Morgunblaðið - 12.03.2022, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 12.03.2022, Blaðsíða 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2022 Virkjanir á Íslandi eru að langstærstum hluta í opinberri eigu og því er ljóst að arðurinn af orkuauðlindinni rennur á endanum að langmestu leyti til hins opinbera og til almenn- ings. Eingöngu um fimmtungur eða 20% af raforkunni er hins veg- ar nýtt af hinum al- menna markaði en 80% af stóriðj- unni. Þetta tvennt gerir það að verkum að almenn verðhækkun raf- orku er almenningi á Íslandi í hag! Til einföldunar má segja að ef t.d. mán- aðarlegur raforkureikningur heimilis hækkar um 100 kr. getur fimmföld sú upphæð runnið aukalega í verkefni hins opinbera, þ.e. til heilbrigðismála, samgöngumála, velferðarmála, menntunar o.s.frv. Ágóði heimilisins er því 400 kr. Þessi ávinningur sést ekki beint í buddu heimilisins heldur í auknum samfélagslegum verkefnum. M.a. af þessum sökum var það á sínum tíma skynsamleg ákvörðun að byggja hér upp orkufrekan málm- iðnað á Íslandi þótt afurðir séu að mestu leyti fluttar út lítt unnar, ekki síst þegar orkuverð fer almennt hækkandi til lengri tíma litið. Orkuútflutningur Á undanförnum árum hefur verið nokkur umræða um mögulegan orku- útflutning frá Íslandi. Annars vegar hafa verið hugmyndir um beinan raf- orkuflutning um sæstreng til Bret- lands og hins vegar um útflutning rafeldsneytis til Evrópu og e.t.v. Norður-Ameríku, tengt möguleikum á hraðari orkuskiptum. Það er að okkar mati skynsamlegt að huga að báðum þessum leiðum, bæði af efnahagsástæðum, eins og reifað var hér að framan en ekki síður sökum umhverfismála og samfélags- legrar ábyrgðar. Íslendingum hefur tekist að byggja upp eitt mesta velferðarríki heims. Einn lykillinn að þeirri vel- sæld hefur verið innflutningur á orku á formi olíuafurða. Árlega flytjum við inn orku fyrir um 100 milljarða króna til að drífa áfram samgöngur og at- vinnulíf, en án þessa orkuinnflutnings væru okkar stærstu atvinnugreinar, s.s. sjávarútvegur og ferðaþjónusta, nánast óhugsandi. Til samanburðar nema árlegar meðaltekjur af raf- orkusölu til stóriðju ríflega helmingi þessarar upphæðar. Ísland er þannig í efnahagslegum skilningi orkuinn- flutningsland! Við teljum rétt að snúa þessu við. Hér verður vikið að fyrrnefnda kost- inum, þ.e. að tengja raforkukerfi okk- ar við Bretland um sæstreng, en í annarri grein verður fjallað um möguleikann á framleiðslu á rafelds- neyti til orkuskipta innanlands og út- flutnings. Aðrir sjá hag í tengingum Með auknum tengingum og við- skiptum batnar nýting auðlinda og sóun minnkar. Þessi staðreynd á al- mennt við um fleiri markaði en raf- orku en skiptir þar verulegu máli einkum fyrir einsleitt kerfi eins og hið íslenska vatnsaflsríka kerfi. Vegna þessa hefur víða í heiminum verið unnið að auknum tengingum raforkukerfa t.d. yfir landamæri, ekki síst í Evrópu, oft með sæstrengj- um sé aðstæðum þannig háttað. Þannig hafa frændur okkar í Nor- egi og Danmörku lagt marga strengi, bæði sín á milli og til flestra ná- grannaríkja og leggja á ráðin um fjölgun þeirra. Með þessu auka þeir orkuöryggi sitt og í tilfelli Norð- manna auka þeir þjóðartekjur og hag almennings, en auðlindarentan af orkuauðlindinni rennur að langmestu leyti til hins opinbera í Noregi eins og hér á landi, þegar um opinbert eign- arhald er að ræða. Langstærsta framlag Íslands