Morgunblaðið - 19.02.2022, Blaðsíða 39
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Ég frétti fyrst af Soffíu
Björgu í aðdraganda fyrstu
plötunnar hennar, sam-
nefndrar henni, enda þó nokkuð
umstang í kringum þann gjörning
allan (verkið kom út 2017). Hæfi-
leikarnir voru auðheyranlegir; seið-
andi og svöl, eilítið gráskyggð
söngrödd og
lögin í sígild-
um söngva-
skáldagír hvar
sótt var jöfn-
um höndum í
þjóðlaga-
tónlist, kántrí
og blús. Sann-
færandi. Tildrögin að breiðskífunni
lágu allt aftur til haustsins 2015 er
hún setti saman band fyrir Airwa-
ves sem samanstóð af Pétri Ben
gítarleikara, Ingibjörgu Elsu
Turchi bassaleikara og Kristófer
Rodriguez trommuleikara. Platan
var svo tekin upp vorið 2016 í
Sundlauginni ásamt Ben Hillier.
Verkið var svo gefið út í þremur
lotum í ársbyrjun 2017, fjögurra
laga skammtar í janúar, febrúar og
mars. Hágæðamyndbönd voru gerð
við nokkur laganna, útlenska press-
an dansaði með í upphafi en heims-
frægðin lét þó á sér standa. Soffía
hélt hins vegar spilamennsku
áfram ótrauð og þegar rennt er
yfir Fjasbókarsetrið hennar má sjá
að hún hefur verið að troða upp
hér og hvar óslitið undanfarin
Dáindis dumbungur
Sýrudraumur Soffía Björg horfir út í buskann.
misseri. Lag og lag hefur þá komið
út en segja má að hún hafi snúið
aftur með krafti í gegnum Landann
í Sjónvarpinu síðasta sumar. Þar
kom hún fram og flutti tónlist sína
og annarra og allir að horfa nátt-
úrulega. Það var eitthvað rétt við
þessi innslög en Soffía ólst upp í
Einarsnesi í Borgarfirði og hefur
aldrei dregið dul á sterkar rætur
sínar þar. Stúlkan komin heim í
einhverjum ljóðrænum skilningi.
Og þar átti Soffía skjól líka á
meðan nýja platan var unnin. Í til-
kynningu lýsir hún átján mánaða
meðgönguferli og ýmsir komu að
gerð hennar ásamt Soffíu. Unnur
Jónsdóttir, Ari Bragi Kárason og
Magnús Trygvason Eliassen léku
undir; Fríða Dís, KARÍTAS, Krist-
ín Birna Óðinsdóttir og Guðmundur
Bergmann sungu og um frágang
sáu Stefán Örn (hljóðupptaka), Úlf-
ur Hansson (hljóðblöndun) og Sig-
urdór Guðmundsson (hljómjöfnun).
Við skulum velta aðeins fyrir
okkur lagasmíðastíl Soffíu. Hér er
hún, þannig séð, að höggva í sama
knérunn og hún gerði fyrir rúmum
fjórum árum (platan kom út í októ-
ber 2021). Efniviðurinn er erfiður,
þungur, rökkurbundinn eins og
segir. Lagatitlar eins og „Sour
Dream“ og „Judgement Day“ segja
sína sögu. Grunnurinn er eins og
áður einhvers konar indíþjóðlaga-
kántrí en að viðbættri meiri epík.
Margt var strípað á frumburðinum,
kannski flest, en hér eru lög sem
springa út, fylla út í hljóðrásina og
eru „stór“. Trompet og selló undir-
stingur þessa stemningu vel í gegn-
um plötuna. Upphafslagið, „Sour
Dream“, er seigfljótandi ballaða
með knýjandi söng og texta og
„Last Ride“ er sömuleiðis ógurlegt.
Selló og kórlegar bakraddir.
Þetta er dálítið línan út í gegn
en stundum er farið í frímínútur.
„Rodeo Clown“ er gott og
skemmtilegt og þar kemur Krummi
sjálfur inn glæsilega. Kántríið er
miðlægt, nema hvað, og dúett
þeirra stórgóður. Fullorðins. Æ,
maður fær bara notalegan George
Jones/Tammy Wynette fílíng þó að
raddirnar séu ólíkar og tónlistin
ekki stórborgarkántrí frá áttunda
áratugnum. Virðingin og ástríðan í
allri nálgun gerir þennan saman-
burð hins vegar fullkomlega lög-
legan!
Pétur Ben styður þá við í hinu
dulræna „Play the Game“, lúmskt
lag og býsna sterkt. Eftirminnilegt,
ruggar sér í hausnum daginn eftir.
Bragur plötunnar er þungur,
heilt yfir. „Get there“ byrjar t.d. á
línunni „Before my brother killed
himself ...“ Mikið sem þarfnaðist
úrvinnslu greinilega og það er eitt-
hvað sem Soffía sinnir af mikilli
reisn samfara þeirri reynslu sem
hún hefur safnað saman á giftu-
ríkum ferli.
»
Margt var strípað
á frumburðinum,
kannski flest, en hér eru
lög sem springa út, fylla
út í hljóðrásina og eru
„stór“.
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2022
Tvær sýningar verða opnaðar í
Listasafninu á Akureyri í dag,
laugardag, kl. 12 til 17. „Sköpun
bernskunnar 2022“ er sett upp sem
hluti af safnfræðslu og með það
markmið að gera sýnilegt og örva
skapandi starf barna á aldrinum
fimm til sextán ára. Þátttakendur
eru skólabörn og starfandi mynd-
listarmenn og vinna öll verk sem
falla að þemanu „fuglar og önnur
dýr“. Myndlistarmennirnir sem
boðin var þátttaka í ár eru Aðal-
heiður S. Eysteinsdóttir og Helgi
Þorgils Friðjónsson, sem bæði eru
landsþekkt fyrir verk sín.
Hin sýningin, „Form í flæði I“, er
í safnfræðslurými þar sem gestum
býðst að skapa sína eigin list í fal-
legu og skapandi umhverfi.
Fuglar Hluti verks Helga Þorgils Friðjóns-
sonar, Ferðalag með snúningi jarðar.
Sköpun bernsku
og Form í flæði
Yfirlitssýning-
unni á verkum
Þorvaldar Þor-
steinssonar
(1960-2013),
Lengi skal mann-
inn reyna, lýkur í
Hafnarborg á
morgun, sunnu-
dag. Þá mun
Ágústa Kristó-
fersdóttir, sýn-
ingarstjóri og fyrrverandi for-
stöðumaður Hafnarborgar, taka á
móti gestum kl. 14 ásamt Hallgrími
Helgasyni, rithöfundi og myndlist-
armanni, og munu þau ræða líf og
list Þorvaldar. Sýningin er unnin í
samstarfi við Listasafnið á Akur-
eyri og eignasafn Þorvaldar. Á
henni er fjölbreytt úrval verka.
Ræða um list og
feril Þorvaldar
Þorvaldur
Þorsteinsson
The Company You
Keep er ný plata eftir
söngkonuna góðkunnu
Soffíu Björgu. Rökkur-
bundið verk en glufur
fyrir sólskin á víð og
dreif um leið.