Morgunblaðið - 19.02.2022, Síða 39

Morgunblaðið - 19.02.2022, Síða 39
TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Ég frétti fyrst af Soffíu Björgu í aðdraganda fyrstu plötunnar hennar, sam- nefndrar henni, enda þó nokkuð umstang í kringum þann gjörning allan (verkið kom út 2017). Hæfi- leikarnir voru auðheyranlegir; seið- andi og svöl, eilítið gráskyggð söngrödd og lögin í sígild- um söngva- skáldagír hvar sótt var jöfn- um höndum í þjóðlaga- tónlist, kántrí og blús. Sann- færandi. Tildrögin að breiðskífunni lágu allt aftur til haustsins 2015 er hún setti saman band fyrir Airwa- ves sem samanstóð af Pétri Ben gítarleikara, Ingibjörgu Elsu Turchi bassaleikara og Kristófer Rodriguez trommuleikara. Platan var svo tekin upp vorið 2016 í Sundlauginni ásamt Ben Hillier. Verkið var svo gefið út í þremur lotum í ársbyrjun 2017, fjögurra laga skammtar í janúar, febrúar og mars. Hágæðamyndbönd voru gerð við nokkur laganna, útlenska press- an dansaði með í upphafi en heims- frægðin lét þó á sér standa. Soffía hélt hins vegar spilamennsku áfram ótrauð og þegar rennt er yfir Fjasbókarsetrið hennar má sjá að hún hefur verið að troða upp hér og hvar óslitið undanfarin Dáindis dumbungur Sýrudraumur Soffía Björg horfir út í buskann. misseri. Lag og lag hefur þá komið út en segja má að hún hafi snúið aftur með krafti í gegnum Landann í Sjónvarpinu síðasta sumar. Þar kom hún fram og flutti tónlist sína og annarra og allir að horfa nátt- úrulega. Það var eitthvað rétt við þessi innslög en Soffía ólst upp í Einarsnesi í Borgarfirði og hefur aldrei dregið dul á sterkar rætur sínar þar. Stúlkan komin heim í einhverjum ljóðrænum skilningi. Og þar átti Soffía skjól líka á meðan nýja platan var unnin. Í til- kynningu lýsir hún átján mánaða meðgönguferli og ýmsir komu að gerð hennar ásamt Soffíu. Unnur Jónsdóttir, Ari Bragi Kárason og Magnús Trygvason Eliassen léku undir; Fríða Dís, KARÍTAS, Krist- ín Birna Óðinsdóttir og Guðmundur Bergmann sungu og um frágang sáu Stefán Örn (hljóðupptaka), Úlf- ur Hansson (hljóðblöndun) og Sig- urdór Guðmundsson (hljómjöfnun). Við skulum velta aðeins fyrir okkur lagasmíðastíl Soffíu. Hér er hún, þannig séð, að höggva í sama knérunn og hún gerði fyrir rúmum fjórum árum (platan kom út í októ- ber 2021). Efniviðurinn er erfiður, þungur, rökkurbundinn eins og segir. Lagatitlar eins og „Sour Dream“ og „Judgement Day“ segja sína sögu. Grunnurinn er eins og áður einhvers konar indíþjóðlaga- kántrí en að viðbættri meiri epík. Margt var strípað á frumburðinum, kannski flest, en hér eru lög sem springa út, fylla út í hljóðrásina og eru „stór“. Trompet og selló undir- stingur þessa stemningu vel í gegn- um plötuna. Upphafslagið, „Sour Dream“, er seigfljótandi ballaða með knýjandi söng og texta og „Last Ride“ er sömuleiðis ógurlegt. Selló og kórlegar bakraddir. Þetta er dálítið línan út í gegn en stundum er farið í frímínútur. „Rodeo Clown“ er gott og skemmtilegt og þar kemur Krummi sjálfur inn glæsilega. Kántríið er miðlægt, nema hvað, og dúett þeirra stórgóður. Fullorðins. Æ, maður fær bara notalegan George Jones/Tammy Wynette fílíng þó að raddirnar séu ólíkar og tónlistin ekki stórborgarkántrí frá áttunda áratugnum. Virðingin og ástríðan í allri nálgun gerir þennan saman- burð hins vegar fullkomlega lög- legan! Pétur Ben styður þá við í hinu dulræna „Play the Game“, lúmskt lag og býsna sterkt. Eftirminnilegt, ruggar sér í hausnum daginn eftir. Bragur plötunnar er þungur, heilt yfir. „Get there“ byrjar t.d. á línunni „Before my brother killed himself ...“ Mikið sem þarfnaðist úrvinnslu greinilega og það er eitt- hvað sem Soffía sinnir af mikilli reisn samfara þeirri reynslu sem hún hefur safnað saman á giftu- ríkum ferli. » Margt var strípað á frumburðinum, kannski flest, en hér eru lög sem springa út, fylla út í hljóðrásina og eru „stór“. MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2022 Tvær sýningar verða opnaðar í Listasafninu á Akureyri í dag, laugardag, kl. 12 til 17. „Sköpun bernskunnar 2022“ er sett upp sem hluti af safnfræðslu og með það markmið að gera sýnilegt og örva skapandi starf barna á aldrinum fimm til sextán ára. Þátttakendur eru skólabörn og starfandi mynd- listarmenn og vinna öll verk sem falla að þemanu „fuglar og önnur dýr“. Myndlistarmennirnir sem boðin var þátttaka í ár eru Aðal- heiður S. Eysteinsdóttir og Helgi Þorgils Friðjónsson, sem bæði eru landsþekkt fyrir verk sín. Hin sýningin, „Form í flæði I“, er í safnfræðslurými þar sem gestum býðst að skapa sína eigin list í fal- legu og skapandi umhverfi. Fuglar Hluti verks Helga Þorgils Friðjóns- sonar, Ferðalag með snúningi jarðar. Sköpun bernsku og Form í flæði Yfirlitssýning- unni á verkum Þorvaldar Þor- steinssonar (1960-2013), Lengi skal mann- inn reyna, lýkur í Hafnarborg á morgun, sunnu- dag. Þá mun Ágústa Kristó- fersdóttir, sýn- ingarstjóri og fyrrverandi for- stöðumaður Hafnarborgar, taka á móti gestum kl. 14 ásamt Hallgrími Helgasyni, rithöfundi og myndlist- armanni, og munu þau ræða líf og list Þorvaldar. Sýningin er unnin í samstarfi við Listasafnið á Akur- eyri og eignasafn Þorvaldar. Á henni er fjölbreytt úrval verka. Ræða um list og feril Þorvaldar Þorvaldur Þorsteinsson The Company You Keep er ný plata eftir söngkonuna góðkunnu Soffíu Björgu. Rökkur- bundið verk en glufur fyrir sólskin á víð og dreif um leið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.