Morgunblaðið - 19.02.2022, Síða 30

Morgunblaðið - 19.02.2022, Síða 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2022 ✝ Guðjón Ólafs- son var fæddur í Syðstu-Mörk undir Eyjafjöllum 23. september 1922. Hann lést á Hjúkr- unarheimilinu Kirkjuhvoli á Hvols- velli hinn 11. febr- úar 2022. Foreldrar hans voru Ólafur Ólafs- son frá Eyvindar- holti og Halla Guðjónsdóttir frá Hamragörðum. Guðjón kvæntist Hallfríði Helgu Dagbjarts- dóttur og eignuðust þau einn son, Björg- vin Guðjónsson. Helga lést hinn 10. september, 2007. Útförin fer fram frá Stóra-Dals- kirkju í dag, 19. febrúar 2022, klukkan 14. Athöfninni verð- ur streymt á pro- mynd.is/gudjon. Hlekk á streymi má nálgast á: https://www.mbl.is/andlat Fallinn er frá mágur minn, sómamaðurinn Guðjón Ólafs- son. Kynni okkar hófust er ég var um fermingaraldur er þau Helga Dagbjartsdóttir systir mín tóku saman. Þau bjuggu búi sínu í Syðstu- Mörk undir Vestur-Eyjafjöllum en Helga lést árið 2007 og bjó Guðjón þá einn á jörð sinni allt til ársins 2018 að hann flutti á hjúkrunarheimilið Kirkjuhvol, Hvolsvelli, þar sem hann undi vel hag sínum. Þau Helga eign- uðust einn son, Björgvin, og reyndist hann föður sínum ein- staklega góð stoð og stytta eftir að hann varð einn og allt til hins síðasta. Guðjón var umfram allt stað- fastur og traustur maður. Hann var oddviti í sinni sveit um ára- bil og lét margt gott af sér leiða á þeim vettvangi. Náttúruunn- andi var hann og næmur á um- hverfi sitt, eftir hann liggja miklar heimildir, frásagnir og fræðigreinar um hans nærum- hverfi. Þórsmörk var honum af- ar kær og gjörþekkti hann það landsvæði. Einhverju sinni er ég stundaði nám fékk ég í hendur það verk- efni að fá jarðlýsingu og átti að lýsa búskaparháttum á tiltekinni jörð. Í öngum mínum hringdi ég í mág minn og bað um aðstoð. Ekki stóð á svörum hjá honum og gaf hann mér greinargóða lýsingu eins og ekkert væri. Það þarf vart að spyrja að því að við Guðjón fengum 10 fyrir verkefnið. Guðjón var góður heim að sækja og áttum við skemmtilegar samræður um allt milli himins og jarðar. Hann var vel lesinn og fróður og myndaði sér skoðanir að vel íhuguðu máli. Ég hugsa með hlýju til stundanna sem við áttum, bæði er við hittumst og símleiðis. Minningarnar eru margar og allar góðar. Síðustu árin fækkaði símtölunum þar sem hann átti orðið erfitt með að heyra í síma, ég saknaði þess. Ég þakka samfylgdina, vináttu og traust mér til handa alla tíð og kveð með þessu fallega náttúru- ljóði sem mér finnst eiga svo vel við. Nú sveipa heiðar næturfölva feldi um fætur hægt og döggvast gróin tún. Hnigin er sól, en aftangeisla eldi er ennþá dreift um hæstu fjalla brún. Um sævardjúp á lágum bárum bíður blikfegurð kvölds og vaggar dagsins þraut. Í aftanblævar fylgd mín ljóðúð líður til lags við röðulbjarmans töfraskraut. (Sigurjón Friðjónsson) Katrín Jónína Björgvinsdóttir. Elskulegur afi minn hefur nú kvatt okkur eftir langt og inni- haldsríkt líf þar sem hann var konungur í ríki sínu. Hann var kominn á hundraðasta árið sitt og var búinn að ákveða það sjálf- ur að hann væri orðinn hundrað ára. Hann hafði mikil áhrif á mig og mótaði þá manneskju sem ég er í dag. Við höfum í raun haft mikil áhrif á hvort annað. Ég frétti það að áður en ég fæddist hafi hann verið harður húsbóndi en breyttist gríðarlega þegar ég kom í heiminn. Þá varð hann mjúkur sem smjör. Hann talaði oft um það hvernig ég hefði allt- af viljað vera hjá þeim ömmu í staðinn fyrir að fara heim upp á háaloft til mömmu og pabba. Þannig hefði ég stundum orgað svo