Morgunblaðið - 12.03.2022, Síða 20
ÚR BÆJARLÍFINU
Björn Björnsson
Sauðárkróki
Þótt veðurguðir hafi leikið all-
stóran hluta landsmanna heldur
grátt að undanförnu, með mikilli
fannkomu og jafnvel stórviðrum,
hefur Skagafjörðurinn sloppið mun
betur en aðrir landshlutar. Vissulega
hefur verið vindasamt og kalt en
ekkert sem ástæða er til að fjarg-
viðrast yfir enda bæði þorri og góa
oft á fyrri tíð bæði illviðrasöm með
kulda og fannfergi.
- - -
Nú nýverið urðu þau ánægjulegu
tíðindi í niðurstöðum kosninga, að
samþykkt var að allt það landssvæði
sem tilheyrir Skagafjarðarsýslu
mundi eftirleiðis vera eitt sveitarfé-
lag, og mun varla vera algengt að
heil sýsla sé eitt sveitarfélag.
- - -
Að sögn sviðsstjóra stjórn-
sýslu og fjármálasviðs sveitarfé-
lagsins, Margeirs Friðrikssonar, er
nú unnið að breytingum á sam-
þykktum beggja aðila svo unnt verði
að ganga til sveitarstjórnakosninga í
vor og í framhaldi af því að samræma
samþykktir nýs sveitarfélags. Mar-
geir segir fjárhagsstöðu sveitarfé-
lagsins vel viðunandi miðað við að-
stæður í þjóðfélaginu. Vissulega
væru margir þættir í rekstrinum
þungir, og ekki fyrirsjáanlegt að
muni verða á breyting á næstunni og
má þar nefna fræðslu- og skólamál
svo og málefni fatlaðra, en Skaga-
fjörður fer með þann málaflokk á
öllu Norðvesturlandi, en þar var halli
síðasta árs upp á 273 milljónir og
hlutur Skagafjarðar rúm 151 milljón.
- - -
Fyrir sl. áramót keypti sveitar-
félagið sorphirðingarstöðina Flokku
af Ómari Kjartanssyni stofnanda
fyrirtækisins og í vor mun farið í út-
boð á sorphirðu alls svæðisins, en nú
er unnið að skipulagningu, vegna út-
boðsins, og hvernig framkvæmd
þessa verður háttað.
Sömuleiðis keypti sveitarfélagið
húsnæði fyrrum Búnaðar- eða Ar-
ionbanka og mun leigja ýmsum fyr-
irtækjum og stofnunum aðstöðu í því
húsnæði. Sagði Margeir að báðar
hæðir hússins væru nánast full-
nýttar, en um væri að ræða bæði ný
fyrirtæki svo og önnur sem vildu
stækka við sig.
- - -
Á vegum Skagafjarðarveitna er
unnið að hönnun nýrrar hitaveitu-
lagnar frá Langhúsum í Fljótum, en
þar er gert ráð fyrir samtengingu við
Hrollleifsdalsvirkjun, en þar hefur
verið skipt um dælur í borholu, bæði
til að auka öryggi og vatnsmagn. Er
lagnaleiðin úr Fljótum talin kosta
um 200 milljónir, en fengist hafa frá
ríkinu til þessa verks 72 milljónir
hvort árið, 2022 og 2́3.
- - -
Um áramót var tekinn í notkun
nýr leikskóli á Hofsósi sem byggður
er í tengslum við grunnskólann þar
og að öllu frágenginn nema hluti lóð-
ar, sem bíða mun vors. Þá er unnið
að stækkun leikskólans Ársala sem
nemur tveim deildum, en um er að
ræða einingahús sem tengt er fyrri
byggingum. Einnig er í hönn-
unarferli nýr leikskóli í Varmahlíð
sem verður innan veggja endurhann-
aðrar byggingar grunnskólans.
Það kom fram hjá Margeiri að
nú eru yfirstandandi miklar bygg-
ingarframkvæmdir, 68 íbúðir eru í
smíðum á mismunandi bygging-
arstigi, 47 á Sauðárkróki, 4 í
Varmahlíð og 17 utan þéttbýlis. Þá
eru að hefjast framkvæmdir við síð-
ari áfanga viðbyggingar sundlaug-
arinnar, og er það fyrirtækið
Uppsteypa ehf. sem annast það
verk.
- - -
Sigurður Hauksson er fram-
kvæmdastjóri skíðasvæðis ung-
mennafélagsins í Tindastóli, ungur
maður og athafnasamur og hikar
ekki við að fullyrða að Tindastóls-
svæðið sé eitt besta skíðasvæði
landsins um þessar mundir.