til loftslagsmála Árið 2016 gáfu ráðgjafar rík- isstjórnar Íslands út skýrslu um áhrif lagningar sæstrengs til Bretlands- eyja á íslenskan efnahag og samfélag. Niðurstaðan var sú að slík tenging gæti verið arðsöm ef bresk stjórnvöld tryggðu íslenskum orkufyrirtækjum hagstætt verð fyrir græna orku. Al- mennt var þá talið að slík ábyrgð væri í boði ef Ísland sæktist eftir því. Þess má einnig geta að raforkuverð á Bretlandseyjum er um þessar mund- ir mun hærra en það var þegar þessi úttekt var gerð. Í skýrslunni kom fram að áætluð áhrif slíkrar tengingar á losun gróð- urhúsalofttegunda næmi um 1,0-2,9 milljónum tonna árlega eftir að teng- ingin væri komin í gagnið. Til sam- anburðar gerir grunnsviðsmynd að- gerðaáætlunar Íslands ráð fyrir samdrætti losunar á beinni ábyrgð Íslands upp á 0,5 milljónir tonna fyrir lok áratugarins eða 2-6 sinnum minna en ofangreind tenging ein gæti skilað. Í kjölfarið sótti Ísland um að strengurinn yrði settur á lista Evr- ópusambandsins um innviðaverkefni sem gætu notið rannsóknarstyrkja eða sk. PCI-verkefni. Fyrrum forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, benti á það í viðtali fyrr í vetur að Norðmenn hefðu sann- að það að þetta væri góð leið til að veita Evrópu græna orku og taldi rétt að við skoðuðum þennan möguleika frekar. Undir þessi orð er vert að taka. Árið 2019 óskaði ríkisstjórn Ís- lands hins vegar eftir því að sæ- strengur milli Íslands og Bretlands- eyja yrði tekinn af fyrrnefndum lista. Ekki hefur komið fram hvaða mat á loftslagsáhrifum ríkisstjórnin lagði til grundvallar þeirri ákvörðun og er þessi staða óheppileg og undarleg að okkar mati. Orkuöryggi og skerðingar Um þessar mundir erum við Íslend- ingar að fást við skerðingar á raf- orkuafhendingu vegna lágrar stöðu helstu uppistöðulóna vatnsaflsvirkj- ana. Slíkar skerðingar eru mun sjald- gæfari í vel tengdum raforkukerfum með skilvirkum markaði og mundu líklega heyra sögunni til ef Ísland tengdist slíkum markaði um sæ- streng. Jafnframt ber að nefna þá hættu sem steðjar að raforkukerfi okkar vegna náttúruhamfara, en umrædd tenging gæti dregið úr henni til muna. Um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. „Aðalsmerki heimsmarkmiðanna er að þau eru algild og hafa aðild- arríkin skuldbundið sig til þess að vinna skipulega að innleiðingu mark- miðanna bæði á innlendum og erlend- um vettvangi út gildistíma þeirra.“ Við skorum á íslenska stjórn- málamenn að fylgja heimsmarkmið- unum í verki eins og að ofan greinir því að Heimsmarkmið nr. 7 er „Sjálf- bær orka“ og nr. 13 er „Aðgerðir í loftslagmálum“. Er orkuútflutningur góður kostur fyrir Ísland? Eftir Egil Benedikt Hreinsson og Gunnar Tryggvason Egill Benedikt Hreinsson » Skynsamlegt væri að okkar mati að huga að báðum þessum leið- um af efnahagsástæð- um, en ekki síður sökum umhverfismála og sam- félagslegrar ábyrgðar. Egill Benedikt er prófessor emeritus. Gunnar er verkfræðingur. Gunnar Tryggvason, Aldurssamsetning þjóðarinnar er að taka umtalsverðum breyt- ingum. Staða aldraðra er því eitt stærsta verkefni stjórnmál- anna á næstu árum, hvort sem er í lands- málum eða á sveit- arstjórnarstiginu. Um 15% þjóðarinnar eru nú eldri en 65 ára og fyrir hvern þann sem er kominn á eftirlaunaaldur eru einungis þrír á vinnufærum aldri eins og kallað er í skilgreiningum OECD. Miðað við mannfjöldaspár Hag- stofunnar hækkar