Morgunblaðið - 12.03.2022, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 12.03.2022, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2022 „Nú vakna ég útsofinn og hvíldur“ Skúli Sigurðsson EKKI LÁTA BLÖÐRUNA STOPPA ÞIG! Brizo™ er fæðubótarefni sérhannað fyrir karlmenn sem þjást af einkennum góðkynja stækkunar á blöðruhálskirtli. ™ Fæst í apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórmarkaðanna. Flugleiðum til og frá Rússlandi fækkaði enn í gær þegar ríkisflug- félag Kasakstan, Air Astana, og tyrkneska lággjaldaflugfélagið Pegasus Airlines tilkynntu að þau væru í bili hætt að fljúga þangað vegna óvissu um tryggingar. Hern- aðaraðgerðir Rússa í Úkraínu og refsiaðgerðir vestrænna ríkja í kjöl- farið gegn Rússlandi hafa leitt til þess að tryggingafélög treysta sér ekki lengur til að tryggja flugvélar og flugfarþega á leið til og frá land- inu. Mikilvæg leið lokast Air Astana hefur haldið uppi flugi milli Rússlands og margra borga í Kasakstan en það er einkum nið- urfelling flugs til stærstu borgar landsins, Almaty, sem gæti orðið af- drifarík fyrir fólk sem reynir að komast frá Rússlandi eða til þess. Þangað hafa margir flogið að und- anförnu vegna þess að Kasakstan er ekki þátttakandi í víðtæku flugbanni vestrænna ríkja. Fulltrúi Air Astana kvað félagið vonast til að geta hafið flug að nýju við fyrsta tækifæri. Ísraelar halda enn uppi flugi til og frá Rússlandi og hafa stjórnvöld í Tel Aviv tekið að sér að ábyrgjast tryggingar flugvélanna og farþega. Meðal annarra landa sem enn halda uppi flugi til Rússlands eru Tyrk- land, Katar og Sameinuðu arabísku furstadæmin. Rússar hafa svarað flugbanni vestrænna ríkja með því að neita flugvélum þessara ríkja að fara um rússneska lofthelgi á leið til annarra áfangastaða. AFP AFP Flug Helsta flugfélag Rússa, Aero- flot, er hætt öllu millilandaflugi. Fleiri flugleiðir til Rússlands lokast - Ekki hægt að kaupa tryggingar Öllu hefur verið skellt í lás í kín- versku borginni Changchun og útgöngubann sett að hluta til að stöðva út- breiðslu nýrrar bylgju kór- ónuveirunnar, Covid-19, hinnar mestu í tvö ár. Hafa borgaryfirvöld fyrirskipað íbúunum að vinna heima hjá sér og sett þá reglu að aðeins einn úr hverri fjölskyldu megi láta sjá sig á almannafæri á tveggja daga fresti í því skyni að kaupa daglegar nauð- synjar eða fara í skimun vegna far- aldursins. Changchun er iðnaðar- borg í norðausturhluta Kína. Þar búa um 9 milljónir manna. Víðar í Kína er fengist við aukna út- breiðslu faraldursins með harka- legum samkomutakmörkunum og einangrun fólks og stöðugum skimunum. KÍNA Öllu skellt í lás vegna Covid-bylgju Skimað fyrir Covid-19. Ekki færri en sautján óbreyttir borgarar hafa fallið síðustu daga í átökum þjóðernishópa í Darfur-héraði í Súdan. Að þessu sinni sló í brýnu milli hópanna í Jebel Moon- fjöllum í vest- urhuta héraðsins, nálægt landamær- unum að Tjad. Tugir særðust enn fremur í átökunum og fjölda fólks er saknað. Átökin í Darfur hófust árið 2003 þegar uppreisnarmenn, sem fæstir eru arabar, risu upp gegn rík- isstjórninni í Kartúm. Stjórnarher- inn og arabískir málaliðar, sem reyndu að kveða uppreisnina niður, hafa verið sakaðir um víðtæk grimmdarverk. Talið er að allt að 300 þúsund manns hafi fallið í þessu innanlandsstríði og þrjár milljónir manna orðið heimilislausar. SÚDAN Ekkert lát á óöldinni í Darfur-héraði Átökin bitna illa á almenningi Dóra Ósk