„Við náðum að opna fyrstir í
vetur, í nóvember, og þá þegar var
mikil og góð aðsókn, bæði æfinga- og
skólahópar og gestir fyrir hátíðir
voru um 3.000, í fyrra var ekki opnað
fyrr en í janúar enda voru komur í
fjallið þá ekki nema 12.700.“
Sigurður segir að janúar og
febrúar í ár hafi verið úrtakasamir
vegna endalausra óveðursviðvarana,
en þó séu gestir alls orðnir um 7.000,
en nú sé farið að birta og ekki svo
langt í páska og þess vegna bjart
fram undan.
- - -
Um þessar mundir er verið að
taka í notkun nýjan skíðaskála sem
hýst getur 60 gesti, sem Sigurður
segir vera fyrsta skrefið í að gera
Tindastólinn að úrvalsskíðamiðstöð,
en í skálanum er rúmgóður matsal-
ur, fundarherbergi og fullbúið
sjúkraherbergi.
Í framhaldinu vill Sigurður sjá
heita potta og gufuböð til þess að að-
staðan verði verulega góð.
Fyrir um tveimur árum var efri
lyftan tekin í notkun og flytur hún
skíðamenn í 940 m hæð en þaðan er
lengsta troðna brekka landsins, um
þrír kílómetrar, og segir Sigurður að
allir ættu að finna svæði við getu og
hæfi, hér sé eina löglega risa-
stórsvigsbraut landsins, 12 km löng
troðin göngubraut með mikið og fal-
legt landslag, þá njóti Lambárbotnar
vaxandi vinsælda meðal fjalla- og ut-
anbrautarskíðamanna.
Um aðra helgi segir Sigurður
stefnt að stórum viðburði, en þá
verða kvöldskíði, þar sem tónlist og
skemmtiatriði verða í öllum brekk-
um, og þá kemur líka Annika Mala-
cinski beint úr heimsbikarkeppni í
norrænni tvíkeppni og verður með
námskeið fyrir skíðagöngufólk.
- - -
Svo sem sjá má er mannlíf
frekar gott í Skagafirði, þrátt fyrir
að veiran herji enn og mörgum virð-
ist lítt friðvænlegt um heimsbyggð-
ina lengist enn þá dagur og sól
hækkar á lofti, og einhvern tíma
hljóta allir slæmir hlutir að taka
enda.
Ljósmynd/Sigurður Hauksson
Skíðasvæði Tindastóls Um 7.000 manns hafa rennt sér á skíðasvæðinu í vetur þrátt fyrir rysjótt veður.
Eitt besta skíðasvæði á Íslandi
20 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2022
Skipulags- og samgönguráð
Reykjavíkur hefur samþykkt að
lækka hámarkshraða á Bústaða-
vegi, frá Kapellutorgi gegnt Veð-
urstofunni að Snorrabraut, úr 60 í
50 km á klst.
Lækkun hámarkshraða á þessum
vegakafla er að tillögu Vegagerð-
arinnar, en samkvæmt umferð-
arlögum skal hámarkshraði á þjóð-
vegum í þéttbýli ákveðinn af
Vegagerðinni, að fengnu samþykki
viðkomandi sveitarstjórnar og
lögreglu.
Helstu rök Vegagerðarinnar eru
þau að frá Kapellutorgi að Snorra-
braut liggi Bústaðavegur um íbúða-
svæði og íþróttasvæði á Hlíð-
arenda. Vestan Bústaðavegar séu
göngu- og hjólastígar og útivist-
arsvæði við Öskjuhlíð.
„Töluverð umferð óvarinna veg-
farenda er í grennd við við veginn,
sér í lagi barna við íþróttasvæði á
Hlíðarenda. Við Litluhlíð er ein
þverun í plani fyrir óvarða vegfar-
endur, á ljósum yfir Bústaðaveg,“
segir meðal annars í greinargerð
Vegagerðarinnar. Það teljist því
nauðsynleg umferðarörygg-
isráðstöfun að lækka hámarkshraða
á þesum kafla úr 60 km/klst. í 50
km/klst. sisi@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hraðalækkun Kaflinn sem um ræðir
liggur frá Veðurstofu að Snorrabraut.
Lækka hámarks-
hraða á Bústaðavegi
Ráðstefna
CLT sem byggingarefni og frágangur
Strúktúr í samstarfi við Binderholz verður með ráðstefnu
24. mars frá kl. 14.00-15.30 í tengslum við Verk og Vit
Frummælendur verða.
Alessandro Muhllechner Sölustjóri Binderholz
Framleiðsla, CLT, límtré og fl
Gunnar Kristjánsson Bygginga- og brunaverkfræðingur Brunahönnun ehf
Brunahönnun CLT og límtré
Jón Þór Jónsson Byggingafræðingur Project Manager Selhóll ehf
Af hverju að byggja úr CLT
Ingólfur Á Sigþórsson Framkvæmdastjóri Strúktúr ehf
Hvernig Strúktúr ráðleggur að byggja úr CLT
Sjá nánar og skráningu á struktur.is