Morgunblaðið - 19.02.2022, Side 20

Morgunblaðið - 19.02.2022, Side 20
20 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2022 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Bjartsýni ríkir hjá þeim bílaleigum sem Morgunblaðið ræddi við í gær og lofar bókunarstaðan góðu nú í upphafi árs. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær er útlit fyrir að fjöldi erlendra ferðalanga hér á landi í ár nái um sjötíu prósentum af því sem hann var 2019, en í frétt blaðsins var sagt að það beri á miklu meiri önnum á hótelum en áætlanir gerðu ráð fyrir. Útlitið mjög gott Steingrímur Birgisson, forstjóri Bílaleigu Akureyrar, segir að útlitið sé mjög gott. „Bókanir hafa farið vel af stað. Bókunarstaðan er mun betri en síðustu tvö ár, þótt hún sé ekki enn komin upp í sömu stöðu og árið 2019,“ segir Steingrímur í sam- tali við Morgunblaðið. Hann segir að bókanir í apríl á þessu ári séu orðnar svipaðar og í apríl árið 2019 sem var metár í ferðaþjónustu á Íslandi þegar tvær milljónir ferðamanna sóttu landið heim. „Næstu mánuðir á eftir eru enn langt undir því sem var 2019, en það er enn nægur tími fram undan. Út- litið er mjög gott. Fyrirspurnir eru miklar og góðar miðað við árstíma. Ég er bjartsýnn á hagfellt ár og gott sumar. Maður vonar bara að krónan styrkist ekki von úr viti. Þá fer afkoman úr lagi og Ísland verð- ur of dýrt heim að sækja.“ Vantar ódýrari jepplinga Spurður um stærð flotans segir Steingrímur að hann sé orðinn ívið stærri en árið 2019. „Það hafa reyndar verið vandamál í bílafram- leiðslu út af faraldrinum. Það er erf- itt að fá ákveðnar tegundir bíla, eins og ódýrari jepplinga, fólksbíla og ákveðna sérbíla. En mér sýnist mið- að við hvað við keyptum af nýjum bílum í fyrra, sem var 2.200 bílar, og það sem við höfum náð að tryggja okkur nú í ár, að við séum búin að tryggja okkur svona tvo þriðju af því sem við teljum okkur þurfa, eða 1.100 af alls 1.500 nýjum bílum. Venjulega erum við búin að tryggja okkur alla bíla á þessum tíma árs.“ Eins og fram kom í skýrslu ráð- gjafarfyrirtækisins KPMG sem gerð var fyrir Ferðamálastofu og sagt var frá í Morgunblaðinu á dög- unum þá komu bílaleigur almennt vel út úr faraldrinum, samanborið við marga aðra ferðaþjónustuaðila. Steingrímur tekur undir það. Þar hafi langtímaleiga vegið þungt sem og sala notaðra bíla, sem mikill skortur hafi verið á á markaðnum í faraldrinum. „Við gátum stillt þetta vel af. Við höfum aldrei selt fleiri bíla en árið 2020 til dæmis.“ Síðasta náði sér vel á strik Þorsteinn Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri Blue Car Rental, seg- ir í samtali við Morgunblaðið að síð- asta ár hafi verið gott hjá bílaleigunni. „Sumarið náði sér vel á strik og svo gekk þetta vel áfram inn í haustið. Veturinn var litaður af Ómíkron-afbrigði veirunnar eins og víðast hvar annars staðar og það fylgdi okkur inn í janúar. Nú sjáum við að bókanir eru að aukast statt og stöðugt og ef fram heldur sem horfir stefnir í fínt ár og gott sum- ar,“ segir Þorsteinn. Hann kveðst bjartsýnn á fram- haldið. „Með mikilli vinnu komumst við vel út úr faraldrinum og mér sýnist á öllu að spár um 1,3 – 1,6 milljónir ferðamanna ættu að geta gengið eftir.“ Rétt eins og hjá Bílaleigu Ak- ureyrar hafa verið erfiðleikar við að tryggja nægilegt magn bíla hjá Blue Car Rental. „Við erum að birgja okkur upp. Líklega þurfum við að keyra bíla aðeins lengur en vanalega út af ástandinu í bílafram- leiðslunni. Það eru ákveðnar bílteg- undir sem við fáum hreinlega engin eintök af. Svo virðist sem framleið- endur búi t.d. til minna af smábíl- um í dag en þeim stærri og með- alstóru. Við sjáum líka að það er erfiðara að fá t.d. sjö sæta bíla. All- ur fókusinn hjá framleiðendum virðist vera á mest seldu bílana, eins og bíla í miðstærð og jepp- linga.