Morgunblaðið - 19.02.2022, Page 38

Morgunblaðið - 19.02.2022, Page 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2022 HEIMILI ENSKA BOLTANS Á VEFNUM ólíkum kynslóðum. „Tvær þeirra eru jafngamlar mér og hafa verið sam- ferða mér í gegnum lífið,“ segir Svava og vísar þar til Mistar og Báru. „Við Mist erum systkinabörn og aðeins hálfur mánuður á milli okkar,“ segir Svava og rifjar upp að foreldrar þeirra hafi deilt sömu íbúð um tíma þegar þær voru börn. „Við Bára kynntumst í Barnamúsíkskólanum þegar við vorum tíu ára og höfum þekkst vel síðan,“ segir Svava, en Bára tileinkar verk sitt Rannveigu Sigurbjörnsdóttur, móður Svövu og ömmu Rannveigar. „Elín er frá Sel- fossi og tengist Skálholti sterkum böndum þar sem ég hef spilað mikið í gegnum tíðina,“ segir Svava og tekur fram að þegar þær fóru að horfa til tónskálda af yngri kynslóðinni hafi María Huld strax orðið fyrir valinu. „Einhvern tímann hljóp ég í skarð- ið hjá Nordic Affect þar sem við vor- um að spila verk eftir hana sem mér fannst svo fallegt,“ segir Svava og tekur fram að María Huld og Hildi- gunnur eigi það sameiginlegt að vera báðar fiðluleikarar. „Þær skrifa því fyrir strengjahljóðfærið af miklu næmi, enda vita þær að við spilum með fjórum fingrum vinstri handar og hvað það tekur langan tíma fyrir bogann að fara á milli strengja. Það er því allt öðruvísi að vinna þeirra verk en þegar leikin eru verk eftir tónskáld sem eru t.d. píanistar. Hildi- gunni hef ég þekkt lengi, við erum báðar í Dómkórnum auk þess sem við kennum báðar við Listaháskólann. Hún er afkastamikið tónskáld, sem semur bæði falleg og aðgengileg verk. Ingibjörg Ýr er af kynslóð Rannveigar. Henni kynntist ég þegar ég kenndi henni kammertónlist uppi í Listaháskóla og var mjög hrifin af því sem hún gerði.“ Leikur með hreyfanleika Spurð hvort greina megi ein- hverjar tengingar milli verkanna sex svarar Svava því játandi. „Margar eiga það sameiginlegt að hafa valið nótuna d sem útgangspunkt og þema,“ segir Svava og bendir á að fiðlan og víólan eigi þrjá strengi sam- eiginlega sem eru g, d og a. „Annað gegnumgangandi þema í mörgum tónverkunum er hafið. Verk Ingi- bjargar Ýrar nefnist „Undiralda“ en verkið vinnur hún út frá impróvíser- ingum og er innblásin af hafinu. Hildigunnur tekur gamalt þjóðlag sem nefnist „Einu sinni rerum“ sem tengist bátalífi. Bára hefur lýst því að þegar hún samdi verkið „Mánaskin á strönd“ hafi hún séð fyrir sér mynd þar sem hún sat við strönd böðuð mánaskini. Mist hefur sagt að hug- myndin að „Kaleidoscope in the Fro- zen Sky“ hafi kviknað þegar hún varð vitni að norðurljósum á Snæfellsnesi, en það er aldrei langt í sjóinn þar,“ segir Svava og tekur fram að Mist leiki sér í verki sínu með hreyfanleika mæðgnanna í tíma og rúmi, þær ganga um rýmið og syngja með. Skiljum báðar hitt hljóðfærið Í ljósi þess að fiðlan og víólan til- heyra sömu hljóðfærafjölskyldunni liggur beint við að spyrja hvort mikið sé til af dúettum fyrir þessi tvö hljóð- færi sem þær mæðgur hafi spilað í gegnum tíðina. „Frægustu dúóin fyr- ir fiðlu og víólu eru eftir Mozart, sem eru gífurlega falleg og mikið spiluð. Við spiluðum einmitt eitt þeirra á fyrrnefndum Tíbrár-tónleikum,“ seg- ir Svava og vísar þar til Dúós nr. 1 í G-dúr. „Annað frægt dúó fyrir fiðlu og víólu er eftir Händel/Halvorsen og svo mætti áfram telja,“ segir Svava og tekur fram að vel sé hægt að líkja fiðlunni við sópranrödd. „Í strengja- kvartettum og þegar sinfóníuhljóm- sveit spilar með kór leikur víólan allt- af tenórröddina, en meðan tenórar eru bjartir og glæsilegir þá er víólan mun nær altinni í áferð; mjúk, dimm og hlý.“ Spurð hver sé galdur þeirra mæðgna að góðu sampili, segir Svava að strengir blandast mjög vel saman, enda nátengd hljóðfæri. „Við skiljum líka báðar hitt hljóðfærið algjörlega,“ segir Svava og bendir á að hún hafi sjálf lært á fiðlu áður en hún tók ein- leikarapróf á víólu og Rannveig hafi lært á víólu þó fiðlan sé hennar hljóð- færi í dag. „Við Rannveig vinnum mjög vel saman. Í þessu ferli var ein- staklega skemmtilegt að finna að barnið manns er orðið fullorðinn koll- egi og hægt að vinna sem góðir sam- starfsfélagar.