Frábær uppáhellingarvél
með vatnstengi.
Bravilor Sprso
Handhæg og öflug baunavél
sem hentar smærri fyrirtækjum.
Nánari upplýsingar veitir sölufólk okkar í síma 580 3900
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
G
latt var á hjalla hjá Óháða
söfnuðinum á sunnudag-
inn var, 13. febrúar, þegar
haldin var sérstök gælu-
dýrakærleiksguðsþjónusta. Þar
komu saman menn og dýr og hlýddu
á Guðs orð.
„Það erum ekki bara við menn-
irnir sem rísum upp á dómsdegi, það
gera dýrin líka, öll sköpun Guðs.
Ég vildi gefa fólki tækifæri til
þess að koma með dýrin í messuna
og gefa dýrunum tækifæri á að vera
til staðar og að þau væru hluti af
þessu,“ segir séra Pétur Þorsteins-
son, prestur safnaðarins.
„Margir eru með gæludýr og
gátu loksins komið með þau með
sér. Þarna var fólk sem hafði ekki
komið í mörg ár og sumir kannski
aldrei og þá er maður þakklátur fyr-
ir það að geta höfðað til þessa litla
hóps.“
Hundurinn hjálpaði til
Dýrin settu sinn svip á athöfn-
ina og fékk einn hundanna meira að
segja sérstakt hlutverk.
„Í lokin á messunni settist ég
bara á gólfið fyrir framan altarið og
það var einn sem kom þar með sinn
stóra svarta hund. Þegar ég var svo
að blessa söfnuðinn þá settist hund-
urinn á rassinn og var með fram-
lappirnar upp eins og hann væri líka
að blessa. Við vorum í sömu augn-
hæð. Og þegar ég sagði „Og gefi oss
frið“ í lokin þá allt í einu rak hann
tunguna framan í mig svo ég var nú
blessaður líka í bak og fyrir. Og í
stað þess að kórinn syngi „Amen,
amen, amen“ á eftir söng hann
„Voff, voff, voff“ þannig að hunda-
málið fékk líka að hljóma.“
Pétur hefur alltaf verið ófeim-
inn við að bregða út af vananum.
„Þetta var mjög lífleg guðsþjónusta
og maður þarf vissa djörfung til
þess að vera öðruvísi. En þetta
mæltist vel fyrir og það er einhvern
veginn svo dýrmætt að fólk skuli
vera til í þetta þegar verið er að
opna kirkjurnar að nýju.“
Hefðbundið kirkjustarf hefur
legið niðri í kringum áramótin
vegna samkomutakmarkana og
messunum deilt í streymi í staðinn.
Þá segir hann að markmiðið sé
ekki að vera fyndin heldur gefa
mönnum tækifæri til þess að gleðj-
ast saman. „Þetta er fagnaðarerindi
og gefur okkur gleði og glaum.“
Hann segir að vel hafi tekist til.
„Þeir komu sem ekki koma í annan
tíma. Það var til dæmis einn þarna
sem hefur ekki viljað koma nema
hann mætti koma með hundinn svo
þarna gat ég uppfyllt loforð sem ég
gaf honum fyrir einhverjum tíma
síðan.“
Séra Pétur stefnir á að endur-
taka leikinn við tækifæri. „Það var
til dæmis kona sem talaði um að hún
ætti hænsni heima hjá sér og því má
ekki leyfa hænunum bara að fljúga
um kirkjuna næst ef þær verða bún-
ar að læra að flúga þá? Öll dýr
merkurinnar eru velkomin í svona
guðsþjónustu.“
Jarðarfjör en ekki jarðarför
Markmiðið með guðsþjónustu á
borð við þessa segir Pétur að sé að
létta fólki lundina og ekki síður að
létta ímynd kirkjunnar. Samveran
þar eigi ekki að vera of alvarleg.
„Menn upplifa hana sem eina eilífa
jarðarför en þetta á að vera frekar
„jarðarfjör“ hér hjá okkur. Hingað
eru allir velkomnir og menn eiga að
geta haft gaman, grín og glens af
því að sjást og heyrast.“
Í Óháða söfnuðinum er ekki
óalgengt að brugðið sé út af van-
anum og guðsþjónustur með sér-
stöku þema haldnar. Þann 27. febr-
úar næstkomandi verður til dæmis
haldin tónlistarmessa. Síðan verður
forvitnileg galdramessa haldin 13.
mars og þjóðlaga- og þjóðbúninga-
messa þann 24. apríl. Vissulega eru
hefðbundnari messur einnig á dag-
skrá í krigum páskahátíðina auk
fermingarguðsþjónustanna.
Gæludýrakærleiksguðsþjónusta Séra Pétur Þorsteinsson fékk dyggan aðstoðarmann, eða aðstoðarhund, þegar hann blessaði söfnuð sinn síðastliðinn
sunnudag. Bæði menn og dýr þáðu blessun. Pétur leggur mikla áherslu á að það eigi að vera gaman að koma saman í kirkju Óháða safnaðarins.
Þarf djörfung til að vera öðruvísi
Sérstök gæludýrakær-
leiksguðsþjónusta var
haldin hjá Óháða söfn-
uðinum síðasta sunnu-
dag. Séra Pétri Þorsteins-
syni þykir mikilvægt að
menn og dýr geti glaðst
saman í kirkjunni.
Háskóli Íslands brautskráir 455
kandídata úr grunn- og framhalds-
námi í dag, laugardaginn 19. febrúar.
Engin formleg brautskráningar-
athöfn er á dagskrá vegna ástandsins
í þjóðfélaginu en brautskráningar-
kandídötum býðst að sækja próf-
skírteini sín í Háskólabíó þennan dag,
„þar sem hátíðarstemning mun svífa
yfir vötnum,“ eins og segir í tilkynn-
ingu frá skólanum.
Afhendingu prófskírteina verður
skipt upp eftir fræðasviðum. Nem-
endur í deildum hugvísindasviðs
verða fyrstir kl. 10-11, deildir heil-
brigðisvísindasviðs og verkfræði- og
náttúruvísindasviðs koma þar á eftir
kl. 11-12, nemendur úr deildum
menntavísindasviðs kl. 12-13 og loks
verða prófskírteini frá deildum fé-
lagsvísindasviðs afhent kl. 13-14.
Brautskráð er úr öllum 26 deildum
skólans og ljúka 190 kandídatar
grunnnámi en 265 framhaldsnámi.
Frá félagsvísindasviði skólans braut-
skrást 176 kandídatar, 53 frá heil-
brigðisvísindasviði, 70 frá hugvís-
indasviði, 96 frá menntavísindasviði
og 60 frá verkfræði- og náttúruvís-
indasviði.
Háskóli Íslands brautskráir 455 kandídata í dag
Engin formleg athöfn haldin
en lofa þó hátíðarstemningu
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Brautskráning Handaböndin verða ekki á sínum stað enda engin athöfn.