Morgunblaðið - 19.02.2022, Síða 24

Morgunblaðið - 19.02.2022, Síða 24
24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2022 Vallarbraut 6, 260 Reykjanesbæ Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is 3ja herbergja endaíbúð á þriðju hæð í húsi fyrir 55 ára og eldri í Njarðvík Reykjanesbæ, í göngufæri við þjónustumiðstöð Nesvalla. Nánari upplýsingar á skrifstofu eða á eignasala@eignsala.is Jóhannes Ellertsson Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677 Júlíus M Steinþórsson Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555 Verð 41.500.000 Birt stærð eignar 85,7 m2 N ú eru margar spurningakeppnir í boði í útvarpi, sjónvarpi, barsvari og víðar. Ein spurninganna gæti verið: Hvað er sameiginlegt með orðunum tveimur í fyrirsögninni, annað en að þau enda bæði á –stur? Svarið er að finna hér á eftir. Orðaforði vex á ýmsa vegu og er stundum farið býsna grannt eftir fyrir- myndum úr öðrum málum án þess að orðin beri er- lendan svip eða flokkist sem tökuorð. Þegar erlent hugtak er þýtt lið fyrir lið er talað um tökuþýðingar. Dæmi er orðið fegurðarblundur, sbr. á ensku beauty sleep. Ann- að dæmi er heilaþvo. Enska sagnorðið er brain wash. Þá má nefna orðið flugpóstur sem end- urspeglar enska orðið air mail en á frönsku heitir þetta courrier par avion. Móðurborð (í tölvu- máli) samsvarar á ensku motherboard; skuldabyrði er á ensku debt burden; endurgreiðsluáætlun endurómar fyrirmyndina (e.) repay- ment schedule; gróðurhúsaáhrif samsvarar greenhouse effect á ensku og växthuseffekt á sænsku; loftpúði er bein þýðing á enska hugtakinu air bag. Svona má lengi telja. Efniviður úr sömu uppsprettu tekur á sig breytilegt form í tungumál- unum en í grunninn er sama hugmynd á ferðinni, enda hrærast þau samfélög sem nota þessi orð meira og minna í sama hugmyndaheimi. Orðið flóðhestur er áhugavert enda varla hægt að segja að dýrið sé sérlega líkt íslenska hestinum. Á ensku er sagt hippopotamus eins og í latínu. Orðið er sótt til grísku þar sem híppos er hestur en potamós flóð eða fljót. Á íslensku er sem sé um að ræða tökuþýðingu sem samsvarar á dönsku flodhest, sænsku flodhäst, þýsku Flusspferd (Nilpferd) og finnsku virtahepo – virta þýðir flóð, straumur, en hepo merkir hestur (algengara orð er þó hevonen). Mjög mörg Evrópumál sleppa hins vegar að þýða fyrirmyndina en taka við formi hennar og aðlaga það, sbr. pólska tökuorðið hipopotam. Þegar koma þarf orðum að nýrri hugsun er stundum farin sú leið að grípa til eldra orðs og gefa því nýja eða víðtækari merkingu. Þekkt dæmi er orðið skjár sem gekk í endurnýjun lífdaga með nýrri merkingu í nútímamáli. En hér geta líka komið til skjalanna svo- nefndar tökumerkingar eins og í orðinu vefur. Í ensku fékk orðið web víðari merkingu með tilkomu netsins. Fyrir áhrif þaðan víkkaði merkingin líka í íslensku. Nú merkir vefur meðal annars vefsetur eða veraldarvefur, auk þess að tákna það sem verið er að vefa, köngu- lóarvef eða líkamsvef. Nýja merkingin í orðinu skyggir ekkert á hin- ar eldri enda er alvanalegt að orð hafi fleiri en eina og fleiri en tvær merkingar. Hreintunguhneigð er meginþáttur í íslenskri málstefnu en snýst í reynd fyrst og fremst um form og útlit orða fremur en inntakið. Því falla tökuþýðingar, t.d. flugpóstur eða flóðhestur, eða tökumerkingar á borð við vefur (vefsetur), vel að útbreiddri hugmynd um hreina ís- lensku enda þótt þær séu myndaðar eftir erlendum fyrirmyndum. Flugpóstur og flóðhestur Tungutak Ari Páll Kristinsson ari.pall.kristinsson@arnastofnun.is Ljósmynd/Unsplash, Gene Taylor Tökuþýðing Orðið flóðhestur er áhugavert. U msátri Rússa um Úkraínu er ekki lokið. Þegar vikan hófst létu Rússar eins og þeir ætluðu að minnka spennuna. Henni lauk án þess að það gerðist. Fimmtudaginn 17. febrúar