Fréttablaðið - 08.04.2022, Qupperneq 18
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
„Rafíþróttasamtök Íslands hófu
starfsemi fyrir fjórum árum og
við skiptum starfsemi okkar í
fjórar deildir,“ segir Aron Ólafsson,
framkvæmdastjóri samtakanna.
„Í fyrsta lagi erum við með okkar
eigin framleiðsluarm, sem á og sér
um framleiðslu á öllu okkar raf-
íþróttaefni.
Svo er það fræðsluarmurinn, en
við sinnum fræðslu alls staðar þar
sem við erum beðin um að koma
og erum með gott úrval af alls kyns
fræðslu. Við getum veitt fræðslu
fyrir foreldra, starfsmenn í félags-
miðstöðvum, þá sem vilja verða
þjálfarar hjá okkur eða grunnskóla-
krakka, en við getum komið og
verið með smiðjudaga í skólum þar
sem við vinnum með krökkunum
í kringum rafíþróttir,“ segir Aron.
„Þessi armur hefur vaxið talsvert
mikið undanfarið og ég hef per-
sónulega mjög gaman af honum.“
Halda mót í hollu umhverfi
„Svo erum við líka mótahaldari og
höldum mót til að æskulýðurinn
hafi eitthvað til að stefna að. Við
erum að búa til samfélög innan
leikjasamfélaga kringum móta-
og keppnishald og erum með
allt öðruvísi fókus en hefur verið
gegnum tíðina,“ útskýrir Aron.
„Þessi mót hafa verið svolítið villt
og dómaraúrskurðir hafa ekki
alltaf verið alveg hlutlausir og við
viljum breyta því. Við höldum mót
í fjölmörgum leikjum og erum
líka að þróa mót fyrir almenning
og áherslan er ekki alltaf á að fá
besta liðið upp á verðlaunapall,
heldur bara að auka þátttöku í raf-
íþróttum og aðgengi að þeim.
Við ætlum að fjölga mótum
og halda aftur Framhaldsskóla-
leika og Firmamót, eins og í fyrra.
Við erum alltaf að auka aðgengi
að spilamennsku á heilbrigðum
forsendum. Okkar mót eru ekki
byggð upp þannig að þú spilir
lengi í einu, en í gamla daga þegar
ég fór á mót var ekki óeðlilegt að
spila kannski frá því snemma um
morguninn og fram á nótt, en við
einfaldlega leyfum þetta ekki,“
segir Aron. „Hjá okkur eru sex
tímar alveg hámark og það er bara
í neyðartilvikum. Svona höfum
við haft mótahaldið á okkar for-
sendum og ekki elt það sem er að
gerast úti í heimi, heldur reynt að
búa til hollara umhverfi. Við erum
í mótahaldi til að ýta undir raf-
íþróttastarf og til að hjálpa stærstu
senunum að vaxa enn meira.“
Ryðja veginn fyrir rafíþróttir
„Hagsmunagæsla fyrir iðkendur
rafíþrótta og þá sem spila tölvu-
leiki er svo annar armur af starf-
semi okkar. Við höfum verið að
ryðja veginn fyrir íslensk lið til að
keppa erlendis og aðstoða lið og
leikmenn við að semja og búa til
hollt umhverfi,“ segir Aron. „Við
vinnum líka markvisst að því að fá
stuðning fyrir aðildarfélög okkar
hjá sveitarfélögum og ríkinu.
Við vinnum markvisst að þessu
alla daga vikunnar og pössum
upp á að halda öllum boltum á
lofti. Hjá okkur er sex og hálft
stöðugildi núna, en auk þess koma
fjölmargir að útsendingum hjá
okkur,“ segir Aron. „Umfangið á
rekstrinum er búið að breytast
mikið og við erum eini staðurinn
til að þjónusta aðildarfélögin, en
bara á grunnskólaaldri eru um tvö
þúsund börn sem æfa rafíþróttir
og svo eru allir hinir sem eru bara
að spila ótaldir, þannig að þetta er
stór hópur.
