Morgunblaðið - 12.03.2022, Side 17
17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2022
i á Austurlandi
V E R K V I T • H U G V I T • E I N I N G
Fjarðabyggð
Staðsetning, helstu staðreyndir og kosningaúrslit
Úrslit í síðustu sveitarstjórnarkosningum
Kosið var 26. maí 2018
■ D Sjálfstæðisflokkur
■ B Framsóknarflokkur
■M Miðflokkur
■ L Fjarðalistinn
25,5%
23,6%
16,8%
34,1%
2
2
1
4
Kjörskrá:
Atkvæði:
Kjörsókn:
3.315
2.373
71,6%
L
ÍBÚAR
5.079
AFGANGUR*
113 m.kr.
HEILDARSKULDIR*
9.748 m.kr.
SKULDAHLUTFALL*
2021: 143,6%
2025: 150,5%
KYNJASKIPTING ALDURSSKIPTING
ÍBÚAR 18 ÁRA & ELDRI
3.885
FLATARMÁL
1.615 km²
53%
Karlar
Konur
47%
Fjarðabyggð varð til árið 1998 með sameiningu Eskifjarðar, Neskaupstaðar og
Reyðarfjarðar, en Austurbyggð, Fáskrúðsfjarðarhreppur og Mjóafjarðarhreppur
bættust við 2006 og Breiðdalshreppur 2018. Byggðakjarnar eru sjö og sjávarútvegur
og þjónusta helstu atvinnugreinar auk stóriðju, en ferðaþjónusta hefur bæst við.
Fjarðalisti og Framsókn mynda meirihluta.
Forseti bæjarstjórnar: Eydís Ásbjörnsdóttir (L)
Bæjarstjóri: Jón Björn Hákonarson (B)
*Áætlanir um A-hluta 2021
0
250
500
750
1000
1250
1500
> 7051-7031-5018-30< 18
Neskaupstaður●
Reyðarfjörður●
Eskifjörður●
Fáskrúðsfjörður●
Stöðvarfjörður●
Breiðdalsvík●
Reyðarfjörður
No
rð
fjö
rð
ur
Berufjörður
Breiðdalsvík
Fáskrúðsfjörður
Seyðisfjö
rður
Mjóifjör
ður
Stöðvarfjörður
Vinstri hreyfingin – grænt framboð
býður í fyrsta sinn fram lista undir
eigin merkjum í Fjarðabyggð fyrir
sveitarstjórnarkosningarnar í ár.
Vinstri græn hafa hingað til tekið
þátt í samvinnu við Fjarðalistann,
sameiginlegt framboð félagshyggju-
fólks.
Fengu ekki pláss
Anna Margrét Arnarsdótti, nýr
oddviti Vinstri grænna, segir að
ákvörðunin sé ekki tekin vegna mik-
ils skoðanaágreinings. Hún segir
ekki óeðlilegt að stór flokkur á borð
við Vinsti græn bjóði fram í Fjarða-
byggð undir eigin merkum en hún
hafi sjálf tengt Fjarðalistann við
Samfylkingarfólk í gegnum tíðina.
Þá segir hún að fulltrúar Vinstri
grænna hafi jafnvel átt erfitt upp-
dráttar innan samstarfs Fjarðalist-
ans.
Þetta kemur fram í kosn-
ingaumfjöllun Dagmála þar sem
Stefán Einar Stefánsson og Karítas
Ríkharðsdóttir sóttu Fjarðabyggð
heim og ræddu við oddvita allra fram
kominna framboða.
Hlaðvarpsþáttinn má nálgast á öll-
um helstu hlaðvarpsveitum og á
mbl.is.
Óvissa með Miðflokkinn
Fjögur framboð hafa kynnt lista í
Fjarðabyggð, áðurnefndur Fjarða-
listi og Vinstri græn ásamt Fram-
sókn og Sjálfstæðisflokki. Ásamt
Önnu Margréti eru oddvitarnir Jón
Björn Hákonarson, bæjarstjóri og
oddviti Framsóknar, Ragnar Sig-
urðsson oddviti Sjálfstæðisflokksins
og Stefán Þór Eysteinsson oddviti
Fjarðalistans.
Miðflokkurinn á einn fulltrúa í
sveitarstjórn á þessu kjörtímabili en
ekki liggur fyrir hvort flokkurinn
bjóði fram að nýju í Fjarðabyggð.
Stefán Þór segir að samhjómur sé
á milli áherslna þeirra og Vinstri
grænna. Að vissu leyti hafi það komið
á óvart að Vinstri græn hafi ákveðið
að kljúfa sig úr samstarfinu miðað
við málefnin sem náðst hafi fram á
kjörtímabilinu, í meirihlutasamstarfi
með Framsókn.
Varlega í fiskeldi
Anna Margrét segir að Vinstri
græn muni beita sér fyrir að varlega
verði farið í uppbygginu fiskeldis inn-
an Fjarðabyggðar. Þá segir hún að
greinilegt sé að ekki hafi verið farið
nægilega varlega hingað til.
Vill greiða skuldir hraðar
Ragnar Sigurðsson segir að Sjálf-
stæðisflokkurinn hafi verið gagnrýn-
inn á rekstur sveitarfélagsins á kjör-
tímabilinu og að hægt sé að greiða
niður skuldir hraðar en verið hefur.
Tekjur sveitarfélagsins hafa verið að
aukast en útgjöldin aukist meira.
Spurður hvaða hagræðingartillögur
Sjálfstæðisflokkurinn hefur boðið
fram segist Ragnar meðal annars
hafa lagt til að fallið yrði frá nið-
urgreiðslu skólamáltíða barna að
fullu, það er fríum skólamáltíðum.
„Það er dæmi um gæluverkefni að
okkar mati á sama tíma og við erum
að kvarta undan því við ríkið að
tekjustofnar sveitarfélaganna séu
ekki nægir til að standa undir lög-
bundnu hlutverki,“ segir Ragnar.
Hjúkrunarheimili í
nærsamfélag
Fjarðabyggð var á meðal þeirra
sveitarfélaga sem gáfu frá sér rekst-
ur hjúkrunarheimila á síðasta ári.
Spurður hvort rétt sé að sveitarfé-
lagið reki hjúkrunarheimili segir
Ragnar að til bóta væri að reksturinn
væri í nærsamfélaginu og að mála-
flokkurinn ætti heima hjá sveit-
arfélögunum.
Húsnæðismál eru fólki ofarlega í
huga í Fjarðabyggð líkt og í Múla-
þingi og eru frambjóðendurnir sam-
mála um að það sé á meðal stærstu
kosningamála.
Jón Björn segir skipulag í sveitar-
félaginu standa vel og skrifað hafi
verið undir nýtt aðalskipulag fyrir
sveitarfélagið allt í síðustu viku.
„Engu að síður eru það ákveðin von-
brigði hve fátt er komið af stað,“ seg-
ir Jón Björn og útskýrir að þensla sé
í atvinnulífinu og framkvæmdir á
vegum þess svo iðnaðarmannamark-
aðurinn sé umsetinn. Ragnar segir
að hann telji að hægt sé að vinna að
uppbyggingu hraðar en nú er gert.
Ágreiningur um fiskeldi
og skólamáltíðir barna
- Oddvitar allra framboða í Fjarðabyggð í Dagmálum
Morgunblaðið/Stefán Einar Stefánsson
Fjarðabyggð Fjögur framboð eru komin fram: Vinstri græn, Framsókn, Fjarðalistinn og Sjálfstæðisflokkurinn.