Morgunblaðið - 19.02.2022, Blaðsíða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2022
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Leikkonan Tanja Björk Ómars-
dóttir var í vikunni tilnefnd til
kanadísku kvikmynda- og sjón-
varpsverðlaunanna, The Academy
of Canadian Cinema & Television
Awards eins og þau heita á ensku,
sem besta leikkona í aukahlutverki
fyrir leik sinn í fransk-kanadísku
kvikmyndinni Le Bruit des Mo-
teurs, eða Vélarhljóð. Tanja leikur
þar íslenska kappaksturskonu og
það á frönsku sem hún talar reip-
rennandi því hún bjó lengi vel í
Lúxemborg.
Í myndinni segir af ungum
manni sem er leystur tímabundið
frá störfum og heldur til heima-
bæjar síns þar sem hann kynnist
hinni íslensku Aðalbjörgu sem
Tanja leikur. Tveir aðrir Íslend-
ingar leika í myndinni, þeir Arn-
mundur Ernst Backman og Ingi
Hrafn Hilmarsson.
Le Bruit des Moteurs verður
sýnd á Frönsku kvikmyndahátíð-
inni í Bíó Paradís 27. febrúar en
hún var sett í gær. „Alexandre
lendir í kröppum dansi þegar hann
er tengdur kynlífsteikningum sem
valda usla í samfélaginu,“ segir um
kvikmyndina á vef bíósins en þar
má einnig nálgast upplýsingar um
allar myndir hátíðarinnar og sýn-
ingartíma.
Kanadíski Óskarinn
Verðlaunin sem Tanja er til-
nefnd til eru þau virtustu á sviði
kvikmynda og sjónvarpsefnis í
Kanada og veitt af kvikmynda- og
sjónvarpsakademíunni þar í landi
og því sambærileg Óskars-
verðlaununum í Bandaríkjunum
eða Edduverðlaununum hér heima.
Leikstjóri myndarinnar, Philippe
Grégoire, er einnig tilnefndur til
verðlauna fyrir bestu leikstjórn en
myndin er hans fyrsta í fullri
lengd og er tilnefnd sem slík, þ.e.
sem besta frumraun leikstjóra.
Tanja nam leiklist í Los Angeles
og reyndi þar fyrir sér í faginu en
hefur lítið leikið hér á landi frá því
hún kom heim úr námi. Áður en
hún hélt til LA hafði hún leikið
bæði í þáttum og myndum, m.a.
Fáðu já og XL og í nokkrum stutt-
myndum og tónlistarmyndböndum.
Hún segist upphaflega hafa fengið
áhuga á leiklist þegar hún kom
fram með Sirkus Íslands og þurfti
að láta reyna á leikhæfileikana.
Tanja ólst upp í Lúxemborg og
talar fyrir vikið sex tungumál, en
það hefur opnað henni ýmis tæki-
færi erlendis. „Ég fékk það svolítið
í gjöf, það eru margir í Lúxem-
borg sem tala að minnsta kosti
þrjú tungumál,“ segir hún.
Súrrealískt element
Tanja segir ákveðna þroskasögu
rakta í myndinni, þroskasögu ungs
manns að nafni Alexandre sem er
leikinn af Kanadamanninum Rob-
ert Naylor sem er býsna þekktur í
Kanada. Tanja segir Alexandre
snúa aftur í ræturnar og með
kynnum sínum af íslensku konunni
finni hann aftur kjarnann í sér, ef
þannig mætti að orði komast.
„Þetta er mjög falleg og skemmti-
leg kvikmynd, finnst mér. Það er
svona súrrealískt element sem
endurspeglar hans innra líf,“ út-
skýrir Tanja, „í stað þess að
myndin sýni allt bókstaflega leyfir
leikstjórinn sér að sleppa því að
skilgreina hvað er raunverulegt og
hvað ekki.“
Um leikstjóra myndarinnar,
Philippe Grégoire, hefur Tanja að-
eins gott eitt að segja. „Það var
æðislegt að vinna með honum,
hann er mjög einbeittur, næmur
og flottur leikstjóri,“ segir hún.
Það sama hefur hún að segja um
mótleikara sinn, Naylor. „Hann er
vel þekktur í Kanada og er frábær
mótleikari og leikari almennt,
virkilega gaman að vinna með hon-
um“
Tanja er spurð að því hvort hún
hafi þurft að æfa sig í kappakstri
fyrir hlutverkið og segist hún ekki
hafa þurft að gera það. „Það var
bara fengin atvinnumanneskja til
að keyra því það eru alls konar
tryggingaratriði í þessu,“ segir
hún. Hún hafi fengið að keyra en
þó ekki á fullum kappaksturs-
hraða.
Þakklát
Tanja segist aðspurð ekki vera
með umboðsmann eða -menn er-
lendis. „Ekki eins og er, en hver
veit nema það breytist,“ segir hún
um þá stöðu. Hún hafi ekki verið
mjög virk í leiklistinni undanfarin
tvö ár, m.a. út af kófinu, en í
heimsfaraldrinum ákvað hún að
snúa sér að öðru og hefur verið að
einbeita sér að skrifum og reyna
fyrir sér í tónlist. Þess má geta að
fyrsta frumsamda lag Tönju kem-
ur út á öllum helstu streymis-
veitum 22. febrúar næstkomandi.
