Fréttablaðið - 08.04.2022, Qupperneq 22
Þetta er fyrsta
áhugamálið sem ég
hef virkilega náð að
demba mér ofan í á
undanförnum árum.
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun
@frettabladid.is
WWW.BREIDABLIK.GG
Ásdís Erla Jóhannsdóttir er
varaformaður Rafíþrótta
samtaka Íslands, RÍSÍ. En
það er í raun frekar stutt
síðan hún byrjaði að spila
tölvuleiki. Hún er einnig
verkefnastýra Framhalds
skólaleikanna og í móta
stjórn Firmamótsins.
„Áhugi minn kviknaði á tölvu-
leikjum þegar ég var í háskóla árið
2019. Vinir mínir voru oft að spila
í pásum þegar við vorum að læra.
Þetta voru bara einhverjir skot-
leikir sem hægt var að spila á net-
inu. Ég prófaði að spila og fannst
þetta strax ótrúlega skemmtilegt.
Þetta er fyrsta áhugamálið sem ég
hef virkilega náð að demba mér
ofan í á undanförnum árum. Síðan
fóru þeir að bjóða mér með sér á
Ground Zero þar sem ég prófaði
fleiri leiki. Stuttu eftir það ákvað
ég að kaupa mér tölvu og fljótlega
kynntist ég fullt af fólki í þessu
tölvuleikjasamfélagi,“ segir Ásdís.
Hún fór því á frekar stuttum
tíma frá því að vera ekkert inni í
tölvuleikjum í að verða varafor-
maður Rafíþróttasamtaka Íslands.
„Aðdragandinn að því að ég fór inn
í RÍSÍ er að ég fór að spila leik sem
heitir Valorant. Hann kom út árið
2020 og er fyrsti leikurinn sem ég
spila af einhverju viti. Um haustið
sé ég auglýst eftir fólki til að taka
þátt í mótastjórn fyrir þennan
leik,“ útskýrir hún.
Ásdís hafði samband við Aron
Fannst þetta strax ótrúlega skemmtilegt
Ásdís Erla Jóhannsdóttir var komin í háskóla þegar hún byrjaði að spila tölvuleiki. Núna er hún í stjórn RÍSÍ. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Ólafsson, framkvæmdastjóra RÍSÍ,
og lýsti yfir áhuga á að taka þátt.
Henni var tekið opnum örmum
þrátt fyrir að hafa enga reynslu af
mótahaldi, hvorki í rafíþróttum né
öðrum íþróttum og hún fór í hóp
til að undirbúa mótið.
„Það varð svo ekkert af Valorant-
mótinu, það var ekki nógu mikill
áhugi, en í kjölfar þessarar vinnu
bauð Aron mér að vera varafulltrúi
í stjórn RÍSÍ.“
Ásdís þáði það og henni var
boðið að sjá um Framhaldsskóla-
leikana, FRÍS.
„RÍSÍ langaði til að halda raf-
íþróttamót fyrir framhaldsskólana
og ég tók þátt í að móta hugmynd-
ina um hvernig leikarnir eiga að
vera. Þrátt fyrir að hafa á þessum
tímapunkti ekki enn séð um neitt
mót. Þetta var þess vegna svolítið
stórt stökk fyrir mig, að fara að sjá
um mót þar sem keppt er í þremur
mismunandi leikjum,“ segir hún.
Mikill áhugi í framhaldsskólum
Ásdís hafði samband við alla
framhaldsskóla landsins og bauð
þeim að taka þátt. Viðbrögðin voru
mjög góð og Ásdís segir langflesta
skólana hafa sýnt áhuga á framtak-
inu þótt þeir hafi ekki allir getað
tekið þátt. Fyrsta framhaldskóla-
mótið var haldið í mars í fyrra.
Fjórtán framhaldsskólar tóku
þátt og keppt var í Counter-Strike:
Global Offensive, Rocket League
og FIFA.