bárust fregnir um að fjölgað hefði um 7.000 í rússneska umsát- ursliðinu. Lögð hefði verið flotbrú skammt fyrir norðan landamæri Úkraínu í Hvíta-Rússlandi. Hún kynni að vera hluti af æfingum 30.000 manna herliðs Rússa á þessum slóðum eða henni væri ætlað að auðvelda bryndrekum að sækja suður til Kíev í um það bil 100 km fjarlægð, það er eins og frá Reykjavík til Hvolsvallar. Rússar sendu blóð- birgðir til landamærahersins sem þótti ekki friðarboði frekar neyðarköll aðskilnaðarsinna, túlkuð sem árásar- átylla fyrir Rússa. Varnarmálaráðherrar NATO-ríkjanna komu saman í Brussel 16. og 17. febrúar. Að fyrri fundardeginum lokn- um sagði Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, að ráðherrarnir hefðu rætt efnislega um „alvarlegustu öryggiskrísu í Evrópu í marga áratugi“. Stoltenberg sagði að NATO- ríkin fögnuðu öllu sem gert væri til að greiða úr málum með viðræðum og frá Moskvu kæmu boð um að því yrði haldið áfram. Á hinn bóg- inn kæmi í ljós að ekki væru nein merki um minnkandi spennu á vettvangi. Rússar hefðu hvorki kallað heim herafla né búnað. Þetta kynni auðvitað að breytast en nú væri rússneski herinn grár fyrir járnum og tilbúinn til árásar. Aldrei fyrr hefði svo miklum her verið stefnt saman í Evrópu frá lokum kalda stríðsins. NATO hefði frá fyrsta degi gert Rússum ljóst að frekari árásir þeirra á Úkraínu yrðu þeim dýrkeyptar. Jafnframt væri NATO tilbúið til viðræðna. Það væri ekki of seint fyrir Rússa að stíga til baka og velja leið friðar. NATO er ekki til viðræðu um málamiðlanir varðandi grundvallarþætti. Rétt hverrar þjóðar til að velja sér eigin framtíð. Svigrúm bandalagsins til að ákveða hvað þurfi til að vernda og verja aðildarríki þess. Það verði gert án þess að ógna Rússum. Stoltenberg sagði NATO ekki vita hvað kynni að gerast í Úkraínu. Ráðamenn í Moskvu hefðu sýnt að þeir væru tilbúnir til að fara á svig við grundvallarsjónarmiðin sem í marga áratugi hefðu verið að baki öryggi okkar. Og þeir beittu til þess valdi. „Mér þykir miður að þurfa að segja að þetta er nýi veru- leikinn [e. new normal] í Evrópu,“ sagði Jens Stolenberg að loknum fundi NATO-varnarmálaráðherranna 16. febr- úar 2022. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráð- herra sat þennan fund fyrir Íslands hönd og átti einkafund með Stoltenberg 15. febrúar. Hún sagði við fréttastofu ríkisútvarpsins eftir ráðherrafundinn 16. febrúar að allir fundarmenn hefðu haft „mjög þungar áhyggjur af stöð- unni“, hvað sem liði „beinni innrás“ sæjum „við í raun fram á nýtt norm eða nýjan veruleika“. Þessi nýi veruleiki er að mati varnarmálaráðherra NATO, að Rússar hiki ekki við að sýna klærnar til að knýja fram breytingar sér í vil á öryggiskerfi Evrópu. Eftir að Rússar beittu klónum gegn Úkraínumönnum árið 2014 varð gjörbreyting á evrópskum öryggismálum. Á Norðurlöndunum birtist hún skýrast í náinni samvinnu Svía og Finna við NATO og tvíhliða samningum þeirra við Bandaríkjamenn. Varnarviðbúnaður jókst í Eystrasalts- löndunum og Póllandi undir fána NATO. Nú er boðað að NATO ætli enn að efla herstyrk í mið-, austur- og suðaust- urhluta Evrópu. Í sjö ár samfellt hafa evrópsk NATO-ríki og Kanada aukið útgjöld sín til varnarmála. Hafa þau vaxið samtals um 270 milljarða dollara frá árinu 2014. Litháar vilja að Bandaríkjamenn opni herstöð í landi sínu. Danir hafa samþykkt ósk Bandaríkjastjórnar um aðstöðu fyrir herafla í Danmörku. Þeir telja óhjákvæmilegt að hverfa frá stefnunni um bann við erlendum herstöðvum á dönsku landi á frið- artímum. Danir gera ekkert með kröfu Rússa um að bandarískir hermenn verði ekki á Borgundar- hólmi. Norðmenn hafa þegar horf- ið frá banni við herstöðvum í landi sínu og Svíar heimila viðveru bandarískra hermanna og þátt- töku í heræfingum í Svíþjóð. Finnar hafa