Það er líka mikill munur á því að
vera bara að spila og því að stunda
rafíþróttir,“ útskýrir Aron. „Þetta
er bara eins og munurinn á fólki
sem fer í ræktina til að halda sér í
formi og þeim sem eru að keppa í
íþróttum á hæsta stigi, æfingarnar
fara fram á allt öðrum forsendum
og þarfirnar eru mjög ólíkar og það
þarf að huga að þessu.“
Vilja skapa
heilbrigða atvinnumenn
„Við vorum að fá styrk frá Erasmus
og erum að vinna að handbók um
rafíþróttaþjálfun fyrir evrópskan
markað í samstarfi við danska
rafíþróttasambandið. Við erum
með markvisst æskulýðsstarf en
það hafa ekki margir farið úr því
í atvinnumennsku og við ætlum
að hitta atvinnumenn og þá sem
stýra stórum liðum í Danmörku
og læra af þeim um væntingarnar
sem slíkir aðilar hafa til æskulýðs-
starfs,“ segir Aron. „Þeir sem ná
langt í rafíþróttum eru svo ekki
alltaf á besta stað hvað varðar heil-
brigði þannig að þegar þeir ganga
í lið hefst oft markviss vinna með
sálfræðingi og einkaþjálfara til að
endurstilla þessa einstaklinga og
kenna þeim að beita líkamanum
skynsamlega. Við viljum hefja
þessa vinnu fyrr.
Eftir að Riot Games kom hér í
fyrra með fyrsta viðburðinn sinn
uppgötvuðum við hvað þau voru
áhugasöm um það sem við vorum
að gera og fyrir þeirra tilstilli hefur
verið fjallað um starfsemi okkar
í erlendum miðlum. Í kjölfar þess
hafa fjölmargir haft samband
og við höfum haldið fyrirlestra
og kynnt okkar nálgun erlendis
síðastliðið ár,“ segir Aron. „Það er
spennandi að fara á næsta stig og
reyna að stuðla að því að búa til
atvinnumenn.“
Stór hópur sem þarf að sinna vel
„Við erum mjög þakklát fyrir Eras-
mus-styrkinn og samstarfsaðila
okkar. Við höfum fengið mikla
hjálp frá ráðuneytunum og félags-
málaráðuneytið hefur hjálpað
sérstaklega mikið við að vekja
athygli á geðheilbrigði, en við
vitum að margir í okkar hópi eru í
áhættuhópi fyrir andlega van-
líðan,“ segir Aron. „Markmið okkar
eru líka orðin faglegri en í byrjun
og við erum komin lengra í að búa
til umhverfi sem er hollt að alast
upp í og leggjum gríðarlega áherslu
á það.
Starf okkar snertir líka á lífi
þúsunda krakka. Ef við skoðum
áhorfstölur fyrir útsendingar
frá Ljósleiðaradeildinni, sem er
Counter-Strike deildin okkar,
getum við ekki séð betur en að
þetta sé næstvinsælasta íslenska
deildin í áhorfi, stærra en bæði
karfan og handbolti,“ segir Aron.
„Þannig að þetta eru gríðarlega
margir krakkar og okkur finnst
það ábyrgðarhluti að tala við
svo stóran hóp, sem hefur verið
jaðarsettur gríðarlega lengi, sem er
fáránlegt því hann er svo stór. Um
leið næst oft ekki mjög vel til þessa
hóps og því finnst okkur mjög
mikilvægt að tala um úrræðin sem
eru til staðar fyrir þessa krakka svo
þau geti blómstrað.“
Skapa nýja sigurvegara
„Tímarnir hafa líka breyst gríðar-
lega þegar kemur að umræðunni
um tölvuleiki. Þegar ég var ungur
var það feimnismál að tala um að
maður spilaði tölvuleiki en ég var
með fyrirlestur í Borgarholtsskóla
í vikunni fyrir 16 ára unglinga og
þegar ég bað alla sem spila tölvu-
leiki um að rétta um hönd gerðu
langflestir það,“ segir Aron. „Það
er ekki langt síðan ég talaði fyrst
opinberlega um að spila leiki og þá
skammaðist ég mín.
