Morgunblaðið - 12.03.2022, Side 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2022
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
EL PLANTIO GOLF RESORT
ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 GOLF@UU.IS
ÆFÐU SVEIFLUNA Í SÓL
Komdu með til Alicante, hitaðu upp fyrir sumarið
á Spáni. Í þessum ferðum til El Plantio Golf Resort
getur þú ráðið lengdinni á þinni ferð.
DÆMI UM DAGSETNINGAR Í BOÐI:
17. - 24. MARS
24. – 31. MARS
31. MARS - 07. APRÍL
07. - 13. APRÍL
19. - 25. APRÍL
20. - 25. APRÍL
20. - 28. APRÍL
24. APRÍL - 03 MAÍ
28. APRÍL - 03. MAÍ
03. - 10. MAÍ
10. - 17. MAÍ
17. - 24. MAÍ
INNIFALIÐ Í VERÐI:
ÓTAKMARKAÐ GOLF
INNRITUÐ TASKA 20 KG OG HANDFARANGUR
GOLFBÍLL INNIFALINN
FLUTNINGUR Á GOLFSETTI
VAL UM MORGUNVERÐ EÐA HÁLFT FÆÐI
ÍSLENSK FARARSTJÓRN
AKSTUR TIL OG FRÁ FLUGVELLI
BÓKAÐU GOLF Í VOR - FJÖLDI BROTTFARA
ÞÚ VELUR LENGDINA Á ÞINNI FERÐ Á EL PLANTIO
VERÐDÆMI FRÁ 174.500 KR.
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA Í 5 DAGA FERÐ
ÖRFÁ SÆTILAUS Í MARSMÁNUÐI
ÖRFÁSÆTI LAUS
ÖRFÁSÆTI LAUS
ÖRFÁSÆTI LAUS
Eftir kaldan febrúar bregður svo
við að fyrstu 10 dagar marsmán-
aðar hafa verið fremur hlýir. Þetta
kemur fram á Hungurdiskum,
bloggsíðu
Trausta Jóns-
sonar veðurfræð-
ings á Mogga-
blogginu.
Meðalhiti
fyrstu 10 daga
mars í Reykjavík
er +1,5 stig, +1,2
stigum ofan
meðallags ár-
anna 1991 til
2020, og +0,8 stigum ofan með-
allags sömu daga síðustu tíu árin.
Dagarnir tíu eru í 8. hlýjasta sæti
(af 22) á þessari öld. Hlýjastir voru
dagarnir tíu árið 2004, meðalhiti þá
+6,3 stig, en kaldastir voru þeir
2009, meðalhiti -2,1 stig. Á langa
listanum er hiti nú í 45. hlýjasta
sæti (af 150). Á því tímabili var hlýj-
ast 2004, en kaldast 1919, meðalhiti
var þá -9,9 stig.
Á Akureyri er meðalhiti fyrstu
tíu daga marsmánaðar +2,4 stig,
+3,4 stigum ofan meðallags 1991 til
2020, og einnig +3,4 stigum ofan
meðallags síðustu tíu ára.
Að tiltölu hefur verið hlýjast á
Austurlandi að Glettingi og Aust-
fjörðum. Þetta er næsthlýjasta
marsbyrjun aldarinnar á þeim slóð-
um, en kaldast hefur verið við
Faxaflóa, á Vestfjörðum, Ströndum
og Norðurlandi vestra og á Suður-
landi. Á þessum slóðum eru dag-
arnir þeir sjöttu hlýjustu á öldinni.
Hiti er ofan meðallags síðustu tíu
ára á öllum veðurstöðvum, mest við
Mývatn, þar sem hitavikið er +4,2
stig. Að tiltölu hefur verið kaldast á
Skagatá, þar er hitavikið +0,4 stig,
segir Trausti.
Mikið rignt í byrjun mánaðar
Úrkoma hefur mælst 95,3 milli-
metrar í Reykjavík það sem af er
mánuði, er það meira er þreföld
meðalúrkoma sömu daga. Er þetta
mesta úrkoma á öldinni þessa daga
og hefur aðeins einu sinni mælst
meiri sömu almanaksdaga. Það var
1931 (101,3 mm). Á Akureyri hefur
úrkoma hins vegar aðeins mælst 4,3
millimetrar en er þó ekki met.
Sólskinsstundir hafa mælst 24,5 í
Reykjavík í marsbyrjun og er það
lítillega undir meðallagi. Á Akur-
eyri hafa sólskinsstundirnar mælst
21,3. sisi@mbl.is
Hlýr mars tók við
af ísköldum febrúar
- Mesta úrkoma á öldinni í Reykjavík
Trausti
Jónsson
María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
Hreinsunarstarf á Suðureyri hefur
gengið vel að sögn Þorleifs Sigur-
vinssonar hafnarstjóra en um níu
þúsund lítrar af olíu láku úr tanki
við kyndistöð Orkubús Vestfjarða
fyrir viku.
„Það er búið að ganga mjög vel
síðustu daga. Nú er verið að klára
að háþrýstiþvo alla fjöruna með að-
stoð slökkviliðsbíls. Svo verður sú
vinna endurtekin um næstu helgi
þegar hagstæðari straumar verða
en það fellur ekki nógu mikið af þeg-
ar það kemur flóð þannig að það
nær ekki að hreinsa sig sjálft. Svo
verður þetta bara vaktað,“ segir
Þorleifur.