Le Bruit des Moteurs var tekin
upp fyrir þremur og hálfu ári og
var frumsýnd á Spáni í fyrra. „Ég
ákvað bara að fara að gera annað í
smátíma,“ segir Tanja og er í
framhaldi spurð að því hvort til-
nefningin sé ekki lyftistöng fyrir
hana sem leikkonu. Hún svarar því
til að jú, vissulega sé hún það.
„Þetta var mjög óvænt og
skemmtilegt og ég er bara þakklát
og veit ekki alveg hvernig ég á að
vera. Það er alltaf gaman að fá
viðurkenningu fyrir sín störf og
þetta er í fyrsta sinn sem ég er til-
nefnd fyrir eitthvað. Ég bjóst ekki
við því.“
Verðlaunin verða afhent í byrjun
apríl og segir Tanja að afhending-
in verði ekki með hefðbundnum
hætti, einhver hluti hennar í beinni
útsendingu en annað tekið upp fyr-
ir fram. Hún fái samt að fljúga til
Kanada og vera viðstödd einhvers
konar verðlaunaviðburð. „Þetta er
allt að koma í ljós á næstu dögum
hjá mér,“ segir hún að lokum.
Lemstraður Robert Naylor í hlut-
verki Alexandres í Vélarhljóði.
„Mjög óvænt og skemmtilegt“
- Leikkonan Tanja Björk Ómarsdóttir er tilnefnd til merkustu kvikmyndaverðlauna Kanada fyrir
leik sinn í Les Bruit des Moteurs - „Alltaf gaman að fá viðurkenningu,“ segir hún um tilnefninguna
Kappaksturskona Tanja í hlutverki Aðalbjargar, klædd í kappakstursgalla með vísun í íslenskt lopapeysumynstur.
Víkingur Heiðar Ólafsson frumflutti í
fyrrakvöld með Fílharmóníuhljóm-
sveit Los Angeles-borgar nýjan píanó-
konsert eftir Daníel Bjarnason. Kon-
sertinn nefnir Daníel „Feast“ eða
Veisla og tileinkar hann Víkingi sem
flytur hann nú fjóra daga í röð í hinnni
rómuðu tónleikahöll Walt Disney Con-
cert Hall undir stjórn Esa-Pekka Salo-
nen. Þeir Daníel og Víkingur hafa á
undanförnum árum átt í gjöfulu sam-
starfi við hljómsveitina í Los Angeles.
Að tónleikalotunni afstaðinni í Los
Angeles heldur Víkingur Heiðar til
New York þar sem hann heldur debút-
tónleika sína í Carnegie Hall á þriðju-
daginn kemur. Leikur hann þar verkin
á nýjustu plötu sinni, Mozart og sam-
tímamenn.
Einleikarinn Víkingur Heiðar leikur í Los
Angeles og New York þessa dagana.
Frumflutti nýjan konsert Daníels í LA
Í tilefni af 95 ára afmæli Ljósmynd-
arafélags Íslands var í gær opnuð
norræn ljósmyndasýning á fyrstu
hæð í Hörpu. Við það tækifæri af-
henti forseti Íslands, Guðni Th. Jó-
hannesson, sem opnaði sýninguna,
íslenskum verðlaunahöfum sem
eiga myndir á sýningunni viður-
kenningar.
Á sýningunni eru 45 verðlauna-
myndir frá Íslandi, Danmörku,
Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. Efnt
var til samkeppni félaga atvinnu-
ljósmyndara í hverju landi. Ís-
lensku myndirnar eru frá átta at-
vinnuljósmyndurum. Þrír þeirra
unnu til verðlauna og Aldís Páls-
dóttir til tvennra, fyrir portrett og
auglýsingamynd. Heida HB fékk
verðlaun í flokki landslagsmynda
og Sigurður Ólafur Sigurðsson í
flokki frétta- og heimildarmynda.
Verðlaun Sigurður Ólafur Sigurðsson vann
í flokki frétta- og heimildarljósmynda.
Norræn ljósmyndasýning í Hörpu
Í SESC Pompeia-safninu í Sao Paulo í Brasilíu hefur
verið opnuð umfangsmikil sýning á ljósmyndum úr nýj-
asta og viðamiklu verkefni ljósmyndarans Sebastião
Salgado sem hann kallar Amazonia.
Salgado (f. 1944) er einn þekktasti heimildarljós-
myndari samtímans, frægur fyrir verkefni sem fjalla
um jafn aðkallandi málefni og flóttamenn, hungur-
sneyðir og umhverfismál. Salgado myndar í svarthvítu
og myndir hans þykja í senn dramatískar og fallegar en
umfjöllunarefni þeirra eru oft hápólitísk. Amazonia
fjallar um eyðingu skóga og loftslagsvána, umfjöll-
unarefni sem forseti Brasilíu er þekktur fyrir gera lítið
úr. Salgado, sem er þekktasti ljósmyndari Brasilíu og
menntaður hagfræðingur, hefur auk þess að mynda
breytingarnar breitt sér í ræðu og riti í baráttu fyrir
betri umgengni landa sinna um náttúruna. efi@mbl.is
AFP
Náttúra Salgados í Brasilíu