„Þetta gekk rosalega vel. Við
byrjuðum á riðlakeppni í öllum
leikjunum. Efstu liðin í hverjum
riðli spiluðu síðan um efstu sætin
í deildinni fyrir hvern leik. Við
gáfum liðunum síðan stig fyrir
árangur í leikjunum en við gáfum
líka stig fyrir samfélagsmiðla-
keppni. Efstu átta liðin fóru síðan
áfram í undanúrslit og svo var
úrslitakvöld,“ útskýrir Ásdís.
„Við hjá RÍSÍ leggjum mikið upp
úr því keppendur sinni andlegri
heilsu, hreyfi sig, næri sig, og eigi
fleiri áhugamál. Við gáfum þess
vegna keppendunum tækifæri á
aukastigum í undankeppninni til
dæmis með því að borða hollan
mat, stunda hreyfingu eða vera
með fjölskyldu. Þá þurftu kepp-
endurnir að taka mynd af sér að
gera eitthvað af þessu og pósta
þeim á samfélagsmiðlum og
senda á okkur með myllumerkinu
#FRÍS21 eða FRÍS22.“
Sigurvegari FRÍS 2021 var Tækni-
skólinn og hann vann aftur í ár en
keppnin var hörð og oft var mjótt
á mununum. Hægt var að fylgjast
með keppninni á Stöð 2 eSport.
„Kristján Einar hefur verið þáttar-
stjórnandinn, hann er langbesti
rafíþróttalýsandi landsins að mínu
mati. Hann var í stúdíóinu með
Agli Ploder, Donnu Cruz, Króla og
í ár bættum við Evu Margréti við.
Þau hafa verið að lýsa leikjunum
og vera með skemmtileg atriði á
milli, eins og viðtöl við keppendur
og fleira. Markmiðið með útsend-
ingunum er að hafa þetta lifandi
og skemmtilegt. Það á að vera
ógeðslega gaman að horfa á þetta,
jafnvel fyrir þau sem spila ekki
leikina sem keppt er í,“ segir Ásdís.
Góð stemning á Firmamótinu
Ásdís er líka í mótastjórn Firma-
mótsins sem er rafíþróttamót
fyrirtækja, haldið á vegum Elko og
Lindex.
„Þau komu til okkar í RÍSÍ og
báðu okkur um aðstoð við að
halda þetta mót. Þetta byrjaði sem
hugmynd hjá einum hjá Lindex
sem finnst gaman að spila tölvu-
leiki. Hann fékk þessa hugmynd,
að halda fyrirtækjamót,“ segir
Ásdís.
„Á þessu móti er keppt í sömu
leikjum og í FRÍS en munurinn
er að á Firmamótinu er keppt í
hverjum leik fyrir sig og það eru
því þrír sigurvegarar, einn fyrir
hvern leik. Keppnin fór fram í
haust, hún byrjaði í október og
kláraðist í desember. Advania
vann í Counter Strike, Elko vann
í Rocket League og Bananar ehf.
unnu í FIFA.“
Ásdís segir að 23 fyrirtæki hafi
tekið þátt og hún býst við að þetta
mót eigi eftir að stækka enn meira.
„Úrslitin fóru fram í Arena og það
var bein útsending og mjög góð
stemning. Það var eins með FRÍS.
Þá var mjög góð stemning í Arena.
Krakkarnir gátu komið, fylgst með
og hvatt sinn skóla. Við vorum
með pitsuhlaðborð og þetta var
bara rosalega skemmtilegt. Þakið
var bókstaflega að rifna af húsinu
þegar síðasti leikurinn var spil-
aður,“ segir Ásdís og hlær.
Hún segir vinsældir rafíþrótta
alltaf vera að aukast og að mótum
eigi örugglega eftir að fjölga á
næstu árum. ■
Lækjargata 2a Sími 519 4747 djireykjavik.is
á 45.990
áttur
á öll tilboð á
áður 49.990
áður 28.990
22.990 áður 89.990
74.990
6 kynningarblað 8. apríl 2022 FÖSTUDAGURR AFÍÞRÓTTIR