Morgunblaðið - 19.02.2022, Side 27
UMRÆÐAN 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2022
silicolgel
Gegn þrálátum magavandamálum
• Matskeið allt að 3 sinnum á dag myndar verndarhjúp í maga
og þörmum.
• Gelið veitir léttir gegn
óþægindum tengdum
meltingu og einkennum
iðraólgu (IBS) t.d. lofti í
maga, flökurleika,
bakflæði og brjóstsviða.
Ég finn að ég er laus við
brjóstsviða og ég fæ síður í
magann. Ég tek alltaf einn sopa á
morgnanna með kaffinu. Ég mæli
hiklaust með Silicol gelinu.’’
Garðar Viðarsson
Fæst í Apótekum
Það eru fagrir
stefnumáladraumar á
heimasíðum ríkis-
stjórnarflokkanna og
væri á Íslandi hið full-
komna þjóðfélag ef
þeir draumar rættust.
Allir flokkarnir virð-
ast leggja áherslu á
frelsi og jafnræði á
einn eða annan hátt í
frumskógi fagurra
drauma (lesist kosn-
ingaloforða).
Því verður það að teljast nokkuð
merkilegt að á Íslandi þrífist þjóð-
félagsmein í boði ríkisstjórn-
arinnar eins og t.d. aðför að fé-
lagslegum réttindum starfandi
stétta. Sérstaklega þar sem það
gerist á vakt Katrínar Jakobs-
dóttur með stuðningi Vinnu-
málastofnunar. Katrín ætti að
skoða heimasíðu VG en þar er m.a.
tiltekið undir liðnum „Atvinnumál“
að koma þurfi í veg fyrir félagsleg
undirboð.
Samtök atvinnulífsins, almennt
skammstafað SA, virðast styðja við
félagsleg undirboð með þegjandi
samþykki VG og Vinnumála-
stofnunar en einn stjórnarmaður
Vinnumálastofnunar var formaður
samninganefndar Bláfugls í neðan-
greindu máli.
Í lok árs 2020 studdi SA flug-
félagið Bláfugl þegar 11 fastráðn-
um flugmönnum var sagt upp í
miðjum kjaraviðræðum og rak SA
málið fyrir hönd Bláfugls eftir
uppsagnirnar. Aðrir flugmenn Blá-
fugls eru (gervi)verktakar án
flestra félagslegra réttinda sem
eðlileg teljast í siðmenntuðu þjóð-
félagi. Upplýsingar um gerviverk-
töku má finna á heimasíðu skatts-
ins með því að slá inn í leitar-
glugga „gerviverktaka.“ Þar er
eftirfarandi m.a. tiltekið:
„Gerviverktaka:
Það er grundvallarmunur á sam-
bandi starfsmanna og vinnuveit-
enda annars vegar og verktaka og
verkkaupa hins vegar. Réttindi,
skyldur og ábyrgð verktaka og
starfsmanna eru mismunandi og
skattaleg meðferð tekna er að
mörgu leyti ólík.
. Innir viðkomandi verk af hendi
fyrir einn aðila eða fleiri? –
Verktakar taka að sér að vinna
verk af tilteknum toga og bjóða
almennt fram þjónustu sína á al-
mennum markaði. Ef maður
vinnur fyrir einn eða fáa bendir
það frekar til þess að um vinnu-
samband sé að ræða en ekki
verktakasamband.
. Hver leggur til aðstöðu, verkfæri,
efni? – Ef kaupandi þjónustu
leggur til aðstöðu, verkfæri og
efni, eru meiri líkur á því að um
vinnusamning sé að ræða.
. Er viðkomandi skyldur til að inna
verk af hendi persónulega? –
Verktakar taka að sér að inna
ákveðið verk af hendi, en eru al-
mennt ekki skyldugir til að inna
verk af hendi persónulega þótt
einhverjar undantekningar kunni
að vera á því. Starfsmenn eru
hins vegar skyldugir til að inna
verk af hendi persónulega.
. Hver ábyrgist árangur verks? –
Verktakar ábyrgjast árangur
þeirra verka sem þeir taka að
sér. Vinnuveitendur ábyrgjast ár-
angur verka sem starfsmenn
þeirra inna af hendi.
. Hver ber ábyrgð á tjóni? – Verk-
takar bera skaðabótaábyrgð valdi
þeir tjóni við vinnu sína. Vinnu-
veitandi ber svokallaða vinnuveit-
andaábyrgð sem felur í sér að
hann ber ábyrgð á tjóni sem
starfsmaður hans veldur með
saknæmum eða ólögmætum
hætti á vinnutíma.
. Hver hefur stjórnunarrétt, s.s.
ákveður hvar, hvernig og hvenær
vinnan er unnin? – Verktakar
hafa mun meira
sjálfdæmi um það
en starfsmenn hvar,
hvernig og hvenær
verk er unnið.
