Morgunblaðið - 12.03.2022, Side 8

Morgunblaðið - 12.03.2022, Side 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2022 Þegar efnahagskreppan reið yfir heiminn árið 2008 og ís- lensku bankarnir hrundu með braki og brestum sá Samfylk- ingin sér leik á borði og reyndi að nýta áfallið til að þröngva þjóðinni inn í Evr- ópusambandið. Flokknum tókst að draga VG með sér í þá ömurlegu veg- ferð og fóru báðir illa út úr því í næstu kosningum. Samfylkingin sér- staklega situr enn uppi með afleiðingar þessa, hefur ekki borið sitt barr síðan. - - - Nú virðist systurflokkurinn ætla að nýta annað áfall, innrásina í Úkraínu, til að hræða þjóðina inn í Evrópusambandið. - - - Formaður Viðreisnar heldur hástemmdar ræður á Alþingi þessa dagana um nauðsyn auk- inna varna, en lætur ekki þar við sitja og reynir eftir undarlegum krókaleiðum að halda því einnig fram að vegna innrásarinnar verði Ísland að endurskoða af- stöðu sína til ESB og sækjast eft- ir aðild! - - - Málstaður Evrópusambands- sinna er slæmur og hefur ekki fengið mikinn stuðning hér á landi eins og sést meðal annars á fylgisleysi systurflokkanna. Þess vegna er reynt að beita þessum aðferðum, nýta stór áföll til að reyna að sannfæra almenn- ing um að með aðild að ESB væri Ísland í betra skjóli. - - - Þetta er ömurlegur málflutn- ingur og flokkunum tveimur til lítils sóma. Lýðskrum er aldrei til þess fallið að bæta mál- efnalega umræðu en á stríðs- tímum er það sérstaklega óvið- eigandi. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Nú á að nýta áfallið STAKSTEINAR Landsréttur hef- ur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um að Seðlabankinn greiði Þorsteini Má Baldvinssyni forstjóra Sam- herja skaða- og miskabætur fyrir að hafa sætt ólög- mætri meingerð sem fólst í því að Seðlabankinn lagði stjórnvaldssekt á Þorstein. Voru Þorsteini dæmdar 2.480.000 krónur í skaðabætur vegna útlagðs lögfræðikostnaðar og 200 þúsund krónur í miskabætur. Að auki var Seðlabankinn dæmdur til að greiða Þorsteini 3 milljónir króna í máls- kostnað í héraði og fyrir Landsrétti. Seðlabankinn lagði 1,3 milljóna króna stjórnvaldssekt á Þorstein í september 2016 vegna meintra brota gegn reglum um gjaldeyris- mál. Héraðsdómur og Landsréttur komust hins vegar að þeirri niður- stöðu, að afgreiðsla og málsmeðferð bankans hefðu ekki verið í samræmi við lög. Bætur til Þorsteins staðfestar Þorsteinn Már Baldvinsson - Sætti ólögmætri meingerð Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Umhverfis- og framkvæmdasviði Vestmannaeyja hefur verið falið að skrifa minnisblað um hvernig standa skuli að því að útbúa lóðir í svokallaðri FES-brekku á Nýja hrauni. Þar er skilgreint þróunarsvæði í aðal- skipulagi sem tilheyrir miðbænum. Hugmyndir eru um að efna til íbúa- kosningar um þetta mál. Skortur er á fjölbreyttum lóðum í Vestmannaeyjum og þörf fyrir ný byggingasvæði. Það á meðal annars við um miðbæinn en þar er ásókn í lóðir. Þróunarsvæðið sem nú er verið að hugsa um að taka undir nýbygg- ingar liggur austan við miðbæ, á mót- um Kirkjuvegar og Skansvegar. Þar var byggð fyrir gos, aðallega íbúða- byggð en einnig gamla rafstöðin og Heimatorg. Fulltrúar meirihlutans í umhverfis- og skipulagsráði lögðu til þegar málið var til umfjöllunar í ráðinu að starfs- fólk umhverfis- og skipulagssviðs myndi safna gögnum um málið og skrifa minnisblað um næstu skref. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins féllust á að það yrði gert. Þeir lögðu jafn- framt til að tillaga um að grafa inn í hraunið verði sett í íbúakosningu og tóku fulltrúar meirihlutans undir þá hugmynd. Ólafur Þór Snorrason, fram- kvæmdastjóri umhverfis- og fram- kvæmdasviðs, sagði að málið væri ekki komið lengra en þetta. Hann vildi ekki fullyrða hvers konar lóðir þarna yrðu en unnið yrði út frá landnotk- unarskilmálum í aðalskipulagi sem gerðu ráð fyrir miðbæjarbyggð. Það fæli í sér verslun, þjónustu og íbúðir. Ný hraun eru friðuð en umrætt svæði er raskað að hluta og áform um uppbyggingu komu fram í að- alskipulagi sem var staðfest áður en friðunarákvæðin tóku gildi. Ekki er vitað hvort gera þarf umhverfismat fyrir framkvæmdina. Í umfjöllun á fundi ráðsins kom fram að möguleikar til landmótunar eru opnir en í þeim getur falist að landið verði stallað á einhvern hátt og að eitthvað af efninu nýtt þar. Jafn- framt að áður en uppbygging hefjist þurfi að gera deiliskipulag fyrir allt svæðið og samhliða því unninn rammahluti aðalskipulags fyrir þenn- an reit þar sem fram komi áform um uppbyggingu. Miðbærinn stækkaður út í hraun - Hugað að uppbyggingu á svæði í Vestmannaeyjum sem fór undir hraun 1973 Skansvegur K irkjuvegur Miðbærinn stækkaður út í Nýja hraun Vestmannaeyjabær Grunnkort/Loftmyndir ehf. Sama svæði fyrir gosið árið 1973 Örn sækist eftir 4. eða 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Örn Þórðarson Borgarfulltrúi og fyrrverandi sveitarstjóri Agi og festa í rekstri og stjórnun Örn þekkir vel til allra viðfangsefna borgarstjórnar og hefur reynslu og kjark til að breyta því sem breyta þarf. Framlagning kjörskráa Kjörskrár vegna kosningar um sameiningu sveitarfélaganna Helgafellssveitar og Stykkishólmsbæjar, sem haldnar verða laugardaginn 26. mars 2022, skulu lagðar fram eigi síðar en 16. mars 2022. Kjörskrár skal leggja fram á skrifstofu sveitarstjórna eða á öðrum hentugum stað sem sveitarstjórn ákveður. Þeim sem vilja koma að athugasemdum er bent á að senda þær hlutaðeigandi sveitarstjórn. Dómsmálaráðuneytinu, 12. mars 2022. Stjórnarráð Íslands Dómsmálaráðuneytið Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.