Fréttablaðið - 08.04.2022, Side 6

Fréttablaðið - 08.04.2022, Side 6
Opnaðu myndavélina í símanum þínum og skannaðu þennan QR kóða. Stöðvum kynferðisofbeldi á djamminu bth@frettabladid.is ALÞINGI Enginn þingmaður lýsir andstöðu við þá hugmynd að Ríkis­ endurskoðun fari í saumana á sölu Íslandsbanka. Salan hefur vakið harðar deilur. Óttast ekki rannsókn Guðrún Hafsteinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er í hópi þeirra þingmanna sem segjast ekki kvíða rannsókn Ríkisendurskoðunar eða þings. Allt tal um að fjármálaráð­ herra, Bjarni Benediktsson, hafi viðhaft óeðlileg afskipti sé hrein og klár firra. „Ég óttast ekki rannsókn á þessu ferli, því hér er ekkert að fela,“ segir Guðrún. Fólkið fái bankann Jakob Frímann Magnússon, Flokki fólksins, segir umhugsunarefni hvernig ríkið „eignaðist“ gjaldþrota Glitni eftir hrun og komst upp með að færa til sín kröfur þess á hrak­ virði, skipta um nafn og senda þeim sem skulduðu hinu fallna fyrirtæki kröfur allt að helmingi hærri en fólk hafði tekið að láni. „Það væri því rétt­ ast, svona í „karmísku“ samhengi, að færa því fólki það sem óselt er af hlutabréfum Íslandsbanka,“ segir Jakob Frímann. Skilgreining á spillingu Logi Einarsson, formaður Samfylk­ ingarinnar, segir að traust sé mikil­ vægasta eign hvers banka. „Þarna eru meðal annars erlendir fjárfestar sem keyptu í fyrstu umferð og seldu sig strax út með umtals­ verðan gróða. Á listanum eru líka kunnugleg andlit úr aðdraganda hrunsins. Það er beinlínis ein skil­ greiningin á spillingu, að almanna­ gæðum sé úthlutað til útvalinna á ógagnsæjan hátt.“ Bjarkey Gunnarsdóttir, oddviti VG í Norðausturkjördæmi sem situr í ríkisstjórn með Sjálfstæðismönnum, segir að Ríkisendurskoðun þurfi að fara yfir málið áður en meira verði selt. n Segir sölu Íslandsbanka skilgreiningu á spillingu Bjarkey Gunnarsdóttir Logi Einarsson bth@frettabladid.is SAMFÉLAG „Það er ekki að ástæðu­ lausu sem fólk staldrar við að faðir fjármálaráðherra hafi keypt þenn­ an hlut. Það fer ákaflega illa saman þegar um ræðir ráðherrastöðu, fjöl­ skyldutengsl og viðskipti, sérstak­ lega þegar um ræðir sölu ríkiseigna sem sonur kaupanda heldur utan um,“ segir Henry Alexander Henrys­ son siðfræðingur. Sala Íslandsbanka hefur hlotið harða gagnrýni. Henry segir að Benedikt Sveinsson, faðir Bjarna, hefði átt að vita að ekki væri við hæfi að kaupa bréfin. Bjarni geti ekki heldur afsakað sig með að hann hafi ekki vitað af kaupunum. Bjarna hafi borið að ræða við pabba sinn og nánustu fjölskyldu um að láta tækifærið eiga sig, kaupa ekki bréf í bankanum vegna kringumstæðna. Bjarni beri því vissa ábyrgð. „Það hefði verið eðlilegt ef Bjarni hefði mælst til að pabbi hans myndi ekki kaupa bréfin. Að hann hefði séð það sjálfur.