“ Sama stærð og fyrir Covid Spurður um flotastærð Blue Car Rental sér Þorsteinn fyrir sér að hann muni samanstanda af um tvö þúsund bílum í ár, svipað og fyrir faraldur. „Öll starfsemi okkar mið- ast við þá tölu. Það veltur þó auðvit- að á fjölda ferðamanna.“ Inn í þetta spilar líka eins og Þor- steinn bendir á að landslagið hefur breyst. Bílaleigum hafi til dæmis fækkað. „Allar vel reknu bílaleig- urnar virðast samt hafa komið sterkar út úr faraldrinum.“ Þorsteinn segir að miðað við þau gögn sem hann sjái í sínum kerfum þá sé ferðamynstur lítið eitt breytt miðað við fyrir faraldurinn. „Það var dálítið mikið talað um það í far- aldrinum að fólk pantaði sér bíla og ferðalög með skemmri fyrirvara en áður. Nú sýnist mér þessi tími vera að styttast enn meira. Við höfum aldrei séð pöntunarfyrirvarann jafn stuttan og nú. Hluti af skýringunni tel ég að fólk hefur brennt sig á því í faraldrinum að hafa pantað sér ferðir með löngum fyrirvara en þurft að hætta við. Nú held ég að fólk stökkvi meira af stað á meðan ferðaglugginn er opinn. Það gerir að verkum að ferðamynstur breytist og streyma nú bókanir inn hjá okk- ur fyrir næstu vikur og mánuði.“ Þorsteinn segir að lokum að það sé ánægjulegt að aftur sé orðið gaman í vinnunni. „Við bíðum spennt eftir frábæru tímabili fram undan.“ Bílaleigur bjartsýnar á ferðaárið fram undan Morgunblaðið/Ómar Upplifun Ferðaþjónustan gæti náð vopnum sínum á þessu ári miðað við góða bókunarstöðu bílaleiganna. Staðan fyrir apríl er betri en fyrir apríl 2019. - Aprílbókanir eins og í apríl 2019 - Breytt ferðamynstur - Erfiðara að fá bíla Fjöldi bílaleigubíla júlí 2018 til febrúar 2022 30.000 25.000 20.000 15.000 10.000 Heildarfjöldi skráðra bílaleigubíla Fjöldi bílaleigubíla á númerum 2018 2019 2020 2021 2022 Heimild: Samgöngustofa 26.946 19.269 16.734 13.143 25.640 21.097 12.406 Steingrímur Birgisson Þorsteinn Þorsteinsson 19. febrúar 2022 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 124.54 Sterlingspund 169.6 Kanadadalur 98.07 Dönsk króna 19.033 Norsk króna 13.989 Sænsk króna 13.367 Svissn. franki 135.3 Japanskt jen 1.0822 SDR 174.75 Evra 141.6 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 175.1898 « Gunnar Björn Gunnarsson, eig- andi bílaleigunnar Procar, segir í samtali við Morg- unblaðið að búið sé að selja vöru- merkið Procar. Ástæða þess að blaðið hafði sam- band við Gunnar var að blaðið hafði haft af því spurnir að leigan hefði ákveðið að rifa seglin. Spurður hvort einhverju starfsfólki hefði verið sagt upp vegna breyting- anna sagði Gunnar að eitthvað af fólki færi yfir til kaupandans. Gunnar vildi ekki tjá sig um það í samtali við blaðamann hver væri kaup- andi vörumerkisins og kvað það trún- aðarmál. Procar var vísað úr Samtökum ferðaþjónustunnar árið 2019 í kjölfar- ið á umfjöllun fréttaskýringarþáttarins Kveiks á RÚV þar sem kom fram að tugþúsundir kílómetra hafi verið teknir af akstursmælum í tugum bíla hjá Procar. Bílaleigan Procar var rekin með ríf- lega 118 milljóna króna tapi árið 2020 en árið 2019 var 3,7 milljóna króna tap á rekstrinum. Tekjur fyrirtækisins tóku mikla dýfu milli áranna 2019 og 2020. Árið 2019 voru tekjurnar rúmar 800 milljónir króna en árið 2020 höfðu þær minnk- að niður í 273 milljónir króna. Procar-vörumerkið selt til annarrar bílaleigu Bíll Procar hreins- aði af mælum. STUTT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.