Fréttablaðið - 08.04.2022, Page 24
Ég vil mæla með
því við stelpur að
þær skoði rafíþróttir og
taki þátt. Það er hægt að
koma í Arena Gaming á
Smáratorgi og prófa sig
áfram með þjálfara.
Eva Margrét Guðnadóttir
starfar á skrifstofu Raf-
íþróttasamtaka Íslands við
framleiðslu efnis. Auk þess
var hún einn af þáttarstjórn-
endunum í Framhaldsskóla-
leikunum sem lauk nýverið.
180 keppendur tóku þátt í
mótinu og þrettán skólar.
elin@frettabladid.is
Áhugi fyrir rafíþróttum er stöðugt
að aukast hér á landi. Eva Margrét
hefur haft áhuga á rafíþróttum og
tölvuleikjum allt frá barnsaldri.
Hún og tvíburasystir hennar
stunduðu leiki á PlayStation og oft
voru foreldrar þeirra með þannig
að iðulega gat þetta orðið að fjöl-
skylduleik á heimilinu. „Ég fékk
alltaf mikla hvatningu frá for-
eldrum mínum,“ segir hún.
„Síðan fór ég að streyma Call of
Duty-leiknum með systur minni og
vinkonum á rás sem við nefndum
Babe Patrol. Það vatt upp á sig
þegar GameTíví hafði samband við
okkur og óskaði eftir að við yrðum
með sérþátt hjá þeim og Stöð 2
eSport. Með því stækkaði streymið
okkar til mikilla muna en við erum
einu sinni í viku með þáttinn, á
miðvikudagskvöldum. Það hefur
verið mjög gaman,“ segir hún.
Eva Margrét segir hafa kynnst
fjölda manns í gegnum rafíþrótt-
irnar þótt hún sé ekki keppnis-
manneskja. „Mér finnst ég ekki
nógu góð til að keppa en ég hef
gaman af því að vera með í leikj-
unum. Tölvuleikjasamfélagið er
einstakt því ég hef aldrei fundið
fyrir leiðindum eða fordómum,
miklu frekar ánægju og hvatningu.“
Evu Margréti var síðan boðið
að vera með í Framhaldsskóla-
leikunum. „Þetta er framhalds-
skólamót í rafíþróttum og er
haldið á hverju ári. Spilaðir eru þrír
mismunandi leikir, Rocket League,
FIFA og Counter Strike. Þetta voru
sjö útsendingar og við byrjuðum
þær í átta liða úrslitum. Hver og
einn gat keypt miða og fylgst með
keppninni í sal í lokaúrslitum. Það
var þvílík stemming og gleði þar
sem stórir hópar hvöttu áfram
sín lið. Áhuginn á rafíþróttum er
alltaf að aukast enda er þetta mjög
skemmtilegt,“ segir Eva Margrét.
„Ætli þetta sé ekki eitt af því
allra skemmtilegast sem ég hef gert
þótt það hafi líka verið stressandi
þar sem ég hafði ekki gert þetta
áður,“ bætir hún við. „Leikarnir
voru sýndir á Stöð 2 eSport og á
streymis síðu Rafíþróttasamtak-
anna.“
Þegar Eva Margrét er spurð hvort
strákar séu ekki í miklum meiri-
hluta í þessari íþrótt, svarar hún
því játandi. „Jú, þeir eru miklu fleiri
en þó fer stelpum fjölgandi. Í fram-
haldsskólamótinu voru strákar í
miklum meirihluta. Það þarf að
hvetja stelpurnar til að koma og
vera með. Þetta er ekki kynbundið
sport. Hugsunin hefur oft verið
að strákar eigi að spila einhverja
ákveðna leiki og stelpur aðra. Að
strákar eigi bara að spila skotleiki.
Staðreyndin er sú að við stelpurnar
spilum eiginlega bara skotleiki.
Ég vil mæla með því við stelpur
að þær skoði rafíþróttir og taki
þátt. Það er hægt að koma í Arena
Gaming á Smáratorgi og prófa sig
áfram með þjálfara. Þar er mjög
góð aðstaða,“ segir Eva Margrét.
„Það er vinsælt að koma í Arena
Gaming, spjalla og hitta aðra.
Vinnustaðir hafa verið að koma
með hópa og skemmta sér. Sömu-
leiðis eru haldin barnaafmæli á
staðnum. Gestir fá leiðsögn og
maður þarf ekki að kunna tölvu-
leiki,“ segir Eva Margrét. „Einnig
fara fram æfingar í rafíþróttum
hjá íþróttafélögunum Breiðabliki
og HK í Arena Gaming enda er
aðstaðan frábær.“
Stór alþjóðleg mót hafa farið
fram hér á landi í Laugardalshöll
og minni mót eru mjög algeng í
þessar grein íþrótta. Ljósleiðara-
deildin var til dæmis að klárast og
stórmeistaramót verður seinna í
mánuðinum. ■
Hægt er að kynna sér íþróttina
betur inn á vefnum rafithrottir.is
Stelpur spila líka skotleiki
Eva Margrét hefur spilað tölvuleiki frá því hún var krakki. Í dag er hún
hrifnust af skotleikjum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Míla tengir þig…
við ljósleiðara
Ljósleiðari Mílu er örugg og öflug tenging fyrir heimili og fyrirtæki.
Getur þú tengst? skannaðu QR kóðann og kannaðu málið.
8 kynningarblað 8. apríl 2022 FÖSTUDAGURR AFÍÞRÓTTIR