Farið yfir verkferla
Elías Jónatansson, orkubústjóri
Orkubús Vestfjarða, segir að farið
verði í ítarlegt áhættumat og yfir
alla verkferla í kjölfar lekans.
„Um leið og við uppgötvuðum lek-
ann lögðum við allt kapp á að bregð-
ast hratt við, kalla til viðbragðsaðil-
um og koma í veg fyrir frekara tjón.
Fyrstu vísbendingar benda til þess
að jarðvegsmengun sé mjög lítil. Við
höfum nú þegar fjarlægt þann jarð-
veg sem talinn er hafa mengast og
verður hann meðhöndlaður eins og
lög gera ráð fyrir. Versta mengunin
var í þessari tjörn og það sem fór í
sjóinn. Þá höfum við sett af stað
áhættumat þar sem farið verður yfir
alla verkferla. Eins höfum við kallað
eftir gögnum um alla olíugeyma
orkubúsins á Vestfjörðum. Okkar
menn hafa verið á fullu í hreins-
unarstörfum en síðan munum við
fara í rótargreiningu á þessu atviki
til þess að kanna hvað það er sem
við getum gert betur,“ segir Elías.
Talið er að um 200 fuglar hafi lent
í olíunni, helst æðarfuglar, bæði
blikar og kollur. Hluti þeirra drapst
en hluti var tekinn í fóstur af heima-
mönnum. Dýralæknir var væntan-
legur á svæðið í gær til þess að meta
ástand fuglanna.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Spúlað Guðmundur Geir Einarsson, starfsmaður hjá Orkubúi Vestfjarða, háþrýstiþvær ströndina.
Hreinsunarstarf hefur
gengið vel eftir olíuleka
- Ströndin við Suðureyri hreinsuð með háþrýstidælum
Gunnhildur Sif Oddsdóttir
gunnhildursif@mbl.is
„Við erum með öll spjót úti og tökum
við öllum ábendingum sem berast
fegins hendi,“ segir Gylfi Þór Þor-
steinsson, aðgerðastjóri teymis um
móttöku flóttafólks frá Úkraínu.
Opnað hefur
verið fyrir vefgátt
á island.is þar
sem fólk getur
boðið fram hús-
næði og sett inn
upplýsingar um
þær eignir sem
hægt er að nýta í
verkefnið. „Það
hefur gengið
nokkuð vel. Hátt í
300 ábendingar
hafa borist,“ segir Gylfi en bætir við
að síðan eigi eftir að fara yfir ábend-
ingarnar og meta hvaða húsnæði
geti nýst.
Gylfi segir ábendingarnar sem
hafa borist vera allt frá herbergjum
upp í íbúðir, einbýlishús og sum-
arbústaði. Þá hafa stéttarfélög boðið
fram orlofshús sín.
„Við verðum að halda áfram að
hvetja fólk til að setja inn eignir sem
hægt væri að nota bæði til skemmri
og lengri tíma. Sérstaklega ef von er
á fjölskyldum, sem er mjög líklegt,“
segir Gylfi.
Aðspurður segir Gylfi ekkert frá-
gengið varðandi það að taka á leigu
hótel fyrir flóttafólk frá Úkraínu.
Vita ekki hve margir koma
Gylfi segir verkefnið ganga ágæt-
lega. Vandamálið sé helst það að
ekki er vitað hversu margir eru að
koma og ómögulegt sé að segja til
um það, fólk bara kemur og ekkert
tilkynningarferli fer í gang áður.
„Við vinnum út frá þessu fyrsta
plani, 1.500-2.000 flóttamenn, en
hvort það verði mikið færri eða mikið
fleiri vitum við ekki enn þá,“ bætir
hann við.
Samkvæmt stöðuskýrslu landa-
mærasviðs ríkislögreglustjóra hafa
143 einstaklingar með úkraínskt rík-
isfang sótt um vernd á Íslandi frá því
innrás Rússa í Úkraínu hófst 24.
febrúar.
Hópurinn skiptist þannig að konur
eru 77 talsins, börn 38 og karlar 28.
Tveir þriðju hlutar þessa hóps hafa
fengið húsaskjól hjá vinum og ætt-
ingjum.
Liggur á að fá húsnæði
Að sögn Gylfa byrja flóttamenn
alltaf á því að nýta sér Útlendinga-
stofnun og eru þeir alltaf þar til að
byrja með og geta hugsanlega verið
þar í allt að tvær vikur áður en kerfið
tekur við þeim.
„En það er einmitt sú vinna sem
við erum í, að stytta það ferli til mik-
illa muna, og þess vegna liggur okk-
ur svo á því að fá þessi húsnæði,“
segir Gylfi. Hann segir að verkefnið
sé stórt og ef eitthvað er, stækkar
það með hverri mínútunni.
Leita húsnæðis
fyrir flóttafólk
- Hátt í 300 ábendingar hafa borist
AFP/Odd Andersen
Börn á flótta Fjöldi Úkraínumanna
hefur þurft að yfirgefa heimili sín.
Gylfi Þór
Þorsteinsson