Fréttablaðið - 08.04.2022, Side 23

Fréttablaðið - 08.04.2022, Side 23
Við leggjum okkur fram um að koma sem flestum í gæðasam- band og höfum sett okkur háleit markmið þegar kemur að Ljós- leiðaravæðingunni. Erling Freyr Stelpur halda margar að þetta sé ekki fyrir þær, en stelpur verða líka bara að þora að prófa. Marín Eydal Sigurðardóttir Fyrr á þessu ári var til- kynnt að úrvalsdeildin í rafíþróttum myndi heita Ljósleiðaradeildin næstu þrjú árin. Deildin hefur verið afar spennandi í vetur og nú styttist í stórmeistaramótið þar sem úrslitin munu ráðast. „Það liggur fyrir að rafíþróttir eru að vaxa á ógnarhraða og þar er framtíðin björt. Við hjá Ljósleiðar- anum erum afar stolt af því að geta styrkt þessa íþróttagrein enda er ljósleiðaratenging grunnuppistað- an í því að geta keppt í íþróttinni,“ segir Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ljósleiðarans. „Það sem við höfum líka verið að horfa á er að sem flestir spilarar sitji við sama borð, hvar sem þeir eru á landinu. Þar skiptir Ljós- leiðarinn auðvitað miklu máli með sínar öflugu tengingar enda þarf svartími að vera stuttur og hraðinn mikill. Við leggjum okkur fram um að koma sem flestum í gæðasam- band og höfum sett okkur háleit markmið þegar kemur að Ljós- leiðaravæðingunni.“ Erling segir að það fræðslustarf sem Rafíþróttasamtök Íslands (RÍSÍ) standi fyrir hafi skipt sköpum þegar kom að stuðningi við rafíþróttirnar. „Þau hafa verið öflug að fara inn í grunnskólana og kynna og fræða bæði börn og full- orðna. Sú nálgun sem RÍSÍ er með á þessi mál heillaði okkur mjög.“ Hin hefðbundnu íþróttafélög víðs vegar um landið hafa verið að koma sér upp rafíþróttadeildum en einnig hafa nýrri félög verið að gera sig gildandi í rafíþróttunum. „Ljósleiðaradeildin var að klárast og nú er stórmeistaramótið eftir. Það er nokkurs konar úrslita- keppni og þetta endar svo allt með úrslitakvöldi þann 23. apríl næst- komandi. Við hvetjum auðvitað öll til að fylgjast með því.“ ■ Ljósleiðarinn elskar rafíþróttir Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ljósleiðarans, Aron Ólafsson, framkvæmdastjóri Rafíþróttasamtaka Íslands (RÍSÍ), og Eiríkur Stefán Ásgeirsson, forstöðumaður íþróttadeildar hjá Sýn. MYNDIR/AÐSENDAR Marín Eydal er með streymisþáttinn Gamevera sem sýndur er á GameTíví. Hún segir að það að spila tölvuleiki sé mjög félagslegt og hún hafi kynnst mörgum í gegnum rafíþróttir. MYND/AÐSEND Rafíþróttir vaxa á ógnarhaða og þá kemur Ljósleiðarinn að góðum notum. Ljósleiðarinn hefur frá upphafi lagt ríka áherslu á að styðja við GameTíví sem hefur síðustu ár verið í fararbroddi þegar kemur að umfjöllun um tölvuleiki. Þó að langstærsti hluti spilara hér á landi sé karlkyns hefur kvenkyns spilurum verið að fjölga jafnt og þétt síðustu ár. Okkur lék forvitni á að vita hvað það er sem heillar við tölvu- leiki og hvernig það er að vera kvenkyns spilari í þessum karl- læga heimi. Marín Eydal Sigurðardóttir er 24 gömul og hefur spilað tölvu- leiki af krafti síðustu tíu árin. Hún gengur undir nafninu Mjamix í hinum rafrænu heimum og er nú komin með sinn eigin streymis- þátt sem heitir Gamevera og er sýndur á GameTíví. Ljósleiðarinn hefur stutt dyggilega við bakið á GameTíví síðastliðin ár og fagnar þeirri miklu vakningu sem hefur verið hjá kvenkyns spilurum upp á síðkastið. „Það að spila tölvuleiki er mjög félagslegt og ég hef kynnst alveg svakalega mörgu fólki í gegnum þetta. Þarna fær maður líka bara að vera maður sjálfur og það er engin pressa að vera svona eða hinsegin. Þetta gefur mér mikið sjálfstraust og það er ótrúlega gaman hvað það eru komnar margar stelpur inn í þetta núna,“ segir Marín sem er tiltölulega nýfarin í loftið með þáttinn á GameTíví en hefur verið að streyma sjálf í nokkur ár. Marín kynntist tölvuleikjum í gegnum eldri bróður sinn en fór að spila af alvöru þegar hún var 14 ára og kynntist leiknum Skyrim. „Það var algjör ást bara strax og ég hef verið að spila hann af og til síðan þá. Ég hef ekki verið að streyma honum enda ekki svona multiplayer-leikur þar sem margir spila.“ Marín segist vera algjör alæta á tölvuleiki en þegar hún var yngri var hún aðallega að spila með strákum en það hafi breyst mikið undanfarið. Gömlu viðhorfin að hverfa „Stelpurnar eru sýnilegri núna og eftir að ég kom mér aðeins meira inn í þennan heim og samfélag hef ég kynnst alveg æðislegum stelpum. Auðvitað er meirihlutinn strákar en þetta gamaldags við- horf um að þetta sé bara einhver tímaeyðsla er líka að hverfa. Þetta er fyrst og fremst afþreying og sem betur fer eru rafíþróttir komnar almennilega til Íslands núna. Núna er bara horft á þetta sem íþrótt.“ Marín segir þó mikilvægt að hugsa tölvuleiki ekki endilega sem einhverja keppni og að það sé pressa á spilurum að vinna. „Þú þarft ekkert að vera endilega góð í öllu og ég er það til dæmis alls ekki, en þetta er bara fyrst og fremst mjög gaman. Stelpur halda margar að þetta sé ekki fyrir þær, en stelpur verða líka bara að þora að prófa.“ ■ Stelpur verða að þora að prófa kynningarblað 7FÖSTUDAGUR 8. apríl 2022 R AFÍÞRÓTTIR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.