Morgunblaðið - 12.03.2022, Side 41
ill fengur fyrir bæinn að geta skapað
bestu knattspyrnuaðstöðu á landinu
fyrir bæjarbúa án þess að þurfa að
leggja fram stórfé í verkefnið. Kópa-
vogsbær gæti fyrir vikið gert enn
betur við önnur íþróttafélög í bænum
eins og HK og Gerplu,“ sagði Gunn-
ar.
Stórbætt aðstaða Breiðabliks
Varðandi Breiðablik sagði Gunnar
að fyrsta spurning forráðamanna fé-
lagsins hefði verið: Verðum við gestir
á okkar heimavelli?
„Það er mjög réttmæt spurning.
En KSÍ þarf ekki völlinn í meira en
um það bil 30-40 daga á ári í kringum
sína leiki A-landsliðanna. Hina 310-
320 dagana er Breiðablik með völl-
inn. Ég hef unnið á vegum UEFA
fyrir Sparta Prag og Slavia Prag,
sem leigja tékkneska sambandinu
sinn völl í ákveðið marga daga á ári
en líta aldrei þannig á hlutina að þeir
séu gestir á sínum velli. Landslið Ís-
lands yrðu miklu frekar gestir hjá
Breiðabliki og Kópavogsbæ.
En það sem þarf að skilgreina eru
þarfir félagsins, sem er stærsta
íþróttafélag landsins í dag en er
löngu búið að sprengja utan af sér
alla aðstöðu fyrir sínar greinar. Í
þessari byggingu fengi Breiðablik
allt aðra og betri aðstöðu fyrir allar
þær íþróttagreinar sem eru stund-
aðar hjá félaginu, og mögulegt væri á
að búa til pláss fyrir fleiri.
Um leið yrðu þarna til mörg þús-
und fermetrar af húsnæði sem gætu
nýst íþróttatengdri starfsemi. Það
má sjá fyrir sér heilsuklasa,
íþróttaháskóla, skrifstofur, veislusali
og í raun alls konar fyrirtæki sem
hefðu aðstöðu í mannvirkinu og
myndu þar með skapa því tekjur. Ég
held að á þessum stað yrði ekkert
sérlega flókið að fylla slíkt húsnæði.
Með fjármögnuninni sem áður er
nefnd yrðu heldur ekki búnar til
neinar fjárhagslegar skuldbindingar
til langs tíma fyrir Breiðablik, KSÍ
eða Kópavogsbæ. Svo á borgarlínan
að fara í gegnum svæðið, samkvæmt
nýjustu fréttum, og það einfaldar
enn frekar alla aðkomu að því. Þetta
yrði „grænasti“ þjóðarleikvangur
heims og það færi vel að hann risi á
félagssvæði Breiðabliks,“ sagði
Gunnar.
Margar góðar fyrirmyndir
Leikvangarnir sem verkefnahóp-
urinn hefur helst augastað á sem fyr-
irmyndir eru í „flokki fjögur“ sam-
kvæmt skilgreiningu UEFA. Þar eru
m.a. nýr þjóðarleikvangur í Lúx-
emborg og heimavellir norsku lið-
anna Molde og Viking frá Stavanger,
sem og þjóðarleikvangur Slóvena í
Ljubljana. Þeir telja hæfilegt að
hann rúmi 10-12 þúsund áhorfendur.
„Slíkir leikvangar uppfylla allar
kröfur UEFA varðandi leiki á hæsta
stigi, með fullkominni aðstöðu fyrir
fjölmiðla, dómara, sjúkraherbergi,
lyfjaeftirlit, eftirlitsmenn og fram-
kvæmdaraðila leikjanna. Varðandi
áhorfendur á 10-12 þúsund manna
leikvangur að vera alveg nóg. Það er
mun betra að vera með uppselt á 10
þúsund manna völl en að vera með
hálfan 18 þúsund manna völl. Aðal-
málið er að reisa glæsilegan völl sem
við getum öll verið stolt af og nýta
góðar hugmyndir annars staðar frá.“
Tilbúinn 2027 í stað 2032?
Gunnar segir að áðurnefnd kyrr-
staða í málefnum þjóðarleikvangs
geti hæglega þýtt að bygging hans
hæfist ekki í Reykjavík fyrr en eftir
fimm ár eða svo.
„Hann er ekki einu sinni á núver-
andi fjárhagsáætlun ríkisins til 2026.
Ef handboltahöllin verður síðan
byggð á undan er auðvelt að reikna
út að leikvangur fyrir fótbolta væri
ekki kominn í notkun fyrr en eftir tíu
ár, eða árið 2032. Það er bara ekki
boðlegt. Á sama tíma eru aðrar fá-
mennar þjóðir eins og Lúxemborg,
Malta og Albanía búnar að reisa
glæsilega þjóðarleikvanga, sem þeg-
ar eru komnir í notkun. Við höfum
setið svakalega eftir miðað við aðrar
Evrópuþjóðir. Það eru áratugir síðan
við féllum á tíma að þessu leyti.
