Fréttablaðið - 08.04.2022, Page 36

Fréttablaðið - 08.04.2022, Page 36
EXTRA ÓDÝR PÁSKAEGG Barónsstígur • Keflavík • Akureyri *Sýna þarf kvittun samdægurs. Gildir aðeins fyrir páskaegg frá Nóa, Freyju og Góu. Gildir ekki um páskegg nr. 1. Þú færð ódýrara páskegg hjá okkur, annars endur- greiðum við mismuninn* Gildir til 18.apríl. LÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 8. apríl 2022 FÖSTUDAGUR ninarichter@frettabladid.is Óður er titill nýrrar sýningar Egils Eðvarðssonar myndlistarmanns, í Pop-up galleríinu við Hafnartorg. Þar sýnir Egill mikinn fjölda mynd- verka sem hann hefur unnið að á síðustu fimm árum, olíumálverk á striga í bland við pappírsklippur. Það vekur athygli að verkunum er raðað nokkuð þétt og Egill skýrir málið með lítilli tilkynningu á vegg: „Einhverjum finnst eflaust að nokk- uð þétt sé hengt upp. Myndir myndu klárlega njóta sín betur ef þeim væri gefið meira pláss hverri og einni.“ Hann útskýrir næst að hann hafi ákveðið að hengja hundrað mynda seríuna upp í ofgnótt að hætti Stór- vals og þannig „tekið stórvin minn frá Möðrudal til fyrirmyndar.“ Í tilkynningu segir að myndefnið sé sótt í gleðina og aðdáun listamanns- ins á vel völdu fólki. Það var margt um manninn við opnun sýningarinnar sem stendur opin daglega frá klukkan 11 til 17 til 28. apríl. n Hundrað myndir Egils hanga þétt á Hafnartorgi Egill Eðvarðsson listamaður ásamt Eyþóri Árnasyni ljóðskáldi. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Jakob Frímann Magnússon, Birna Rún Gísladóttir, Gísli Marteinn Baldursson og Katrín L. Ingvadóttir. Einar Egilsson, sonur Egils Eðvarssonar, ásamt hjónunum Snorra Þórissyni og Erlu Friðriksdóttur. Egill sýndi fjölda mynda sem hann hefur unnið að á síðustu fimm árum, olíu- málverk í bland við pappírsklippur. Hjónin Agnes Löve og Reynir Jónasson með nokkrar af myndum Egils í bakgrunni. Í myndum Egils má finna fjölmargar tilvísanir, þar á meðal nafn rithöfundarins Gyrðis Elíassonar.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.