Fréttablaðið - 12.04.2022, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 12.04.2022, Blaðsíða 42
www.DORMA.is Verð og vöruupplýsingar eru birtar með fyrirvara um prentvillur. 20% AFSLÁTTUR af öllum sængum, koddum, stólum og smávöru PÁSKA TILBOÐ Nú 135.920 kr. LICATA 3ja sæta sófi 3ja sæta sófi í Kentucky koníak eða Stone Bonded leðri eða River dökkgrátt áklæði. Stærð: 199 x 94 x 82 cm. Fullt verð: 169.900 kr. LICATA 2ja og 3ja sæta sófarAðeins 111.920 kr. 20% Stærð í cm Fullt verð m/ Classic botni og löppum Páskatilboð m/botni og löppum Luxury 80x200 75.900 kr. 60.720 kr. Luxury 90x200 79.900 kr. 63.920 kr. Luxury 90x210 83.900 kr. 67.120 kr. Luxury 100x200 83.900 kr. 67.120 kr. Luxury 120x200 89.900 kr. 71.920 kr. Luxury 140x200 99.900 kr. 79.920 kr. Luxury 160x200 109.900 kr. 87.920 kr. Luxury 180x200 119.900 kr. 95.920 kr. Nature’s REST LUXURY heilsurúm með Classic botni ELEGANCE heilsurúm með Classic botni Stærð í cm Fullt verð m/ Classic botni og löppum Páskatilboð með botni og löppum Elegance 120x200 155.900 kr. 129.820 kr. Elegance 140x200 169.900 kr. 135.920 kr. Elegance 140x210 181.900 kr. 145.520 kr. Elegance 160x200 189.900 kr. 151.920 kr. Elegance 180x200 209.900 kr. 167.920 kr. Elegance 180x210 239.900 kr. 191.920 kr. 20% 20% Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði Í langan tíma hefur blasað við mannekla hjá Landspítala. Ein af ástæðum fyrir f lótta úr þessum mikilvægu starfsstéttum er vinnu­ tíminn. Vaktavinna er ekki fjöl­ skylduvæn og fátt í okkar samfélagi sem styður við fjölskyldufólk í þeirri stöðu. Það er viðbótarálag að finna út úr því hvar börnin eiga að vera þegar vaktirnar eru utan hefð­ bundins vinnutíma. Þau njóta ekki þess kosts eins og aðrar fjölskyldur að opnunartími leikskóla sé í takt við vinnutíma þeirra. Þetta hefur án vafa fælingarmátt á þá sem velja sér starf og aðstæður sem starfið býður upp á. Allt ætlaði um koll að keyra þegar því var hent fram fyrir stuttu að aðlaga þyrfti leikskóla betur atvinnulífinu. Gagnrýnt var að leik­ skólinn ætti ekki að þjóna atvinnu­ lífinu þegar raunveruleikinn er sá að verið var að hugsa um hag barna og fjölskyldna. Það er hagur barns­ ins að það sé festa í lífi þess en að ekki þurfi að finna út úr því stans­ laust hvernig eigi að leysa helgar­ vaktina og vakt sem byrjar örlítið fyrr eða síðar. Best er fyrir barnið að leikskóli geti lagað sig að lífi fjölskyldna og þörfum þeirra. Barn á þessum aldri gerir ekki greinarmun á því að vera í leikskóla á laugardegi eða mánu­ degi eða í fríi á sunnudegi eða mið­ vikudegi heima með foreldrum. Það vantar sárlega þjónustu sem er sveigjanlegri. Á næstu mánuðum munum við í Viðreisn í samstarfi við LSH beita okkur fyrir því að settur verði á laggirnar sérstakur leik­ skóli fyrir LSH í samstarfi við ríkið. Fyrirmyndir að slíkum leikskólum í nálægð við sjúkrahús sem eru sérstaklega ætlaðir starfsfólki má til að mynda finna á Norðurlönd­ unum. Við teljum rétt að sá skóli verði boðinn út til sjálfstætt starf­ andi aðila og tryggt að þjónustan verði á heimsmælikvarða líkt og er í leikskólum borgarinnar. Við viljum auka þjónustu við allt fjölskyldufólk í Reykjavík. Í framhaldinu má svo skoða hvernig hægt er að koma til móts við f leira starfsfólk í ólíkum fyrirtækjum og stofnunum þar sem hið hefðbundna módel þjónar ekki þörfum þess. Starfsfólk og stjórnendur leik­ skóla munu koma að vinnu við að útfæra þessa nálgun og þarfir barna í sveigjanlegri skóla verða tryggðir. Almennt er mikil ánægja með störf leikskóla og halda þarf í þau gildi sem unnið er eftir þó að ákveðnir skólar hafi þennan sveigjanleika. Gaman verður að eiga samtöl og samstarf um það hvernig leikskóli fyrir Landspítala getur þjónað hags­ munum bæði barnsins og foreldr­ um. Tímarnir breytast og við með og við viljum enn betra líf fyrir börn og fjölskyldufólk í Reykjavík. n Leikskóli fyrir Landspítala Þórdís Jóna Sigurðardóttir skipar 3. sæti á framboðslista Við­ reisnar í Reykjavík Íslendingar þurfa að ræða mun betur hvaða skyldur og ábyrgð fylgja ráðherraembættum og hvern­ ig útfærslan á