mikið að afi fékk að hafa mig lengur hjá sér. Afi var mikill harðjaxl og af- rekaði heilan helling en fyrir ut- an bústörfin sinnti hann líka oddvitastarfi og öðrum stjórnar- störfum. Það væri hægt að skrifa bók um það allt. Hann var hörkuduglegur, framúrskarandi námsmaður og útskrifaðist með hæstu einkunn frá Hólum. Afi hugsaði svo vel um allt og alla. Hann var mikill dýravinur og vildi alltaf hjálpa ef einhver þurfti á því að halda. Hann sagði gjarnan sögur af því þegar hann var fjallkóngur og þótti efnileg- asti maðurinn í sveitinni til að síga niður á hættulegar syllur í klettunum og sækja kindur. Eitt af áhugamálum hans voru ljóð og skrif en hann fór með kvæði með svo miklum tilþrifum að hann varð klökkur. Kvæðið Gunnarshólmi var hans uppá- hald. Hann var svo sannarlega hetja. Þegar ég hugsa til æskunnar á ég svo margar hlýjar minn- ingar. Það að hafa fengið að vera hjá honum í Syðstu-Mörk á sumrin er ómetanlegt. Þegar hann var um sjötugt lærði hann að elda og var til fyrirmyndar í eldhúsinu allt þar til hann flutti úr sveitinni árið 2018, þá 96 ára að aldri. Það var alltaf hægt að gera ráð fyrir því að afi biði með eitthvað tilbúið eftir manni ef hann vissi að von væri á manni. Ég mun ávallt sakna þess þegar hann rölti til mín á morgnana til að vekja mig þegar hafragraut- urinn var tilbúinn. Ég var mjög heppin þegar ég var unglingur og ég fékk sumarvinnu í sveit- inni nálægt Syðstu-Mörk. Þann- ig passaði afi alltaf að ég fengi nóg að borða og yrði ekki svöng. Við áttum líka huggulegar stundir þegar ég kláraði vinnu á kvöldin og kíkti til hans í kvöld- snarl. Ég lærði að elda með hon- um og samverustundirnar sem við áttum í Syðstu-Mörk eru ógleymanlegar. Ég vildi gjarnan að hann gæti skipt sér af elda- mennskunni minni einu sinni enn. Ég held að afi hafi verið minn allra mesti aðdáandi. Hann spáði því einu sinni að ég yrði hót- elstjóri einn daginn og það lítur út fyrir að hann hafi haft rétt fyrir sér að vissu leyti. Það kom líka alltaf glampi í augun á hon- um þegar ég sagði honum að mér gengi vel í skólanum. Þá var hann fljótur að brosa sínu breið- asta og segja að þetta fengi ég frá honum. Hann var líka alltaf svo stoltur þegar hann sá mig prjóna og sagði að ég minnti hann á mömmu sína. Hann mun alltaf lifa í hjarta mér. Takk afi fyrir allt saman, hvíldu í friði. Þín Rebekka. Margs er að minnast þegar við kveðjum Guðjón í Syðstu- Mörk. Byrjum á sveitinni okkar allra, Syðstu-Mörk undir vest- urhlíðum Eyjafjallajökuls. Þar eru fjöll og háir tindar, slóðar, gil, hálsar, hólar, hraun og hell- ar, áin og ótal lækja, skógur, grösug tún og móar. Þar er hlað- in rétt, þar var gaman að smala en erfitt. Þar standa þrjár kyn- slóðir útihúsa, reykkofi er enn í notkun en sá var fjós fyrir hundrað árum og þar er gömul rafstöð neðan við litla uppistöðu sem safnaði vatni sem gagnaðist til nokkurra sundtaka. Í þessu fjölbreytta umhverfi lifði Guðjón alla sína tíð. Þar hefur verið gott að koma og dvelja eins og marg- ir ættingjar og vinnufólk hefur reynt. Guðjón var vel að sér, öruggur í framkomu og stýrði fólki vel og mildilega til verka. Hann naut þess að taka á móti gestum og náði góðum tökum á eldamennsku þegar Helga var fallin frá. Við eldhúsborðið í íbúðarhúsinu, sem reist var á nokkrum vikum 1939 á meðan heimilisfólk fluttist út í hlöðu, voru jafnan líflegar umræður og oft glatt á hjalla. Guðjón var ör- látur á umræðuefni, stundum fastur fyrir en það brýndi ungt fólk í samræðulist; framsókn og framfarir, huldufólk, draugar, sveitin, bjórinn, Gunnar