Það er ekki endalaust hægt að sjá
til og skoða. Hvað er búið að skipa
marga starfshópa og skrifa margar
skýrslur um þjóðarleikvang? En það
gerist ekki neitt. Það er alltaf verið
að bíða eftir því að ríkið og borgin
opni sínar kistur. Ef okkar hug-
myndir ganga upp og við getum
komið undirbúningsvinnu á næsta
stig eftir 4-5 mánuði, er hægt að sjá
fyrir sér að taka leikvanginn í notkun
árið 2027.
Við myndum byrja núna á að taka
þrjá til fjóra mánuði í að taka púlsinn
á öllum þessum aðilum og sjá hvort
verkefnið sé raunhæft. Þá er hægt að
taka afstöðu til þess hvort næsta
skref verið tekið, og þá gert við-
skiptaplan, hafið teikningar og und-
irbúning mannvirkisins. Í heildina
þarf dæmið að koma þannig út að
það borgi sig fyrir KSÍ að halda
landsleiki á leikvanginum, það borgi
sig fyrir Breiðablik að spila þarna og
vera með aðstöðuna, og að Kópa-
vogsbær sjái sér hag í að vera með
svona mannvirki,“ sagði Gunnar.
Kópavogsvöllur stækkaður
Spurður um nákvæma staðsetn-
ingu á félagssvæði Breiðabliks segist
Gunnar helst sjá fyrir sér að nýi leik-
vangurinn yrði í raun stækkaður
Kópavogsvöllur.
„Sennilega yrði þröngt um hann
annars staðar. Svæðið þar sem völl-
urinn er núna er meira en nógu stórt.
Hlaupabrautin myndi að sjálfsögðu
hverfa en ný stúka væri yfirbyggð
allan hringinn.“
En yrði völlurinn lagður grasi,
gervigrasi eða „hybrid-grasi“ sem er
blanda af hinu tvennu? „Ég sé ekki
annað en að gervigras sé eini raun-
hæfi kosturinn en það má alveg
reyna að sannfæra mig um annað. Ef
meistaraflokkar karla og kvenna hjá
Breiðabliki æfa og spila á vellinum
og svo séu spilaðir á honum lands-
leikir með tilheyrandi æfingum, líka í
mars og nóvember, þá ræður hybrid-
gras varla við það. Góður gervigras-
völlur er betri en lélegur grasvöllur,
þótt rómantíkin segi að við viljum
hlaupa út á iðagrænan grasvöll og
finna lyktina, þá erum við norðarlega
á hnettinum og ætlum að nota mann-
virkið mikið, á hverjum einasta
degi.“
Dómkirkjur nútímans
„Svona völlur yrði líka glæsilegt
kennileiti fyrir Kópavogsbæ. Ég sat
ráðstefnu hjá UEFA fyrir tíu árum
og hitti þar arkítekt sem hafði meðal
annars hannað tvo leikvanga í Katar
og Espanyol-völlinn í Barcelona.
Hann sagði að knattspyrnu-
leikvangar væru dómkirkjur nú-
tímans og settu svip sinn á borgirnar
í dag. Allianz-Arena væri orðið risa-
stórt tákn fyrir München og Wem-
bley væri í sama hlutverki í London.
Nýr og fallegur leikvangur í Kópa-
vogsdal yrði glæsilegt tákn fyrir
bæjarfélagið. Tækifærið er núna því
þjóðarleikvangur er ekki byggður
nema á 50 ára fresti,“ sagði Gunnar
Gylfason.
Ljósmynd/Photothéque de la Ville de Luxembourg
ÍÞRÓTTIR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2022
hafði KR betur gegn Kórdrengjum
úr 1. deildinni. Theodór Elmar
Bjarnason kom KR yfir með eina
marki fyrri hálfleiks er hann skoraði
úr víti í uppbótartíma.
Eyjamenn réðu illa við Atla Sig-
urjónsson í seinni hálfleik því hann
skoraði á 53. mínútu, aftur tíu mín-
útum seinna og gulltryggði sannfær-
andi sigur KR-inga.
Hallur Hansson, Færeyingurinn í
liði KR, fékk tvö gul spjöld á tveimur
mínútum um miðbik seinni hálfleiks
en Kórdrengjum tókst ekki að nýta
liðsmuninn.
KR og Víkingur úr Reykjavík
tryggðu sér sæti í undanúrslitum
Lengjubikars karla í fótbolta með
sigrum í gærkvöldi. Mætast þau í
undanúrslitunum.