nýlega skrifað undir samning um kaup á 64 hátækni-orrustuþotum frá Bandaríkjunum. Þetta er nýi veruleikinn í norrænum öryggismálum. Hann birtist á komandi árum í skarpari mynd hér á Norður-Atlantshafi þegar hrundið verður í framkvæmd nýrri varnarstefnu Dana fyrir norðurslóðir – Færeyjar og Grænland. Árið 2009 treystu norrænu ríkin samstarf sitt í varnar- málum undir skammstöfuninni NORDEFCO. Þau hafa einnig öll tengst 10 ríkja svæðisbundnu varnarsamstarfi í Norður-Evrópu, sameiginlegu viðbragðssveitinni (Joint Expeditionary Force (JEF) með Eistlandi, Lettlandi, Litháen, Hollandi og Bretum sem stjórna samstarfinu. Eins og enskt heiti þessa liðsafla ber með sér er honum ætlað að láta að sér kveða erlendis. Bregðast við steðji ógn að einhverju aðildarríkjanna. Íslendingar gengu til JEF-samstarfsins í apríl 2021. Þátttaka í NATO, NORDEFCO og JEF felur í sér rétt- indi og skyldur. Íslensk stjórnvöld skilgreina þátttöku sína á borgaralegum forsendum í þessu samstarfi hern- aðaryfirvalda hvers lands. Íslensku þátttökuna verður að laga að nýja veruleikanum með þjóðaröryggið að leiðar- ljósi. Í lok júní 2022 verður ný grunnstefna NATO samþykkt á leiðtogafundi bandalagsins í Madrid. Fyrir liggur ítarleg greinargerð sem þar er lögð til grundvallar. Hana ber að kynna á íslensku og ræða hér eins og gert er í öðrum NATO-ríkjum. Rússar sýna Úkraínu enn klærnar Þessi nýi veruleiki er að mati varnarmálaráðherra NATO, að Rússar hiki ekki við að sýna klærnar til að knýja fram breytingar sér í vil á öryggiskerfi Evrópu. Björn Bjarnason bjorn@bjorn.is Svo vill til, að ég á afmæli í dag, er orðinn 69 ára. Á slíkum dögum er tilefni til að staldra við og hug- leiða lífið, tímabilið milli fæðingar og dauða, enda munum við ekki eftir fæðingunni og þurfum að þola dauð- ann. Hvað er eftirsóknarverðast í líf- inu? Þegar ég hef rætt um þessa spurningu við nemendur mína í stjórnmálaheimspeki, hef ég raðað verðmætum lífsins svo, að efst og fremst væri góð heilsa, andleg ekki síður en líkamleg, þá traustir fjöl- skylduhagir og síðan blómlegur fjár- hagur. Þeir, sem búa við góða and- lega heilsu, eru öðrum líklegri til að mynda sterk fjölskyldubönd, eignast vini og ástvini, og þeir, sem búa við góða líkamlega heilsu, geta oftast aflað sér efnislegra gæða, að minnsta kosti í vestrænum velsæld- arríkjum. Stjórnmálaskörungurinn íslenski mælti viturlega, þegar hann gaf barnabarni sínu það ráð að eyða ævinni ekki í að sjá eftir eða kvíða fyrir. Hitt er annað mál, að við ætt- um að leitast við að læra af mistök- um okkar og miðla öðrum af þeirri reynslu. Við ættum líka jafnan að búa okkur undir hið versta, þótt við leyfðum okkur um leið að vona hið besta. Þegar ég horfi um öxl, sé ég til dæmis, að ég hefði átt að nýta tímann í háskóla betur, fara strax í það nám, sem ég hafði áhuga á, og læra fleiri tungumál. Nýtt tungumál er eins og lykill að stórum sal með ótal fjársjóðum. Ég hefði líka átt að sneiða hjá ýmsum tilgangslausum erjum, þótt auðvitað væri rétt að berjast gegn alræðisöflunum, sem enn eru á kreiki, þótt þau væru vissulega öflugri fyrir 1990. Ég kvíði ekki fyrir framtíðinni, en við Vesturlandabúar verðum að skilja, að hættur steðja að. Tímabil frjálsra alþjóðaviðskipta í skjóli Bandaríkjahers hefur verið einstakt framfaraskeið. Lífskjör hafa batnað stórkostlega. En einræðisherrarnir í Moskvu og Peking hrista um þessar mundir vopn sín, svo að brakar í. Á þá duga engin vettlingatök. Og á Vesturlöndum vilja sumir neyða eig- in þröngsýni, ofstæki og umburðar- leysi upp á okkur, um leið og þeir reyna að seilast með aðstoð ríkis- valdsins í vasa okkar eftir fjár- munum. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Hugleiðingar á afmælisdegi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.