hlutfall aldraðra á móti fólki á vinnualdri í tæp 40% á næstu 18 árum. Það er ekki sjálf- bært. Við verðum að opna á að fólk sem vill og getur fái tækifæri til að starfa lengur, við verðum að fjölga Íslendingum eins og við höfum gert með því að taka á móti fleira fólki af erlendum uppruna og við þurfum að skapa samkeppn- ishæft samfélag þannig að unga fólkið okkar sem fer utan, menntar sig og víkkar sjóndeild- arhringinn komi aftur. Það gerum við með lif- andi og skemmtilegu borgarsamfélagi. Þannig að þeir sem vilja búa þar sem þeir geta lifað bíllausum lífsstíl geti það og þeir sem vilja búa við borgarmörkin og náttúruna geti það líka. Við þurfum alls konar borgarsamfélag fyrir alls konar fólk. Maður er manns gaman Við þurfum líka fjölbreyttari kosti fyrir eldri kynslóðirnar. Við þurfum jú fleiri hjúkrunarrými og meiri heimahjúkrun en við þurfum líka að koma nýjum hugmyndum í fram- kvæmd. Verkefni eins og Mörkin og Sléttan, þar sem samþættar eru þjónustuíbúðir við þjónustu hjúkr- unarheimila, eru vísir að skrefunum sem við þurfum að stíga. Alls staðar í kringum okkur í öðrum löndum eru samfélög aldraðra að rísa þar sem dregið er úr hættu á félagslegri einangrun og hættan á að makar þurfi að búa hvor í sínu póstnúm- erinu vegna ólíkra þarfa hverfur. Næsta borgarstjórn á að gera áætlanir um fleiri svæði eins og Mörkina. Þær áætlanir þurfa að vera stórhuga, ekki bara 150 íbúðir heldur að lágmarki 500 íbúðir eða jafnvel mun fleiri, þannig að skilyrði skapist fyrir þorpssamfélagi með verslun, veitingum og þjónustu sem ýtir undir hreyfingu og félagsskap. Maður er manns gaman á við okkur öll, sama á hvaða aldri við erum. Þannig byggjum við til framtíðar, þannig hreyfum við húsnæðismark- aðinn svo yngra fólk komist í íbúðir og einbýli þeirra sem eru eldri og þannig aukum við lífsgæði þeirra sem eldri eru. Þjónustu- og heilsuhverfi Undir svona byggð, sem kalla má þjónustu- og heilsuhverfi, á að brjóta nýtt land, byggja utarlega í borginni, til dæmis á Geldinganesi eða Keldum og jafnvel á Kjalarnesi eftir að Sundabraut kemur. Svona byggð eykur ekki á morgun- eða eftirmiðdagsumferðina, né kallar hún á skóla eða leikskóla. Byggð sem þessi losar húsnæði í eldri hverfum og virkar því sem nokkurs konar þétting án þess að heilu hverfin séu sett á annan endann vegna tilrauna glæruglaðra pólitík- usa við að troða fjölbýlishúsum á staði sem þau komast ekki. Þær til- raunir minna meira á stjúpsystur Öskubusku þegar þær vildu í glerskóinn en raunhæfar tillögur gerðar með skynsemi í huga. Uppbygging þjónustu- og heilsu- hverfa aldraðra getur þannig orðið mikilvægur þáttur í lausn á húsnæð- isvandanum sem blasir við okkur og núverandi borgarstjórn hefur verið um megn að leysa. Á liðnum árum hafa skipulagsmál borgaryfirvalda snúist um markmið og áherslur stjórnmálamanna og embættis- manna sem vilja segja fólki hvernig það eigi að sitja og standa – og búa. Þessu þarf að breyta, og skipu- leggja borgina út frá þörfum íbúa og eðlilegri lýðþróun. Þannig sköpum við raunverulegar lausnir og aukum lífsgæði allra, ekki bara þeirra sem starfa í ráðhúsinu. Eftir Friðjón R. Friðjónsson » Þjónustu- og heilsu- hverfi aldraðra geta orðið mikilvægur þáttur í lausn á húsnæðisvand- anum sem núverandi borgarstjórn hefur ver- ið um megn að leysa. Friðjón R Friðjónsson Höfundur er framkvæmdastjóri, varaþingmaður og frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. fridjon@kom.is Byggjum til framtíðar fyrir aldraða Reykjavík hefur þróast undanfarin ár hröðum skrefum í að verða smækkuð útgáfa af alþjóðlegum stór- borgum eins og New York og London með öllum þeim kostum og göllum sem því fylgja. Ég bjó um árabil í þessum borgum og hef því ágætar forsendur til að bera þær saman við Reykjavík. Kostir alþjóðlegra stórborga eru vissulega öflugt og ið- andi mannlíf en gallarnir eru að sama skapi hátt fasteignaverð, aukin glæpatíðni, útilokun einkabílsins, háir skattar og lágt opinbert þjón- ustustig við almenning. Afleiðing- arnar eru að íbúar leita í „vingjarn- legri“ borgir og bæi þar sem gott er að búa. Eitt af því sem mér fannst kúnst- ugt þegar ég bjó í Bandaríkjunum voru skilti sem sáust víða með áletr- uninni „Your tax dollars at work“ sem gæti útlagst „hér eru skattarnir þínir í vinnu“ – ég velti fyrir mér hvort þessi skilti væru ekki gagnleg í Reykjavík til að minna á í hvað skattarnir okkar fara? Sem íbúa í Reykjavík hefur mér nefnilega ekki sýnst ríkja einhugur um hvað skött- unum hefur verið eytt í undanfarin ár, þannig er opinbert þjónustustig við borgarbúa lágt, göturnar ónýtar og ómokaðar, óhreinsaðar, óupp- lýstar og ógreiðfærar sökum um- ferðartafa vegna akreinafækkunar, svo ekki sé minnst á fuglahús og blómaker á stofnæðum. Skólar borg- arinnar, sem við greiðum fyrir með sköttum, hafa heldur ekki staðið undir væntingum; myglaðar bygg- ingar, illa viðhaldnar skólalóðir, sameining skóla þvert á vilja íbúa hverfa og þvingaðar þéttingar- aðgerðir í nafni stórborgarstefnu sem er í besta falli vafasöm í jafn fá- mennri borg og Reykjavík er. Ég man líka vel eftir tilfinning- unni sem gagntók mig stuttu eftir heimkomu eftir margra ára búsetu í milljónasamfélögum þar sem ekki var annað í boði en bíllaus lífsstíll sem fólst í að eyða löngum tíma á hverjum degi í neðanjarð- arlestum stórborga með tilheyrandi hávaða og óhreinindum til þess að komast milli staða. Þessi tilfinning var vel- líðan þegar ég ók heim til mín í Reykjavík á sólríkum vetrardegi og naut þess að horfa á Esjuna. Þá kunni ég að meta víðáttuna í borginni okkar, skamman ferðatíma og þægindin sem fylgdu því að ráða sínum ferða- máta. Þessi tilfinning er nú óraun- veruleg minning. Í stað þess að breyta Reykjavík- urborg í smækkaða útgáfu af al- þjóðlegri stórborg legg ég til að við höldum utan um kostina sem fylgja því að búa í þessari einstöku höf- uðborg á norðurhveli. Reykjavík getur verið frábær borg þar sem gott er að búa með öflugu og iðandi mannlífi þar sem listir og menning skipa veigamikinn sess. Til að svo geti orðið þarf að tryggja að borg- arbúum líði vel og standa vörð um frelsi þeirra til að haga lífi sínu eins og þeir telja best án forsjárhyggju opinberra aðila. Leyfum Reykvík- ingum að ráða hvernig borgin þeirra á að vera. Eftir Nínu Margréti Grímsdóttur » Í stað þess að breyta Reykjavíkurborg í smækkaða útgáfu af al- þjóðlegri stórborg legg ég til að við höldum utan um kostina sem fylgja því að búa í þessari ein- stöku höfuðborg á norð- urhveli. Nína Margrét Grímsdóttir Höfundur er píanóleikari og vara- borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins sem býður sig fram í 6. sæti prófkjörs flokksins í Reykjavík. Leyfum Reykvík- ingum að ráða hvernig borgin þeirra á að vera Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.