“ Spurð hvort það hafi alltaf legið ljóst fyrir að Rannveig myndi feta í fótspor móður sinnar sem tónlistar- maður svavar Svava: „Við pabbi hennar [Matej Šarc óbóleikari hjá Slóvensku Fílharmóníusveitinni í Ljúbljana] erum bæði tónlistarfólk, en ætluðumst aldrei til þess að hún yrði hljóðfæraleikari að atvinnu. Okkur fannst hins vegar sjálfsagt í uppeldinu að hún fengi tækifæri til að læra á hljóðfæri,“ segir Svava og viðurkennir að hún hafi hvatt Rann- veigu til að vera í hljóðfæranámi að minnsta kosti fram að stúdentsprófi. „Ef fólk lærir svo lengi á hljóðfæri þá kann það nógu mikið til þess að geta alla ævi haft yndi af spilamennsku og samspili með öðrum,“ segir Svava og rifjar upp að fiðlukennari Rannveigar hafi snemma komið auga á hæfileika hennar og verið þess fullviss að Rannveig myndi leggja tónlistina fyr- ir sig. Svo skemmtilega vill til að Svava og Rannveig luku báðar námi frá The Juilliard School í New York. „Ég er alsaklaus af því að hún valdi sama skóla og ég. Bróðir minn, Sigurbjörn Bernharðsson fiðluleikari, var henni mikilvægur mentor og gaf henni góð ráð. Þegar kom að því að velja tónlist- arskóla erlendis skrifaði hann niður nöfn á sex skólum og hvatti hana til að sækja um í þeim öllum. Hún gerði það og komst inn í þá alla, en þá vildi svo til að Juilliard bauð henni besta skólastyrkinn og því varð hann fyrir valinu,“ segir Svava og tekur fram að ekki hafi spillt fyrir hversu skemmti- leg borg New York er auk þess sem boðið er upp á beint flug til Íslands. Spurð hvort reikna megi með fleiri fjölskylduverkefnum segir Svava ein- boðið að þær Rannveig muni grípa í verkin sem skrifuð hafi verið sér- staklega fyrir þær, en auk verkanna sex sem á diskinum heyrast sömdu Eygló Höskuldsdóttir og Haukur Tómasson verk fyrir Dúó Freyju sem þær frumfluttu á Sumartónleikum í Skálholti í sumar. „Svo er aldrei að vita nema að næst pöntum við verk fyrir tríó, enda hefur samstarf okkar Rannveigar og Brians gengið mjög vel,“ segir Svava að lokum. Ljósmynd/Guðbjartur Hákonarson Dúó Freyja Mæðgurnar Rannveig Marta Šarc fiðluleikari og Svava Bernharðsdóttir víóluleikari. Hafið varð óvænt þema verkanna - Mæðgur gefa út disk með sex nýjum tónverkum eftir íslenskar konur til að fagna stórafmæli - Skemmtilegt að barnið er orðið fullorðinn kollegi og hægt að vinna sem góðir samstarfsfélagar VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Mæðgurnar Svava Bernharðsdóttir víóluleikari og Rannveig Marta Šarc fiðluleikari starfa saman undir heit- inu Dúó Freyja og sendu nýverið frá sér disk sem inniheldur nýja íslenska tónlist sem samin var sérstaklega fyrir þær. „Í tilefni af sextugsafmæli mínu árið 2020 pöntuðum við með góðum fyrirvara sex verk eftir jafn- margar íslenskar konur á öllum aldri,“ segir Svava og tekur fram að hugmyndin hafi verið að hafa eitt verk fyrir hvern áratug. „Við frumfluttum verkin á tvenn- um tónleikum í Hannesarholti í jan- úar 2020 sem voru hluti af tónlistar- hátíðinni Myrkir músíkdagar. Síðasta sumar lékum við verkin á Sumartónleikum í Hóladómkirkju og á Sumartónleikum í Skálholti og tók- um diskinn síðan upp í Guðríðar- kirkju í sumar,“ segir Svava, en disk- urinn kom út skömmu fyrir síðustu jól en þá gáfu samkomutakmarknir ekki tilefni til að halda sérstaka út- gáfutónleika. „Við náðum þó að leika eitt verkanna á Tíbrár-tónleikum sem við héldum með Brian Hong, fiðluleikara og eiginmanni Rann- veigar, í Salnum í janúar,“ segir Svava, en þegar blaðamaður nær tali af henni eru Rannveig og Brian flogin aftur út til Bandaríkjanna þar sem þau búa og starfa. Tónskáldin sex sem Svava og Rannveig leituðu til voru María Huld Markan Sigfúsdóttir sem samdi verkið „Hringfari“, Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir sem samdi verkið „Undiralda“, Elín Gunnlaugsdóttir sem samdi verkið „Spil IV“, Hildi- gunnur Rúnarsdóttir sem samdi verkið „Tilbrigði um Einu sinni rer- um“, Bára Grímsdóttir sem samdi verkið „Mánaskin á strönd“ og Mist Þorkelsdóttir sem samdi verkið „Kaleidoscope in the Frozen Sky“. Spurð um val þeirra mæðgna á tónskáldunum segir Svava að sér hafi þótt mikilvægt að tónskáldin væru af

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.