En þegar úrslitaleikurinn í Fram-
haldsskólaleikunum fór fram, þar
sem Fjölbrautaskóli Vesturlands á
Akranesi keppti á móti Tækniskól-
anum, komu 120 krakkar í Arena
til að horfa og stemningin í salnum
var eins og þetta væri úrslitaleikur
í knattspyrnu. Það voru svo mikil
læti í áhorfendum að þau ómuðu
inn í hljóðeinangrað hljóðver!“
útskýrir Aron. „Þarna erum við að
búa til siguraugnablik í lífi þessara
keppenda, sem hefðu ekkert endi-
lega fengið að upplifa það öðruvísi.
Þó að krakkarnir frá FVA hafi lent í
öðru sæti í æsispennandi leik voru
þau skælbrosandi og glöð, því það
mættu 70 krakkar frá Akranesi til
að styðja þau og þau sungu stuðn-
ingssöngva um keppendur í liðinu.
Ég fæ bara gæsahúð af því að tala
um þetta.
Þannig að við höfum séð miklar
breytingar. Fyrst vorum við að
hugsa um að búa til fagmannlegt
umhverfi fyrir keppnir en í leið-
inni höfum við lært mjög mikið
og upplifað sterkt hvað ferðalagið
á toppinn getur líka verið fallegt,“
segir Aron. „Bara það að vera með
margar neðri deildir í Counter-
Strike getur haft mikil áhrif. Lið
sem vinnur 6. deild fær sömu sælu-
vímu eins og liðið sem vinnur 2.
deild. Þarna býrðu til sigurvegara,
sem getur gjörbreytt krökkum.
Það er æðislegt. Á næstunni ætlum
við því að setja meiri áherslu á að
hjálpa krökkum að ná langt og
vald efla þau eins og við getum.“
Ástríðustarf sem á hrós skilið
„Að lokum langar mig bara að
þakka og hrósa þeim sem starfa
með okkur. Það er ekki vel borgað
að starfa í rafíþróttum og fólkið
sem gerir það gerir það af ástríðu.
Við finnum óbilandi áhuga um
allt land og mikinn áhuga frá
sveitarfélögum á að styðja þessa
starfsemi,“ segir Aron. „Við sem
þjóð höfum verið snögg að taka
utan um þetta og haldið föstum
tökum utan um starfið hjá þessum
krökkum, sem er bæði merkilegt
og stórkostlegt að sjá.
Við höfum líka fengið mikinn
stuðning frá þessari ríkisstjórn,
sem er með það í stjórnarsátt-
málanum að styðja við rafíþróttir.
Við finnum líka að margt fólk á
miðjum aldri styður okkur og
hefði viljað að svona starfsemi
hefði verið í boði þegar þau voru
ung,“ segir Aron. „Nú eru raf-
íþróttabrautir líka að koma í
framhaldsskólana, svo krakkar
geta tekið stúdent og bætt sig í raf-
íþróttum í leiðinni. Svo erum við
líka að reyna að gera það mögulegt
að fá skólastyrk í Bandaríkjunum
út á rafíþróttir.
Ég vil bara hrósa öllum sem
koma að því að byggja upp rafí-
þróttir á Íslandi. Þó að Rafíþrótta-
samtökin séu öflug erum við ekki
á bak við alla þessa viðburði sem
eru að spretta upp um allt land,“
segir Aron. „Ég vil sérstaklega
hrósa fólki úti á landi sem hefur
sýnt mikið frumkvæði og minna
á að þó að það virki kannski eins
og það sé langt í okkur erum við til
staðar fyrir fólk um allt land.“n
Aron segir að
mikið hafi
breyst á
stuttum tíma
og áhuginn á
rafíþróttum hafi
aukist hratt.
Counter-Strike
deildin er nú
næstvinsælasta
íslenska deildin
þegar kemur
að áhorfi og
mikill fjöldi
fólks mætir á
viðburði.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr
@frettabladid.is
Áherslan er ekki
alltaf á að fá besta
liðið upp á verðlauna-
pall, heldur bara að auka
þátttöku í rafíþróttum og
aðgengi að þeim.
Aron Ólafsson
2 kynningarblað 8. apríl 2022 FÖSTUDAGURR AFÍÞRÓTTIR