Morgunblaðið - 12.03.2022, Side 45

Morgunblaðið - 12.03.2022, Side 45
MENNING 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MARS 2022 Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Hugmyndin að barnasýningunni Manndýr, sem frumsýnd verður í Tjarnarbíói á morgun, 13. mars, varð til þegar sviðslistakonan Aude Busson las franska barnabók sem á íslensku nefnist Barnið og er eftir Colas Gutman og Delphine Perret. „Bókin er um lítinn strák sem fer í sveit með mömmu sinni og finnst allt ömurlegt. Það endar á að hann týn- ist og hittir kind sem spyr hann hvað hann sé. Og hann segist heita Leon- ard. Þá svarar kindin: „En til hvers ert þú?“ og þá fer barnið bara í al- gjöra tilvistarkreppu. Þetta er eitt- hvað sem allir eru að spyrja sig að alla daga,“ segir Aude. Henni datt í hug að það gæti verið gaman að heyra hvernig börn myndu svara tilvistarspurningum á borð við þessa og vinna sviðsverk fyrir börn úr frá því. „Mig langaði fyrst að heyra í krökkum og spyrja þá þessarar spurningar og búa svo til einhvers konar rými eða stað til þess að hlusta á svörin.“ Aude fór í Landakotsskóla þar sem Marion Herrera kennir heims- speki, las söguna með ólíkum hópum af börnum og fékk að heyra þeirra viðbrögð við þeim heimspekilegu spurningum sem bókin hefur að geyma. Umræðurnar voru teknar upp og úr þeim varð til hljóðmynd fyrir sviðsverkið. „Svo fórum við að vinna í því hvað við ætluðum að gera á sviðinu.“ Aude vann með sviðsmyndahönn- uðinum Sigríði Sunnu Reynisdóttur, hún er hluti af hönnunarhópnum Tyggjó sem sérhæfir sig í hönnun fyrir börn. „Við höfum áhuga á því hvernig börn leika og hvað þeim finnst skemmtilegt. Og við vorum að velta því fyrir okkur hvað börn geta gert á meðan þau hlusta á önnur börn tala.“ Aðrir aðstandendur sýning- arinnar eru Björn Kristjánsson tón- listarmaður og Steinunn Marta Önnudóttir myndlistarkona. „Á sviðinu er smá leikur í gangi. Börnin eru til dæmis mikið að velta fyrir sér hvort við séum manneskjur eða dýr, og hver munurinn sé, svo ég er mikið að leika mér með það. Svo tala þau um þróun mannsins svo við förum að vinna með alls konar efni sem maðurinn hefur notað. Svo er helmingur verksins í höndum barnanna. Þannig að þegar ég er bú- in að kynna fyrir þeim þennan heim og þessa hljóðmynd, þá fá þau alls konar dót til þess að búa til skúlp- túra og þá er þetta algjörlega frjáls leikur.“ Börnin fá að ráða för „Þetta er svolítil innsetning. Við vorum lengi að velta því fyrir okkur hvar þetta ætti heima, hvort þetta ætti að vera í leikhúsi eða frekar í galleríi eða eitthvað. En okkur fannst gaman að hafa þetta sem svona ritúal.“ Verkið sé afmarkað, hafi þannig upphaf og endi eins og leikverk, þrátt fyrir að minna á inn- setningu. „Mig langar að setja raddir og hugmyndir barna svolítið í forgrunn, hugmyndir þeirra um ákveðin mál- efni sem okkur sjálfum finnst erfitt að ræða og erfitt að útskýra. Mér finnst mjög mikil vitneskja falin í því að hlusta á börn og það er mér mjög kært að við tökum alvarlega það sem þau hafa að segja. Þannig að þetta verk er ekki síður fyrir fullorðna. Það er margt þarna sem mér finnst mikilvægt að fullorðnir heyri. Mér finnst líka mikilvægt að þetta sé verk þar sem börnin fái algjörlega að ráða för og þetta sé algjörlega unnið úr þeirra hugmyndum og hvernig þau sjá heiminn og að þeim sé gefið pláss til þess að yfirtaka þetta rými, leika sér og pæla.“ Bókin Barnið, sem verkið byggir á, var gefin út á íslensku í tilefni af þessari uppsetningu. Laugardaginn 19. mars verður boðið upp á upp- lestur á íslensku útgáfu bókarinnar eftir sýningu og sunnudaginn 27. mars verður sýnd frönsk útgáfa af verkinu, í samstarfi við Alliance Française. Manndýr „Þetta verk er ekki síður fyrir fullorðna. Það er margt þarna sem mér finnst mikilvægt að fullorðnir heyri,“ segir sviðslistakonan Aude. Heimspekilegar hug- myndir barna á sviði - Barnasviðsverkið Manndýr frumsýnt í Tjarnarbíói WindWorks-tónlistarhátíð, sem helguð er blásturshljóðfærum, hefst á morgun og stendur til 20. mars í Byggðasafni Hafnarfjarðar. Listrænn stjórnandi er flautuleik- arinn Pamela De Sensi og hjarta hátíðarinnar er Aulos Flute En- semble. Tvennir tónleikar verða í Pakkhúsinu á morgun, sunnudag. Klukkan 14 leika Ármann Helgason og Helga Björg Arnardóttir á klar- inett og kl. 15 leika Hrefna Vala Kristjánsdóttir og Alma Bergrós Hugadóttir á