Kristall Máni Ingason skoraði
fyrra mark Víkings í 2:0-sigri á ÍBV
á Víkingsvellinum, heimavelli Ís-
landsmeistaranna. Kristall lagði upp
annað markið á Adam Ægi Pálsson á
82. mínútu og þar við sat.
Víkingar hafa litið afar vel út í
keppninni og til þessa og vann liðið
alla fimm leiki sína í 1. riðli.
Á KR vellinum í Vesturbænum
Íslandsmeistararnir mæta
KR-ingum í undanúrslitum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Íslandsmeistarar Víkingurinn Kristall Máni Ingason leikur á Sigurð Grét-
ar Benónýsson úr ÍBV á Víkingsvellinum í Fossvogi í gærkvöldi.
HANDKNATTLEIKUR
Bikarúrslitaleikur kvenna:
Ásvellir: Fram – Valur ...................... L13.30
Bikarúrslitaleikur karla:
Ásvellir: KA – Valur ............................... L16
1. deild karla, Grill 66-deildin:
Selfoss: Selfoss U – Hörður................... L12
Höllin Ak.: Þór Ak. – ÍR......................... L17
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Subway-deildin:
Dalhús: Fjölnir – Haukar ...................... L16
Grindavík: Grindavík – Keflavík....... S19.15
Hlíðarendi: Valur – Njarðvík ............ S19.15
1. deild kvenna:
Stykkishólmur: Snæfell – Hamar/Þór.. L16
Sauðárkr.: Tindastóll – Aþena/UMFK. L18
Ísafjörður: Vestri – Þór Ak.................... L18
Sauðárkrókur: Tindastóll – Hamar/Þór S16
KNATTSPYRNA
Deildabikar kvenna, Lengjubikarinn:
Miðgarður: Stjarnan – ÍBV ................... L14
Selfoss: Selfoss – Tindastóll .................. L15
Hlíðarendi: Valur – Þór/KA................... L15
Deildabikar karla, Lengjubikarinn:
Seltjarnarnes: Grótta – HK................... L13
Varmá: Afturelding – Vestri .................. S12
Boginn: KA – Selfoss .............................. S16
ÍSHOKKÍ
Íslandsmót karla, Hertz-deildin:
Laugardalur: SR – SA....................... L17.45
Íslandsmót kvenna, Hertz-deildin:
Akureyri: SA – Fjölnir ...................... L16.45
Akureyri: SA – Fjölnir ........................ S9.45
KRAFTLYFTINGAR
Íslandsmótið í kraftlyftingum með búnaði
og klassískum kraftlyftingum hófst að
Varmá í gærkvöld og heldur áfram frá kl.
10 í dag.
BADMINTON
Deildakeppni BSÍ hófst í TBR-húsunum í
gærkvöld og er leikin áfram þar í dag en
lokaleikir hefjast kl. 14 á morgun.
UM HELGINA!
Subway-deild karla
Þór Ak. – Breiðablik......................... 109:116
Keflavík – KR............................(frl.) 110:106
Staðan:
Þór Þ. 19 15 4 1867:1679 30
Njarðvík 17 13 4 1627:1429 26
Keflavík 19 13 6 1717:1620 26
Valur 19 11 8 1547:1518 22
Stjarnan 19 11 8 1702:1645 22
Tindastóll 19 11 8 1666:1686 22
Grindavík 19 10 9 1621:1620 20
Breiðablik 19 8 11 2033:2032 16
KR 18 8 10 1619:1665 16
ÍR 19 7 12 1671:1672 14
Vestri 18 4 14 1454:1598 8
Þór Ak. 19 1 18 1475:1835 2
1. deild karla
Skallagrímur – Hrunamenn ................ 86:98
Álftanes – Fjölnir ............................... 123:79
Hamar – Sindri ................................... 75:102
Selfoss – Haukar ................................ 77:104
Staðan:
Haukar 24 22 2 2490:1895 44
Höttur 23 20 3 2353:1926 40
Álftanes 24 15 9 2296:2062 30
Sindri 23 14 9 2199:2014 28
Fjölnir 24 13 11 2259:2306 26
Selfoss 24 11 13 2102:2169 22
Skallagrímur 24 9 15 2031:2188 18
Hrunamenn 23 9 14 2033:2250 18
Hamar 23 4 19 1788:2191 8
ÍA 24 1 23 1823:2373 2
1. deild kvenna
Stjarnan – Fjölnir b ............................. 71:56
Staðan:
ÍR 19 16 3 1457:1137 32
Ármann 19 16 3 1536:1235 32
KR 19 12 7 1452:1331 24
Snæfell 18 11 7 1309:1226 22
Þór Ak. 18 10 8 1309:1233 20
Aþena/UMFK 19 10 9 1349:1422 20
Hamar/Þór 17 8 9 1250:1220 16
Stjarnan 19 7 12 1264:1334 14
Tindastóll 17 7 10 1220:1286 14
Fjölnir b 19 2 17 1143:1505 4
Vestri 18 2 16 1084:1444 4
NBA-deildin
Philadelphia – Brooklyn .................. 100:129
Denver – Golden State..................... 102:113
Staðan í Vesturdeild:
Phoenix 53/13, Golden State 45/22, Memp-
his 45/22, Utah 41/24, Dallas 40/26, Denver
40/27, Minnesota 38/29, LA Clippers 35/33,
LA Lakers 28/37, New Orleans 27/39, Port-
land 25/40, San Antonio 25/41, Sacramento
24/44, Oklahoma City 20/46, Houston 17/49.