Halldórsdóttir doraosk@mbl.is Stríðið í Úkraínu heldur áfram með hræðilegum af- leiðingum fyrir borgara landsins og sífellt sækja Rússar að fleiri borgum. Í gær voru teikn á lofti um að Rússar myndu ná að umkringja Kænugarð, en skriðdrekar eru bæði fyrir norðan og vestan borg- ina. Ástandið í hafnarborginni Maríupól er verst, en þar eru miklir kuldar og borgin hefur verið án raf- magns, hita og vatns í 11 daga og matarbirgðir eru að eyðast upp. Stephen Cornish, talsmaður Lækna án landamæra, sagði í samtali við AFP-fréttaveit- una að það yrði eitthvað að gerast strax til að af- stýra yfirvofandi hörmungum í borginni. „Hundruð þúsunda eru hér innilokuð.“ Varlega áætlað er að 1.207 manns séu látnir og er búist við að sú tala hækki þegar hægt verður að fara í gegn- um húsarústir borgarinnar. Síðasta miðvikudag var gerð loftárás á barnaspítala í borginni sem vakti mikinn óhug umheimsins. Þar létust þrír, þar af eitt barn og 17 særðust. Árásir á almenna borgara Einnig var skotárás var gerð á 330 manna heimili fyrir fatlaða rétt fyrir utan Karkív. Í gær var fyrsta loftárásin gerð á borgin Dnípró, og var m.a. skotið á íbúðablokk, leikskóla og skóverksmiðju. Þá kom fram í gær að Rússar hefðu skotið á flugvelli í Lútsk og Ívanó-Frankívsk en borgirnar þrjár eru miklu vestar í landinu og nær pólsku landamærunum. Rússar hafa legið undir ámæli fyrir að gera eng- an greinarmun á hernaðarskotmörkum og árásum á almenna borgara. Fregnir af árásum í Kænu- garði, Karkív og Dnípró herma að ekkert virðist vera gert til að hlífa almennum borgurum. Yfir 30 árásir hafa verið gerðar á heilbrigðisstofnanir, sjúkrabíla og starfsfólk frá því innrásin hófst er haft eftir Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni og hafa 12 látist og 34 særst. Bandaríkjamenn hafa aukið við efnahagslegar refsiaðgerðir gegn Rússum, og tilkynntu í gær að þeir hygðust hætta öllum hefðbundnum viðskipt- um við landið, og fleiri vörur fóru á bannlistann, eins og sjávarafurðir, vodka og demantar og annar lúxusvarningur. Joe Biden Bandaríkjaforseti lýsti yfir í gær að Bandaríkin vildu ekki taka beinan þátt í stríðinu, því það yrði byrjunin á þriðju heims- styrjöldinni. Volodímír Selenskí forseti Úkraínu kallaði á meiri hjálp á samskiptaappinu Telegram í gær. „Evrópusambandið verður að gera meira fyrir Úkraínu.“ Harmleikur í uppsiglingu - Ástandið hrikalegt í stærstu borgum og loftárásir færast vestar, nær Póllandi AFP/Sergey Bobok Beðið fyrir Úkraínu Hermenn úkraínsku Azóv- herdeildarinnar biðja saman í gær í Karkív. Ekkert lát er á mótmælum og samstöðufundum um heim allan vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Mótmælendur krefjast þess að kom- ið verði á friði og rússneska herlið- ið fari tafarlaust úr landinu. Í gær var efnt til fjölmennra útitónleika í Tókýó, höfuðborg Japans, til að sýna Úkraínumönnum samstöðu og var þessi mynd þá tekin. Flutt var tónverkið „Ást í stað styrjalda“. Fundir og aðgerðir til stuðnings Úkraínu hafa farið fram í öllum heimsálfum undanfarna daga. Þá er áberandi gríðarlegur stuðningur almennings við málstað Úkraínu á netinu, ekki síst á samfélags- miðlum, sem mjög hafa verið not- aðir til að tjá hug fólks. Í Rússlandi hefur aðgangi almennings að þess- um miðlum verið lokað. Innrás Rússa í Úkraínu mótmælt um allan heim Víðtækur stuðningur við Úkraínu AFP/Philip Fong

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.