og Njáll. Þarna sat Guðjón á stól sínum allt þar til hann flutti að eigin ósk á Kirkjuhvol á Hvols- velli 2018. Við nutum þess að hlusta og fræðast, um forfeður og liðna tíð, staðarhætti, örnefni og búskaparhætti hér áður. Ka- sper, síðasti hundur á bænum, fylgdist vel með enda hafði Guð- jón góða frásagnargáfu og stundum læddist Snæfinnur köttur upp á borð, ruglaði þá spilunum í vistinni og Guðjón hafði gaman af. En Guðjón sat ekki bara á þessum stól, á sinni tíð tók hann öflugan þátt í fé- lagsstarfi í Vestur-Eyjafjalla- hreppi og leiddi sem oddviti um langt skeið. Mannfélag næstu bæja, hreppsins og nærliggjandi sveita og sýslu, skipti miklu. Á seinni árum, og þau urðu nokkuð mörg, enda Guðjón á hundr- aðasta aldursári við enda vegar, stakk hann niður penna, rifjaði upp gamla tíð, hafði skoðun á jarðfræði og fornum býlum; hvert fór hraunið sem rann um Kambagil? Hvar er Mörk sem skrifað er um í Njálu? Lesendur Goðasteins fengu að njóta text- ans en það gerðu líka lesendur Skírnis, þegar Guðjón lét sig varða hvað vantaði og hefði kannski afbakast (!) í Njálu og þá ekki síst þátt Höskuldar Hvítanessgoða. Með langri búsetu í Syðstu- Mörk hefur Guðjón haldið op- inni leið okkar og margra ann- arra að góðu umhverfi og sam- veru. Týran, sem flökti þegar gróður slæddist á grindina fyrir vatnsinntaki rafstöðvarinnar, er slokknuð fyrir löngu. Smala- stafur afa Ólafs og Guðjóns og sögin sem notuð var við bygg- ingu gamla íbúðarhússins hanga hins vegar uppi í því sama húsi, á endurnýjuðum veggjum og minna okkur á liðna tíð þar sem Ólafur afi, amma Halla, Helga og Guðjón standa í forgrunni. Góður frændi og vin- ur er fallinn en gleymist ekki meðan við lifum. Hafi Guðjón Ólafsson kæra þökk fyrir sinn þátt í okkar tilveru. Haukur Hjaltason og Þóra Steingrímsdóttir. Í dag kveðjum við Guðjón Ólafsson, fv. oddvita, sveitar- stjórnarmann og góðbónda frá Syðstu-Mörk. Hann var svo sannarlega hornsteinn í héraði, einn af máttarstólpum sveitarfé- lags síns. Hann var leiðtogi sveitar sinnar í Vestur-Eyja- fjallahreppi í áratugi, traustur og yfirvegaður. Hann var einnig góðbóndi og lærði búfræði í Bændaskólanum á Hólum. Á þeim tíma var fátítt að Sunn- lendingar legðu svo langa ferð á sig til að afla sér menntunar. Guðjón var vel gefinn maður og hann fékk sérstök verðlaun bændaskólanna þegar hann út- skrifaðist 1943. Guðjón var ekki einungis farsæll og traustur sveitarstjórnarmaður heldur einnig góður bóndi og fékk fjöl- margar viðurkenningar fyrir sauðfjárrækt og hrútarnir hans voru margverðlaunaðir. Hann skrifaði líka merkilega grein í Skírni, tímarit hins íslenska bók- menntafélags, þar sem hann hafði miklar skoðanir á vígi Höskuldar Hvítanesgoða og minnir okkur á að enn tala marga rangæskir bændur um Njálu eins og samtímasögu. Guðjón hafði glögga framtíð- arsýn. Ég vissi sem barn hver Guðjón í Syðstu-Mörk var, m.a. vegna starfa foreldra minna. Ég kynntist Guðjóni þó ekki vel fyrr en við fórum að starfa saman í Héraðsnefnd Rangæinga og með okkur tókst vinátta. Á þessum tíma voru 11 sveitarfélög í Rang- árþingi og hálfleiðinleg pólitík í sýslunni. Ég var óþreyjufullur, nýkominn úr verslunargeiranum af höfuðborgarsvæðinu og óreyndur sveitarstjórnarmaður, en þá kom reynsla og yfirvegun Guðjóns sér vel. Ég vildi drífa áfram það málefni sem við vor- um að fjalla um. Þá sagði Guðjón þessi fleygu orð og horfði fast á mig: „Hægðu á þér ungi maður, það spyr enginn að því hve lang- an tíma tekur að leysa þetta mál, aðalatriðið er að við gerum það með þeim hætti að sómi sé að.