. Miðast greiðsla við
árangur verks eða
miðast greiðsla við
tímaeiningu? – Al-
mennt miðast
greiðsla til verktaka
við árangur verks
en við tímaeiningu
sé um launamann
að ræða.“
Hér er augljóst að starfandi at-
vinnuflugmaður getur ekki talist
verktaki.
Rétt er að benda á að væntanlega
greiða mjög fáir ef einhverjir
„sjálfstætt starfandi flugmenn,“
eins og einhver kallaði gerviverk-
takana, hjá íslensku flugfélagi
skatta og önnur opinber gjöld á Ís-
landi.
Félagsdómur dæmdi í september
2021 að uppsagnirnar hefðu verið
ólögmætar (Félagsdómur, mál nr.
2/2021. Félag íslenskra atvinnu-
flugmanna gegn Samtökum at-
vinnulífsins fyrir hönd Bláfugls
ehf. og Bláfugli ehf.). SA virðist
nokkuð sama um ólögmæti gjörn-
ingsins, enda kannski engin
ástæða til að fara eftir lögum ef
maður kemst upp með það og
hagnast á því.
Það hefur verið sagt að svartur
húmor (afsakið slettuna) sé íslensk
hefð og stendur SA sig vel þar. Ég
sá einhvers staðar að SA er stolt
yfir því að hafa undirritað „UN
Global Compact,“ sáttmála Sam-
einuðu þjóðanna um þjóðfélagslega
ábyrgð. Í sáttmálanum eru 10 við-
mið (principles) sem finna má með
því að gúggla „The Ten Principles
– UN Global Compact.“
Viðmið númer 3 er svohljóðandi:
„Businesses should uphold the
freedom of association and the ef-
fective recognition of the right to
collective bargaining;“ sem út-
leggst nokkurn veginn á okkar yl-
hýra „Fyrirtæki eiga að halda uppi
félagafrelsi og skilvirkri við-
urkenningu á rétti til kjarasamn-
inga.“
Framganga SA í ofangreindu máli
er fjarri þessu viðmiði þrátt fyrir
staðfestingu sáttmálans og eru
hugsanlega einhver vandræði með
lesskilning þar á bæ eða er þetta
kannski spurning um laskað sið-
ferði?
Svo virðist að gerviverktaka sé að
aukast á Íslandi og er í ein-
hverjum tilfellum hjá hinu opin-
bera og ekki batnar það ef frum-
varp til laga um loftferðir verður
samþykkt óbreytt eins og ASÍ og
fleiri hafa bent á.
Nú sækist Ásdís Kristjánsdóttir,
aðstoðarframkvæmdastjóri SA, eft-
ir því að verða bæjarstjóri í Kópa-
vogi. Ef hún fylgir stefnu SA
(þ.e.a.s. raunstefnu en ekki þeirri
undirrituðu), má þá vænta þess að
fastráðnir starfsmenn Kópavogs-
bæjar verði reknir og boðið að
verða „sjálfstætt starfandi bæj-
arstarfsmenn“ á óumsemjanlegum
gerviverktakakjörum? Ef ekki,
hvers vegna hefur hún og SA ekki
sýnt nein merki um iðrun og yfir-
bót vegna ofangreinds ólögmætis?
Þetta er spurning sem kjósendur í
Kópavogi eiga rétt á að fá svar við.
Hið óspillta Ísland
Eftir Kára
Guðbjörnsson
» Svo virðist að gervi-
verktaka sé að auk-
ast á Íslandi og er í ein-
hverjum tilfellum hjá
hinu opinbera og ekki
batnar það ef frumvarp
til laga um loftferðir
verður samþykkt
óbreytt.
Kári
Guðbjörnsson
Höfundur er fyrrverandi flugum-
ferðarstjóri og atvinnuflugmaður.
Með sameiningu
sveitarfélaga og tækni-
legri þróun hefur hlut-
verk bæjarskrifstofa
breyst mikið. Tækninni
fleygir fram og gefur
kost á skilvirkari og
betri þjónustu. Lýð-
ræði eflist með auknu
upplýsingaflæði.
Þar sem áður mynd-
aðist biðröð við af-
greiðslu leyfa og annarra umsókna
má sjá auð biðrými. Ástæðan er ein-
föld, í auknum mæli eru samskipti
við sveitarfélög leyst á rafrænan
hátt. Við sameiningu sveitarfélaga
hefur fjarlægð við bæjarskrifstofur
orðið mun meiri í bæjarkjörnum þar
sem skrifstofan flutti burt. Oft og tíð-
um hefur verið sársaukafullt að horfa
á eftir bæjarskrifstofunni og það orð-
ið bitbein sameiningarviðræðna.
