Morgunblaðið - 19.02.2022, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 19.02.2022, Blaðsíða 35
DÆGRADVÖL 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2022 DAG EINN VONAST HANN TIL AÐ VERÐA ALLSGÁÐUR OG MEÐ HREINA SAMVISKU. Í BILI VERÐUR BAÐ AÐ DUGA. „SENDU INN NÆSTU ÞRJÁ.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að koma heim og fá gott knús. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann VELKOMIN. GOTT AÐ SJÁ YKKUR VEFNÁMSKEIÐ DAGSINS ER… „AÐ GANGA Á LYKLABORÐI OG STRAUJA TÖLVUNA“ KATTA- KLASSÍK! ÉG ER AÐ FITNA ÞVÍ ÉG BORÐA ALLTAF SVO MIKIÐ FYRIR SVEFNINN ÞÚ VERÐUR AÐ VENJA ÞIG AF ÞVÍ! EN VERÐ ÉG EKKI AÐ SOFA? einu sinni til tvisvar í laxveiði á hverju sumri, meðal annars árlega ferð í Haffjarðará, þótt ég eigi enn nokkuð í það að geta sagst vera kominn með veiðibakteríuna – en náttúran og vinskapurinn í slíkum ferðum skiptir ekki síður máli. Svo höfum við fjölskyldan reynt að ferðast mikið innanlands og síðasta sumar ferðuðumst við Hildur unn- usta mín ásamt börnunum um alla landshluta á Íslandi: Suður-, Norð- ur-, og Austurland, Snæfellsnes, Vestfirði og Vestmannaeyjar.“ Fjölskylda Sambýliskona Harðar er Hildur Þórarinsdóttir, f. 7.8. 1985, lög- maður hjá Juris. Þau fluttu fyrir um ári síðan úr Vesturbænum á Skildingarnes í Skerjafirði í Reykjavík. Foreldrar Hildar eru hjónin Þórarinn V. Þórarinsson, 23.6. 1954, lögmaður, og Ásdís Guðmundsdóttir, f. 11.8. 1955, deildarstjóri guðfræði- og trúar- bragðafræðideildar HÍ. Stjúpbörn Harðar og börn Hild- ar eru Laufey Ásdís Traustadóttir, f. 23.5. 2010, og Pétur Viðar Traustason, f. 9.12. 2013. Systkini Harðar eru 1) Magnús Ægisson, f. 14.7. 1985, viðskipta- stjóri hjá Landsbankanum í Reykjavík, unnusta hans er Móeið- ur Pálsdóttir, meistaranemi í sál- fræði, og 2) Guðbjörg Ægisdóttir, f. 9.9. 1993, sjúkraliði, búsett í Reykjanesbæ. Foreldrar Harðar: Ægir Magnússon, f. 1.8. 1957, vélvirki hjá Framtaki, búsettur í Reykja- nesbæ, og Guðríður Ólafía Jó- hannsdóttir, f. 13.9. 1961, sjúkraliði á Akranesi, d. 10.10. 2001. Sam- býliskona Ægis í dag er Ragnheið- ur Gunnarsdóttir framhaldsskóla- kennari. Hörður Ægisson Ólafía Guðrún Björnsdóttir húsfreyja á Sólmundarhöfða og í Akrakoti Ellert Jónsson bóndi á Sólmundarhöfða á Akranesi og í Akrakoti í Innri-Akraneshreppi Guðbjörg Ellertsdóttir húsmóðir á Akranesi Jóhann Stefánsson skipasmiður á Akranesi Guðríður Ólafía Jóhannsdóttir sjúkraliði á Akranesi Guðríður Ólafía Jóhannsdótir ljósmóðir í Leirársveit og húsfreyja á Skipanesi Stefán Ólafur Jónasson bóndi á Skipanesi í Leirársveit Sigurlín Jónsdóttir húsmóðir á Akranesi Sigurður Bjarni Bjarnason vélstjóri á Akranesi Sigurlaug Sigurðardóttir vann í apóteki á Akranesi Magnús Ingiberg Jóhannsson atvinnukafari í Keflavík Guðrún Magnúsdóttir húsmóðir á Akranesi Jóhann Pétur Jóhannsson vélstjóri á Akranesi Ætt HarðarÆgissonar Ægir Magnússon vélvirki, býr í Reykjanesbæ Gátan er sem endranær eftir Guðmund Arnfinnsson: Hrekkaus oft við henni gín. Hugmynd, sem ég áðan fékk. Búin táli, býsna fín. Bítur fólk og veldur skrekk. Guðrún B. svarar: Oft ég gín við flugufrétt og fluga kemst í hausinn. Veiðiflugu vef ég létt, en vespan beit í dausinn. Harpa á Hjarðarfelli á þessa lausn: Sá við flugu gaspri gín. Gjarna fluga kom til mín. Á veiðilínu er fluga fín. Flugnabit er ekkert grín. Eysteinn Pétursson leysir gátuna þannig: Gín við flugu saklaus sveinn. Svo ég eina í höfuð fékk. Lax á flugu fékk ég einn. Flugubiti undan stekk. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una þannig: Við flugu margur maður gín. Mér í hug kom fluga sú. Á öngli hnýtt sést fluga fín. Flugnabitin óttast þú. Þá er limra: Það sagt er um Sigurstein sálnahirði á Rein, að berji hann guma, gamla og hruma, en geri ekki flugu mein. Síðan er ný gáta eftir Guðmund: Enn er vetur vítt um Frón, vötnin þekur ís og lón, gott er þá að glugga í blað, ef gátan er á vísum stað: Kjarkur vera kann og þor. Kollinn vermir börnum á. Löngum gætir lítt um vor. Ljúft ei viðmót kalla má. Eyjólfur Ó. Eyjólfsson yrkir: Úlfgerður æpti af losta óþoli, bruna og losta en Hrollaugur bað og hugsaði um það hvað helvítis smokkarnir kosta. Þá er limra eftir Jóhann S. Hann- esson: Það er barnafólk suður á Bökkum, upp á Brekku er allt fullt af krökkum, en niðri á Eyri er auðlegðin meiri og ófrjóvgi tekið með þökkum. Símon Dalaskáld orti um Bú- landshöfða: Búlandshöfði er býsna hár brimöldurnar viður. Þar hefur Satan forðum flár farið þráðbeint niður. Halldór Blöndal Halldór Blöndal @simnet.is Vísnahorn Ginið við flugunni 110 Ve veVe Tr

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.