að vera. Við getum ekki haft ráðherra þar sem spurn­ ingum er ósvarað um tiltekna gagn­ rýniverða hegðun þeirra og ákvarð­ anir. Það veikir stöðu ráðherranna, dregur úr trúverðugleika og gengur gegn almannahagsmunum. Þetta er lausleg samantekt á orðum Henrýs Alexanders Hen­ rýssonar siðfræðings sem hefur verið kallaður til álits í fjölmiðlum undanfarna daga vegna umdeildra orða og athafna ráðherra í ríkis­ stjórn Íslands. Rasísk ummæli Sigurðar Inga Jóhannssonar, innviðaráðherra og formanns Framsóknarf lokksins, eru alvarleg, en yfirhylmingin í kjöl­ farið var þó enn alvarlegri. Samt svo óþægilega kunnugleg. Þessi nálgun að bíða og vona að ekkert spyrjist út í stað þess að taka ábyrgð og klára málið. Svo þegar fréttir fara að leka af uppákomunni þá er einhver gerð­ ur út af örkinni til að afneita, segja ósatt. Þegar það dugar ekki, gerir jafnvel bara illt verra, þá kemur hálfvolg afsökunarbeiðni. Og gott ef það fylgir ekki með í umræðunni að almenningur þurfi að bera lærdóm af málinu. Við erum jú öll í þessu saman. Eftir situr laskaður ráðherra. Svo selja stjórnvöld banka. Ef það er eitthvað sem situr óupp­ gert í íslenskri þjóðarsál þá er það einkavæðing bankanna á árunum fyrir hrun. Það var því öllum ljóst að aðferðafræðin við bankasöluna núna yrði að vera hafin yfir allan vafa ef sátt ætti að nást um málið. Í ljósi þess hvernig til tókst er eðli­ legt að spyrja hvort ríkisstjórninni hafi einfaldlega verið slétt sama um þá sátt. Hvort heldur er, er söluferlið nú orðið að enn einu deilumálinu í meðförum ríkisstjórnarinnar. Ekki vegna upprunalegra markmiða sölunnar á Íslandsbanka, sem Við­ reisn hefur alltaf stutt, heldur vegna útkomunnar. Salan var mikilvægt skref í þá átt að losa um eignarhlut ríkisins í fjármálakerfinu en tákn­ rænt gildi hennar og siðferðisleg skilaboð skipta líka miklu máli. Bankasýslu ríkisins var falið, að höfðu samráði við Bjarna Bene­ diktsson, fjármálaráðherra og for­ mann Sjálfstæðisf lokksins, um tímasetningar, skiptingu áfanga og söluaðferðir, að tryggja að útfærslur á útboðsskilmálum yrðu í samræmi við greinargerð ráðherrans um söluna. Hvaða skilyrði voru sett í útboðinu til að tryggja dreift eign­ arhald og fjölbreytileika? Hvernig voru langtímafjárfestar skilgreind­ ir? Hvernig voru skammtímafjár­ festar skilgreindir? Af hverju var ekki sett skilyrði um orðspors­ áhættu, samanber almennt skilyrði um að stuðla að samkeppni? Stjórnarandstaðan á þingi ósk­ aði eftir aðkomu sérstakrar rann­ sóknarnefndar til að fara ofan í kjölinn á þessu máli en þingmenn stjórnarflokkanna kusu að fylgja ráðum fjármálaráðherra og leita til Ríkisendurskoðunar sem hefur ekki yfir jafnvíðtækum rannsóknar­ heimildum að ráða. Þar að auki var úr röðum stjórnarliða strax hafin sterk sókn gegn stjórn og forstjóra Bankasölunnar sem framkvæmdi söluna að beiðni og samkvæmt forskrift fjármálaráðherra sem ber ábyrgð á ferlinu. Bíða, afneita, finna blóraböggul. Sagan endalausa. Eftir að þingið er farið í páskahlé stígur svo Lilja Alfreðsdóttir við­ skiptaráðherra fram og upplýsir að ekki hafi verið hlustað á mótbárur hennar innan ríkisstjórnarinnar. Að hún hafi verið á móti aðferðafræð­ inni og viljað fara aðra leið við sölu bankans. Sem viðskiptaráðherra fer Lilja með samkeppnismál og hags­ muni neytenda. Hún situr að auki í ráðherranefnd um efnahagsmál. Þetta þýðir einfaldlega að ekki var samstaða innan ríkisstjórnarinnar um þá leið sem fjármálaráðherra valdi. Hagsmunir almennings kalla á að það verði upplýst í eitt skipti fyrir öll hvernig sú ákvörðun var tekin innan ríkisstjórnarinnar að selja Íslandsbankabréfin á afslætti til val­ ins hóps fjárfesta. Hin gamalkunna aðferð gömlu stjórnmálaaf lanna dugar ekki hér. n Laskaðir leiðtogar Hanna Katrín Friðriksson þingflokksfor­ maður Viðreisnar Starfsfólk og stjórn- endur leikskóla munu koma að vinnu við að útfæra þessa nálgun og þarfir barna í sveigjan- legri skóla verða tryggðir. Bíða, afneita, finna blóraböggul. Sagan endalausa. 18 Skoðun 12. apríl 2022 ÞRIÐJU- DAGUR FRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.