flautu. Tónleikarnir eru um 30 mínútur að lengd. Laugardaginn 19. mars verður boðið upp á tvenna tónleika í Bungalow. Klukkan 14 er yfir- skriftin „A deux – Franskt flæði“ og kl. 15 „Sóló“. Sunnudaginn 20. mars verða lokatónleikar kl. 14 í Pakkhúsinu. Aðgangur að öllum tónleikunum er ókeypis. WindWorks-tónlistarhátið í Hafnarfirði Listrænn stjórnandi Pamela De Sensi. Boðið verður upp á tvo menningar- viðburði í Alþýðuhúsinu á Siglufirði um helgina. Í dag, laugar- dag, kl. 15 opnar Anna Júlía Frið- björnsdóttir sýn- inguna Endi- mörk í Kompunni. Á sýningunni eru ný tví- víð verk. Heitið vísar til bókarinnar Endimörk vaxtarins frá 1972 þar sem reynt var að greina hvert stefndi í heimi sem einkenndist af takmörkuðum gæðum en sæktist eftir takmarkalausum hagvexti. Í myndlist sinni notar Anna Júlía (f. 1973) ýmsa miðla og aðferðir, með- al annars teikningar, skúlptúr, víd- eó og fundið efni. Hún nam mynd- list í Manchester og við MHÍ. Hún hefur tekið þátt í fjölda samsýninga og haldið fjórar einkasýningar á Ís- landi. Hún var tilnefnd til Íslensku myndlistarverðlaunanna 2018 fyrir Erindi í Hafnarborg. Á morgun, sunnudag, kl. 14.30 flytur Ida Semey erindi sem er á dagskrá Sunnudagskaffis með skapandi fólki. Erindið ber yfir- skriftina „Sjáðu mig eða sjáðu til“ og veður boðið upp á kaffi og veit- ingar á meðan. Anna Júlía sýnir í Alþýðuhúsinu Anna Júlía Friðbjörnsdóttir Listamaðurinn Snorri Ásmundsson opnar í dag, laugardag, klukkan 16 sýningu í Portfolio galleríi að Hverfisgötu 71. Sýninguna kallar hann Gaman. Snorri (f. 1966) hefur starfað sem listamaður í um þrjá áratugi og reynir í verkum sínum iðulega að hafa áhrif á samfélagið með opin- berum viðburðum. Í tilkynningu segir að hann hafi „truflað sam- félagið sem hann býr í í nokkur ár með viðamiklum og merkilegum sýningum þar sem hann vinnur með félagsleg bannorð eins og stjórnmál og trúarbrögð. Hann hefur fylgst með viðbrögðum samfélagsins, það er viðbrögð fólks þegar viðteknum gildum er snúið á hvolf, til dæmis þegar vanmáttugur einstaklingur tekur í sínar hendur vald sem venjulega er úthlutað með fyrir- framákveðnum reglum.“ Snorri Ásmundsson í Portfolio galleríi Gaman Listamaðurinn Snorri Ásmundsson reynir að hafa áhrif á samfélagið. Myndlistarmaðurinn Ómar Stef- ánsson (f. 1960) opnar í dag sýningu í galleríinu ForA í Berlín. Yfirskrift hennar er Flatleikhús fyrir ójafna byltingu en Ómar sýnir þar 30 mál- verk og skissubækur, allt verk frá síðustu fimm árum. Í tilkynningu segir að í verkun- um fjalli Ómar meðal annars um eigin dauða en hann hafi dáið í Berlín í nóvember en verið endur- lífgaður á sjúkrahúsi. Ómar byrjaði að halda dagbók á þýsku þegar hann fór til Berlínar árið 2017 og á sýningunni eru 30 bækur sem hann hefue síðan fyllt. Í þeim greinir listammaðurinn frá daglegum atburðum, hugleiðing- um, hugmyndum og afdrifum sín- um á stormasömum árum í Berlín sem enda með „líkamsdauða og endurlífgun með endurfæðingu í stjörnumerki Sporðdrekans.“ Endurlífgun í verkum Ómars í Berlín Hermaður Eitt nýrra málverka Ómars Stef- ánssonar sem eru á sýningu hans í Berlín. Svampur er sagður flæða yfir gólf og upp um veggi á sýningu myndlistarkon- unnar Söru Bjargar sem verður opnuð í Ásmundarsal við Freyjugötu í dag, laugardag, kl. 15. Sýning Söru Bjargar er kölluð Mjúk lending. Er hún afrakstur vinnustofu sem Sara Björg hefur undanfarnar vikur haft í Gryfju hússins en þar hefur hún endur- unnið og endurmótað svampaaf- skorninga. „Svampurinn hefur fengið að flæða yfir gólf og upp um alla veggi Gryfjunnar og öllum gestum er boðið að henda sér inn í innsetninguna og leyfa svampinum að leiða sig áfram í leik. Sara Björg hefur oft áður unnið með svampa í verkum sínum og hrífst hún af því hvernig eiginleikar svampsins leiða sköpunarferlið, og hvernig svamp- urinn mótast af umhverfi og gest- um hverju sinni. Því er öllum boðið að taka þátt, demba sér út í gryfjuna og leyfa svömpunum að taka mjúklega á móti þér,“ segir í tilkynningu frá Ásmundarsal. Svampur á sýningu Söru Bjargar Sara Björg Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is Dekton þolir mikinn hita. Það má setja heita potta og pönnur beint á steininn án þess að eiga það á hættu að skemma hann. Dekton er algjörlega öruggt gagnvart blettum. Blettaþolið SýruþoliðHögg- og rispuþolið HÁTT HITAÞOL

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.