Með rafrænni þróun eykst mögu-
leiki á að færa þjónustuna aftur nær
íbúunum en mikið verk er fyrir hönd-
um að gera hana skilvirkari, aðgengi-
legri og víðtækari. Þá er einnig þörf á
því að bæta úr upplýsingaflæði til
íbúa með rafrænum hætti.
Rafrænar lausnir
Í Fjarðabyggð hafa verið stigin
mikilvæg skref til rafrænnar stjórn-
sýslu. Í dag er hægt að leysa ýmis
samskipti sveitarfélaga með rafræn-
um hætti. En þörf er á því að stíga
enn stærri skref og nútímavæða
þjónustuna með auknu upplýsinga-
flæði. Aðgengi að upplýsingum, um-
sóknum og möguleiki á almennri af-
greiðslu á að vera aðgengilegt á
einum stað.
Verkefni á borð við skóladagatöl,
umsóknir, álagningarseðla, af-
greiðslur, umsagnir, akstursbeiðnir,
félagsþjónustu, bókhald sveitarfé-
lagsins og svo mætti lengi telja er
hæglega hægt að leysa með rafræn-
um lausnum. Það eykur skilvirkni og
bætir veitta þjónustu.
Fjarðabyggðarappið
Rafræn þróun getur fært okkur
bæjarskrifstofuna í símann með smá-
forriti þar sem allar
upplýsingar og þjón-
usta er aðgengileg.
Þetta auðveldar ekki
bara íbúum afgreiðslu
mála heldur gefur þetta
einnig bæjarfélaginu og
stofnunum þess aukið
tækifæri til að liðka
samskipti við bæjar-
búa.
Smáforrit eru orðin
daglegur hlutur í lífi
okkar. Með aðstoð smá-
forrita erum við flest
farin að nýta bankaþjónustu, leggja
ökutækjum, sækja líkamsrækt o.fl.
Bæjarskrifstofan á að vera liður í
þessum hlekk. Skoða á kosti þess að
nýta slík smáforrit til að hafa öll sam-
skipti við sveitarfélagið á einum og
greiðum stað. Þar væri hægt að nálg-
ast flest samskiptamál við bæj-
arfélagið, hvort sem það er í
tengslum við skólastarf, álagningar-
seðla eða afgreiðslur mála, s.s.
ábendingar vegna snjómoksturs eða
annað. Í slíku smáforriti væri hægt
að smella mynd af því sem þarfnaðist
úrlausnar og senda heim, forritið
gripi staðsetningar og tilkynningar
gætu borist um leið og hreyfing yrði
á málinu. Þannig eykst hagræði fyrir
íbúa og stjórnsýslu. Á sama stað
væru allar upplýsingar aðgengilegar
hvort sem það snýr að fjármálum
sveitarfélagsins, ákvarðanatöku, al-
menningssamgöngum eða tímasetn-
ingu sorphirðu.
Með Fjarðabyggðarappinu skap-
ast hagræði fyrir alla aðila á betri
þjónustu, auknu upplýsingaflæði,
meiri lýðræðisvitund og skilvirkari
samskipti við íbúana. Eigum við ekki
að stíga það skref inn í framtíðina?
Aukin upplýsingatækni mun
styrkja Fjarðabyggð
Eftir Ragnar
Sigurðsson » Betri þjónusta, aukið
upplýsingaflæði,
meiri lýðræðisvitund og
skilvirkari samskipti við
íbúana. Eigum við ekki
að stíga það skref inn í
framtíðina?
Ragnar Sigurðsson
Höfundur er bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í
Fjarðabyggð og varaþingmaður.
Þessi veira sem enginn ætti að nefna
upphátt, þetta óféti, fer ekki í ald-
urs- eða manngreinarálit.
Fólk á skólaaldri segist tapa sín-
um bestu árum í fjarkennslu-
heimahangsi og félagslífi í frost-
marki. Eftirlaunaþegar halda sig til
hlés en skjótast í búðir utan álags-
tíma. Enginn kemur í heimsókn og
dagarnir líða undir svefnmiðlinum
Rás 1.
Jafnvel djammfólkið nær ekki að
njóta sín. Það er ekki tímarúm fyrir
fljótakynni eða lengri fyrir níu á
kvöldin.
Engin hressileg slagsmál í slabb-
inu fyrir utan, slíkt gera menn ekki
fyrir miðnætti og enginn að horfa á.
Og hinar vinnandi stéttir sem allt
veltur á og fara af stað í svarta-
myrkri meðan sólin er enn langt fyr-
ir neðan hafsauga og sveljandinn
stendur að úr öllum áttum, hvernig
höndla þær ástandið?
Eru þær ekki að kikna með þetta
allt á bakinu? Er ekki þeirra lausn
orðin að dæmast í sóttkví eða ein-
angrun, nokkrir (hvíldar)dagar án
Guðnýjar, eins konar Mallorka í
skammdeginu? Það skyldi ekki vera.
Sunnlendingur
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12.
Allir tapa