“ Auðvitað var þetta hárrétt hjá honum og orð að sönnu. Þegar við hittumst í síðasta sinn rifjaði ég þetta upp við öldunginn. Hann lygndi aftur augunum eins og honum var tamt og brosti á sinn fallega hátt. Síðan sagði hann við mig: „Þú hefur verið farsæll áhrifamaður og oft feng- ið ómaklega gagnrýni, en það er eðlilegt, ég þekki það sjálfur. En eitt máttu muna, þú hefur líka verið stálheppinn.“ Allt hárrétt og mikið er dýrmætt að hafa átt þennan vin og góðar minningar. Þarna sátum við saman í mynd- arlegu húsnæði Hjúkrunar- og dvalarheimilis Kirkjuhvols en Guðjón átti sinn stóra þátt í því að sameina sitt fólk undir fjöll- um til þess að taka þátt í þessu myndarlega verkefni. Í rauninni fallegt og gott að Guðjón hafi fengið að njóta aðhlynningar á Kirkjuhvoli síðasta spölinn og merkilegt að sjá þá sitja við sama borð; bræðurna Guðjón og Ólaf og Símon frænda þeirra frá Dalsseli. Nú er Ólafur einn eftir. Ég kveð vin minn með virð- ingu og þökk en get því miður ekki fylgt þessum aldna höfð- ingja síðasta spölinn. Björgvini syni hans og aðstandendum öll- um sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Guð blessi Guðjón Ólafsson frá Syðstu- Mörk. Ísólfur Gylfi Pálmason. Guðjón Ólafsson Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512 Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞORBJÖRG ERNA ÓSKARSDÓTTIR frá Brú, Biskupstungum, síðast til heimilis að Hrafnistu Sléttuvegi, lést að heimili sínu föstudaginn 4. febrúar. Innilegar þakkir færum við starfsfólki Hrafnistu Sléttuvegi (Gullfossi) fyrir kærleiksríka umönnun. Útför Þorbjargar Ernu fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 22. febrúar klukkan 15. Athöfninni verður streymt á vefslóðinni laef.is/thorbjorg-erna-oskarsdottir. Hlekk á streymi má nálgast á mbl.is/andlat. Steinn Styrmir Jóhannesson Þórður Hrólfur Ólafsson Guðbjörg Sólveig Ólafsdóttir Jens Sigurðsson Anna Jórunn Ólafsdóttir Sigurður Ágúst Þórðarson Ólöf Erna Ólafsdóttir Albert Gíslason Kjartan Snorri Ólafsson Octavia F. Brault Höskuldur Kári Ólafsson Ingibjörg Sveinsdóttir Auður Bergþóra Ólafsdóttir Ólafur Rafnar Ólafsson Ingibjörg Björnsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær systir okkar, SIGRÍÐUR R. ODDSTEINSDÓTTIR, lést á Landspítalanum miðvikudaginn 9. febrúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Aðstandendur Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, INGIBJÖRG ODDSDÓTTIR frá Siglufirði, lést á Sjúkrahúsi Siglufjarðar miðvikudaginn 16. febrúar. Útförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju fimmtudaginn 24. febrúar klukkan 13. Stefán Páll Stefánsson Gunnfríður Stefánsdóttir Ásdís Hrönn Hilmarsdóttir Hulda Stefánsdóttir Carl Simpson Linda B. Stefánsdóttir Hannes Örn Stefánsson Birna Jenný Hreinsdóttir og barnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓN BJÖRN STEINGRÍMSSON, Uglugötu 13, Mosfellsbæ, Lést 25. febrúar. Útförin fer fram frá Fíladelfíukirkjunni fimmtudaginn 24. febrúar klukkan 11. Marta Guðrún Guðmannsdóttir Magnús F. Jónsson Isabel Escobar Ívar Guðmann Jónsson Sunneva Kjartansdóttir Baldur Gauti Jónsson Sigurbjörg Helgudóttir Rakel Sera Jónsdóttir og barnabörn Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ESTHER ÓSK KARLSDÓTTIR, f. 5. janúar 1928 í Reykjavík, lést 3. febrúar í Stokkhólmi. Útför hennar fer fram 28. febrúar klukkan 12 í Skogskapellet, Skogskyrkogården. Sævar Guðmundsson Elísabet Guðmundsdóttir Bengt Wallin Auður Guðmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.