Staðan í Austurdeild:
Miami 44/23, Milwaukee 42/25, Phila-
delphia 40/25, Chicago 40/26, Boston 40/27,
Cleveland 38/27, Toronto 35/30, Brooklyn
34/33, Charlotte 32/35, Atlanta 31/34,
Washington 29/35, New York 28/38, In-
diana 22/45, Detroit 18/48, Orlando 17/50.
_ Sex efstu liðin í hvorri deild fara beint í
úrslitakeppnina en liðin í 7. til 10. sæti fara í
umspil um að komast áfram. Liðin leika 82
leiki hvert í deildakeppninni.
>73G,&:=/D
_ Knattspyrnukonan Þórhildur
Ólafsdóttir hefur tekið fram skóna
eftir þriggja ára hlé en hún hefur sam-
ið við úrvalsdeildarlið ÍBV. Þórhildur
lék síðast með Fylki 2018 en áður með
ÍBV til 2015. Hún á að baki 75 leiki í
efstu deild og hefur skorað í þeim 10
mörk.
_ Ingunn Haraldsdóttir, fyrirliði
knattspyrnuliðs KR, leikur ekki með
liðinu á komandi tímabili vegna
meiðsla. Ingunn sleit hásin á dög-
unum og verður frá keppni í 6-8 mán-
uði vegna þessa. KR vann sér inn sæti
í efstu deild á síðustu leiktíð eftir eitt
ár í næstefstu deild. Ingunn hefur leik-
ið 69 leiki í efstu deild og skorað í
þeim fjögur mörk. Þá hefur hún skor-
að tvö mörk í 40 leikjum í 1. deild.
_ Knattspyrnu-
samband Evrópu,
UEFA, hefur hafið
rannsókn á hegðun
Nasser Al-
Khelaifi, forseta
Parísar Saint-
Germain, og Leon-
ardo, íþróttastjóra
franska félagsins,
eftir leik liðsins gegn Real Madríd á
miðvikudagskvöld. Al-Khelaifi og
Leonardo héldu í átt að dómaraher-
berginu eftir leikinn, sem PSG tapaði
1:3 og samanlagt 2:3 á dramatískan
hátt eftir að Karim Benzema skoraði
þrennu í síðari leiknum. Samkvæmt
Eurosport sagði meðal annars í
skýrslu Danny Makkelie dómara: „Eft-
ir leikinn sýndu forsetinn og íþrótta-
stjórinn Leonardo árásargjarna hegð-
un.
_ Breski bankinn Barclays hefur lokað
bankareikningi enska knattspyrnu-
félagsins Chelsea tímabundið. Ástæð-
an er refsiaðgerðir breska stjórnvalda í
garð Roman Abramovich, eiganda fé-
lagsins. Chelsea vonast til að lokunin
standi yfir í stuttan tíma.
_ Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn
Jürgen Grabowski frá Þýskalandi er
látinn, 77 ára að aldri. Grabowski var
hluti af ógnarsterku vesturþýsku
landsliði sem vann EM 1972 og HM
1974. Lék hann alls 44 landsleiki þar
sem hann skoraði fimm mörk á ár-
unum 1966 til 1974. Hann var einnig
hluti af vesturþýska landsliðinu sem
hafnaði í öðru sæti
á HM 1966 og
þriðja sæti á HM
1970.
_ Sveindís Jane
Jónsdóttir lands-
liðskona í fótbolta
nýtti heldur betur
fyrsta tækifærið í
byrjunarliði Wolfsburg vel í gær. Svein-
dís skoraði tvö fyrstu mörkin í sannfær-
andi 5:1-útisigri á Köln í þýsku 1. deild-
inni. Hún fékk ekki tækifæri til að ná
þrennunni þar sem hún lék ekki seinni
hálfleikinn. Wolfsburg er í toppsæti
deildarinnar, einu stigi á undan Bayern
München. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir,
Glódís Perla Viggósdóttir og Cecelía
Rán Rúnarsdóttir leika með Bayern.