“ Henry segir að íslenskt samfélag verði að læra að þátttöku í stjórn­ málum fylgi ýmis réttindi en ekki síður skyldur. Skyldur geti verið útilokandi. Skyldur þýði íþyngj­ andi takmarkanir á hegðun stjórn­ málafólks og einnig skyldmenni þeirra. „Við getum ekki haft ráðherra þar sem svona spurningar kvikna. Það veikir stöðu þeirra og gengur með þv í geg n almannahags­ munum. Fyrir hvert og eitt skipti sem tortryggileg staða kemur upp, dregur úr trúverðugleika,“ segir Henry. Hvorki náðist í Benedikt né Bjarna. n Kaup Benedikts í bankanum á ábyrgð Bjarna Henry Alexand- er Henrysson, siðfræðingur Jakob Valgeir Flosason, sem keypti stóran hlut í Íslands­ bankaútboðinu, segist skilja gagnrýnina í samfélaginu eftir að listi kaupenda var birtur. Hún ætti þó miklu frekar að beinast að því hvað bankinn var seldur ódýrt. ggunnars@frettabladid.is VIÐSKIPTI Fjárfestar sem tóku þátt í útboðinu á hlut ríkisins í Íslands­ banka eru margir ósáttir við að listi yfir kaupendur hafi verið opinber­ aður. Jakob Valgeir Flosason, einn fagfjárfestanna, segir það skiljan­ legt. „Slíkar upplýsingar hreyfa samt lítið við mér núorðið. Ég er orðinn öllu vanur.“ Hann segist hafa meiri áhyggjur af verðinu sem ríkið fékk fyrir hlutinn. Það hafi verið algjör óþarfi að gefa svona mikinn afslátt. Jakob keypti fyrir tæpan milljarð í útboðinu og heldur þar af leiðandi á 1,8 prósenta hlut í bankanum. Hann segir kaupendur einfaldlega hafa fylgt reglum útboðsins og uppfyllt skilyrðin sem lagt var upp með. Það sé í raun ekkert við það að athuga. „Ef menn vilja gagnrýna eitt­ hvað þá ættu þeir að horfa á verðið sem ríkið seldi á. Að mínu mati hefði ríkið átt að selja til fárra en öf lugra kjölfestufjárfesta, eins og talað var um í upphafi. Það var ekki gert. Í staðinn voru það aðal­ lega lífeyrissjóðirnir sem pressuðu verðið niður í þessar 117 krónur á hlut. Ég veit það fyrir víst að ríkið hefði getað selt á genginu 122 ef þeir hefðu einbeitt sér að þeim sem voru tilbúnir til að borga meira. Það er það sem mér finnst alvar­ legt í þessu.“ Jakob óskaði sjálfur eftir að fá að kaupa mun stærri hlut í bankanum en hann á endanum keypti. „Ég er einfaldlega þeirrar skoðunar það sé bankanum fyrir bestu að nokkrir öflugir fjárfestar komi inn af krafti og veiti honum aðhald. Þannig gæta þeir best sinna hagsmuna og hagsmuna bankans um leið. Það var það sem vakti fyrir mér. Þá hefði líka þjóðin fengið meira fyrir sinn snúð.“ n Ríkið gat fengið mun meira fyrir hlutinn í Íslandsbanka Lífeyrissjóðirnir pressuðu verðið á hverjum hlut niður í 117 krónur. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Ef menn vilja gagnrýna eitthvað þá ættu þeir að horfa á verðið sem ríkið seldi á. Jakob Valgeir Flosason, fjárfestir Þrjú skilyrði fyrir kaupum í útboði Almennum fjárfestum stóð ekki til boða að kaupa í Íslandsbanka að þessu sinni heldur var ákveðið að leita eingöngu til fagfjárfesta. Ástæðan er sú að almennt útboð krefst margra mánaða undir- búnings. Á þeim tíma getur virði bréfa á markaði sveiflast til. Þar sem eitt af markmiðum útboðsins var að fá gott verð fyrir hlut ríkisins í bankanum var ákveðið að vinna málið hratt. Þeir sem sóttu um voru metnir í samræmi við lög sem gilda á Evrópska efnahagssvæðinu um útboð til fagfjárfesta. Þannig var ákveðið hverjir fengu að kaupa og hverjir ekki. Skilyrðin sem liggja til grundvallar eru þrjú. Þau lúta meðal annars að umsvifum á mörkuðum, eiginfjárstöðu, reynslu og þekkingu. Til að komast í hóp kaupenda þurftu fjárfestar að uppfylla tvö af þeim. 6 Fréttir 8. apríl 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.